Leita í fréttum mbl.is

Hvað stýrir Rússlandi - og Bretlandi ?

Ulysses S. Grant

Mynd: Ulysses S. Grant (U.S. Grant); hermaður og forseti. Vinstrisinnaðir sagnfræðingar reyndu síðar að skrifa þennan Repúblikana niður og næstum út úr sögunni, en tókst það ekki. Þeir eru enn gulir og grænir af öfund. Demókratar eignuðust aldrei neinn eins og Grant og geta líklega aldrei, því þeir eru næstum alltaf á rangri hlið mikilvægra mála og orðnir alþjóðlegir þrælahaldarar í dag; glóbalistar

****

Tyrkjaveldið (Ottoman-heimsveldið) féll saman í lok Fyrri heimsstyrjaldar. Bretland, Frakkland og Rússland deildu herfanginu upp í lönd - og landamæri þeirra snérust um olíu

Þegar U.S. Grant, hershöfðingi Lincolns forseta, lét af embætti sem einn mikilvægasti maður í sögu Bandaríkjanna og einn besti forseti þeirra, sem hinn átjándi, þá fór hann í heimsreisu og varð um leið fyrsti forseti Bandaríkjanna sem heimsótti Jerúsalem,- staðinn sem Lincoln dreymdi um að komast til, en komst ekki. Þá var borgin að þrotum komin, sagði Grant, og að mestu rústir einar eftir að hafa verið undir og í umsjá Tyrkjaveldis hundrað sinnum of lengi. Íbúarnir voru þá orðnir aðeins um 20 þúsund manns og rétt helmingur þeirra voru Gyðingar. Allt var í niðurníðslu sagði Grant. Þetta var 1869. Í dag er Ísrael, í umsjá Gyðinga, einn verðmætasti blettur jarðkringlunnar, með eigin geimferðastofnun og alles

Stuttu síðar byrja Vesturlönd að fara af kolum og yfir á olíu, en himnaríki heldur að sjálfsögðu áfram að keyra á réttlætinu einu saman, eins og það hefur alltaf gert. Fríðarráðstefnan í París 1919 gekk að miklu leyti út á að draga landamæri Mið-Austurlanda upp á ný, upp úr rústum Tyrkjaveldis. En áður en til ráðstefnunnar kom höfðu Bretar, Frakkar og Rússar mótað pólitískar stefnur sínar í þessum heimshluta með tilliti til olíu, sem þá var nýfundin og var að finnast í hreint ofboðslegum mæli. Það fór þó svo að Rússar komust ekki á Friðarráðstefnuna í París. En danski sendiherrann í Moskvu komst þó þangað, við illan leik, og reyndi að segja ráðstefnugestum frá því sem var að gerast í Rússlandi. Enginn trúði honum. En það var samt uggur í mönnum - og staðan enn óráðin, hvað varðaði framtíð Rússlands

Bretar, Frakkar og Rússar erfa sem sagt fall Tyrkjaveldis. Hinn iðnvæddi heimur er að fara úr kolum yfir á olíu. Svo kemur Síðari heimsstyrjöldin sem háð er á olíu. Og olíuverð fellur síðan niður í einn dal og sautján sent í febrúar 1946, að styrjöld lokinni, tunnan

Við tekur lágt olíuverð og þar af leiðandi miklar hörmungar í Sovétríkjunum, alveg fram til Yom Kippur stríðsins 1973. En þá byrjar hagur Sovétríkjanna heldur betur að vænkast, því þá, já þá, nota arabísku olíuríkin olíu sem vopn á Vesturlönd í fyrsta sinn. Þá settu þau vestrænu ríkin sem studdu Ísrael í olíubann og tóku efnahag Vesturlanda hálstaki. Þarna lifnaði heldur betur yfir Leonid Brezhnev-genginu í Kreml, því olíuverð rauk frá 10 dölum tunnan og upp í 110 dali á næstu 12 árum (á 2013 verðlagi). Þarna var Sovétríkjunum loksins gert kleift að kaupa sér inn stóran hluta heimsins. Gekk sovéski olíuiðnaðurinn svo vel að Brezhnev-gengið réðst inn í Afganistan á hundheiðinni sovéskri jólabensíngjöf 1979

Og í kjölfar Yom Kippur lifnaði heldur betur yfir Bandaríkjamönnum líka, en þó á dapurlegum nótum. Þeir gerðu sér þá í fyrsta sinn fyllilega ljóst mikilvægi breska arfsins sem þeir höfðu erft. Þeir urðu að gerast verndari Sádi Arabíu, fyrst að Bretland, sem fór næstum því með sig í þrot til varnar hinum siðmenntaða heimi, gat ekki lengur sinnt hlutverkinu sem verndari olíubirgða Vesturlanda. Bandaríkin urðu að taka að sér verndarhlutverkið sem áður var á breskum höndum og gæta olíubirgða Vesturlanda í Arabíu. Og það gerðu þeir. Bandaríkin vörðu þær gegn Sovétríkinu. Vörðu þær gegn Klerkaveldi Íran. Og vörðu þær gegn Saddam Hussein - og aftur

Aftur yfir til sovétríkjanna: En svo tók að halla undan sovéskum gullfæti olíunnar, því olíuverð byrjaði að falla snemma árs 1982 og hélt áfram að falla -næstum án afláts- næstu 17 árin. Á því tímabili hrundu Sovétríkin eins og spilaborg. Fyrst dó Brezhnev og getulaus Andropov tók við. Síðan dó hann og þá tók getulaus Chernenko við og dó í hvelli. Svo kom vesalings Gorbachev og fúttaði Sovétríkjunum af á 38 dölum tunnan, árið 1991. Og þá kom svo Boris Yeltsin keyrandi á vodka til hörmungarvalda því olíuverðið var komið niður í 28 dali tunnan og Rússland að brasa saman sem ríki. Það er svo ekki fyrr en Pútín kemst til valda að um einhver veruleg völd er að fást, því hann er svo heppinn að olíuverið hafði byrjað að hækka -eins og hjá Brezhnev- árinu áður, eða 1998. Pútín ríður svo á hækkandi olíuverði sem veitir honum síaukin völd fram til ársins 2012 og hann réðst inn í Georgíu og meira til, frá og með 8. ágúst 2008 (en Medevev var svo látinn taka samdráttinn í olíuverði 2009 til 2013). Þegar svo Pútín mætir aftur í vinnuna árið 2012, þá er olíuverið byrjað að falla úr 118 dölum tunnan og það hélt áfram að falla niður 28 dali tunnan 2016. Rússland er því komið í álíka stöðu og í aðdraganda falls Sovétríkjanna. Þurrkur er hroðalegur í rússneska ríkissjóðnum

En svo gerist það árið 2016 að Bretland ákveður að yfirgefa Evrópusambandið. Bretland hafði gengið í Evrópusambandið árið 1972 til að sundra því innanfrá. Það tókst ágætlega og svo fór, að árið 2016 sýnist Bretlandi þannig vera komið, að betur gangi að stúta restinni af Evrópusambandinu utan frá. Og það er það sem við sjáum í dag. Blekið er meira að segja varla byrjað að þorna á nýjum varnarsamningi Bretlands og Póllands - og engin flothæf skip verða því byggð í Stettin fyrir nein ESB-ríki. Deilum vér í sundur sundur og drottnum. Þetta! er gaman

Pútín potar úr austri í Vesturlönd og Bretland leiðir pot Pútíns með jarðkapli áfram beint yfir í ESB. Þar fær ESB eins konar endastuð frá Bretlandi í gegnum kapal sem ætti ekki að vera til, en er það samt. Sprikla svokölluð yfirvöld Evrópusambandsins nú kjarnaklofin á þriggja fasa kapli breska heimsveldisins, sem telur Bandaríkin líka. Og það styttist í að Þýskaland bregðist reglubundið við og hefji þann vígbúnað sem Trump kallar svo á. Og þá flýr restin af meginlandinu öskrandi burtu úr þrotabúi ESB. Svo hlægja Bretar, Rússar og Bandaríkjamenn saman um leið og Tyrkland breiðir úr sé upp Balkanskagann á ný, en sem er ekki í Evrópu, eins og ESB tilkynnti umheiminum þegar það hentaði því. En verður það þá svo? Mun þá Balkansagi ekki skyndilega tilheyra Evrópu á ný? Ég bara spyr

Flest í sambandi við olíubirgðir Vesturlanda í Arabíu er nú búið mál. Arabía hefur misst olíuvopnið á Vesturlönd, vegna tækniframfara í U.S.-landi Grants. Það vopn er nú aðeins hægt að nota til að koma tímabundnum verðhækkunum í kring. Og það vopn verða Rússar helst að komast yfir sem fyrst, því annars er Rússland búið að vera. Hvað skyldi nú Sádí ætla að gera fyrst að hið bandaríska vogarstangarafl þeirra er að hverfa svona hratt?

Pota ég því og pota - og gengur það bara ansi vel .... pota ég og pota

 

Hreyfimynd 18 þúsund hestafla: Borgar(a)lína Donalds J. Trump - á bandarískum dísil. Hver skriðdreki vegur 65 tonn. Á sex mánuðum flutti bandaríski herinn 12 milljón tonn hergagna til varnar olíubirgðum Arabíuríkja - hinum megin á hnettinum. Þau eru eina ríki jarðar sem fært er um slíkar aðgerðir, hvar sem er, hvenær sem er

****

Fyrri færsla

Ísrael viðurkennir að hafa grandað kjarnorkuvopnasmíði Sýrlands 2007


Bloggfærslur 27. mars 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband