Leita í fréttum mbl.is

Draumurinn um hið sameinaða stórríki Evrópusambandsins

Lýðræðisþjóðir fara ekki í stríð við aðrar lýðræðisþjóðir  

Draumurinn um einskonar United States of Europe í utanríkismálum er skýr hjá utanríkisráðherra Frakklands

EEAS hefur alla burði til þess að þróast í utanríkisráðuneyti sambandsríkja Evrópu

Í tilefni heimsóknar til Póllands þann 20. júlí núna í sumar, hélt utanríkisráðherra Frakklands, Bernard Kouchner, ræðu á samkomu sendiherra Póllands. Þar sagði hann meðal annars eftirfarandi:

 

"Án nýju stjórnarskrár Evrópusambandsins (sem oft er nefnd Lissabon sáttmálinn) getum við ekki talað um framtíð fyrir Evrópu, enga framtíð fyrir öryggisvarnir Evrópu, enga framtíð fyrir stækkun Evrópu og enga framtíð fyrir fullkomnun Evrópu. Með 27 einstökum löndum er ekkert af þessu mögulegt" . . 

 

Lesið allan pistilinn hér á tilverunni í esb net  

 

Fyrri færsla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

"Fullkomnun Evrópu"....eru þeir ekki búnir að taka svolítið hopp þarna frá stjórnmálum yfir í trúarbrögð...

Haraldur Baldursson, 29.10.2009 kl. 08:36

2 Smámynd: Snorri Hrafn Guðmundsson

Sæll!  Ákvað að heimsækja þig hérna.

Var að fá þessi viðbrögð frá aðila vegna fyrirspurnar hvort ferðaiðnaður á Möltu væri að lenda í hremmingum:

"It is true – our tourism industry is in trouble but government does not want to admit it. Our ex-PM - a renowned economist - has rightly made a very thorough analysis of the situation re our finances and tourism and it is not very heartening. We are still thinking that we will not be hit hard but we are living a lie."

Lítur út fyrir að ég sé að leið í sólina aftur.  Flottur bloggvefur!

Snorri Hrafn Guðmundsson, 29.10.2009 kl. 09:23

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur innlitið 

Haraldur, hjómar þetta ekki vel í öllum þínum eyrum? Fullkomnun Evrópu. Það er eins og talað sé um hönnunarverkefni, sem þetta reyndar er. Nýtt ríki er í smíðum á útópíuverkstæði Evrópu. Eina ferðina enn.   

Takk kærlega fyrir þetta Snorri. Það er mjög athyglisvert að heyra frá Maltverjum sem vita hvernig landið raunverulega liggur þar. Þetta kemur mér ekki á óvart. Það er ekkert grín að þurfa að nota loftbelg fyrir mynt heilla ríkja. Airborne EUR-loftbelg sem reikar ráðvilltur um á himnunum. Ómannaður!

Megi þér ganga vel hvert sem þú ert að fara Snorri.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 29.10.2009 kl. 10:28

4 Smámynd: Haraldur Hansson

Ég tók saman nokkrar góðar tilvitnanir milli jóla og nýárs og setti í litla færslu. Margar þeirra vísa í sömu átt og orð franska ráðherrans.

Haraldur Hansson, 29.10.2009 kl. 18:30

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk kærlega fyrir þetta Haraldur H.

Þetta er gersemi. Að fá svona vel uppsett prógramm af apaplánetu Evrópusambandsins býðst ekki á hverjum degi. 

Eftir að hafa búið hér í þessu tröllabandalagi í 25 ár er maður orðinn það ónæmur að ég efast um að skriðdrekar og vopnaglamur úti á götum úti myndi ná að yfirgnæfa kirkjuklukkur Evrópuhers fjölmiðla og spunarokka ESB-elítunnar. Þetta er eins og lágfreyðandi heilþvottarefni.

Dixan, maður. Dixan.  

Gunnar Rögnvaldsson, 29.10.2009 kl. 20:31

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég hélt fyrst að Kouchner hefði skrifað þetta um lýðræðið, en sá svo við athugun að það varst þú Gunnar. Ég var farinn að halda að Kouchner væri farinn að sjá ljósið.

Stækkun og fullkomnun Evrópu, lýsir því hve mjög svo franskur Kouchner er. Hann langar aðeins að alllir í Stóraurropu verði eins og Frakkar. Samkvæmt Frökkum sjálfum eru þeir fullkomnastir og stærstir. En þeir eru líka blindaðir af sjálfsuppljómuninni, sem er komin á sjúklegt stig.

Þeir eru dálítið skrítin blanda Sarkozy og kratinn Kouchner, og ekki er ég viss um að Sarkomzy com sa sé mjög kátur yfir Koucher þessa dagana.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 29.10.2009 kl. 23:33

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Annar las ég einhvern tíma, að Sarko hafi gert Kouchner að ráðherra, því Kouchner er 1 sm lægri en Sarko.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 29.10.2009 kl. 23:40

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Vilhjálmur. Takk fyrir innlit.

Í Frans er menn farnir að kalla Sarko fyrir Herra G1 (G-einn)

Það passar kannski vel við hann: "ég er mikilvægastur og hef frumkvæðið, en þó mest megnis vegna þess hve ofvirkur ég er." ADHD in action þar. Stutt minni og miklar óraltóríur, þó mest aftansöngur.

Þetta passar kannski líka vel við þennan 1 cm sem hann gnæfir yfir utanvallarráðherranum  Kouchner.

Þetta er þó ekki eins slæmt og í Svíþjóð. Þar er nefnilega allt svo gott.   

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2009 kl. 07:25

9 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Sossa-hjörðin, sem vinnur að innlimun Íslands í Evrópusambandið hefur harðlega mótmælt því að fyrirætlanir sé og hafi verið, um að setja Evrópusambandinu Stjórnarskrá. Þetta er auðvitað hin mesta della, því að Stjórnarskrá hafði verið samin og atkvæðagreiðslur voru hafnar um hana.

 

Ekki nóg með að Stjórnarskrá var samin, heldur var tilbúinn fáni (flag), þjóðsöngur (anthem) og slagorð (motto).

Loftur Altice Þorsteinsson, 30.10.2009 kl. 18:04

10 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Fínt að halda inn í helgina með þessum gleðskap hér.

Ragnhildur Kolka, 30.10.2009 kl. 20:17

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Loftur og gott að sjá þig hér Ragnhildur

Legg ég svo til - í hverju sem fljótandi er - að sögð og gerð sé SKÁL! 

Suður og niður með Evrópusambandið og þokulúðrasveitir þess!

Megi Ísland lifa frjálst og fullvalda að eilífu!

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2009 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband