Leita í fréttum mbl.is

Rafmagnsknúið fávitahæli

Allir vita að leggja þyrfti umhverfi plánetunnar í rúst ef rafvæða ætti iðnaðarríki veraldarinnar. Og ef rafbílavæða ætti þau. Þetta vita allir sem hugsa. Þetta ER vitað

Nú eru rétt rúmlega 10 ár liðin frá því að stjórnmálamenn Evrópusambandsins og einnig Íslands komu og sögðu okkur öllum að dísilknúin ökutæki ættu að bjarga plánetunni og sérstaklega ef matvælum væri bætt út í eldsneytið. Ég lokaði því eyunum og bannaði dísli á mínu heimili

Það passar því upp á afskafin veiðihár stjórnmálamanna þessara sömu landa, að ráðgjöf og ráðsnilld þeirra er nú verið að banna aðeins 10 árum síðar. Þetta fólk fékk svimandi há laun fyrir að eitra fyrir kjósendum sínum af því að Evrópusambandið laug því að þeim að þetta væri svo gott. Og þeir niðurgreiddu meira að segja fávisku sína

En hér var aðeins um ESB-þýskt sölugas að ræða og ráðherrar drukku dísil þeirra hráan. Jafnvel umhverfisfasista-kynstofn þessara ríkja át og drakk þetta hrátt svo blár varð allur sá kynstofn í framan og grænmyglaður að innan. Ef þú sérð blámenni á ferð í dag, þá eru þar einungis hinir sömu umhverfðu umhverfissnillingar á ferð í leit að nýju dópi

Þetta minnir mig á málarann sem var að mála og fegra innkeyrsluna og hliðstöplana sem eru fyrir utan viss ráðuneyti í dag. Hann tók niður nýjasta skiltið sem á stendur Umhverfisráðuneytið. Undir því skilti var annað skilti sem á stóð Heilbrigðisstofnun. Og undir því skilti var annað skilti sem á stóð Geðdeild. En þegar hann snéri því skilti við og skóf málninguna af því, þá stóð þar letrað Fávitahæli á góðri íslensku og Galeanstalt á dönsku

Velkomin á Galeanstalt stjórnmálamanna. Það sem einkennir það fólk er tímaþröng. Þess vegna vita þeir of oft ekkert og fá hæstu laun fyrir að vita ekkert og helst að geta ekkert, - nema flögrað dómgreindarskertir um, sem nokkurs konar umhverfismálaráðherraínur. Hér á eru voru þó vissar undantekningar til

FÍFL !

Fyrri færsla

Afsagnar Bjartar Ólafs­dótt­ur um­hverf­isráðherra beðið


Bloggfærslur 2. ágúst 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband