Leita í fréttum mbl.is

Orðið hagkerfi Trumps, líka [u]

Hinn sænskættaði Bandaríkjamaður Victor Davis Hanson, sagnfræðingur og bóndi, útskýrir kosningasigur Donalds J. Trump, stefnu hans, og klaustur hugans sem vinstri-geggjunarstefna nútímans hefur byggt. Þetta er bráðskemmtilegt og alls ekki nein klausturgerð

****

Í fyrradag skrifaði ég um að Repúblikanaflokkurinn væri nú orðinn flokkur Trumps og að það fjarar undan Demókrötum í komandi mið-kosningum (hér)

Í dag er það hins vegar Bandaríska hagkerfið sem ég fjalla um, þ.e líf allra og í öllum flokkum í Bandaríkjunum

Donald J. Trump hefur nú tekist að berja peningavitinu aftur í bandaríska hagkerfið á þann hátt sem vinstrimönnum gat ekki dreymt um vegna -að því er virðist- sjálfstortímingaráráttu eða jafnvel þess sem er enn verra, allsherjar uppgjafar. Trump er eini maðurinn með peningavit og reynslu í peningamálum sem Fed-seðlabankinn hefur séð settan af þjóð í stól forseta. Og nú er það hagkerfið líka, sem orðið er hans. Hvar sem leitað er, finnst varla hagvísir á annað en jákvæðan árangur. Obama afrekaði lélegasta 7-ára efnahagsbata frá því í Keppunni miklu, sem hófst 1929 og lauk aldrei vegna Demókrata við stjórnvölinn. Það þurfti stríð til að fá þjóðina til að þora að líta upp aftur. Og þannig var það undir Obama sem rak stefnu sem hét ónýtu þið og hinn snjalli ég - og Hillary, sem erfði því ónýtan flokk og þar með ekkert

Hagvöxtur er sterkur á bilinu þrjú til fjögur prósent. Atvinnuleysi er lágt og komið undir fjögur prósent. Meira en eitt starf er laust á hvern þann sem leitar að vinnu. Atvinnuþáttraka eykst. Atvinnuleysi blökkumanna er það lægsta síðan mælingar hófust. Laun hækka. Verðbólgan er að ná sér upp í eðlilegan hita, og vextir fara hækkandi, sem þýðir að peningar fá nauðsynlegt afl. Og Bandaríkin verða þess utan stærsti olíuframleiðandi heims á næsta ári, plús gas líka. Skattar hafa verið lækkaðir og kæfandi regluverk brennt til ösku og stendur sú aðgerð yfir enn. Og viðskiptahalli fer nú minnkandi, eins og er, og ólöglegum innflytjendum fækkar, en þar er stór slagur framundan ásamt áframhaldandi útrýmingu viðskiphalla, sem barinn verður niður og sendur úr landi til þeirra sem svo lengi hafa hagnast á kostnað Bandaríkjanna

Ég vinn fyrir fólkið 450

Mynd Sovétríkin: Dóu úr menntun með náttúruauðæfi upp í háls - "ég vinn fyrir fólkið" segir skiltið (OMG!). Svona er Ísland að verða og landsframleiðslan á hvern mann haggast varla lengur - og ríkið ræðst með fullum sovétisma á undirstöðuatvinnuvegina

****

Donald Trump hefur á 16 mánuðum snúið af öllum efnahagsstefnum Obama, eða lagt þær niður, og ógilt öll lög og reglur Obama, sem hann löglega gat, og þetta er árangurinn. Stolt, áræði, þor og trú voru vopnin sem Trump notaði. Og hann neitar að skammast sín fyrir að vera ríkur forseti sem berst fyrir litla manninn

Afl Trump-stefnunnar er slíkt að hagkerfið opnast eins og kampavínsflaska og gýs, segir í grein WSJ: Its Trumps Economy Now

Aldrei áður hefur neinn framkvæmt annað eins á svo stuttum tíma. Og Trump rekur teymi sitt miskunnarlaust áfram. Ef menn standa sig ekki og sýna forsetaembættinu ekki þá hollustu sem stjórnarskráin gerir ráð fyrir, þá er þeim sparkað út, öfugum. Allir forsetans menn eiga að vera forsetaembættinu túrir, en ekki þinginu né neinu öðru, nema lögunum. Það negldi Ulysses S. Grant fast, með sjö tommu saumi

Mánuð fyrir kosningar var forsíða Washington Post (sósíal-aðallinn) þakin af frétt þess efnis að ef Trump yrði forseti "gæti hann lagt efnahag heimsins í rúst" ("A President Trump Could Destroy the World Economy"). Og Paul Krugman sagði að "kjör Trumps myndi sennilega þýða heimskreppu án enda" ("We are very probably looking at a global recession, with no end in sight")

Það er nú það. Og enn er dag hvern beðið eftir nýjum Hitler - og sem á að hafa "fasíska framkomu". Öll pressa Vesturlanda og sem næstum öll er vinstrisinnuð, prentar og útsendir daglega skilaboð til þeirra sem þola ekki Trump, og kallar sig ekki neitt minna en Andspyrnuhreyfingin gegn Trump. Já þið lásuð rétt. Kallar sig ekki stjórnarandstöðu, heldur andspyrnuhreyfingu! Já vinstrið er gersamlega kolklikkað á okkar dögum og hefur algjörlega misst hið litla vit sem það hafði. Já alveg. Þar er bara allt galtómt núna og valdarán helst efst á lista þess

Holur hljómur sósíalismans í hverskyns litum og hasstöggum, breiðir úr sér yfir heimsbyggðina á Austurhveli jarðar. Sífellt færri hlusta á þá tómu tunnu lengur, enda bara tómt rugl í boði hins sama gamla gjaldþrota sósíal-aðals gáfumenna og síðast. Nú er rétti tíminn til að loka sveppahatta-háskólum Vesturlanda og opna bílskúrana, því þeir háskólar hafa sannað sig sem alþjóðleg plága á skattgreiðendum. Annars deyja lönd kvalarfullum dauða úr menntun, eins og Sovétríkin gerðu

Uppfært kl 20:52

G-7 fundinum lauk rétt í þessu og hér er blaðamannafundur með Donald J. Trump rétt áður en hann stakk af í Air-Force-One til að tala við rocketman Kim

****

"There is a special place in hell"..

Uppfært 22:23 og 23:43: En eftir að Trump var þotinn af stað til fundar við eldflaugmanninn Kim, áður en fundi var formlega slitið og sameiginleg yfirlýsing gefin út, skilst mér að kanadíski forsætisráðherrann hafi notað tækifærið til að baktala -og haft í hótunum við Bandaríkin- það sem forseti Bandaríkjanna og hópurinn hafði sæst á sem niðurstöðu, og sem varð þess valdandi að forsetinn neitaði að skrifa undir lokayfirlýsingu G7-fundarins

Associated Press G7 0618 eWall Street Journal segir að Peter Navarro yfirmaður Hvíta hússins í framleiðslu- og viðskiptamálum Bandaríkjanna hafi þá sagt fréttamönnum að: "það er sérstakur staður frátekinn í helvíti fyrir þá erlendu leiðtoga sem með illgjarnri diplómasíu stinga Donald J. Trump í bakið á leið hans út um dyrnar". "Þetta eru verst útreiknuðu pólitísku mistök leiðtoga Kanada í nýrri tíma sögu"... því að... "það var eingöngu af tillitssemi við Kanada að Trump hafði ákveðið að skrifa undir sósíalistíska yfirlýsingu fundarins", bætti Navarro við (WSJ hefur nú strokað síðustu tilvitnunina í PN út, sjá AP). Stuttu síðar kom svo fax frá Air-Force-One: tikk tikk tikk... skrifa ekki undir... bless DJT

Fyrri færsla

R orðinn flokkur Trumps


Bloggfærslur 10. júní 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband