Leita í fréttum mbl.is

Hagfræðiprófessor í Eistlandi: það eina sem evran gefur er áróðursgildi

Frétt úr Evru-Vítetnam styrjöldinni fyrir botni Eystrasalts

Marge Tubalkain

Evrustríðsfréttaritainn Marge Tubalkain - hjá Baltic Euro Army Combat News - sem viðstödd er bardagana fyrir botni Eystrasalts, skrifar heim frá vígvöllum Eystrasaltsríkja: hún tilkynnir að Olev Raju prófessor í hagfræði við University of Tartu hafi sagt að evra muni ekki hafa neitt gildi fyrir efnahag Eistlands nema þá helst þessi þrenn 

  1. ok. til ferðalaga
  2. ok. til að flytja peninga frá A til B og svo jafnvel til C
  3. hafa eitthvað áróðursgildi 

og þá er allt upp talið.

Það er meira að segja pláss fyrir allt það sem prófessorinn sagði í einni til tveimur línum hér

He said that euro will make travelling and money transferring easier and gives some propaganda effect for the economy and that’s it 

 

(Professor: Euro in a year is political talk

En eigum við ekki að gera eitthvað skemmtilegra en Evru-Víetnamið, til dæmis að horfa á raunverulegu töfrana hennar Olivíu! Þeir eru a.m.k. raunverulegir galdrar!

 

Eitt lag enn með Ólivíu hér: A Little More Love  

Fyrri færsla 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig kemstu af (eftir allt saman, þá áttu heima í verðtrygginarlausu ESB landinu Danmörku) þegar Danir taka upp evru árið 2012, sem allt stefnir í að verði raunin. Sjá nánar hérna.

Og síðan er líklegt að íslendingar gangi í ESB árið 2012, þrátt fyrir frekar neikvæða afstöðu til ESB þessa dagana. Sem ég er reyndar fullviss um að muni breytast til fyrra hofs þegar ástandið fer að skána hérna á landi í kjölfarið á stuðningi ESB við efnahag Íslands. Sá stuðningur er líklega væntanlegur í kjölfarið á aðildarviðræðum Íslands við ESB.

Hvað gera xenophobic menn eins og þú þá ?

Jón Frímann (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 19:47

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Gunnar:

Við getum verið sammála um hversu flott Olivia Newton John var!

Hvar var þessi hagfræðiprófessor í framhaldsnámi? Það skyldi þó ekki vera að það hafi verið í Moskvu á árunum í kringum 1980? 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.9.2009 kl. 19:55

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Og áróðursgildið kostar líka sitt.

Evrópusambandið eyddi meira en €2.4 milljörðum í áróður á síðasta ári og það er meira en Coca Cola eyddi í auglýsingar á heimsvísu á árinu. Frá þessu var sagt á openeurope vefnum síðastliðið vor að mig minnir.

Ragnhildur Kolka, 16.9.2009 kl. 21:13

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jón: horfðu á Olivíu aftur, þá skilur þú þetta allt miklu betur

Guðbjörn, en hún Olivia er ennþá flott.

Menntun Olev Raju? Það veit ég ekki. Hann var a.m.k formaður fjárlaganefndar þings Eistlands.

En ef maðurinn skyldi nú vera menntaður í Moskvu (sem ég veit ekkert um) þá gæti það útskýrt margt, því ekki einusinni Moskvu-hagfræðingum datt í hug að leppríki Sovétríkjanna þyrftu að nota sömu mynt og notuð var í Sovétríkjunum.

Pólverjar voru t.d. með gamla Zloty sitt allan tímann undir Moskvu og alveg frá 1850 og eru enn. Það er meira en hægt er að segja um hina nýju kynslóð áætlunarbúskapar hagkerfis Evrópusambandsins undir Brussel. Þar verða allir að ganga í sömu skógerð og skóstærð í einum lit. Þetta er frekar frumstætt miðað við matrixuna hjá þeim í Moskvu á sínum tíma.

Tékkóslóvakar leystu málin sín á milli brilliant þegar Slóvakía sagði skilið við Tékkland. Það var bara grafið með laser í seðla Tékklands til að skilja þá frá seðlum Slóvaíku. En þetta var auðvelt þar sem það voru tveir seðlabankar sem unnu saman. Ekki einusinni þetta væri hægt ef maður vildi brenna sig burt frá evrunni, því maður hefur ekki seðlaútgáfuréttinn

Gunnar Rögnvaldsson, 16.9.2009 kl. 21:14

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ragnhildur. Það er mjög dýrt að vera ríkt leppríki í ESB. Peningarnir fossa út úr þeim yfir til Brussel. Fossinn hættir fyrst þegar allir eru orðnir jafn fátækir. Þegar múrinn fellur jafnt yfir alla á alla vegu. Þá eru menn það sem kallað er að vera umkringdir eða umluktir. Þá vilja allir aftur vera jafn-fátækir eftir að þeir fyrst vildu vera jafn-ríkir, en það gékk bara ekki í lengdina sbr. Sovét og DDR   

Gunnar Rögnvaldsson, 16.9.2009 kl. 21:22

6 identicon

Gunnar, þó trúir sjálfum sér, og þinni eigin lygi. Slíkt er mjög slæmt, og alls ekki málefnalegt.

Ragnhildur, innan ESB ríkjanna búa 497 milljónir manna, þar eru töluð eitthvað í kringum 27 tungumál. Það kostar auðvitað að dreifa kynningarefni á öllu þessu svæði, og fyrir allt þetta fólk.

OpenEurope (Wiki grein, ófullkomin) er hópur sem er á móti ESB. Sem slíkur þá er málflutningur hans ótrúverður og byggður á blekkingum.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 22:33

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

OpenEurope eru samtök sem fylgjast með því sem er að gerast í ESB og kemur þeim upplýsingum á framfæri. Upplýsingar sem birtast í dagblöðum, opinbera umræðu í Evrópu, umfjöllun á Evrópuþinginu og tölur sem teknar eru úr bókhaldi ESB (svo trúverðugt sem það nú er).

Jón Frímann, samtök verða ekki ótrúverðug fyrir það að vera á móti einhverju. Þau verða ótrúverðug ef þau segja ekki sannleikann. Þeir sem ekki vilja heyra sannleikann láta eins og þú, breiða yfir haus og kaupa áróðurinn um nauðsyn €2.4 milljarða til áróðursútgjalda.

ESB snýst um ESB. Ef ESB snérist um fólk þyrfti sambandið ekki €2.4 milljarða af skattfé borgaranna til að sannfæra þá um ágæti sitt.

Ragnhildur Kolka, 17.9.2009 kl. 07:34

8 Smámynd: Haraldur Baldursson

Jón Frímann €2,4 milljarðar er há upphæð. Það má nota tölur til að reikna sig að niðurstöðu. Gefum okkur það að hver þýðandi fái 10 miiljónir ÍSK fyrir sín störf á ári. Hvert hinna 27 tungumála hafi sinn hóp þýðenda. Já og gerum ráð fyrir að 1/3 af heildarupphæðinni fari í þýðingar.

Thydendur

Haraldur Baldursson, 17.9.2009 kl. 10:26

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

"openeurope" er UK think tank rugludallar.

Þeir sem pikka upp þetta rugl úr þeir er Stormfront og aðrir álíka kónar.

Bara þvæla náttúrulega.  Þeir taka einfaldlega allt þarna inn og kalla "propaganda" um sífellt "closer union"

Hérna er bara smá sýnishorn hvað þeir tóku með:

"education projects and student exchanges such as lifelong learning, Comenius, Erasmus, Leonardo, Jean Monnet etc – € 873 million
• the LIFE programme (financial instrument for the environment, 2007-2013) – € 248 million
• EURES, the service which helps people to find jobs - € 20 million
• support for the European audiovisual sector, including the MEDIA programme – € 93 million
• the operating costs of the Education, Audiovisual and Culture agency which manages town twinning and other activities - € 19.9 million
• the Culture Programme - €44.6 million
• the Youth in Action programme - €120 million
• and one of my favourites: the administrative expenses for MEPs, including eurosceptic ones(!) – € 51.6 million "

Í framtíinni verður mikið rannsóknarverkefniefni (og verða líklega mikilir fjármunir settir í það) að skilgreina alla þvæluna og bullið sem kemur frá andsinnum.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.9.2009 kl. 12:15

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er merkilegt að tveir menn, Jón Frímann og Ómar Bjarki, skuli í næstum hverju einasta innleggi sínu megna að hljóma eins og einn og sami maðurinn. Eru þetta kannski einn og sami maðurinn?

Jón Frímann er kominn með tvö innlegg hér og tekst í því seinna að kalla það lygar sem skrifað var. Þetta er eitt vinsælasta orð Jóns og ein af þremur nótum í óratóríu orðabókar hans sem er upp á eina blaðsíðu. Þar eru aðeins þessi þrjú orð: "lygar, bull og þvæla".  Ég var annars búinn að vara þig við Jón Frímann. Eitt innlegg í viðbót í þessum "lygar, bull og þvæla" stíl og þá er það út. 

Ómar Bjarki getur varla skrifað eitt innlegg án þess að orðin "rugl, þvæla eða bull" komi fyrir þar líka, og sem oftast nær öll í einu og sama innlegginu.

Takið ykkur á drengir, því annars hendi ég ykkur út af þessum blogg. Ég fer ekki fram á mikið.  

Guðbjörn skuli fara að setja spurningarmerki við menntun Olev Raju prófessor í hagfræði er fyrir neðan alla beltisstaði. Fátæktin er alger. 

Skýrsla Open Europe 

Varðandi skýrslu Open Europe þá held ég að það væri best fyrir ykkur að lesa hana áður en þið kommentið og afgreiðið hana. Þetta er vel unnin skýrsla og unnin af mjög hæfu og reyndu fólki. Alla skýrsluna er hægt að nálgast hér: ESB eyðir tveim miljöðrum punda í áróður fyrir eigin ágæti - á hverju ári!

Sænska hugveitan Timbro birti einnig nýlega skýrslu um áróðursvél Evrópusambandsins. Hægt er að nálgast hana hér: The European Union's burden 

Það sem ég skrifaði um

Annars finnst mér merkilegt að það sem sumir hagfræðingar eru farnir að líkja við efnahagslega Víetnam-styrjöld fyrir botni Eystrasalts (þ.e. auðvelt að hefja stríðið en næstum ógerningur að komast út úr því aftur) er að enda með slíkum þjóðfélagslegum hörmungum að annað eins hefur ekki sést á plánetu okkar frá því 1929.

En þetta er innganga Eystrasaltsríkjanna inn í anddyri EMU til þess að reyna að taka upp evru eftir að löndin gengu inn í Evrópusambandið þar þau voru að flýta sér undan skelfilegri fortíð sem leppríki Sovétríkjanna. Enginn vísar þessum löndum veginn og þeir sem eru ábyrgir fyrir því hvernig komið er fyrir þessum þremur löndum láta núna eins og þau séu ekki til. Þeir vísuðu þeim veginn inn í biðsalinn, en hafa engar lausnir á því hvernig löndin komast úr úr evrustyrjöldinni aftur og loka jafnframt á efnahagslegar skynsemislausnir þeim til handa til þess eins að verja hagsmuni sinn eigin bankakerfa. Nú er bara þagað þunnu hljóði og beðið eftir kraftaverkum. Á meðan blæðir löndunum út. Þetta er skammarlegt. Minnst eins skammarlegt og meðferðin sem Ísland fékk hjá ESB varðandi Icesave ánauðina. 

Gunnar Rögnvaldsson, 17.9.2009 kl. 13:39

11 identicon

Það er svolítið leiðinlegt þegar fólk endurskoðar ekki bara fyrri skoðanir síðar frekar en að grípa til leiðinda eins og að tala um lygar þegar góð rök eru kynnt á blaði...

jonaskeri (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 17:05

12 Smámynd: Júlíus Björnsson

Og síðan er líklegt að íslendingar gangi í ESB árið 2012, þrátt fyrir frekar neikvæða afstöðu til ESB þessa dagana. Sem ég er reyndar fullviss um að muni breytast til fyrra hofs þegar ástandið fer að skána hérna á landi í kjölfarið á stuðningi ESB við efnahag Íslands.

Stuðningur til að hjálpa sér sjálfur er hugmyndafræði hjá hæfum meirihluta í EU, nokkuð sem sumir eyjaskeggjar skilja ekki hvað kostar. Sjaldan launar kálfurinn ofeldið.

Best er hjálpa sér sjálfur eins og hæfur meirihluti í EU.

Bretar og Hollendingar treysta ekki efanahag Íslands fyrr en eftir 2024 sennilega vegna þess að munum einangra okkur efnahagslega innan EU að þeirra mati.

Þótt best væri að nýta sér stigvaxandi samkeppni milli stórublokkanna um hráefni, flutninga aðstöðu og orku. Skera niður, fjármálgeira  til að minnka fjármagnskostnað innanlands, segja okkur úr EFTA. Leita eftir tvíhliða samningum við hvert ríki um það sem höfum til aflögu í framtíðinni.  Spila á hlutleysi og hætta að forgangsraða eftir menningararfleiðum stjórnsýslukerfa.

Taka ráð EU meðilmi til fyrirmyndar með að leggja áherslu á fullframleiðslu og tækni lítilla og meðalstórra fyrirtækja með 75% heimamarkað á Íslandi á Íslenska mælikvarða hvað varðar stærð, stórefla grunnmenntun sér í lagi hugarreikning til eflingar rökréttri hugsun. Stytta námstíma með auknum kröfum. Stærri hluti þjóðarinnar þarf að koma út í framleiðsluatvinnulífið það verða fullnuma síðasta lagi 24 ára þegar best er að eiga börn. Reynslan er besti skólinn líka hvað varðar margar fræðigreinar.

Herþjónusta er skárri en óarðbær námsdvalarkostnaður sem kostar okkur meira en þó 3% þjóðarinnar vinni við fisk og landbúnað. Ef hinn 97% hafa tekjur án persónuafláttar til að greiða fullt verð  fyrir hollustuna. Galdur er að illu er bestu aflokið og stefna að 6 tíma daglegri afkast vinnu allra einstaklinga til að lifa góðu tekjulífi alla ævina.    

Almenningur á Íslandi hefur aldrei fengið bætt þjóðarsáttina sem var undafari óformlegu aðildar nágranna ríkis [EES]: Hann mun aldrei njóta formsatriðanna sem eftir eru. EU  þarf ekki að upp hagvexti hér þegar hæfur meirihluti sem heild hefur eignarhaldið á öllum sviðum.

Halda því fram t.d. að þjóðverjar geti ekki passað upp hvað EU skattfé þeirra fer í til langframa, örugglega ekki í aumingja hjálp þegna annar Meðlima-Ríkja sem öllu eru í innri [gervi] Markaðasamkeppni. 

Margur verður af lestri api það er sko alls ekki sama hvað eða hvernig er lesið. Grunngreindarlaus maður getur sjálfsögðu talið sér trú um annað.

Smali lærir hvernig á að skila hópnum heim, hugsa um þann aftasta en ekki elta rassgatið á forustusauðnum.  Sjómenn miga ekki upp í vindinn. Reynsla áttvísi er það sem hefur alltaf virkað. Þótt grasið sýnist grænna í augum græningjans.

Júlíus Björnsson, 18.9.2009 kl. 05:06

13 identicon

Bendi á skemmtileg og fróðleg viðtöl á sænskri internet-útvarps-fréttasíðu:

Anthony og Derek frá Wise Up Journal fjalla um baráttu Íra gegn áróðursvélinni

http://www.redicecreations.com/radio/2009/09sep/RIR-090917.php

og svo ekki síður

Marta Andreasen, evrópuþingmaður, fyrrum endurskoðandi evrópuþingsins (rekinn fyrir dónaskap - ekki nógu mikill team-player) og höfundur bókarinnar Brussel beruð - fjármálasvik innan evrópusambandins (Brussels Laid Bare, Financial Fraud within the European Union).

http://www.redicecreations.com/radio/2009/09sep/RIR-090908.php

Gullvagninn (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 10:49

14 identicon

framlína viðnámsins er þessa stundina Írland, hinir hundheppnu Írar, sem 'for the luck of the Irish' fá að kjósa um breytingar á ESB sem aldrei átti að vera hægt að gera nema með kosningum innan allra landa bandalagsins og hver og einn átti að hafa neitunarvald...

Nýútkomið blað "Sovereign Independent" - alvöru "sjálfstæðisfólk" (skammast mín nánast fyrir að nota þetta orð á alvöru sjálfstæðissinna)

http://www.sovereignindependent.com/downloads/Sovereign_Independent_Issue1.pdf

Gullvagninn (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband