Leita í fréttum mbl.is

Mér líst afar illa á þessar væntingar háskólamannsins. Er sannfærður um að þær samrýmast ekki raunverulegri skoðun Seðlabanka Íslands

Takmarkalaus bjartsýni sem byggist á trú - eða óskhyggju?

"Ég held að þessar tölur séu eðlilegar,“ segir hann. Reynsla landa sem hafi lent í djúpri kreppu sé sú að undantekningarlítið taki við hraður hagvöxtur" - segir Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við HR og fulltrúi í bankaráði Seðlabankans

 

Sjá tengingu við frétt Morgunblaðsins hér að neðst í færslunni 

World Industrial OutputWorld Stock Markets

Já mikið rétt prófessor Friðrik Már. En þessi kreppa er engin venjuleg kreppa. Við erum því miður stödd í miðri undanteknigunni sem þú nefnir. Þessi kreppa er í raun algerlega einstök því aldrei áður hefur heimurinn allur fallið eins hratt ofaní hyldjúpan öldudal og núna. Aldrei áður hefur fallið verið eins samhæft og aldrei eins hnattvætt. Áður fyrr voru kreppur staðbundnar, að minnsta kosti staðbundnar við einstök lönd, myntsvæði þeirra eða jafnvel við heilar heimsálfur eða hluta heimsálfa. En núna er efnahagur heimsins miklu meira samtvinnaður og samofinn en nokkurntíma áður og myntsvæðin miklu stærri og illverjanlegri en nokkurntíma áður. Þetta er mikið af hinu verra því engin eru til verkfærin til að glíma við svona kreppur. Þær vinna því verk sitt hraðar og áhrifaríkara en nokkurntíma áður. Því mun batinn upplifast sem áframhaldandi kreppa og verða átakanlega hægur, ef nokkur. Aðalviðskiptalönd Íslands, sem eru ESB lönd, munu ekki komast út úr kreppunni yfir höfuð. Þetta er ekki bara mitt álit heldur einnig margra annarra. Þetta er hátími hinna brostnu vona í Evrópusambandinu. Mestu og áköfustu aðdáendur myntbandalagsins eru nú gráti nær hér í ESB því þeir gera sér þetta ljóst. 

Something will have to give in the long run 

Svo kæri bjartsýnismaður

Hagvöxtur í Þýskalandi í 60 ár

Kreppan mun halda áfram í þeim skilningi að hinir svokölluðu "góðu tímar" fyrir Evrópusambandið og fylgihnetti þess eru búnir og munu aldrei koma aftur. Nema fyrir þau lönd sem frjálst geta valið um viðskiptasvæði, um efnahagsleg samvinnulönd og ráðið efnahags- og peningastefnu sinni sjálf. Það geta næstum engin af löndum Evrópusambandsins og alveg sérstaklega ekki litlu aðildarlöndin. Þau eru nefnilega læst inni í handjárnum Evrópusambandsins og leiksoppur hinna stóru. Góðu tímar Evrópusambandsins voru þó ekki betri en það að evrusvæðið sem heild á heimsmet í lélegum hagvexti hin síðustu 15 ár samanlagt. Evrusvæðið mun einnig fara lang langsamlega verst út úr kreppunni. En þetta mun verða ennþá verra um alla framtíð því þessa þróun mun hröð aldurshnignun þegna Evrópusambandsins á komandi áratugum innsigla - ásamt hinum læstu handjárnum sambandsins á höndum og herðum aðildarlandanna. ESB er búið að vera sem efnahagssvæði. History. Það átti því miður aldrei sína góðu tíma, því þeir tímar voru fyrirbæri sem tilkoma ESB eyðilagði fyrir þjóðum ESB - og sem allir lágu í tímarúminu fyrir fæðingu The European Union og EMU. Meistaraverki embættismannana. Þetta er ofureðlileg þróun, því við höfum jú áður séð hvað gerist þegar embættismenn og áætlunargerðarmenn ofmetnast - sumir hafa þó bara ekkert lært af reynslunni 

Fyrri færsla

Það þurfti þá ekkert ESB eftir allt saman. Engin ástæða til að leggja niður TAX FREE


mbl.is Hraður vöxtur eftir kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það mætti innlima ESB löndin í EFTA...umsóknarferlið gæti verið hratt, enda ESB búið að taka upp flestar reglur EFTA (aðallega með´því að skrifa þær)

Haraldur Baldursson, 24.7.2009 kl. 14:43

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Sérkennilegt hvernig vegið er að þeim sem voga sér að setja fram bjartsýnar hugleiðingar og spár... við erum að festast í svarsýnis og neikvæðnigildru sem er vont fyrir sálina.

Jón Ingi Cæsarsson, 24.7.2009 kl. 22:03

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur innleggin

Hvernig er vegið að Friðrik Már Baldurssyni í færslu minni Jón? Það geri ég hvergi. Það er ekki Friðrik Már sem ætlar að borga Icesave, heldur ekki þeir sem sitja í ríkisstjórn núna. Þetta er ekki dægurmál Jón. Þetta er ekki venjulet "pólitískt málefni". Þetta er um grundvöll framtíðar á Íslandi. Áhættan er gríðarleg, jafvel glæpsamlega mikil og getur riðið landi okkar að fullu. Þetta er algerlega óásættanleg áhættutaka. Lýðveldið Ísland er ekki vogunarsjóður.

Ekkert ríki með fullu viti gerir svona lagað. Leita verður að réttarstöðu Íslands og sækja verður málið hart fyrir dómstólum. Það er alger forgangskrafa og alger lágmarkskrafa um málsmeðferð

Ef til kemur eru það íslenskir skattgreiðendur (á meðan þeir eru á lífi og starfa á Íslandi) og komandi kynslóðir sem munu þurfa að greiða Icesave skuldir þeirra fjárglæframanna sem bjartsýnir stjórnmálamenn, fjármála"snillingar", hagfræðingar, fjölmiðar, forseti Íslands og fleiri menn í áhrifastöðum á Íslandi klöppuðu upp í svo mörg ár.

Það er hinsvegar vel hægt að segja að hér sé vegið hrikalega að íslenskum skattgreiðendum og jafnvel að öllum þegnum á Íslandi. Hér er alls ekki vegið að háskólaprófessorum, sem fá sín laun no matter what. Þeir eru penauts í þessu samhengi

Geymið vinsamlegast bjartsýnina þar til seinna og takið nú loksins upp raunsýnina. Hún ER til og hún ER bráðnauðsynleg, það þarf einmitt að nota hana núna. Það er ENGIN ástæða til bjartsýni núna, það vita menn mæta vel. Ekki endurtaka bjartsýnisskollaleik undanfarinna ára. Það væri mikil ógæfa

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.7.2009 kl. 23:08

4 identicon

Mikið er ég sammála þér Gunnar, þessi kreppa er öðruvísi, og það eru ekki bjartir tímar framundan í ESB, nú eða Bandaríkjunum.  Okkur væri hollast að byggja upp allt það sem gerir okkur óháðari öðrum þjóðum og snúa við úr þessari alþjóðavæðingu.

Georg O. Well (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 10:57

5 identicon

Sæll Gunnar.

Við skulum ekki gleyma því sem Friðrik Már hefur sagt í gegnum tíðina. Hann andmælti því kröftuglega fyrir um 2 árum að Ísland væri á leiðinni í kreppu og skrifaði m.a.s. grein í enskt blað til að andmæla fræðimönnum sem bentu á að kreppa væri í uppsiglingu. Af hverju skyldi hann hafa rétt fyrir sér um þetta?

 Þegar hagfræðingar hafa rangt fyrir sér varðandi svona mikilvægt atriði og mislesa svona algerlega ábendingar kollega sinna dæma þeir sig einfaldlega úr leik. Það er engin ástæða til að taka Friðrik Má alvarlega hér eftir! Þó hann fatti það ekki eru ýmsir aðrir sem gleyma ekki þeim gloríum sem út úr honum hafa komið!!

Jon (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 14:00

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég þakka þér fyrir pistilinn.

Óraunhæf bjartsýni leiðir af sér glannaskap.

Varúð ætti að vera í fyrirrúmi nú á þessum viðsjárverðu tímum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.7.2009 kl. 14:46

7 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Það reyndist svo að hagfræðin sem kennd var í Háskólanum í Reykjavík átti sér litla stoð í raunverulekanum. En það ætti samt ekki að gera lítið úr því að Friðrik er að spá í rétta átt þó hann sé ef til vill bjartsýn fram úr hófi. Það sem hann klikkar helst á er að gleyma þeirri meginreglureglu í viðskiptum að heiðarlegir menn gera ekki samkomulag nema geta örugglega staðið við það.

Guðmundur Jónsson, 26.7.2009 kl. 17:57

8 identicon

ESB er ekki fullkomið frekar en önnur mannanna verk.  Sem dæmi um hvað ESB er ófullkomið má nefna þetta: Ef Ísland verður aðil að ESB (sem ég vona að verði) þá munu ráðherrar úr íslensku ríkisstjórninni taka sæti í ráðherraráði ESB - já svo ófullkomið fyrirbæri er ESB að þessir "fávitar" sem við kjósum munu ráða ferðinni þar með öðrum- en það mikilvæga er að allar ákvarðanir í ESB eru teknar út frá almennum hagsmunum allra aðildarríkja sem tryggir að hálfsturlaðir þjóðarleiðtogar eins og Davíð Oddsson eiga erfiðara með að steypa þegnum sínum í glötun.

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband