Leita í fréttum mbl.is

Pólland kaupir bandarískt Patriot-eldflaugavarnarkerfi

Pólland undirritar Patriot kaupsamning

Mynd: Reuters: Pólski varnarmálaráðherrann, Mariusz Blaszczak, undirritar Patriot-kaupsaming við Bandaríkin

****

Andrzej Duda forseti Póllands hefur undirritað stærsta vopnakaupasamning Póllands nokkru sinni. Um er að ræða Patriot eldflaugavarnarkerfi sem kostar 475 milljarða króna. Kerfið mun snúa að Rússlandi. Pólland hefur verið að byggja upp landvarnir sínar frá því að það komst undan tortímandi hernámi Sovétríkjanna, sem varaði í 44 ár, eftir fyrst að hafa verið hernumið og eyðilagt af Þjóðverjum í 7 ár. Bandaríska varnarmálaráðuneytið samþykkti í nóvember vopnasölu til Póllands fyrir að minnsta kosti 1050 milljarða króna á næstu árum. Þetta er fyrsti hlutinn. Næsti hluti verður stækkun á Patriot-eldflaugavarnarkerfinu ásamt 360-gráðu ratsjárkerfi. Yfirmaður pólska hersins, Leszek Surawski, segir að með þessu sé Pólland að færast nær fyrsta flokks landvörnum og verði hér með sterkari hluti NATO-vængsins sem snýr austur. Rúmenía ákvað einnig í nóvember að festa kaup á Patriot-eldflaugavarnarkerfinu, sem alls sex NATO-ríki hafa. Pólland er eitt af þremur NATO-ríkjum Evrópu sem uppfylla sáttmálabundnar fjárframlags-skyldur sínar við NATO. Hin ríkin eru Bretland og Rúmenía. Tvö önnur evrópsk NATO-ríki teljast vera nálægt því að uppfylla skuldbindingar sínar. Þau eru: Eistland og Grikkland

Sama dag, en hinum megin landamæra Póllands í vestri, gáfu þýskar stofnanir út leyfi fyrir nýrri gaslögn á milli Rússlands og Þýskalands. Hún auðveldar Rússlandi að hertaka Úkraínu og Pólland, ef til þess skyldi koma. Lögnin liggur um Eystrasalt og gefur Þýskalandi kost á að þrífast vestan við pólskan varnarmúr, þó svo að Pólland og Úkraína séu undir rússneskri árás. Orkuleiðslan kyndir upp tilvistaráhættu fyrir Pólland. Pólsk yfiröld hafa gagnrýnt Þýskaland harðlega fyrir að haga málum sér í hag á þennan hátt, en Póllandi og Úkraínu viðvarandi í óhag

Breska innanríkisráðuneytið er nú að hefjast handa við að endurskoða dvalarleyfi 700 rússneskra auðmanna sem leyft var að búsetja sig í fjárfestingaskyni í Bretlandi á árunum fyrir 2015, uppfylltu þeir kröfur um minnst tveggja milljón punda fjárfestingar í landinu. Bretar eru nú að yfirgefa Evrópusambandið og lögsögu þess

Í dag er Evrópusambandið á lífi vegna annarra. Það lifir á náð annarra í flestum efnum. Það hefur ekki þá eftirspurn sem þarf til að geta lifað í hagsæld og öryggi. Hagsæld verður ESB að sækja til viðskiptavina fyrir utan sambandið og veltir það þar með efnahagslegum byrðum yfir á aðra í formi eigin viðskiptahagnaðar, sem til verður með því að aðrir eru látnir sitja uppi með mikinn viðskiptahalla. Þýskaland er verst í þessum efnum. Það er með stærsta viðskiptahagnað nokkurs ríkis í heiminum og er það fyrst og fremst vegna gengisfölsunar og innvortis gengisfellinga gagnvart þeim ríkjum sem eru í handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við það (evran). Evrópusambandið hefur ekki orku til að halda hita á fólki og fyrirtækjum landanna gangandi. Rússland sér sambandinu fyrir orku að miklu leyti. Evrópusambandið getur heldur ekki varið og verndað líf borgarana og eigur þeirra gegn ógnum utan frá, og heldur ekki gegn ógnum sem koma innan frá og svo þeim ógnum sem illa grunduð tilvist sjálfs Evrópusambandsins skapar

Dagar Evrópusambandsins eru nú brátt taldir, því enginn bað um það nema fámenn elíta og nokkrir falskir þýskir fræðimenn, sem töluðu þjóðríkin miskunnarlaust niður sem göfugar stofnanir á sjötta áratug síðustu aldar, í einmitt þeim rústum sem þýsk heimspeki þeirra hafði komið til leiðar. Hefur sambandið nú skapað svo margar hættur og grafið undan velmegun, öryggi og friði í álfunni að ríkin eru hætt að taka mark á Evrópusambandinu vegna skaðsemi þess. Nú er svo komið að afkastið af eignarhlutum í 500 stærstu fyrirtækjum evrusvæðis á síðustu 12 mánuðum, er mínus eitt prósent. Helmingur tekna þessara 500 stærstu fyrirtækja evrusvæðis koma frá löndum utan myntsvæðisins og eru í Bandaríkjadölum, sem undirstrikar aðeins fáránleika og gagnsleysi evrunnar sem myntar. Hefur evran eftir aðeins 17 ár í umferð þrýst mörgum evru-löndum fram að brún þjóðargjaldþrots. Sum þeirra eru svo veikluð og sködduð að óvíst er að þau lifi af án þess að fara í nauðsynlegt þjóðargjaldþrot

****

Myndband: Rick Wakeman flytur í einleik hluta verks síns Leyndardómar Snæfellsjökuls, sem samið er í kringum samnefnda sögu Jules Verne. Þetta verk hans var á sínum tíma frumflutt og hljóðritað á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Lundúna og Enska kammerkórnum árið 1974. Rick Wakeman styður útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Hér er eitt stuð í viðbót með Wakeman, og svo hér í Lincoln dómkirkjunni

Fyrri færsla

Hvað stýrir Rússlandi - og Bretlandi ?


Hvað stýrir Rússlandi - og Bretlandi ?

Ulysses S. Grant

Mynd: Ulysses S. Grant (U.S. Grant); hermaður og forseti. Vinstrisinnaðir sagnfræðingar reyndu síðar að skrifa þennan Repúblikana niður og næstum út úr sögunni, en tókst það ekki. Þeir eru enn gulir og grænir af öfund. Demókratar eignuðust aldrei neinn eins og Grant og geta líklega aldrei, því þeir eru næstum alltaf á rangri hlið mikilvægra mála og orðnir alþjóðlegir þrælahaldarar í dag; glóbalistar

****

Tyrkjaveldið (Ottoman-heimsveldið) féll saman í lok Fyrri heimsstyrjaldar. Bretland, Frakkland og Rússland deildu herfanginu upp í lönd - og landamæri þeirra snérust um olíu

Þegar U.S. Grant, hershöfðingi Lincolns forseta, lét af embætti sem einn mikilvægasti maður í sögu Bandaríkjanna og einn besti forseti þeirra, sem hinn átjándi, þá fór hann í heimsreisu og varð um leið fyrsti forseti Bandaríkjanna sem heimsótti Jerúsalem,- staðinn sem Lincoln dreymdi um að komast til, en komst ekki. Þá var borgin að þrotum komin, sagði Grant, og að mestu rústir einar eftir að hafa verið undir og í umsjá Tyrkjaveldis hundrað sinnum of lengi. Íbúarnir voru þá orðnir aðeins um 20 þúsund manns og rétt helmingur þeirra voru Gyðingar. Allt var í niðurníðslu sagði Grant. Þetta var 1869. Í dag er Ísrael, í umsjá Gyðinga, einn verðmætasti blettur jarðkringlunnar, með eigin geimferðastofnun og alles

Stuttu síðar byrja Vesturlönd að fara af kolum og yfir á olíu, en himnaríki heldur að sjálfsögðu áfram að keyra á réttlætinu einu saman, eins og það hefur alltaf gert. Fríðarráðstefnan í París 1919 gekk að miklu leyti út á að draga landamæri Mið-Austurlanda upp á ný, upp úr rústum Tyrkjaveldis. En áður en til ráðstefnunnar kom höfðu Bretar, Frakkar og Rússar mótað pólitískar stefnur sínar í þessum heimshluta með tilliti til olíu, sem þá var nýfundin og var að finnast í hreint ofboðslegum mæli. Það fór þó svo að Rússar komust ekki á Friðarráðstefnuna í París. En danski sendiherrann í Moskvu komst þó þangað, við illan leik, og reyndi að segja ráðstefnugestum frá því sem var að gerast í Rússlandi. Enginn trúði honum. En það var samt uggur í mönnum - og staðan enn óráðin, hvað varðaði framtíð Rússlands

Bretar, Frakkar og Rússar erfa sem sagt fall Tyrkjaveldis. Hinn iðnvæddi heimur er að fara úr kolum yfir á olíu. Svo kemur Síðari heimsstyrjöldin sem háð er á olíu. Og olíuverð fellur síðan niður í einn dal og sautján sent í febrúar 1946, að styrjöld lokinni, tunnan

Við tekur lágt olíuverð og þar af leiðandi miklar hörmungar í Sovétríkjunum, alveg fram til Yom Kippur stríðsins 1973. En þá byrjar hagur Sovétríkjanna heldur betur að vænkast, því þá, já þá, nota arabísku olíuríkin olíu sem vopn á Vesturlönd í fyrsta sinn. Þá settu þau vestrænu ríkin sem studdu Ísrael í olíubann og tóku efnahag Vesturlanda hálstaki. Þarna lifnaði heldur betur yfir Leonid Brezhnev-genginu í Kreml, því olíuverð rauk frá 10 dölum tunnan og upp í 110 dali á næstu 12 árum (á 2013 verðlagi). Þarna var Sovétríkjunum loksins gert kleift að kaupa sér inn stóran hluta heimsins. Gekk sovéski olíuiðnaðurinn svo vel að Brezhnev-gengið réðst inn í Afganistan á hundheiðinni sovéskri jólabensíngjöf 1979

Og í kjölfar Yom Kippur lifnaði heldur betur yfir Bandaríkjamönnum líka, en þó á dapurlegum nótum. Þeir gerðu sér þá í fyrsta sinn fyllilega ljóst mikilvægi breska arfsins sem þeir höfðu erft. Þeir urðu að gerast verndari Sádi Arabíu, fyrst að Bretland, sem fór næstum því með sig í þrot til varnar hinum siðmenntaða heimi, gat ekki lengur sinnt hlutverkinu sem verndari olíubirgða Vesturlanda. Bandaríkin urðu að taka að sér verndarhlutverkið sem áður var á breskum höndum og gæta olíubirgða Vesturlanda í Arabíu. Og það gerðu þeir. Bandaríkin vörðu þær gegn Sovétríkinu. Vörðu þær gegn Klerkaveldi Íran. Og vörðu þær gegn Saddam Hussein - og aftur

Aftur yfir til sovétríkjanna: En svo tók að halla undan sovéskum gullfæti olíunnar, því olíuverð byrjaði að falla snemma árs 1982 og hélt áfram að falla -næstum án afláts- næstu 17 árin. Á því tímabili hrundu Sovétríkin eins og spilaborg. Fyrst dó Brezhnev og getulaus Andropov tók við. Síðan dó hann og þá tók getulaus Chernenko við og dó í hvelli. Svo kom vesalings Gorbachev og fúttaði Sovétríkjunum af á 38 dölum tunnan, árið 1991. Og þá kom svo Boris Yeltsin keyrandi á vodka til hörmungarvalda því olíuverðið var komið niður í 28 dali tunnan og Rússland að brasa saman sem ríki. Það er svo ekki fyrr en Pútín kemst til valda að um einhver veruleg völd er að fást, því hann er svo heppinn að olíuverið hafði byrjað að hækka -eins og hjá Brezhnev- árinu áður, eða 1998. Pútín ríður svo á hækkandi olíuverði sem veitir honum síaukin völd fram til ársins 2012 og hann réðst inn í Georgíu og meira til, frá og með 8. ágúst 2008 (en Medevev var svo látinn taka samdráttinn í olíuverði 2009 til 2013). Þegar svo Pútín mætir aftur í vinnuna árið 2012, þá er olíuverið byrjað að falla úr 118 dölum tunnan og það hélt áfram að falla niður 28 dali tunnan 2016. Rússland er því komið í álíka stöðu og í aðdraganda falls Sovétríkjanna. Þurrkur er hroðalegur í rússneska ríkissjóðnum

En svo gerist það árið 2016 að Bretland ákveður að yfirgefa Evrópusambandið. Bretland hafði gengið í Evrópusambandið árið 1972 til að sundra því innanfrá. Það tókst ágætlega og svo fór, að árið 2016 sýnist Bretlandi þannig vera komið, að betur gangi að stúta restinni af Evrópusambandinu utan frá. Og það er það sem við sjáum í dag. Blekið er meira að segja varla byrjað að þorna á nýjum varnarsamningi Bretlands og Póllands - og engin flothæf skip verða því byggð í Stettin fyrir nein ESB-ríki. Deilum vér í sundur sundur og drottnum. Þetta! er gaman

Pútín potar úr austri í Vesturlönd og Bretland leiðir pot Pútíns með jarðkapli áfram beint yfir í ESB. Þar fær ESB eins konar endastuð frá Bretlandi í gegnum kapal sem ætti ekki að vera til, en er það samt. Sprikla svokölluð yfirvöld Evrópusambandsins nú kjarnaklofin á þriggja fasa kapli breska heimsveldisins, sem telur Bandaríkin líka. Og það styttist í að Þýskaland bregðist reglubundið við og hefji þann vígbúnað sem Trump kallar svo á. Og þá flýr restin af meginlandinu öskrandi burtu úr þrotabúi ESB. Svo hlægja Bretar, Rússar og Bandaríkjamenn saman um leið og Tyrkland breiðir úr sé upp Balkanskagann á ný, en sem er ekki í Evrópu, eins og ESB tilkynnti umheiminum þegar það hentaði því. En verður það þá svo? Mun þá Balkansagi ekki skyndilega tilheyra Evrópu á ný? Ég bara spyr

Flest í sambandi við olíubirgðir Vesturlanda í Arabíu er nú búið mál. Arabía hefur misst olíuvopnið á Vesturlönd, vegna tækniframfara í U.S.-landi Grants. Það vopn er nú aðeins hægt að nota til að koma tímabundnum verðhækkunum í kring. Og það vopn verða Rússar helst að komast yfir sem fyrst, því annars er Rússland búið að vera. Hvað skyldi nú Sádí ætla að gera fyrst að hið bandaríska vogarstangarafl þeirra er að hverfa svona hratt?

Pota ég því og pota - og gengur það bara ansi vel .... pota ég og pota

 

Hreyfimynd 18 þúsund hestafla: Borgar(a)lína Donalds J. Trump - á bandarískum dísil. Hver skriðdreki vegur 65 tonn. Á sex mánuðum flutti bandaríski herinn 12 milljón tonn hergagna til varnar olíubirgðum Arabíuríkja - hinum megin á hnettinum. Þau eru eina ríki jarðar sem fært er um slíkar aðgerðir, hvar sem er, hvenær sem er

****

Fyrri færsla

Ísrael viðurkennir að hafa grandað kjarnorkuvopnasmíði Sýrlands 2007


Ísrael viðurkennir að hafa grandað kjarnorkuvopnasmíði Sýrlands 2007

Kvikmynd: Upptaka Ísraelshers

Í gær viðurkenndi varnarmálaráðuneyti Ísraels í fyrsta sinn opinberlega að hafa grandað kjarnorkuvopna-smíðastöð Sýrlands í september 2007. Þá aðgerð framkvæmdi Ísraelsher fyrir rúmlega tíu árum síðan og sammæltust Ísraelar og Bandaríkjamenn um að halda aðgerðinni leyndri. En í gær kom svo staðfesting frá Ísraelsmönnum um að það sem marga grunaði, var einmitt rétt. Ekki mörgum árum síðar var landsvæðið sem um ræðir, komið í hendur Ríkis íslam. Kjarnorkuvopnasmíðastöðin í Sýrlandi var byggð með aðstoð Norður-Kóreu og geislavirku efnunum var siglt þaðan um borð í skipum Norður-Kóreu. Grunsemdir Ísraelsmanna vöknuðu þegar skipsfarmar frá Norður-Kóreu komu til uppskipunar í Sýrlandi og náðist uppskipunin á mynd. Og svo stuttu síðar þegar líkkistur úr blýi tóku að berast til Sýrlands frá Norður-Kóreu. En þar höfðu Sýlendingar verið að störfum við áætlunina og lent í járnbrautarslysi með farminn, sem leiddi til þess að farsímasamband víða í Norður-Kóreu var bannað í nokkur ár, því aðkoman að slysstað var svo hroðaleg

Ein af ástæðunum fyrir því að ríkisstjórn og her Sýrlands tókst að halda kjarnorkuvopnaprógramminu leyndu svo lengi, er talin vera sú að öll samskipti sem vörðuðu áætlunina fóru fram bréfleiðis með sérstökum sendiboðum, og að henni var haldið í einangrun frá öðrum þáttum herstjórnarinnar. Þarna munaði mjóu því stöðin var næstum fullgerð og tilbúin til vinnslu er Ísraelsmenn lögðu hana í rúst í september 2007

Leiðangur Ísraelshers hóst eftir að hermenn hans höfðu laumast á staðinn í Sýrlandi, tekið jarðvegssýni og aflað nauðsynlegra upplýsinga á jörðu niðri. Flogið var svo lágt upp Kýpurflóann, austur inn yfir land og inn í tímabundið blindaða loftrýmisgæslu Tyrklands og Sýrlands og sprengjunum síðan varpað frá nokkrum sérbúnum og þunghlöðnum orrustuþotum Ísraelsmanna, sem læðst höfðu lágt yfir jörðu að skotmarkinu. Að aðgerð lokinni var ríkisstjórn Tyrklands upplýst um málið og beðin afsökunar á þeim hluta leiðangursins sem lá um lögsögu þess. Í júní 1981 lagði Ísraelsher einnig kjarnorkuvopnavinnslu Saddams Hussein í Írak í rúst með sviparði aðgerð, sem nefnd var Opera

Ofsóknir á hendur Gyðingum hafa árþúsundum saman verið hroðalega svæsnar og illar. Í aðdraganda, undir, og í kjölfar Helfararinnar meinuðu Bretar Gyðingum að flýja til þess forna landssvæðis Gyðinga í Ísrael sem Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía og Páfagarður höfðu lagt blessun sína yfir með Balfour-yfirlýsingunni. Bretar brutu einhliða anda þess samkomulags með því að meina Gyðingum að flýja þar inn, en sem var einmitt tilgangurinn með yfirlýsingunni. Það gerðu Bretar af geopólitískum orsökum því olíusvæðin sem Bretar urðu að hafa aðgang að, lágu einmitt á áhrifasvæði Araba, og þá reyndu Bretar að styggja ekki, því þannig ömurleg var staðan í heiminum þá. Gyðingum var því haldið úti frá því lífsnauðsynlega rými sem þeir höfðu fengið úthlutað til að draga andann í

Á alþingi Íslendinga fara nú fram síðustu Gyðingaofsóknirnar á nýrri tímum. Þar skal mannorð Íslands og Íslendinga allra lagt í rúst með stjórnmálum sem aðeins er hægt að flokka niður í síðasta endann af öllum. Það var ekki heilastappa Framsóknarmanna, Pírata, Vinstri-grænna og Flokks hreina fólksins sem lagði grunninn að Vesturlöndum. Það gerði Gamla testamenti Gyðinga. Við eigum Gyðingum því óendanlega mikið að þakka. Og þær þakkir ber að sýna í verki, en ekki með heilastöðvun á Alþingi Íslendinga og endametrum bölvaðrar borgarstjórnar vinstri-manna Reykjavíkur

Engir aðrir í heiminum munu hafa fyrir því að standa vörð um líf Gyðinga en Gyðingar sjálfir. Hefðu þeir verið fullvalda og vopnaðir, þá hefði Helförin aldrei getað farið fram. En pennastrik vesalinga geta einnig verið öflug drápsvopn. Þau strik eigum við alls ekki að skaffa slæmum öflum

Krækja: Hinn gleymdi sannleikur um Balfour-yfirlýsinguna (Mosaic)

Tilgátu-heimildarmynd um aðgerðina í Sýrlandi (YouTube)

Fyrri færsla

Angela Merkel kom skríðandi til Póllands


Angela Merkel kom skríðandi til Póllands

Fyrir kosningar lét hún höggin dynja á Póllandi. Og ef Pólland væri á evrum þá væri komin krísa í peningamál landsins. En svo er ekki, þökk sé sjálfstæðri mynt Póllands

En svo komu þýskar kosningar og þar tók það kanslarann heila esb-pólitíska miðöld að mynda nýja ríkisstjórn. Þar lafir persóna hennar nú á tíu atkvæða meirihluta í kanslaraembætti. Það var því lágreist Merkel með blauta púðurdós í vasa sem kom til Póllands á fyrsta erlenda stoppi hennar sem endurkjörin, ef litið er burt frá Lotharinga-ferð hennar á biðstofuna í París

En hvað er hún að gera til Póllands? Jú hún vonast til að Weimar-þrennan geti veitt henni pólitískt vogarstangarafl gegn þýska miðflóttaaflinu sem er að tæta Evrópusambandið í tætlur. Hún vonast til að þrennan -Frakkland, Þýskaland og Pólland- geti orðið vettvangur fyrir pólitískan stuðning við UHU-límtúbuna sem hún er að reyna kreista síðustu endurlífgunartilraunina á Evrópusambandinu upp úr. Vonast er til að Pólland geti kallað önnur ríki Austur-Evrópu með í örvæntingar-hoppið ofan á límtúbunni

Ekkert land í Evrópu er eins háð Evrópusambandinu og Þýskaland. Hinn svokallaði "innri-markaður" er efnahagslegt einka öryggis- og nýlendusvæði Þýskalands (e. buffer-zone). Án þess er efnahagur Þýskalands búinn að vera, því það verðmætasta sem til er á Vesturlöndum í dag er eftirspurn. Hana hefur Þýskaland alls ekki

Það hefur þó ekki enn físað inn hjá Merkel að Pólland, en ekki Þýskaland, er á leið að verða ný-mikilvægasta ríki meginalands Evrópu. Sá skilningur kemur síðar, með flugpóstinum frá Washington, því talandi hausar Þýskalands segjast geta samþykkt Rússland upp að landamærum Póllands. Og svo er það Nord-stream leiðslan sem keisari Merkel er vel hugsanlega að kveikja í Úkraínu með og þar með Póllandi líka

Mánudaginn 25. apríl 2005 sagði Vladímír Pútín að hrun Sovétríkjanna hefði verið "stærsta pólitíska katastrófa 20. aldarinnar". Þessi fyrrverandi agent KGB sagði þetta í ávarpi til þingsins. Og það er ekki tilviljun að þessi forseti Rússlands skuli hafa komið úr röðum KGB-manna. Rússlandi hefur alltaf verið haldið saman með þannig "öryggis-apparati". Ekkert annað afl en leyndur og ljós terror getur haldið Rússlandi saman sem ríki

Hvað hugsar maður sem sér fall Sovétríkjanna sem stærstu pólitísku katastrófu 20. aldarinnar. Já það er nú það. En ef forseti Rússlands héti ekki Pútín í dag, þá héti hann bara öðru nafni, en Rússland væri samt alveg eins; þ.e. Rússland, byggt á rússneskum hefðum

Fyrri færsla

ESB hefur þrjá daga til að forðast viðskiptastríð


ESB hefur þrjá daga til að forðast viðskiptastríð

Donald Trump er þessa dagana að hlusta á vol og væl sendinefndar Þýskalands með Brussel-hatta á höfðunum í betliferð til Washington. Óðir hattarar ESB hafa nú þrjá daga til að komast hjá viðskiptastríði við Bandaríki Norður-Ameríku

Þýskaland er með 9 prósent af landsframleiðslu í viðskiptahagnað við umheiminn. Það er stærsti hagnaður í heiminum í krónum og aurum talið og klafi á bæði heiminum sem og öðrum esb-ríkjum, og langt fyrir ofan það sem sáttmálar esb heimila. Nema á Rússlandi. Þar er smá útflutningsplús fyrir Rússland vegna rússnesku orkunnar sem Þýskaland er algerlega háð. En útflutningur Þýskalands til Rússlands hefur samt og þrátt fyrir svo kölluð "höft" vaxið svo að hann er nú á pari við það sem var árið 2007. Þessi útflutningur Þýskalands til Rússlands tryggir að sérhver samstaða Þýskalands með Stóra-Bretlandi og Bandaríkjunum er aðeins í orði, en ekki á borði. Enda er rúmur meirihluti Þjóðverja hlynntur frekari nálgun Þýskalands við Rússland, á sama tíma og 82 prósent Þjóðverja hræðast Donald Trump, en aðeins 44 prósent segjast hræðast Pútín hinn Góða

Ef ESB gengst ekki að tollaáformum Trumps á stál og ál og þrengingum að Kína, þá skellir hann tollum á alla bílaframleiðslu ESB-ríkjanna. Og ef Donald Trump á yfirhöfuð að skoða hinn afar slæma málstað ESB-landanna, þá þurfa þau fyrst að leggja skothelda áætlun á borðið fyrir framan hann, yfir hvernig þau sem NATO-ríki ætla að mæta NATO-sáttmála-skuldbindingum sínum um að þau leggi tvö prósent af landsframleiðslunni af mörkum til varnamála. Bandaríkin borga 70-75 prósent af varnarútgjöldum NATO, en meginland Evrópu næstum ekkert

Þetta geta ESB-ríkin auðvitað ekki, því þau eru ófullvalda efnahagslegir krypplingar og færu í þrot ef þau ættu að verja sig sjálf. En kannski Rússland geti aðstoðað Þýskaland við að klæða sig í svona eins og einn drullusokk eða svo. Hver veit. Hver veit hvenær Þýskaland tryllist á tollunum og reiknar sig aftur austur. Svar: það veit enginn

Þeir sem trúa ekki eiturefnaárás upp á Rússland, eru annað hvort með hlátursgaslögn í heilann eða sjá sýnir, þó svo að rjúkandi sannanir skorti. Það er bara ein ástæða fyrir því að Vladímír Pútín er forseti Rússlands núna; 1a. hann er hvorki væskill að nafni Mikhail Sergeyevich Gorbachev, né 1b. volæðingurinn Boris Nikolayevich Yeltsin. Pútín er það sem menn óttast. Og þess vegna er hann einmitt forseti Rússlands. Hann er það sem rússneska fólkið óskar sér; Varðstöðumaður Rússlands sem menn taka mark á. Fjórar innrásir úr vestri gleymast ekki svo hratt. Rússland er ekki hvaða ríki sem er og verður það aldrei. Það verður aldrei eins og menn í vestri óska sér að það sé. Eins gott er að horfast í augu við þá staðreynd og standa sig á verðinum gagnvart Rússlandi, því annars fer illa. Þeir einu sem staðið geta þá vakt eru Bandaríkin, saman með vissum löndum Austur-Evrópu

En eins og er, hefur Rússland aðeins efni á lyklaborðs-aðgerðum, hersýningu í Sýrlandi og pólitískum púðurdósamat. Ef olíuverðið hefði ekki hrunið, þá hefði Rússland nú þegar haft efni á Úkraínu. En efnahagsstaðan núna er sú, að það er rétt svo að Rússland hefur efni á að niðurgreiða olíuna til Hvíta-Rússlands um 2,5 milljarða dali á ári, undir heimsmarkaðsverð. Og meira að segja rússneskt dagblað kvartar yfir því "tekjutapi" rússneska ríkisins

Fyrri færsla

Spái Sjálfstæðisflokknum 34 prósent fylgis í næstu kosningum


Spái Sjálfstæðisflokknum 34 prósent fylgis í næstu kosningum

Upptaka í gær: Ávarp formanns hefst á tíundu mínútu

****

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er settur. Bjarni Benediktsson, leiðtogi flokksins, setti fundinn í gær og krafðist áframhaldandi fulls og óskerts fullveldis Íslands, stundvísi og aga. Ferming og fullfermi Íslands er í gangi. Hún stendur yfir og bát Bjarna verður ekki ruggað. Hann kemur heill til hafnar og landar fullfermi í næstu kosningum, vegna þess að aðgát var höfð í nærveru afla. Staðfast og með varkárni siglir hann fullfermi Sjálfstæðisstefnunnar í land. Rugg er ekkert, því þungt er haldið um stýrið og stefnufesta á stíminu skilar aflanum heim

 

Áfram með róðurinn kæru Sjálfstæðismenn. Róið Íslandi heim!

 

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

Happafley Íslands: Sjálfstæðisflokkurinn

****

 

Fyrri færsla

Hver er munurinn á viðbrögðum Bretlands og Berlín-Brussel við efnavopnaárás?


Hver er munurinn á viðbrögðum Bretlands og Berlín-Brussel við efnavopnaárás?

Stutta svarið er; gas og orka. Bretland er ekki háð Rússlandi í orkumálum. Berlín-Brussel er háð Rússlandi í orkumálum

Lengra svarið er það; að Lundúnir líta öðrum augum á Moskvu en Berlín-Brussel, vegna þess að Lundúnir nota ekki sama kíkirinn á utanríkismálin og þann sem meginlandið notar. Kíkir meginlandsins er blindur á öðru auganu gagnvart Moskvu á meðan kíkirinn í Lundúnum sér hlutina með báðum augum, þ.e. eins og þeir eru

Lundúnir sjá það sama í kíkinum og Washington sér nú, eða frá og með 2008, þegar heimurinn sem búinn var til 1945 og 1991, hrundi til grunna og Moskva byrjaði að flæða út yfir landamæri sín. Nokkuð sem stjórnarskrá Gamla testamentis Biblíu Vesturlanda bannar. Og sem merkilegt nokk gerðist þegar Rússland flæddi inn í Georgíu aðeins fjórum vikum áður en banki Lehmansbræðra féll og hélt Vesturlöndum uppteknum við hrun alþjóðavæðingar og Evrópusambands. Þar samstilltust utanríkismála-sjónaukar engilsaxneskra manna og eru samstilltir enn

Lincoln forseti gefur Grant hershöfðingja fyrirmæli

London ætlar ekki að sökkva til botns með Evrópusambandinu og Donald J. Trump er kominn í stað glóballar í Hvíta húsið og hefur kveikt þar á glóðarperum Edisons aftur. Þaðan koma nú glóbellir fljúgandi út um gluggana, með glóbalista-merkið þrykkt fast á afturendann, með þrus prenttækni Trumps. Utanríkisráðherra Tillerson kom út um norðurgluggann í fyrradag og þrír aðrir glóbellir komu upp um skorsteininn sem Lincoln notaði áður en Grant hershöfðingi, standandi við hinn sama arin, en þá forseti, gerði þá skyssu árið 1871 að óska Þýskalandi til hamingju með vegferðina upp á "veginn til lýðræðis", en sem endaði hins vegar með engu lýðræði, heldur með 150 milljón manna líkhúsi meginlands Evrópu, undir lúmskum formerkjum stjórnarfarslegrar alræðisástar, þar sem stjórnmálin eru þjóðnýtt, eins og þegar hefur gerst í Evrópusambandi og Rússlandi. Hin, að því er virðist, erfðafræðilega arfleið stór-meginlands Evrópu og rugludalla þess í "stjórnmála-vísindum" virðist vera orðin óafturkallanleg stökkbreyting á Evrópu, sem er næst minnsta heimsálfa veraldar og skagi út úr tröllauknu meginlandi Rússlands

En Skotar kusu sem betur fer að halda afturendanum á Bretlandi lokuðum og Lundúnir þurfa því ekki að óttast um líf sitt vegna samninga Skota við glötun úr austri. Slíka samninga geta Skotar ekki gert svo lengi sem Bretland er stjórnarfarslegt heimsveldi Anglo-American-arfleiðar Íhaldsmanna. Og svona til að kilta forvitni þeirra sem eitthvað muna, þá gerðu Stóra-Bretland og Pólland með sér varnarsamning um síðustu jól kristinna manna, eftir að DJT hafði blessað Varsjá og tekið sér sæti undir Hamrinum. Í leiðinni og til frekari útskýringar er hægt að geta þess að Kanada fær að vera sjálfstætt ríki vegna þess að afturendinn á því er lokaður með Monró úr ís. Annars væri það land hluti af Bandaríkjum Norður-Ameríku. Og Québec fær leyfi til að tala frönsku vegna þess að Bandaríkin eru með afturendann á Kanada lokaðan. Annars væri Québec á ensku

Pútín Rússakeisara vantar nú bráðnauðsynlega sem flesta óvini sem líta út fyrir að vera að eyðileggja komandi kosningar þann 18. þessa mánaðar. Þar verður Pútín endurkjörinn, eða næstum því sjálfkjörinn. En hann vantar þó lífsnauðsynlega sjálfa kjörsóknina. Hann vantar alveg lífsnauðsynlega að geta sýnt fram á vissa lágmarks kjörsókn fyrir sig og einnig þá sem fyrirfram ákveðið er að tapa muni kosningunum. Því án kjörsóknar á Pútín á hættu að vissir menn í Vestri geri grín að kosningunum með því að segja að hann sé ekki lögmætur keisari Rússlands. Fregnir um að nemendum hafði verið mútað með hærri einkunnum ef þeir kjósi, berast til dæmis frá Tatarstan

Kjörsókninni má þoka upp með því að sýna kjósendum, svo ekki verður um villst, hvað gerist með þá sem kjósa alls ekki. Að því leytinu koma fregnir af efnavopnaárás á þá sem svíkja, sér vel. Með þessu er ég ekki að fullyrða að keisarinn standi að baki árásinni á Bretlandseyjar, það veit ég ekki með vissu. En hún kemur sér óneitanlega vel. Moskva hefur þegar gefið út yfirlýsingar um að engilsaxneskir séu að reyna að eyðileggja komandi endurkjör rússneska keisarans

Rússland Pútíns stendur afar veikt núna. Efnahagurinn er slæmur og keisarinn ræður þar litlu um, því söluverð orkunnar er svo lágt á heimsmarkaði og hernaðarútgjöldin eru að sliga rússneska ríkið í þeim aðstæðum. Það var einmitt þessi baneitraða blanda sem dró Sovétríkin til dauða. Og þegar Sovétríkin féllu, þá féll um leið sovéski-múrinn gegn vestrænum áhrifum og lýðræði, frá Balkanskaga til Indlands. Við bráðnun þess múrs fór íslam yfir í eins konar jökulhlaup og er þar enn. Ferðalag rússneska keisarans Pútíns til Sýrlands var því sett á svið sem Potemkin-alþjóðlegur áhrifamáttur Rússlands fyrir kosningar á heimavelli. Það var gert til að reyna að halda rússneskum kjósendum við þá mikilvægu hugsun að atkvæði þeirra skipti enn máli í kosningunum næstkomandi sunnudag. Þetta er svona, því keisarinn og hirð hans óttast ekkert meira en þann hrylling að kjósendur missi trúna á hið pólitíska kerfi Rússlands. Og ef þeir kjósa ekki, þá þýðir það að kjósendur hafa misst trúna á hina pólitísku hugmynd sem heitir Rússland. Síðast þegar það gerðist þá féll keisarinn og kommúnistar komust til valda og gerðu byltignu. Þetta gerðist svo aftur þegar þeir misstu völdin vegna þess að fólkið hafði ekki lengur trú á hinni pólitísku hugmynd sem hét Sovétríkið. Kjörsóknin er því aðalatriðið hér. Hana verður að pína upp, því annars er allt og meira til í stórkostlegri hættu fyrir Rússland sem ríki

Gerist þetta aftur núna, eða á næstu árum, sem er alls ekki ólíklegt, þá getur rússneska þjóðin þó enn leitað til Rétttrúnaðar-kirkju Krists, því hún er þjóðkirkja og gufar ekki upp eins og keisari og Sovétríki. Og vert er að geta þess að á bréfsefni patríarks hennar stendur enn prentað heimilisfangið Konstantínópel, sama hversu hátt og mikilvæg Moskva gnæfir yfir öllu

Þetta er staðan núna. Stórríki í upplausnarferli með fimmtán þúsund kjarnorkuvopn innanborðs, er lítið til að hlægja að

Fyrri færsla

Hverjir fengu best borgað fyrir að sjá inn í framtíðina?


Hverjir fengu best borgað fyrir að sjá inn í framtíðina?

  • Stjórnmála- og embættismenn
  • Háskólar
  • Fjölmiðlar
  • Sérfræðingar
  • Bankar
  • Seðlabankar
  • Lögfræðingar
  • Hagfræðingar
  • Viðskiptafræðingar
  • Fjárfestar
  • Félagsfræðingar
  • Borgarstjórar
  • Bæjarstjórar

****

Allir áttu það sameiginlegt að hafa verið í háskólum. Næstum án undantekninga. Þar voru allir þessir verðlaunaðir fyrir að hugsa þráðbeint í þráðbeinum línum. Þeir komu því út úr háskólunum með þá sannfæringu að þeir væru gáfaðir og snjallir. Og þaðan gengu þeir í hópinn sem fékk best borgað fyrir að sjá inn í framíðina. Fóru á þing, fóru í bankana, fóru í ráðuneytin og háskólana. Þeir fóru í allsherjar gáfna-think-tank þeirra sem hugsa eins. Þeir sáu ekkert, gátu ekkert og geta ekkert enn. Á þessa leið sagði Írinn David McWilliams á SIC ráðstefnunni um daginn (Strategic Investment Conference)

En launin fá þeir enn. Og það eina sem þeim dettur í hug í dag er að kalla þá populista sem eru ekki í gáfumannafélagi þeirra

Heimsstyrjöldin fyrri skall á. Rétt á undan hafði öllum verið sagt að slíkt ætti ekki að geta gerst, vegna þess hversu "samofin viðskipti" á milli landa væru orðin í Evrópu. Bretland varð næstum undir vegna fríverslunar. Engu mátti muna

Svo skall Heimsstyrjöldin síðari á. Það átti heldur ekki að geta gerst vegna þess að Þýskaland átti jú að vera búið að vera. Enginn sá neitt, nema Winston

Svo skall Kalt stríð á, því hálf-sovéskir háskólar gáfnafélags Vesturlanda héldu að Sovétríkin væru eins konar Sameinuðu þjóðir embættismanna. Og þeir menn gátu ekki haft rangt fyrir sér, var það nokkuð? En aftur var það samt íhaldsmaðurinn Winston sem vissi betur og sagði svo í litlum bæ í Missouri fylki Trumans

Svo féllu Sovétríkin þráðbeint ofan á gáfumennafélag Vesturlanda. Þau féllu beint ofan á háskólana. Þráðbeint. Enginn sá neitt koma. Ekki einu sinni viku fyrir fall þeirra

Og svo hrundi yfirríkislegt Evrópusambandið og alþjóðavæðingin haustið 2008 og eru enn að hrynja. Ekkert múkk heyrist úr útvarpsturnum háskólanna. Þvert á móti, útvarpsstjórarnir ganga áfram í Viðreisn og Samfó

Síðan er Donald Trump kosinn til valda, og þá, já þá veit turnspíruveldi gáfumannafélagsins loksins hvað er að gerast, eða svo halda þeir. Þeir klína merkimiða á ófögnuðinn og á honum stendur popúlismi (lesist: ekki einn af okkur). En þeir vita samt ekkert enn. Hah ha ha ha. Þeir halda að málið snúist um "alþjóðleg viðskipti" (prump) og nokkur prósent til eða frá í landsframleiðslunni (meira prump). Þetta er sprenghlægilegt, hah ha ha ha

Það eina sem dugar við svona varanlegri vitskerðingu er að lækka launin, eða loka háskólunum. Það er því lítið undarlegt við það að stuðningur við háskóla sem menntastofnanir meðal Repúblikana, sé kominn undir fimmtíu prósentin. Því miðað við háskólana í dag var Kaþólska kirkjan þegar orðin Apollo-11 á miðöldum

En þetta hafa ungir drengir þegar séð. Þeir sjá að háskólarnir eru að mestu orðnir að hellum á heiði hundheiðinna frummanna, en nú með blúndum og bróderuðum gardínum fyrir gluggunum. Gluggatjöldin eru komin aftur

Fyrri færsla

Auðlegð þjóðanna


Auðlegð þjóðanna

 USS Carl Vinson kemur til Danang 5 mars 2018

Mynd; Bandaríska varnarmálaráðuneytið. USS Carl Vinson (CVN-70) varpaði akkerum í Víetnam þann 5. mars, 2018. Þetta er fyrsta slík heimsókn frá lokum Víetnamstríðsins 1975. Eitt stykki af öllu strategískt mikilvægu hjá mesta þjóðríki mannkynssögunnar, kostar minnst einn milljarð dala. Millistéttin er burðarstólpinn

****

Já, Adam Smith skrifaði Auðlegð þjóðanna. Hann skrifaði hvorki Örbyrgð Sameinuðu þjóðanna né Fátækt Evrópusambandsins, því hann vissi að auður gæti aðeins orðið til hjá þjóðum. Þess vegna heitir bókin Auðlegð þjóðanna. Auðlegð getur aðeins orðið til meðal þjóða. Þær einar hirða um sitt fólk og sinn auð. Þeir sem vilja þjóðirnar og þjóð-ríki þeirra feig, nota auð þeirra til að kaupa sér völd til að tortíma sinni eigin þjóð. Það sést ágætlega á til dæmis Viðreisn þessa dagana, sem er á leið út úr þjóðinni, en sem krefst þess að fá auð hennar sem pólitíska skiptimynt með sér í ferðatöskunni, til að kaupa sér inn völd hjá þeim sem hugsa eins. Viðreisn vill þannig eignast verndara valda sem tortíma auðlegð þjóðanna

Fyrri færsla

Tollar: Aðeins fyrsti áfanginn segir Donald J. Trump


Tollar: Aðeins fyrsti áfanginn segir Donald J. Trump

Hvíta húsið: Forseti Bandaríkjanna leggur tolla á tvo málma í gær

****

Efnahagsaðgerðir Donalds Trump forseta Bandaríkjanna halda áfram og tollur á innflutt stál og ál sem hann setti á í gær, eru aðeins fyrsti áningarstaðurinn á langri leið, sagði hann. Hér er ekki um að ræða aðgerðir sem hægt er að bera saman við þá tolla sem til dæmis Ronald Reagan og Bush hinn fyrsti gripu til á innflutta málma í tíð þeirra sem forsetar. Báðir voru sannfræðir og "trúðu" á "frjálsa verslun" sem kenningu. Og til að sanna sig sem verandi á varðbergi gagnvart því sem nú hefur kallað Donald Trump til valda, og sem mistókst því hrapallega, þá skelltu þeir tollum á til að sannfæra bandaríska kjósendur um að fríverslun í þeirra höndum væri ekkert sem óttast þyrfti. Þeir væru mjög svo á verði. Sextíu þúsund horfnum verksmiðjum síðar, er mönnum ljóst, að þeim var einmitt ekki treystandi í þeim efnum. Þeir voru ekki á verði

Í síðustu færslu nefndi ég að Bandaríkin væru að mínu mati að enda hlutverk sitt sem endurreisnarveldi heimsins og hafi frá og með 2008 farið inn í sitt eigið endurreisnartímabil, sem hófst með kjöri Donalds J. Trump veturinn 2016 í forsetaembættið. Sumum hefur kannski þótt þetta hjákátleg staðhæfing, því það er að sjálfsögðu ekki hægt að endurreisa það sem aldrei hefur áður verið. Bandaríkin voru ný af nálinni og byggja varð þau upp algerlega frá grunni. En það er nú samt ekki rétt, því að sjálft stjórnarfarið sem komst á og sem sigraði og byggði síðan upp öflugasta og voldugasta þjóðríki mannkynssögunnar, var ekki nýtt af nálinni. Það stjórnarfar kom frá Englandi og hét Íhaldsstefna (Conservatism). Það sem flestir kalla Bandarísku byltinguna frá 1765 til 1783, var ekki bylting, því að um endurreisn var sannarlega að ræða, dregið af þeirra tíma enska hugtaki sem þýddi "revolve". Enska orðið "revolution" er það þegar jörðin hefur lokið eins árs göngu sinni um sólu. Engu hefur verið kollvarpað, heldur var stjórnarfar Íhaldsmanna endurreist í Norður-Ameríku. Málið hafði ekkert með byltingu að gera, þó svo að kollvarpandi og niðurrífandi byltingaröfl Líberalista væru vissulega til staðar. Málið sem þetta tímabil í Bandaríkjunum snérist um, var sjálf endurreisn þess frelsis og réttinda sem stjórnarskrárbundin og þingræðisleg ríkisstjórn Englands hafði skaffað Englendingum, frá og með Sir John Fortescue (1394–1479) og John Selden (1584–1654), sem eru brautryðjendur Íhaldsstefnunnar. Bygging Bandaríkjanna frá Abraham Lincoln 1861 til Calvin Coolidge 1929, var næstum því að öllu leyti sjö áratuga verk forseta Bandaríkjanna sem allir nema tveir voru Repúblikanar - og þar með Íhaldsmenn. Strax um aldamótin 1900, aðeins tæplega fjörutíu árum eftir borgarastyrjöldina, var helmingur alls þess sem framleitt var í heiminum, framleiddur í Bandaríkjunum. Aldrei í mannkynssögunni hafði annað eins afrek sést - og það var stjórnarfarinu að þakka. Stjórnarfari Íhaldsmanna með Biblíuna sem hornstein

Donald J. Tump er þannig Íhaldsmaður. Á hann virka ekki rök eins og þau að viðskiptastríð sé "skaðlegt". Því þau rök svara til að krefjast þess að vagninn sé spenntur fyrir hestinn og ferðalagið hefjist innan tíðar, ... sannið þið til, aðeins er um tímabundið ekkert-mjakast að ræða. Donald Trump hugsar ekki þannig. Stríð verður ekki nema að menn berjist á móti því sem hann var kosinn til að gera. Gott og vel, látum þá viðskiptastríðið koma, hugsar hann, en ég mun vinna það. Ég ætla að sigra. Og það mun hann gera, því hann hefur svo litlu að tapa, en hinir mestu. Það mun því verða viðskiptastríð og það mun kosta efnahagslegt blóðbað. Patton sem las í Biblíunni "hvern einasta helvítis dag", hefði sagt að markmiðið væri að láta andstæðinginn um að kála sér fyrir sinn málstað. Og þannig mun það verða. Nema að menn úti í heimi þegi og bíti endurreisn Bandaríkjanna í sig og viðurkenni að hún er þeim sjálfum fyrir bestu. En hér eru þó vissar undantekningar á og flestir vita hverjar þær eru

Það var ekki af tilviljun sem Bretar fengu Winston Churchill, en meginland Evrópu fékk hins vegar Stalín, Hitler, Mussolini, Sovétríki, DDR og ESB. Og án Bandaríkja íhaldsmanna og Winston Churchill, hefði íslenska öldin þá orðið allt önnur en hún varð 1944

Fyrri færsla

Bandaríkin á leið úr endurreisnar-hlutverki


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband