Leita í fréttum mbl.is

Hćstiréttur Bandaríkjanna aftur á réttri leiđ

Oath Ceremony - The Honorable Brett M Kavanaugh

Mynd, Hćstiréttur Bandaríkjanna: Ashley eiginkona Brett M. Kavanaugh heldur á Biblíunni á međan eiginmađur hennar sver embćttiseiđ hćstaréttardómara. Dćtur ţeirra fylgjast međ

****

Í fyrsta sinn frá ţví í Kreppunni miklu 1934, er hćstiréttur Bandaríkjanna nú skipađur íhaldssömum dómurum ađ meiri hluta til. Allar götur frá ţví ađ New Deal stefna Roosevelt forseta var sett, hefur rétturinn ađ meiri hluta til veriđ skipađur dómurum sem hölluđu sér meira til vinstri og gerđu ríkinu mögulegt ađ ţenja sig meira og meira út og yfir líf borgaranna. Fyrir Bandaríkin hefur ţetta ţýtt meiri völd til alríkisstjórnarinnar í til dćmis efnahagsmálum, međ ţeim afleiđingum ađ ríkiđ blés út, skattlagning, opinber eyđsla og skuldasöfnunum jókst, ţví rétturinn jók völd ríkisins yfir ţeim málum. Margir, en samt of fáir, vita ađ stjórnarskrá Bandaríkjanna gengur ađ miklu leyti út á ađ halda ríkisvaldinu í skefjum. Ţađ mun líklega gerast í meira mćli en veriđ hefur hin síđustu 84 ár, frá og međ í gćr, ţegar efri deild ţingsins skipađi Brett Kavanaugh sem nýjan hćstaréttardómara. Ţetta mál er ein af ástćđunum fyrir ţví ađ Donald J. Trump var kjörinn 45. forseti Bandaríkjanna í nóvember 2016, ţrátt fyrir reynsluleysi í stjórnmálum og opinberum störfum

NATO

Fastafulltrúi Bandaríkjanna í NATO, frú Kay Bailey Hutchison frá Galveston í Texas, sagđi ađ Bandaríkin myndu íhuga međ fyrirbyggjandi hernađarađgerđum ađ granda međaldrćgum eldflaugum Rússlands á jörđu niđri í Rússlandi, haldi Rússar áfram ađ brjóta 1987-ABM INF-eldflaugasáttmálann međ ţróun nýrra međaldrćgra eldflauga sem ná til landa Evrópu. En ţađ er ţađ sem Rússar hafa veriđ ađ gera. Fyrirbyggjandi hernađarađgerđ gegn Rússlandi í Rússlandi er ţví á borđinu. Ţarna eru Bandaríkin ađ segja viđ NATO-lönd Evrópu og sérstaklega Ţýskaland; takiđ ykkur saman og leysiđ ţetta mál sjálf, eđa viđ sláum til, og ţá er úti um viđskiptahagsmuni ykkar og Rússlands

KÍNA

Screen Shot 2018-10-05 at 09.10.42

Mynd: Wall Street Journal

Fréttir um ađ kínverski herinn hafi komiđ fyrir njósna- og hryđjuverkabúnađi í tölvuvélbúnađi sem framleiddur er í Kína og sem seldur er um allan heim, geisa nú víđa um jörđ. Hlutabréfin í kínverska Lenovo tölvuframleiđandanum hrundu samstundis um 20 prósent á markađi í Hong Kong. Um er ađ rćđa örgjörva á stćrđ viđ hrísgrjón á tölvumóđurborđum og sem er á valdi kínverska hersins, sem nćr ţannig algerlega valdi yfir tölvubúnađi og stýrikerfum, reynast fréttirnar réttar. Tćknileg forskrift og forsendur nútíma-tölvunar eru fyrir löngu brostnar. Ţar hefur lítiđ tćknilega nýtt gerst síđan 1950 er bandaríski herinn fann tćknina upp. Framtíđin mun ekki byggja á ţeirri tölvun sem uppfundin var í Kalda stríđinu

GAMLI HEIMURINN

Allar ţrjár meiriháttar pólitísku einingar á landmassa Evrópu-Asíu eru nú runnar inn í óafturkrćft upplausnarferli, ađ Indlandi undanskildu. (1) Rússland sem leystist upp 1918 og 1991 er á ný ađ leysast upp sem ríki. Ţví er spáđ ađ Rússland leysist upp á ný sem ríki áriđ 2025, eđa jafnvel fyrr. Hvort ađ Rússland endar ţá lífdaga sína sem misheppnađ ríki, er ekki gott ađ segja, en of margt bendir ţví miđur til ţess. (2) Haustriđ 2008 afhjúpađi, eins og hendi vćri veifađ, tilgangs- og getuleysi Evrópusambandsins sem pólitísku yfirríkis- og efnahagslegu misfóstri yfir flestum löndum Evrópu. Sambandiđ rann ţá inn í óafturkrćft upplausnarferli og sem er ađ verki hvern einasta dag ársins í öllum löndum ţess núna. Ţannig verđur ástandiđ ţar áfram, ţar til sambandiđ ađ mestu leyti er uppleyst. Styttist í ađ ađvörunarmerki eins og eru á sígarettupökkum prentist á evruseđla í hugum fólksins. (3) Kína fór inn í upplausnarferli sitt í beinni útsendingu á Torgi hins himneska friđar áriđ 1989. Ţar valdi Kommúnistaflokkurinn skilgetiđ afkvćmi sitt án samráđs viđ fólkiđ. Kína er ţví komiđ inn í upplausnarferli sem endar međ ţví ađ landiđ klofnar í minni einingar. Ţađ ferli er ađ verkum hvern einasta dag ársins núna og nćstu mörg árin. Einkennin eru međal annarra sívaxandi einrćđi, kúgun, efnahagsleg eyđni og upplausn, fjármagnsflótti og hersýningar gagnvart nágrannalöndunum. Svo seint sem í síđustu viku var blađamanni hins evrópska brandarablađs Financial Times um efnahagsmál, neitađ landgöngu í Kína

STRAUMHVÖRF

Bandaríska hagkerfiđ hefur nú kúplađ sig frá ţeirri efnahagsţróun sem ríkir á hinum pólitískt misheppnađa landmassa Evrópu-Asíu. Engin vötn Bandaríkjanna renna nú til sjávar ţar. Svona klár ađskilnađur hins Nýja heims frá Gamla heiminum í stjórnmála- og efnahagsţróun, hefur ekki sést frá ţví ađ Ronald Reagan var forseti Bandaríkjanna. Leita ţarf jafnvel enn lengra aftur eftir samanburđi. Margt bendir til ađ krypplandi afturhaldsfjötrar hnattvćđingar hafi nú ţegar ađ töluverđu leyti slitnađ. Landmassar hins Gamla og Nýja heims eru ţví ađ skiljast ađ. Gamli heimurinn er brotna upp og er byrjađ ađ rjúka úr honum einu sinni enn. Frámunalega barnaleg stefna íslenskra stjórnvalda í utanríkismálum, hina síđustu áratugi, liggur ţví sem ein samfelld og rjúkandi rúst núna

Fyrri fćrsla

Repúblikanar ađ vakna upp viđ 1984-ástand?


mbl.is Kavanaugh samţykktur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 7. október 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband