Leita í fréttum mbl.is

Ónýtir gjaldmiðlar, þáttur II. Spænska og Írska evran

vantraust2 

Spænska evran

hún er handónýt fyrir Spánverja m.a. vegna þess að 85% af húsnæðislánum þeirra eru með breytilegum vöxtum og það er verðhjöðnun á Spáni. Spánverjar þurfa að losna við 3 milljónir nýbyggðrar evrubólugrafnar íbúðir í hvelli. Bólugröfturinn kom vegna of lágra stýrivaxta á vitlausum tímum. En það mun ekki ganga vel að selja fasteignirnar því raunvextir eru svo háir þar núna og munu bráðum hækka ennþá meira, alveg í takt við að efnahagur Spánar hrynur enn meira. Það er líka 20% atvinnuleysi í landinu og 38% atvinnuleysi hjá ungmennum. Spánn þarf lífsnauðsynlega á hagvexti að halda. En seðlabanki spænsku evrunnar er því miður staðsettur í Frankfürt í Þýskalandi og mun bráðum hækka stýrivexti á Spáni til að þóknast valdamönnum í París, Berlín og Brussel - en ekki til að hjálpa efnahag Spánverja. Þetta mun þýða himinháa raunstýrivexti á Spáni og steindrepa efnahag þeirra. Spánn ætti að stunda peningaprentun núna og fella gengið. En þeir meiga ekki gefa út peninga og hafa ekkert gengi. Þýskaland og Frakkland hafa einokun á peningaútgáfu á Spáni. 

Írska evran

hún er líka handónýt því hún er að drepa allt á Írlandi vegna þess að þar eru núna hæstu raunstýrivextir í heiminum. Það er 4-6% neikvæð verðbóla á Írlandi núna. Því eru raunstýrivextir þar um 6-8% núna. Það svarar til að á Íslandi væru stýrivextir tæplega 19% núna. Enda er efnahagur Írlands hruninn eins og hann hefði lent í tvö til þreföldu íslensku bankahruni. Hann er hruninn eins og spilaborg og mest hruninn vegna of lágra stýrivaxta of lengi á vitlausum tímum. Allt er að drepast á Írlandi, lýðræðið líka. Írland ætti núna að vera að prenta írsk pund í tonnatali og fella gengið. En þeir meiga ekki gefa út peninga og hafa ekkert gengi. Þýskaland og Frakkland hafa nefnilega einokun á peningaútgáfu á Írlandi. Bráðum munu raunvextir á Írlandi fara enn hærra upp í gegnum þakið og klessukeyra efnahag landsins enn frekar svo hann geti þóknast valdamönnum í París, Berlín og Brussel.  Allt bankakerfi landsins andar í gengum loftslöngu skattgreiðenda á Írlandi

Hagstofa Írlands tilkynnti um 6,5% ársverðhjöðnun 9. október 2009 

 Hagstofa Írlands tilkynnti um 6,5% ársverðhjöðnun í dag

Fyrsti þáttur:

Ónýtir gjaldmiðlar I

 

Fyrri færsla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er komið að því fyrir yngri Meðlima ríki að borga fyrir gömlu for-aðildar kostina. Spánverjar ráku iðnarmenn á sínum tíma og fleytu sér síðan á nýlendu góssi. Nú er þeir allir orðnir fæðingar í nýjum húsum. Innflutt vinnuafl kostar sitt. Hús verða gömul.  

Ísland er biðja EU ríkin um hjálp til að endureisa fjármálkerfið sitt.

Júlíus Björnsson, 10.10.2009 kl. 02:19

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já, þú segir nokkuð Júlíus. Er það ekki undarlegt að svona margt sem kemur nálægt nýja útópíuríki Evrópusambandsins skuli rotna svona hratt í samfélagslegt gjall?

Það er kominn tími til að rúlla valdi Brussel til baka, leggja það helst alveg niður, og einbeita sér að raunverulegri samvinnu á milli landa. Evrópusambandið er að verða kirkja pólitísks rétttrúnaðar sem er að eyðileggja Evrópu. Það er búið að þjóðnýta stjórnmál í Evrópu aftur. Einu sinni enn. 

Evrópusambandið á stóran - og jafnvel stærstan - þátt í þessari kreppu. Þar innanborðs er búið að byggja upp einn stærsta orsakavald ójafnvægis hagkerfa heimsins sín á milli;

  1. Samanlagaðan 1 billjón dollara hagnað (surplus) Þýskalands við umheiminn á síðustu 8 árum (1þúsund miljarðar dollarar). Þetta er hrikalegur ójöfnuður (imbalance) sem á stóran þátt í að efnahagur heimsins hrundi. Hagstjón Þýskalands axlar enga ábyrgð. Hún er sníkjudýr á heiminum. Efnahagslegt sníkjudýr. 
  2. Ónýtt myntbandalag með ónýtri mynt sem eyðileggur samfélögin innanfrá. Búið er að afvopna þjóðirnar. Þær geta ekkert gert sér til varnar.
  3. Valdníðslusvikamylla embættismannaveldis Brussel byggir sökkulinn undir þetta. Þetta organ og klíka hinna útvöldu ætti að setja á alþjóðlegan lista yfir hryðjuverkasamtök
  4. Regluverkið þeirra sem eyðileggur samfélög og efnahag þeirra er baneitrað. 
  5. Fullkomið ábyrgðarleysi. Einskis er svifist til að ná vilja sínum fram gangvart smáþjóðum.  

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.10.2009 kl. 08:12

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Lausnin fyrir ísland er að koma á gjaldmiðlafrelsi og taka upp skiptahlut eins og tíðkast hefur um aldir. Lækki verð afurða (þjónustu, vöru osfrv.), minnkar skiptahluturinn, rétt eins og gert er með gengisfellingu.

Engin ástæða er til gerast hluti af ESB. Það er afar takmarkandi að einblína þangað. Heimurinn er stór og fer stækkandi (Indland og Kína) en Evrópa er á niðurleið.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 10.10.2009 kl. 16:01

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Íslensk króna er fyrst og fremst ávísun á sjávarfang í augum ríkra útlendinga, aðstöðu og orku. Þegar Ísland vegna skuldbindinga í lánum og takmarkanna af náttúrulegum ástæðum hefur ekkert meira til ráðstöfunar í 30 ár þá hefur enginn ástæðu til fjárfesta í krónum.

Hugvit er færanlegt svo og hugbúnaður. Flest ríki heims telja sig búa yfir miklum mannauð. Þar eru það gæði ekki magn sem skipta máli.

Stjórnskrárbundin markmið EU frá 1957 eru að tryggja meginlands launþegum ódýrasta brennsluefni á heimsmælikvarða innan ramman manneldisjónarmiða.

Til þess þarf að koma upp verksmiðju fullframleiðslu að líkt og USA fyrir sem flest grunn hráefni: Tómata, bygg, fisk og kjöt,...

Svokallað samstillingar regluverk þjónar sínum tilgangi þannig að það fækkar hráefnisframleiðendum sem eru allir tryggðir í stjórnarskrá  EU að skerðast ekki í lífskjörum þegar þeir telja sig ekki geta uppfyllt sömu reglur innan ramma verðlagsákvæða miðstýringarinnar. 

Þetta er dæmi um þann kostnað sem Evrópska Sameiningin hafði í för með sér á leiðinni til stöðuleika stofnanna miðstýringarinnar.

Þegar Risaframleiðslurnar eru orðnar nógu stórar minnkar eftirlitskostnaður og stórhluti reglufargansins heyrir sögunni til.

Fullframleiðslulaunakostnaður  og allur annar þjónustugeiralaunakostnaður lækkar að sama skapi líka. Íbúar hagstjórnarkerfis EU  búa flestir í milljóna miðstórborgum eða undir höfuðborgum eru það aðalatriði sem hugtakið heildarhagsmunir ganga út á.

Ísland uppfyllir skilyrði hagstjórnarskrár Sameiningarinnar hvað varðar að vera utanútjaðarseyjalandsvæði. Insularity eru fordómar sem fylgja þessu í stofnanna heilum stórborga meginlandsins í ljósi þess hver full merking er.  

EU vill hafa hagstjórnarsamvinnu með slíkum einhæfum hráefnisframleiðum sem m.a. tryggir þeim tekjur til allra nauðsynlegasta fullframleiðslu varnings og eiga samskipti við slíka svæði gegnum alþjóðastofnanir. Spurning er hvort það merki að deila með öðrum risum aðstoðinni við þessa einangruðu eyjaskeggja vanþroskaðra hagstjórnarkerfa vegna þessa að grunninn vantar: stöðugt framboð oft háð veðráttu.

Hagstjórnskrá EU tekur líka til Seðlabankakerfis með eitt útibú í hverri efnahagslögsögu Miðstýringarinnar.

Þessir Selabankar gegna meðal annars eftirlits og tölfræðilegu upplýsinga hlutverki. Eru algjörlega sjálfstæðir hver í sinni efnahagslögsögu gagnvart ábyrgðar aðilum hennar. Allir vinna þeir á sameiginlegum hagstjórnar markmiðagrunni heildarinnar. 

Þeir er líka í sjálfum sér vaxtaskattatæki gagnvart EU-fjármálaeinkaframtakinu m.a Bönkunum í sérhverri samkeppni efnahagslögsögu. Græði lánastofnanir þá græðir Seðlabankinn og þá græða Ríkistjórnir þjóðríkjanna, þá græðir Miðstýring í EU  fulltrúi heildarinnar eða hæfs meirihluta hverju sinni.

Gengi allra gjaldmiðla nýrra efnahagslögsagna í EU sem taka upp Evru eru enn skráð m.a. að ég tel til að rökstyðja niðursetningu nýrra sameiginlegra stofnanna, þriðja aðila [USA, Kanada t.d.] fjárfestingar.

Umboð miðstýringar á nefnilega ef ég skil rökrétta hugsun menginlanda ráðamanna rétt að tryggja stærðahlutfalslegan stöðuleika.   Gengið sem er skráð á degi formlegrar aðildir á að haldast hlutfallslega miðað við gengi þeirra sem efnahagslögsagna sem fyrir eru. Fjármálavaldajafnvægið innan EU á ekki að riðlast.

Ein efnahagslögsaga á ekki að fitna á kostnað hinna, allar eru í innbyrðis samkeppni innan ramma sömu laga að eigin vali.

Hinsvegar fá öll væntanlega Ríki formlegrar aðildar gífurlega samkeppni aðstoð til að treysta sína eigin sjálfbærni. Sem gæti verið að auka þéttingu byggðar á landsvísu til að auka arðsemi landsvæða sem eru byggjanleg,  auka fullframleiðslu á eigin hráefnum til nýtingar á eigin innri heimamarkaði.  Þessi aðstoð eru lánafyrirgreiðslur og úthlutun stofnananna eða fjárfestinga þriðja aðila. Þetta er líka kostnaður í vissum skilning og Miðstýring sér um að ef eitt ríki fær þá afsalar það sér einhverju til þess að það hagnist ekki á kostnað heildarinnar. Þetta kallast hagstjórnar jafnvægi m.t.t. til hinna hagstjórnanna. 

Það virðist vera eyjarskeggja hér hafi ekki skilið EU rökhugsun hæfs meirihluta í krafti fjármagns þegar þeir opnuðu með EES aðganginn að uppbyggingarstefnuskrám EU til formlegrar aðildar síðar meir.

Til dæmis jukust þjóðartekjur á einstakling í alþjóða samhengi nánast ekkert síðan 1982.   Íslendingar sem vilja græða á útlendingum ættu velja sér aðra en Ráðmenn í EU.

EU er ekki alslæmt  það mega allir bjarga sér á eigin spýtur en enginn svínar á Miðstýringunni eða heildinni. Yfirdráttur er stjórnarskrárbrot í EU.

Insularity.

Júlíus Björnsson, 10.10.2009 kl. 17:58

5 Smámynd: Haraldur Baldursson

Eignartilfærsla er málið. Allur hinn vestræni heimur hefur verið duglegur að færa eigur sínar til Asíu með því að trúa á ofurmátt gjaldmiðla sinna. Við, eins og í öllum góðum kappleikjum, hlupum hraðar en margir aðrir.
USA
USA er það land sem í raun brást fyrst við þessu. Var það viljandi að Dollarinn fór að hrapa undir stjórn Bush ? Ég held að svo sé. USA er sjálfum sér nóg um svo margt og það stórt hagkerfi að þeir gátu auðveldlega brugðist við eignartilfærslunni sem skapaðist við ofur-sterkan Dollar. Innflutningur til USA var einfaldlega OF MIKILL.
ESB
Þjóðir evrópu fengu röng skilaboð; "skipuleggið fríið...ekki hafa áhyggjur af efnahagnum, við erum að gera allt rétt". Og allt var "rétt"....en bara á meðan Dollarinn var sterkur. Nú er sá sýndarveruleiki horfinn. Tilveran var svo "yndisleg" að það lentu of fáir á þeirri niðurstöðu að framgangur felur í sér endurnýjun. Fæðingartíðni innan ESB gefur það sterkast til kynna að hnignunin var óhjákvæmileg. Fríið var of langt....það þurfti enginn að horfa til framtíðar.
Ísland
Okkar yndislega land á sömu möguleika og USA. Við erum smærri en af því að við erum með sjálfstæðan gjaldmiðil, þá getum við aðlagað efnahags þarfir okkar að breyttum aðstæðum. Við erum líka að leiðrétta eignartilfærsluna að nýju, með því að vöruskiptajöfnuðurinn er að færa eignir til landsins, en ekki frá því.

Haraldur Baldursson, 11.10.2009 kl. 10:16

6 identicon

Þú ert að vitna í frétt frá árinu 2000. Síðan notar þú rúmlega 9 ára gamla frétt til þess að reyna að sannfæra fólk um að evran sé slæmur gjaldmiðill.

Heldur þú virkilega að fólk sé heimskt ? 

Til þess að skemma þessa vitleysu hjá þér, vonandi varanlega.

"The euro is the second largest reserve currency and the second most traded currency in the world after the U.S. dollar.[19] As of November 2008[update], with more than €751 billion in circulation, the euro is the currency with the highest combined value of cash in circulation in the world, having surpassed the U.S. dollar.[20] Based on IMF estimates of 2008 GDP and purchasing power parity among the various currencies, the Eurozone is the second largest economy in the world.[21]"

Tekið héðan.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 15:24

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

ahh - Jón Frímann 

Það er ekki vitnað í neina frétt hér, Jón. Nei, ég held ekki að fólk sé heimskt Jón Frímann. Svoleiðis haldi hafa sósíaldemókratar fyrir löngu fengið skrásett ® einkaleyfi á í allri Evrópu. Þannig að ég hef ekkert leyfi til að halda slíkt. Enda væri það ljótt.

En ég veit hinsvegar að þú virðist sjálfur vera svo ein- og tvíheimskur að sjá ekki að þessi mynd lýsir raunveruleikanum eins og hann var hér fyrir aðeins nokkrum árum og kemur reyndar frá fyrsta þætti ónýtra gjaldmiðla sem birtist hér á blogg mínum miðvikudaginn, 4.6.2008 undir fyrirsögninni: Ónýtir gjaldmiðlar.

Kíktir þú annars nokkuð á textann fyrir neðan myndin Jón, eða sástu kannski bara strax rautt þegar myndin barði augu þín með ljótri ásýnd sinni? Það er einmitt vísað í þennan fyrsta hluta þáttarraðarinnar um ónýta gjaldmiðla neðst í bloggfærsunni hér að ofan. En myndin er fín, það veit ég vel Jón, enda þolir þú hana ekki. Hún er nefnilega tekin úr raunveruleikanum frá því að Evrópubúar álitu gjaldmiðilinn sinn evru vera ónýtt drasl

Það munu koma hér fleiri þættir úr Evru-Víetnam styrjöldinni í Evrópusambandinu. Kannski get ég fundið fleiri góðar myndir til að ergja þig með Jón, hver veit. 

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 11.10.2009 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband