Leita í fréttum mbl.is

Hans-Werner Sinn vill gjaldeyrishöft á evrusvæðið [u]

..I cant shake it, its gone too far.. jeps

Alltaf best að halda sig við einfalda hluti sem fólk skilur. Allir vitibornir Íslendingar skilja að krónan er best, því hún er best

****

1930. frétt af hættulegustu mynt veraldar

Hans-Werner Sinn efnahagsráðunautur þýsku ríkisstjórnarinnar og fyrrum forseti Ifo stofnunarinnar, leggur til að fjármagns- og gjaldeyrishöftum verði skellt á evrusvæðið, því ástand þess sé orðið óþolandi fyrir Þýskaland. Hann leggur til að höftum verði skellt á til að reyna að stöðva yfirdrætti seðlabanka evrusvæðis í þýska seðlabankanum, sem nú nemur billjón evrum (e. TARGET2 balance)

Í reynd myndu hugmyndir Sinns þýða úrsögn Þýskalands úr evru, því um leið og slík höft kæmu til framkvæmda myndi ein evra hætta að vera ein evra í öllum evruríkjunum og hún breytast í jafn margar útgáfur af evru, hver með sitt verðgildi. Ekkert samband yrði á milli þeirra

ECB-seðlabankinn á að sjá um, með tíð og tíma, að jafna út þessa yfirdrætti í TARGET2 greiðslukerfi evrunnar, sem er kröfukerfi þeirra seðlabanka sem standa að myntinni gagnvart hvor öðrum. En ef pólitískt kapítal ECB-seðlabankans gufar upp, þá verður ógjörningur fyrir þingmenn að skríða einu sinni enn og samstíga upp að altarinu á þingi heima og biðja skattgreiðendur í öllum evrulöndunum um að endurfjármagna eigið fé seðlabanka evru, sem er mjög lítið. Þeir flokkar sem reyna að klífa það fjall verða ekki beint vinsælir heima. Jæja væni minn, ertu kominn einu sinni enn að betla meira fé á bálið

Eruophiles (evruníðingar) segja það stórt vandamál að þýsk heimili hlusti á Hans-Werner Sinn, en það sé hins vegar ekkert að marka það sem maðurinn segir. En vandamál eruophiles er hins vegar það, að enginn í þeirra röðum hlustaði á þýsk heimili þegar evra þeirra var sjósett. Ný ríkisstjórn hinna ókjörnu á Ítalíu mun kannski redda þessu. Hvað haldið þið? Næsta skref þar gæti verið nýr Mussó, því engin kaupmáttaraukning hjá ítölskum heimilum í 30 ár er staðreynd sem erfitt er að höndla mikið lengur (16 ár hjá þýskum heimilum). Þetta endar að sjálfsögðu ofboðslega vel. Yfir-þýskir evrumenn á FAZ leggja því sitt að mörkum á bálið, með því að segja að sjálfsögðu verði að refsa Ítölum fyrir að 1) "kjósa rangt" og 2) að vera Ítalir. Já þetta endar vel

Næsta frétt af evrusvæðinu verður númer 1931. En þá kemur Jóhönnuhaus Samfylkingar út og slær Össur, sem svo slær Vinstra-grænt yfir í rautt, og svo koll af kolli hvers þingmanns sem sagði já, þar til hóru-bingó-band evrunnar á Íslandi orðið er Skjaldborg höfuðborgarinnar um nýja svifryks-stjórnarskrá, þar sem Landsréttur verður vonandi réttur dagsins alla daga. Upplýst skítapakk!

Sem sagt: Þjóðverjar vilja verjast evrunni með því að skella fjármagns- og gjaldeyrishöftum á allt evrusvæðið. Þetta var fyrirsjáanlegt, þar sem Þýskaland hefur nú lokið ryksugun á svæðinu

Uppfært: Í dag ákvað hins vegar ríkisstjórn Donalds J. Trump að skella tollum á stál- og álútflutning Evrópusambandslanda til Bandaríkjanna, en þau eru stærsti viðskipavinur Þýskalands vegna gengisfölsunar Þýskalands með evru, sem er ekki mynt, heldur pólitískur vafningur. Vanti Þýskalandi lægra gengi þá kveikir það bara í einu evrulandinu í viðbót og gámarnir hendast út úr þýskum höfnum áfram

Að tala er ekki það sama og gera

Fyrri færsla

Prússnesk Evrópa að myndast á ný


Bloggfærslur 31. maí 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband