Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

Forsetaembættið krefst lýðveldis til að vera í

Sá eini frambjóðandi sem virðist gera sér grein fyrir því að spurningin um setu á Bessastöðum verður sú, hvort áfram sé og verði til eitthvað lýðveldi Íslendinga til að vera forseti í. Hver er sá frambjóðandi sem sér þetta? Jú, Ólafur Ragnar Grímsson. Hann virðist hafa það í sér að sjá. Hin sjá þetta ekki. Þau hafa það ekki í sér.

Án lýðveldis Íslendinga verður ekki um neitt forsetaembætti að ræða. Því yrði út varpað á götu DDRíkisúvarpsins og það yrði heimilislaust. Þetta er sjálf spurningin um að vera áfram lýðveldi eða ekki neitt. Um það snýst framtíðin hvað varðar Ísland og Evrópusambands helferðina. Hún er spurningin um það hvort Ísland lifi eða deyi. Gangi Ísland í sambandið þá deyr það.

Þegar lýðveldi Íslendinga færði út landhelgina þá stækkaði þjóðareign allra Íslendinga. Þjóðareign allra Íslendinga stækkaði. Það er því ekki hægt að tvísetja landhelgina í þjóðareign nema með því að verða ríkisvætt knésett sovétríki Steingríms og Jóhönnu; ríki fátæktarinnar á leið inn í vítsivél Evrópusambandsins í leit að ölmusu, samkvæmt áætlun.
 
Hér á EKKERT að gefa eftir. Ekkert!
 
 

Kaupgreiðendur ríkisstjórnarinnar mættir á Austurvöll

Aflvél íslenska þjóðríkisins er sjávarútvegur og landbúnaður. Með þessu tvennu hefur Ísland verið byggt upp með. Allt annað hvílir á þessum herðum. Og þetta eru um leið björgunarbátar Íslendinga þegar skipbrot hins einhvers annars verður. Það höfum við séð margsinnis.

Það er eins gott að þessi aflvél þjóðríkisins gefi fullt afl og mikið fyrir stóra peninginn sem festur hefur verið í henni. Sé rekin vel og með miklum gróða því annars erum við öll komin föst á klósettið, landhelgin dregin til baka og lögð niður til erlends yfirvalds.

Þetta fattar ríkisstjórn kommúnista og sósalista ekki. Og þó svo að allir útborgunardagar hennar byggi á þessu. Í ríkisstjórninni leika menn sér með eldinn eins og vanvitar sem lifa í furðuheimi.

Ég mæli með því að greiðslukort ríkisstjórnarinnar sé tekið af henni. Hún verðskuldar ekki þann stóra yfirdrátt sem hún sjálf hefur tekið sér. Og enginn borgunarmaður er hún fyrir honum. Ríkisstjórnin er gjaldþrota. Hún hefur lifað um efni fram og nærist einvöðrungu á pólitískri græðgi og hefndarheift.

Fyrri færsla

Evran sem átti að koma í veg fyrir fjármála- og bankakreppur 

 


Evran sem átti að koma í veg fyrir fjármála- og bankakreppur

DDR Evrulandið Spánn 6 júní 2012
Það er orðið erfitt að fylgjast með í því sem evran átti að gera fyrir ríki Evrópusambandsins en sem hún gerði ekki. Myntbandalag ESB er —þveröfugt við öll auglýst markmið— beinn skaðvaldur fyrir öll ríki sambandsins og hætta er á að það muni þurrka Evrópu út eins og við þekktum hana. Innan þessarar myntar kemst heimskulegasti seðlabanki plánetunnar upp með verstu sort peningapólitískrar stjórnunar. Aldrei hefur hann gert nokkurn hlut réttan. Enda var það aldrei á dagskrá hans.

Þriggja fasa ERM-grunnur myntbandalagsins (The European Exchange Rate Mechanism) var frá upphafi illilega rotið pólitískt fyrirbæri af allra verstu sort. Frá upphafi ERM sem formlega var stofnað til árið 1979, hefur hinum peningapólitíska raunveruleika verið tjaldað sem járntjaldi yfir meginland Evrópu og Írland. Það er dapurlegt að hugsa til þess að hámenntaðir hagfræðingar fyrir mikla peninga skuli nokkurn tíma hafa lagt nafn sitt við þetta peningapólitíska þvættisfyrirkomulag hinna fársjúku öxulvelda meginlands ESB.
 
Myntbandalag sjúkrar valdaelítu meginlands Evrópu er á góðri leið með að rústa flestu sem hægt er að rústa. Ekkert gott er í vændum þaðan hinar næstu margar aldir. Og DDR þess verður massíft.
 
"The problem with socialism is that you eventually
run out of other people’s money." 
— Margaret Thatcher
 
Það sama gildir um fullveldisframsal stjórnmálamanna. Það er skiptimynt þeirra til valda innan hinna Nýju Sovétríkja Evrópusambandsins
 
Fyrri færsla
 

Moody's sargar taktfast í sundur Sonderwegagerð brjálsemisbandalagsins

 
Flotinn

Í skömmtum er straumurinn tekinn af glasabörnunum í frystikistu Evrópusambandsins. ROM57-9000 tölvan um borð í Brussel hefur ekki klikkast neitt ferlíkislega miklu frekar en þvælan sem hún var mötuð á frá fæðingu fyrirskipaði henni um. Því hún var öll made in DDR frá upphafi. Þetta átti einmitt að fara svona.

Fíflin sem skrifuðu undir alla sáttmálana —sem sáttina svo kölluðu áttu að skapa— gráta nú þvagsýru sem leyst hefur upp handabök þeirra þannig að ekkert er þar ætilegt eftir nema nokkur bogin bein á beyglaðri grind hins gjaldþrota pólitíska hagkerfis ESB. Og sem nú er gjaldfallið ofan á borgarana. Hið sérfalska og óekta markaðshagkerfi meginlands Evrópu hofir í skelfinu á og riðar til falls yfir þjóðir sambandsins. Á meðan klappar og húrrar menningarelítan og hámenntuð gáfumennin saman.

Fíflin sem sögðu upp í opið geðið á kjósendum sínum árið 1986 að Evrópusambandið yrði örugglega og aldrei til, halla nú tómum höfðum sínum að lífeyðnissjóði þjóðríkja bandalagsins í skattaskjólum Brusselveldisins og dorma. Þá var okkur sagt að í himneska lagi væri að segja og kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem þá var haldin, því það yrði hvort sem er aldrei aldrei aldrei til neitt Evrópusamband úr því sem þá var verið að kjósa um.
 
 
Tuttugu og sex árum síðar er hin ókjörna forsetafýla þessa Evrópusambands — sem Dönum var sagt að yrði aldrei til — að undirbúa stofnun hinna Nýju Sovétríkja Evrópu í gegnum bakdyrnar á sáttmálasafni veldsins. Sú smíði fer fram inni í sjálfum hallargarði þessa non-existing European Union sem forsætisráðherra Danmerkur sagði okkur öllum að ætti ekki að geta orðið til.

Þannig; þegar Íslendingar heyra kratakombur segja sannleikann um það sem nú er þarna að gerast, þá ættu þeir að muna eftir sjúkdómseinkennum krónískra Evrópusamandssinna; þar ríkir hvíttað svart sem er ekki_satt og fúlt. Einskis munu þeir svífast til að koma Íslendingum út úr húsi þess sjálfstæðis og fullveldis sem forfeður okkar byggðu handa okkur hér á Íslandi. Þeir munu ekki hika við að segja að svartið sé hvítt. Og að eldurinn sé bara fallegt frost, þegar nánar er al-eldað.
 
 
Fyrri færsla
 
 
 

ESB: Enginn er aðili að neinu; Bankitalia stampino l'euro

Hver er Evrópa. Hver er ESB.
 
=> Ítalía; Við skulum segja við Evrópu að . . 
=> Spánn; Við látum Evrópu skilja að . . 
=> Írland: Evrópa verður að skilja að Írland . . 
=> Frakkland; Evrópa fellur ef evran fellur . . 
=> Þýskaland; Falli evran fellur Evrópa . . 

Hafið þið séð svona félagsskap áður? Hafið þið séð hóp ísjaka sem hafa verið samhæfðir með því að frysta sig saman í einn klump? Nei það hafið þið ekki séð. Þetta gengur ekki þannig fyrir sig. Ísjakar sem hafa verið samhæfðir munu ávalt fylgja hreyfingum sjávar. Símasnúrur, tyggjó, reglu- og klessuverk mun aldrei halda þeim saman. Þeir brotna upp og fljóta. "A free-float" er það eina sem dugar.

Þeir sem vilja búa í heiminum og búa þar vel, verða að skilja að lífinu þar verður aldrei lifað sem samhæfðu. Nema að maður vilji búa inni í jökli. Samhæfing hagkerfa og þjóðríkja mun leiða efnahag þeirra inn í alkul. Samhæfing (e. coordination) er samsæri embættis- og stjórnmálamanna Evrópusambandsins gegn fólkinu. Samkeppni er hins vegar hið rétta. Samkeppni á milli landa. Hún skilar velmegun til borgaranna.

Hver er Evrópa? Hver er ESB? Svarið er; enginn 

Enginn er Evrópa og enginn er ESB þegar það kviknar í klósettinu undir þeim. Þá eru þeir allir ekkert og aldrei á því. Eins og þeir voru frá upphafi í Sovétríkinu. Umboðslaus massi. EU-rope til að hengja sig í. Leiðin til glötunar.
 
Godt begyndt
 
 
Fyrri færsla
 
 

Hvað mun gerast í rústum Evrópusambandsins?

Þetta er stóra spurningin. Evrópusambandið sem átti að vera er hrunið. Eftir stendur beinagrind þess í lausu lofti í tímarúminu og bíður þess að teiknimyndin af því segi zap-gonk-púff ef Þýskaland grípur ekki ranglega á því og afzappi það inn í vítisvél nýrrar v.5.2.1 útópíu meginlandsins. Þetta fyrirbæri í öllum myndum sínum er dæmt og var dæmt frá upphafi. Því miður fyrir borgarana, úr því sem þeir komu frá. En þeir voru ekki með í dæminu.

Vel er hugsanlegt að innan skamms muni lítið annað í heiminum standa gilt eftir á peningagólfi hans nema Bandaríkjadalur og gull. Dalurinn er betri því á honum stendur; á Guð við treystum. Það er það eina sem dugar þegar allt er sviðin jörð. Það er erfitt að burðast um á hælum með málmbyrðar eins og klyfjuð asnína.

Þessi stóri undirliggjandi upptaktur í reglulegt bankaáhlaup sem nú sést víða á evrusvæðinu, lofar hreint ekki góðu og gæti endað í tryllingsdansi. DXY-dollaravísitala heimsins lýgur ekki. Hún æðir upp í takt við óttastigið og flóttann úr bankalegum eignum í ESB. Það brakar í evrugólfinu. Snjóþrúgur ECB-seðlabankastjórnarinnar ná varla lengur yfir daglegar sprungur. Og spartslið er búið.

En hvað mun gerast í rústum Evrópusambandsins? Það er spurningin. To be, or not to be the U.S Dollar, með hinni réttu áletrun, verður þá í hæsta máta athyglisverð spurning, þegar svo margt annað verður bannað.

ESB tifar
 
Fyrri færsla
 
 

« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband