Leita í fréttum mbl.is

Til Alþingis Íslendinga: er Ísland lýðveldi eða einkaeign Samfylkingarinnar og ESB?

Það á að banna þetta mál (Evrópusambandsaðildarmálið) á Alþingi þangað til að mikill (já mjög mikill og sterkur) meirihluti þjóðainnar hafi í gegnum vandaðar skoðanakannanir og á alveg ótvíræðan hátt látið uppi einlæga ósk sína í samfellt heilt kjörtímabil (4 ár) um að Ísland setji Evrópusambandið og aðild (innlimun) að því á dagskrá Alþingis

Ekkert umboð frá þjóðinni

Hin einlæga ósk mikils og sterks meirihluta kjósenda verður að hafa myndast óþvingað á kjörtímabili sæmilegs jafnvægis í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það koma margar kynslóðir á eftir okkur og þess vegna má ekki taka svona mál upp til þess eins að reyna að bæta fyrir stundartjón eins og til dæmis fall þriggja banka í verstu fjármálakreppu heimsins síðan 1929. Kreppan mun nefnilega líða hjá, að því tilskyldu að þið þingmenn og ríkisstjórn vinnið verk ykkar í þágu Íslands, eins og til er ætlast af ykkur  

Það á ekki að sólunda tíma Alþingis íslenska lýðveldisins í þvarg og einkahagsmuni eins stjórnmálaflokks sem nú hefur handtekið allt lýðræði og þingræði í landinu í sínum einkaerindum. Allt Ísland er í handjárnum Samfylkingarinnar núna og brennur! Skaðinn sem Samfylkingin er að valda Íslandi er geigvænlegur. Já geigvænlegur og gegndarlaus!

Bretland no longer an idependent state

Þetta mál er svo einstakt og sérstakt að það má líkja því við að Alþingi fái umboð þjóðarinnar til að ákveða að lýðræði sé afnumið á Íslandi. Það verður nefnilega ALDREI kosið um þetta mál aftur ef það fæst einu sinni já frá kjósendum á Íslandi. Þannig er hið svokallaða lýðræði undir fána Evrópusambandsins. Þetta er styrjaldaryfirlýsing við andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Það er ógerningur að koamst út úr ESB aftur. En það er hinsvegar hægt að losna við hvaða stjórnmálaflokk sem er úr ríkisstjórn Íslands og út af Alþingi á í mesta lagi fjórum árum. Það er réttur sem allir Íslendingar með kosningarétt hafa. En það er ekki hægt að ganga úr eða í ESB á fjögurra ára fresti. Sértu einu sinni kominn í Evrópusambandið  þá kemstu aldrei þaðan lifandi út aftur

Hvað eruð þið að hugsa, þingmenn og ríkisstjórn? Ætlið þið að brenna allt Ísland af í einskisnýtu þvargi? Farið vinsamlegast að vinna fyrir Ísland. Hættið að ganga erinda andstæðinga okkar í þeim stóru málum sem þarf að taka á. Sameinið þjóðina í sameiginlegu átaki svo hægt sé að komast út úr erfiðleikunum saman. Hættið að sundra þjóðinni og hættið að blása til borgarastyrjaldar á Íslandi. Munið að sjálfstæði Íslands er einungis 65 ára gamalt og þar, sem erlendis, var hart barist fyrir því. Við þurfum öll að búa saman og vinna saman í þessu landi 

Munið þetta Íslendingar

Útflutningsverðmæti fiskafurða á hvert mannsbarn árið 2005

Núna og akkúrat núna er það sjávarútvegur Íslands sem heldur undirstöðulífinu í efnahag Íslands. Uppáhalds atvinnugreinin hans Jóns Baldvins. Þetta er atvinnugreinin sem Samfylkingin hatar og er tilbúin að fórna til þess eins að komast til Brussel. Velgengni þessarar atvinnugreinar, ásamt landbúnaði Íslendinga, er sjálfur lykillinn að því að það sé yfir höfuð hægt að leysa Icesave málið, sama hvernig það verður leyst. En nei. Sama hvað það kostar þjóðina og algerlega sama þó það verði gert á bananalýðræðislegan hátt, skal troða ESB ofaní hrædda þjóð og alveg sérstaklega á meðan þjóðin er einmitt hrædd. Því annars þýðir það ekki neitt, því þjóðin gleypir ekki ESB í venjulegu íslensku árferði. Aldrei. Allt skal fótum troðið eins og fíllin gerði svo glæsilega inni í kristalbúðinni

Sjómenn Íslands, útgerðarmenn og bændur

Það er eins gott að þið fiskið vel, sjómenn og útgerðarmenn, því nú þolir þjóð Samfylkingarinnar ekki neinn aflabrest á meðan verið er að troða ESB ofaní kokið á þjóð Samfylkingarinnar og það á meðan hún fórnar efnahag framtíðarinnar fyrir Icesave reikninginn. Spara verður einnig gjaldeyri svo það er eins gott að það heyjist vel og þið standið fast í lappirnar við búskapinn bændur. Það þarf nefnilega að semja um útrýmingu ykkar niðri í Brussel. Hraðið ykkur nú. Okkur, Samfylkingunni, vantar nefnilega peningana, núna. Vantar gjaldeyrinn! 

Tengt efni

Fyrri færsla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hugur samspillingarinnar er að sjálfssögðu í Brussel, það er enginn áhugi á því að bjarga íslenska þjóðfélaginu.  Núna er tíminn sem við Íslendingar þurfum að standa saman, standa saman um það að bjarga börnum okkar og barnabörnum  frá skuldaánauð. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.7.2009 kl. 03:52

2 identicon

Engar tillögur um hvað á að gera þangað til, T.D.halda áfram í nokkur ár að svelta launafólk með því að greiða laun með mattadorpeningum?engar tilögur um það hvað á að gera?Er kannski allt í lagi?

Sölvi Kjerúlf (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 09:40

3 identicon

Ég er sammála Gunnari. Það á ekki að vera að ræða um aðildarviðræður ESB á þingi nún. Ísaland er að sökkva.

Alþingi á að einbeita sér að bjarga málum hérna heima og snúa sér sínan til Evrópuumræðu.  Það er líklega þannig að eftir 4-5 ár þegar við Íslendingar erum búnir að koma okkur á lappir, þá berast fréttir frá ESB um að sambandið sé að hrinja.  Þess vegna á ekki að eyða púðri í þessar aðildagviðræður núna.

Það eru gífurlega miklir erfiðleikar hjá ESB ríkjum nú í dag og bati hjá þeim tekur allmörg ár.  Mjög liklega mun sambandið liðast í sundur innanfrá, vegna þeirrar baráttu sem hagkerfi hvers ríkis ESB þurfa að heyja.

Eggert Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 10:30

4 Smámynd: Elle_

Blessaður Gunnnar og takk fyrir umræðurnar í síðu Jóns Vals og þennan pisti.  Eins og þú kannski veist tek ég af fullum huga undir þetta hjá þér að þetta sé einkamál EVRÓPU-FLOKKS JÓHÖNNU. Og ekkert leyfi eða umboð frá þjóðinni. Flokkurinn setur þetta númer 1 + 2 + 3 + 4 + 5.   Og á meðan brennur landið og fólkið er hund-elt af bönkunum og kastað út á gangstétt. Og fólk er farið að flýja land.   

Elle_, 12.7.2009 kl. 11:40

5 identicon

"Vituð ér enn eða hvat?" Svo mælir völvan við Óðin í Völuspá.
En hann leitaði völvunnar í aðsteðjandi vanda líkt og Sál konungur leitaði völvunnar í Endór sem hafði "þjónustuanda" eins og segir svo snilldarlega í þýðingu Haraldar Níelssonar á Biblíunni frá 1912.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum logar enda á milli; eldar sem minna á fyrirbæri úr Síðari Heimsstyrjöld sem eldstormar nefndust en borgir sem brunnu kölluðu á lífsandann, súrefnið, og hrifsuðu til sín í eldhafið allt er fyrir varð á margra ferkílómetra svæði. 

Verða menn allir að saltstólpum fyrr en þeir skilja hvílík vá blasir við,
hvílík fásinna Evrópusambandsaðildin er.

Húsari. (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 11:41

6 Smámynd: Elle_

Og eitt enn:

ENGA NAUÐUNG

ENGA EVRÓPU-UMSÓKN NEMA FÓLKIÐ KJÓSI

EKKERT ICE-SLAVE

Elle_, 12.7.2009 kl. 11:42

7 Smámynd: cindy

Þetta ESB mál er eins og ofsaakstur. það er keyrt blint áfram á slíkum hraða að maður er eins og Lísa í undralandi. Þessi þjóð hefur alltaf verið fiskveiðiþjóð ekkert annað. Við erum ágæt í landbúnaði og fiskveiðum. Lengra nær ekki okkar "sérstaða". Samfylkingin ætti því að fara að tilla tánum á bremsuna áður en enn stærra slys verður hér.

cindy, 12.7.2009 kl. 15:51

8 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Sæll Gunnar og ekki veitir þér af blessunaróskum í herferð þinni. Takk fyrir hugsjónarstarf þitt.

Eina stóra grundvallarspurningu vil ég hér með leggja fyrir þig og aðra, í leit að svari yfir stefnu Samfylkingar: Hvers vegna leggur Samfylkingin og svokallaðir ESB-sinnar þessa ofuráherslu á að koma Íslandi inni Evrópusambandið? Ég er hér á höttunum eftir öðru og raunverulegra svari en einfaldlega því að þessir aðilar "telji þar með Íslandi og hag þess þar með best borgið".  (Auðvitað er öllum frjálst að hafa sína skoðun, þeim sem öðrum; eða svo á a.m.k. að vera).

Ef ekki duga efnahagsleg rök af því tagi sem þú, Gunnar, hefur verið að draga fram fyrir okkur til vitnisburðar um feigð Evrópusambandsins og þjóða þess og þar með ófýsileika þess að ganga í þann félagsskap, hvers vegna er samt haldið áfram að berja höfði við stein í þeim efnum af ESB-sinnum? Hvaða hagsmuni sjá eða hafa þeir, sem andstæðingar ESB-aðildar sjá ekki?

Mér þætti vænt um athugasemdir um þetta.

Kristinn Snævar Jónsson, 12.7.2009 kl. 16:32

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir fyrir innleggin ykkar öll sömul

Takk fyrir góðar kveður Kristinn Snævar

Já er þetta ekki furðulegt Kristinn? Ég hef velt því sama fyrir mér. En svo gerðist það í gær eða fyrradag að hann Emil Örn Kristjánsson kom með 500 watta ljósið sitt og lýsti því á mig. Með öðrum orðum þá varð ég allt í einu "upplýstur". Ég er ansi hræddur um að hann Emil hafi dálítið mikið til síns máls hér í svari sínu til mín 

Ég finna enga aðra skýringu á því af hverju Samfylkingin er haldin svona mikilli og eyðileggjandi þráhyggju sem hún lætur bitna á allri íslensku þjóðinni

Ég er ekki fullkomlega vel að mér í allri íslenskri pólitík síðustu 20 ára. En sumt veit ég þó og annað hef ég getað lesið um til um.

Er þetta kannski kolrangt hjá mér?

Gunnar Rögnvaldsson, 12.7.2009 kl. 18:00

10 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Kristinn

Þetta er nefnilega alveg stórfurðulegt,

Menn börðust fyrir Sovet komonismanum alveg til síðasta dags og meira seigja eftir það

Þetta er einhver hugsjón um að ver hluti af einhverju stóru sem mun færa frið og velsæld

Þessar bollalegingar eru kannski út í hött. Mér er alveg fyrirmunað að skilja þetta

Kannski kann fólk ekki að greina hismið frá kjarnanum og heldur að ESB muni bjarga öllu sem við klúðruðum í staðin fyrir að læra af reynsluni

Það sem við erum að ganga í gegnum er ágætis skóli sem ungt lýðveldi þarf á að halda til að þroskast en ekki til þess að gefast upp

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 12.7.2009 kl. 18:46

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

"Það sem við erum að ganga í gegnum er ágætis skóli sem ungt lýðveldi þarf á að halda til að þroskast en ekki til þess að gefast upp"

.

Heyr heyr Gunnar Ásgeir.

Mikið er þetta hárrétt hjá þér. Ungt lýðveldi verður einmitt að ganga í gegnum lífsins skóla og FÁ TÆKIFÆRI til að læra af reynslunni. Bundið barn í garði mun aldei læra að ferðast örugglega í umferðinni

.

Þetta er ekki sú hugsun sem Samfylkingin hefur. Hún virðist hafa þá eina skoðun að allt íslenskt sé ómerkilegt drasl og sérdeilis að sjálfstæði, fullveldi og frelsi Íslands og Íslendinga sé húmbúkk sem verði að tortíma ásamt auðæfum okkar, hvað sem það kostar.

.

Þetta minnir mig á þráhyggju eins manns sem vel var lýst í kvikmynd sem ber nafnið Das Untergang. Landið hans var ekki þess virði að bjarga því. Því átti allt að eyðileggja það allt undir hinu stóra merki hins perversa sósíalisma mannsins og flokks hans

Gunnar Rögnvaldsson, 12.7.2009 kl. 19:58

12 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Það lá við glotti hjá Jóhönnu í gær á Þingvöllum þegar hún horfði á rústirnar því svona mun landið okkar líta út ef hún fær að fara sínu fram með að ganga í ESB.Hvernig getur þetta fólk þarna niður á alþingi kallað sig Íslendinga sem vinnur af öllum sínum krafti í að afsala landinu okkar til Brussel og borga fyrir það með ICESLAVE og 1-2 miljörðum þar að auki í vinnu við aðild,á sama tíma er fólki að blæða hér út bæði búið að missa atvinnu og sum hver heimilin sín líka.Nei þá er hægt að borga 1-2 miljarða í aðildarviðræður,þessir 1-2 miljarðar mundi bjarga mörgum heimilum og fjölskyldum,það er bara ekki á dagskrá að bjarga heimilunum í landinu hjá þessari ríkisstjórn.Össur Jóhanna og Steingrímur eiga ekki að bera Íslenskt ríkisfang lengur þeim á að vísa úr landi fyrir landráð.

Áfram Ísland

Marteinn Unnar Heiðarsson, 12.7.2009 kl. 20:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband