Leita í fréttum mbl.is

Svínaflói Samfylkingar í ESB-Víetnam styrjöld gegn Íslandi


Allir vita að myntin evra er dauðadæmd sem gagnlegt fyrirbæri. Allir vita nú að myntbandalaginu var logið inn á þjóðir ESB. Allir vita að myntin evra hefur ekki gagnast neinum nema Þýskalandi og hugsanlega Frakklandi. Evran hefur gert önnur lönd evrusvæðis að einka-útflutningsmarkaði Þjóðverja. Þeir einir geta keppt á forsendum myntbandalagsins. Líkja má þessu við nýrri en nú innvortis nýlendustefnu innan Evrópu. 

Allir vita að ESB-aðild hefur ekki fært neinum neitt. Það sjáum við vel á Grikklandi eftir 28 ára veru landsins í ESB og svo á Spáni. Þetta sjáum við líka á Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku. ESB aðild hefur ekki gagnast þessum löndun hið minnsta, en hinsvegar stórskaðað Finnland því landið álpaðist til að taka upp myntina ömurlegu í hysterísku hræðslukasti seint á síðustu öld. 

Í Finnlandi var samdráttur landsframleiðslu á síðasta ári enn meiri en á Íslandi og landið þjáist enn af samdrætti í landsframleiðslu. Leita verður aftur til 1918 til að finna álíka slæmar hagtölur og skullu á Finnlandi á síðasta ári. Myntin gagnslausa og aðild Finna að ESB er hér helsti sökudólgur.  

Allir vita að myntin evra hefur eyðilagt mikið fyrir litlum ríkjum evrusvæðis.
 
Allir vita að það að reyna að taka upp evru þegar maður heitir ekki Þýskaland eða Frakkland, þýðir að heyja verður eins konar Evru-Víetnam styrjöld gegn þjóð sinni. 

Það er auðvelt að hefja upptökustyrjöldina, en um leið og hún er hafin er engin leið út úr styrjöldinni aftur. Smáþjóðir há þessa styrjöld jafnvel áratugum saman án þess að nokkuð gangi. Þær fara í stríð við hagkerfi sín og þær berja þjóðfélög sín sundur og saman til þess eins að taka upp mynt sem reynst hefur smáríkjum verri en engin.

Svona fyrirbæri er aðeins hægt að líkja við léleg trúarbrögð. Evru-upptökustyrjöldin minnir á Víetnam styrjöld Bandaríkjamanna á síðustu öld. Hún reyndist löndum sem kirkjugarður ríkisstjórna. Svo mun einnig verða á Íslandi.

Hér er svona áráttu og þráhyggju lýst vel í bíómynd Oliver Stone; stúdentinn ungi færir Richard M. Nixon nýjan sannleik á einfaldan hátt. Sannleik sem hafði tekið hinn vel þjálfaða stjórnmálamann Richard Nixon áratugi að skilja. Svona fattsöm þyrfti Samfylkingin á Íslandi að verða.
 
Úr NIXON: (skrúfið vel upp fyrir hljóðið) 

Um helgina rann þessi sannleikur upp fyrir Sjálfstæðisflokknum (xD). Því ber að hrósa og fagna. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar áfram að vera Sjálfstæðisflokkur Íslands.
 
En Samfylkingin er hins allra vega blinduð af ESB-trú sinni. Samfylkingin á sér litla von. Hún mun líklega aldrei fatta neitt. Meðhjálparar hennar, Vinstri grænir, minna okkur svo eftirminnilega á hversu heiðarleiki stjórnmálamanna getur farið fyrir svo óskaplega örlítið og jafnvel ekki neitt. Þeim er mikil vorkunn. 

Þjóðin vill ekki ESB. Alþingi vill ekki ESB. Af hverju heldur þessi ESB-styrjöld gegn þjóðinni þá áfram? Ég spyr. 

Á skammbyssa Samfylkingar og hugleysi Vinstri grænna að ráða lýðveldinu Íslandi áfram? Á að leyfa þessu fólki að halda áfram að selja lýðveldi og þjóðríki okkar til kratamiðstöðvar Evrópu fyrir aðeins nokkur ár í ráðherrastólum? Selja landið okkar?
 
Fyrri færsla
 

Bloggfærslur 29. júní 2010

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband