Leita í fréttum mbl.is

"Getum ekki liðið þennan eignaójöfnuð“ (varúð: eignarnám framundan)

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

VÖRNIN ER ÍSLENSKI FÁLKAFLOKKURINN

"Vér eigum ekkert eftir, nema öskur", er það sem Samfylkingarflokkar eru að segja við kjósendur hjér á ráðstjórnarútvarpinu

Síðasta hálmstráið í þrotabúi vinstri flokka: þínar eigur í þjóðareign!

Kosningarnar núna snúast ekki um krónur og aura. Þær snúast um öskur. Um vanmátt og reiði vinstrimanna yfir að hafa selt sálu sína. Án þess að vita það keyrir vinstrið um kosningavöllinn í hugmyndafræðilegum þrotabúsvagni, sem orðinn er bensínlaus. Allar pólitískar hugmyndir samfylktra vinstrimanna eru gjaldþrota:

Samruninn varð að millistétt hent á fjóshaug líberalisma
Evrópusambandið varð sovét.v2 á mýkingarefnum
Evran varð að harðstjórn og Stalín
Alþjóðavæðing sósíaldemókrata varð þyrniböllur á verkalýð - og 30-60 prósent standard-atvinnuleysi í ESB
Regluverkið varð að moskum og vaxandi borgarastyrjöld
Verkalýðshreyfingin varð andþjóðlegt-alþjóðlegt kartel sem borðar kökuverk ESB

Þeir hafa því ekkert að berjast fyrir, nema skítkasti og framskriðnum öskur-hugmyndum sem farnar eru að daðra við eignaupptökur, fjárkúgun, landsölu og brunaútsölur á hófstilltri pólitískri umgengni við sannleikann. Borgarnesræðan er orðinn stjórnmálaskóli í Eignarnámi og skráningu nýrra Sósíalistaflokka

Eftir að hafa svikið kjósendur sína í samfellt 30 ár, rústað vinnumarkaði og selt lönd sín og gersemar, er það fáa sem sölumönnum Samfylkingarflokka dettur í hug núna, er að taka eigurnar af þeim sem eiga þær. Nota á hugtakið "eignajöfnun" til að breiða yfir eignaupptökur og eignarnám a la ESB, þar sem peningaleg fjárkúgun ræður yfir ríkjum. Allt þitt skal sett í þjóðareign. Þú átt að verða auðlind þessara flokka

Halda mætti að Samfylkingin hafi setið í partý hjá franska forsætisráðuneytinu sem varpar nú fram hugmyndum um eignarupptökur til að leysa skuldavanda evrulanda, sem evran bjó til

Hin fánalausu þrotabú Samfylkingarflokka Evrópu segjast ekki geta liðið að aðrir eigi eitthvað heilagt á meðan hún á ekkert nema það sem hún skuldar kjósendum sínum um allar brunarústir Evrópusambandsins, sem er þeirra algerlega eina heilaga rúst. Þér skal varpað þangað. Þú átt að verða fiskurinn í þeirra neti. Gættu að þér kjósandi góður, annars lendir þú í þjóðareign

Fyrri færslur

Ummæli þingmanns um símtal Donalds Trump útskýrð

Bretland ekki með í komandi eignarnámi evrulanda


Bloggfærslur 21. október 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband