Leita í fréttum mbl.is

Evrópa ætti að stóla á hernaðarmátt Pútíns

Þar sem stærsti hluti meginlands Evrópu (ESB) stólar á orku frá Rússlandi, er þá ekki eðlilegt að Evrópusambandið stóli einnig á Rússland þegar að hervörnum kemur? Genetískt harðræðisstjórnarfar sameinar Rússland og Evrópusambandið um sama málstaðinn; að halda nýlenduveldi sínu, sem á fagmáli kallast stuðarasvæði (e. buffer zone). Hinn svo kallaði "innri markaður" og evran er stuðarasvæði Þýskalands og einnig Frakklands og hefur hann ekkert með efnahagsmál að gera, nema á auglýsingaskiltum fyrir nytsama kjána. Stjórnarfarið er jú að verða það sama í báðum stuðarasvæðum ESB og Rússlands, og það gengur út á að verjast sjálfsákvörðunarrétti þjóða, með öllum tiltækum ráðum. Kosningar í Rússlandi og Evrópusambandinu eru farnar að líkjast það mikið að bráðum verður hægt að nota sameiginlegan her til að halda kjörstöðum og flokkum frá því að spillast af vestrænu lýðræði. Við skulum ekki tala um bandarískar kosningar og langa blaðamannafundi með þjóðkjörnum forseta fólksins. Slíkt væri nú aldeilis voðalegt ástand fyrir ESB, þar sem enginn er kjörinn

Ákall Emmanuel Macrons ESB-bankaforseta Frakklands um Evrópusambandsher til meðal annars að "verjast Bandaríkjunum"(klikk gong zapp) hlýtur að kalla á spurningar frá alþjóðasamfélagi geðlæknisfræða í co2 gasfræðum (COII). Eins og til dæmis þeirrar spurningar hvers vegna fyrrum forseti Frakklands sagði landið úr þeim eina Evrópuher sem meginland taparanna hafði; þ.e. NATO. Þáverandi franski forsetinn sagði að Bandaríkin myndu ekki koma Frakklandi né Evrópu til bjargar og hvatti með úrsögninni önnur lönd í NATO til að fylgja sér út. En í stað þess að fylgja Frakklandi út, þá trylltust þau úr ótta og það kostaði Bandaríkin endalausan stríðresktur í Víetnam að sannfæra Evrópu um að þau yfirgæfu ekki vini sína, sama hversu illa gengi, og að þau væru meira að segja fær um að glíma risaglímur á tvennum órafjarlægum vígstöðvum, samtímis. Á fínu máli fór Víetnamstríðið því að snúast um trúverðugleika Bandaríkjanna umfram allt annað. Langt umfram strategísk sjónarmið og það var DeGaulle að kenna. Evrópa heimtaði staðfastan bandamann sem verndað gæti meginland taparanna

Frá því að Donald J. Trump kom til valda hafa Bandaríkin aukið fjárframlag sitt til varnarmála í Evrópu úr 789 milljón dölum fyrir Obama-árið 2016, upp í 4,7 milljarða dala á þessu ári og á næsta ári verður það 6,3 milljarðar dala. En ekki nóg með það þá ætla Bandaríkin að eyða 400 milljörðum dala í að endurnýja þá kjarnorkuvopnaregnhlíf sem Evrópa hvílir undir. En hér má auðvitað koma ESB undir rússnesku regnhlífina líka. Hví ekki það, hljóta menn að spyrja sig að, nú þegar þýsk stjórnmál eru að sigla Evrópu inn í enn eitt þýska brjálæðiskastið, sem landið tekur á Evrópu á cirka 50 ára fresti. Þýskaland er þekkt sem mesta geðbilunarríki mannkynssögunnar ásamt Rússlandi. Þau hljóta bara að fara að smella saman á ný

Hið svo kallaða alþjóðlega rafræna skilaboða- og pantanakerfi fyrir greiðslur á milli banka, SWIFT, hefur nú kastað handklæðinu í hringinn í aðalstöðvum sínum í Belgíu, og mun útloka skilaboð um yfirfærslupantanir til og frá mörgum írönskum bönkum að kröfu Bandaríkjanna, sem eru að reyna að koma í veg fyrir að íslamska klerkaveldið komi sér upp kjarnorkuvopnum. En þá bregður svo við að hinn hálf-rússneski orkuneytandi, ESB, með fyrrverandi sósíaldemókratískan Schröder við kranann í Moskvu, segist ætla að koma sér upp intra-kerfi (já flest heitir intra-eitthvað í lokuðum harðstjórnarríkjum) sem á að annast greiðslur á milli Evrópusambandsins og Íran og þannig koma í veg fyrir að Bandaríkin geti lokað á leið Brussels inn í klerkaveldið. En stóra vandamálið er það að ekkert ESB-ríki þorir að hýsa greiðslukerfið af ótta við þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna. Hvorki Frakkland sem heimtar ESB-her til að verjast Bandaríkjunum, né Þýskaland á leið inn í sitt gamla genetíska hel, þora því

Jamen, dét er jo bare dejligt, simpelthen dejligt!

Fyrri færsla

Forseti Frakklands alvarlega veikur á geði ?


Bloggfærslur 8. nóvember 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband