Leita í fréttum mbl.is

Írland á leið í gjaldþrot með evrur? EUROBUST H/F Group

Kaldar staðreyndir um það hvernig Írland getur orðið verra en Ísland innan í evru

Írski hagfræðingurinn, seðlabankamaðurinn og rithöfundurinn David Mc Williams, er ekki einn af hinum þekktu þrjátíu og tveimur og sammála íslensku hagfræðingum sem hinn hagfræðingurinn, Charles Wyplosz, gerði að athlægi og dufti á 20 línum (eða svo) í nýlegri útgáfu verkefnatímarits Evrópusambandsins á Íslandi, Morgunblaðinu.

Could the unthinkable come to pass here? Could Ireland default on its sovereign debt? The answer is yes. Such a disaster is now quite possible. In the same way as a family can end up losing the house, the car, everything, a country, too, can fail to make its repayments. At the moment, such thoughts are heresy; but so, too, was questioning the property boom a mere four or five years ago.
Back in 2003 or 2004 when people questioned the property boom and its driver, the debt splurge by the bankers, we were ridiculed and dismissed. We were labelled mavericks. We were told that it was “dangerous” to even suggest such things because we might “talk down the economy”.
I remember being labelled “unpatriotic” by a politician in 2004 following an appearance on ‘Prime Time’ when I described the property market as a “scam” operated by “an unholy alliance of bankers and property developers”.

 

EUROBUST P

Þessi írski hagfræðingur, hann David Mc Williams, telur að Írar verði að gera ráð fyrir því að verða gjaldþrota sem ríki innan í evrusvæðinu vegna þess að írskir bankar hafa hagað sér eins og kálfar sem komust í kraftfóður. Þeir sem hafa prófað að gefa kálfum fóðurblöndu úr fötu vita hvernig gusugangurinn er. Það skvettist og slettist út um allt og fatan fer stundum á hvolf og innihaldið sullast þvergörðum. Svona slettust peningarnir einnig út úr íslenskum bönkum til íslenskra útrásarmanna út um næstum alla Evrópu. Frá hægri til vinstri tóku íslenskir bankar ódýrt lánsfé frá evrusvæði og eyddu því í að reyna að fylla upp hafið á milli Evrópu og Íslands með myntpeningum. En það tókst ekki og nú er allt sokkið í sæinn handan við bæinn. Allt horfið og hafið spegilslétt aftur. Það tók ekki einusinni eftir þessu. Já hafið er þakklátt.

EUROBUST I 

Svipað gerðist einnig á Írlandi á undanförnum árum. Á Írlandi eru peningarnir hinsvegar steyptir fastir innan í múrsteinum sem enginn vill eiga og því standa núna um 300.000 tómar íbúðir og grotna niður. Það er búið að fylla á tóma peningatanka bankanna á Írlandi einu sinni og nú vantar meira. Aftur er komið gat í gólfið og sjórinn fossar inn undir ríkiskassann. Ríkiskassinn er að reyna að fylla á tóma tankana aftur en það gengur erfiðlega því Írska ríkið þarf að bjóða miklu hærri ávöxtun á þeim ríkisskuldabréfum sem prentsmiðja írska ríkisins er að reyna að prenta þarna í kjallaranum undir ríkiskassanum. Þessi bréf á nú að reyna að selja til fjárfesta, en þeir eru orðnir verulega tortryggnir því pappírinn er orðinn svo blautur. AGS í írsku dyragættinni?

EUROBUST I 

Núna segir sem sagt David Mc Williams að Írar verði að undirbúa sig undir það sem átti ekki að geta gerst þegar sérfræðingar myntbandalags ESB hönnuðu meistaraverkið. Þetta meistaraverk sem er búið að kosta Evrópusambandið getuna til hagvaxtar. Sérfræðingarnir gleymdu nefnilega að gera ráð fyrir að einkageirinn í myntbandalaginu gæti smyglað því sem á mannamáli er kallað lánsfjáráhætta (credit risk) yfir á ríkissjóði evrrulanda og gera úr því nýja vöru sem heitir gjaldþrotaáhætta ríkissjóða (sovereign default risk). Ekki veit ég hvað sérfræðingurinn Charles Wyplosz segir við hönnunargöllum þess bandalags sem er alltaf meira og meira er að líkjast hinu efnahagslega öryrkjabandalagi Evrópu, EÖE. 

EUROBUST G 

En þetta hefur sem sagt gerst núna. Áhættumistök bankanna eru orðin að gjaldþrotaáhættu ríkissjóðs Írlands. Mynt Írlands reyndist Írum ónýt því hún getur ekki gert það sem myntir eiga að gera undir svona kringumstæðum - FALLA og auka samkeppnishæfileka útflutnings til þess að halda uppi atvinnu og áframhaldandi skattatekjum ríkissjóðs svo hægt sé að borga og borga! Borga og borga. Seðlabanki Írlands er nefnilega ekki á Írlandi og þjónar heldur ekki Írlandi og myntin er heldur ekki írsk og þjónar heldur ekki þegnum Írlands. Þið vitið, þeim þegnum sem núna eiga að borga brúsann. Nei, núna þarf að lækka laun með handafli, skera niður ríkið og skera undan hagvexti því gengi myntarinnar er svo alltof alltof hátt miðað við allt á Írlandi. Svo annaðhvort þurfa Írar að taka þetta út í gjaldþroti ríkisins eða í 25 ára massífu atvinnuleysi og fólksflótta frá Írlandi. Þetta verður svo kórónað með mssífum skattahækkunum og flótta fyrirtækja. Þeir hafa jú reynsluna Írarnir í því að flýja landið sitt.

EUROBUST S 

Þetta var sagan um galdrapappírinn evru. Lesið allan pistilinn hans David Mc Williams hér: Cold facts of how we could be ‘Iceland inside the euro

PS: Það er alger óþarfi fyrir verkefnaritstjóra EÖE á Íslandi að lesa þessa grein David Mc Williams því þeir eru hvort sem er frelsaðir um alla eilífð og því ekki í sambandi við raunveruleikann. Því bendi ég þeim á að syngja áfram lagið EUROKLANG

 

|_________________EURO KLANG______________|. í físmoll

| ___________así___ruv______sam_fylkz____._a,__|  Und einen evra

| _______a_._______a_______aj#0s_____aWY!400._ | EU faðmi við öll

| __ad#7!!*P____a.d#0a____#!-_#0i___.#!__W#0#___ | und Heidi Boroso

| _j#'_.00#,___4#dP_"#,__j#,__0#Wi___*00P!_"#L,___ | in Euro himmel

| _"#ga#9!01___"#01__40,_"4Lj#!_4#g_________"01_ | Brussel wunderland

| ________"#,___*@`__-N#____`___-!^___________ | kommen sie morgen

 91356 | _________#1____sviða kjammar?__nein____| und bifröst voila

tralla tralla la la: 

: : Viðlagið er úr Wiðlagazjóð ESB. Textahöfundur er vel þekktur fræðimaður 

Hugleiðing dagsins

Eru Kínverjar hugsanlega að undirbúa massífa gengisfellingu? Ég spyr því samkvæmt heimildum þá kostar orðið nánast ekki neitt að flytja vörur frá Kína til Evrópu og Ameríku. Allt stopp: Asia-Europe Shipping Rates Drop to Zero  

Fyrri færsla:

Tengt efni 

Tilkynning frá írska fjármálaráðuneytinu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Írar eru gott fólk sem eiga betur skilið en svo að þeir séu læstir inni í ESB fangelsi. Væri ekki rétt að bjóða þeim í dans með Norðurbandalaginu.

Haraldur Baldursson, 16.1.2009 kl. 14:39

2 identicon

það er alveg ömurlegt að það þurfi að skera niður í heilbrigðisþjónustu og öðru á Írlandi. Sem betur fer þarf þess ekki hjá okkur á Íslandi. Það er líka ömurlegt að það skuli verða mikið atvinnuleysi á Írlandi í framhaldi af þessu. Það er sem betur fer ekki vandamál á Íslandi. Niðurskurður í launum er líka ömurlegt fyrirbæri, sem betur fer er ekkert svoleiðis í gangi á Íslandi um þessar mundir.

Gestur (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 14:57

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta er búið að vera fyrirséð í nokkurn tíma, að írska efnahagsundrið væri á fallandi fæti.  Mér finnst margir ekki gera sér grein fyrir hve langt írska ríkisstjórnin gekk í haust við að tryggja áframhaldandi starfsemi bankakerfisins þar.  Og það sem meira er, það er eins og ESB hafi ekki áttað sig á alvarleika málsins.

Nú er spurningin hvort bresk stjórnvöld munu taka eins grimmilega á írskum bönkum og þau tóku á hinum íslensku.  Nokkrir af stærstu bönkum Írlands stefna í sömu átt og íslensku bankarnir.  Ef eitthvað samræmi er í viðbrögðum matsfyrirtækjanna, mun lánshæfismat allra bankanna og írska ríkisins hrapa á næstu dögum.  Það mun leiða til svipaðrar uppákomu og varð hér, þó hún verði vonandi ekki eins slæm.  Írska ríkið setti fram 100% tryggingu fyrir írska innistæðueigendur í október, en spurningin er hvort það geti greitt öllum komi til falls 2 af stærstu bönkum þeirra (eins og ýmislegt bendir til að muni gerast á næstu dögum eða vikum).  Verður þá beitt hryðjuverkalögum hinum megin við sundið?

Annars eru dómínókubbarnir farnir að falla hver af öðrum.  Og ekkert er fallinu á Íslandi að kenna.  Bara í fréttum í dag er fjallað um 138 milljarða lán til Bank of America, yfirtöku banka á Írlandi, og vaxandi mótmæli í Austur-Evrópu vegna versnandi efnahagsástands.  Um daginn var frétt sem ekki lét mikið yfir sér um lækkun á lánshæfismati ríkissjóðs Grikklands.   Ég held að Robert Wade hafi verið of bjartsýnn, þegar hann hélt að næst bylgja myndi ekki skella á fyrr en á tímabilinu frá mars til maí.  Stormurinn er skollinn á og í þetta sinn getur evrópska fjármálakerfið ekki beðið hann af sér.  Við getum búist við alvarlegum kerfisbilunum út um alla Evrópu á næstu dögum og vikum.

Marinó G. Njálsson, 16.1.2009 kl. 15:10

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það þarf einhver að fara að ýta á "Reset" hnapinn svo allar innistæður og lán hverfi...byrja upp á nýtt. Með tímanum lærum við öll að lifa við þann harm að skulda ekki neitt...er það ekki ?

Haraldur Baldursson, 16.1.2009 kl. 15:39

5 identicon

Íslenska bankahrunið er smámál í þessu efnahagshruni öllu.  öll hagkerfi heims hafa verið keyrð áfram á lánum og engu öðru í ansi langan tíma.  Og halda því fram að þér sé betur borgið innan einhverja sameiginlegra markaða á tímum sem þessum er fyrra.  Hví er ekki farið í umræðu hér á landi hvernig halda skal á fjármálum einstaklinga/ríkis og fyrirtækja.  Allt er þetta jú þekkt frá fyrri tímum, þú tekur ekki lán sem þú ert ekki borgunarmaður fyrir, þetta eru í raun ekki flókin fræði.

Gestur, heldur þú að laun hafi ekki lækkað í Evrópu? og eigi ekki eftir að lækka meira.  Er skortur á atvinnuleysi þar?. Heldur þú að niðurskurðar hnífurinn sé ekki á lofti í Evrópulöndum.  Heldur þú að sama eigi ekki við um USA og aðra hluta heimsins.

itg (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 18:10

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Jón Frímann, miðað við fréttir frá Írlandi í dag, þá er illa farið að halla undir fæti hjá írskum bönkum.  Spurningin er hvað gerist eftir helgi.  Fallið á hlutabréfamarkaði var þó nokkuð mikið í dag.

Marinó G. Njálsson, 16.1.2009 kl. 19:53

7 identicon

„það sem átti ekki að geta gerst þegar sérfræðingar myntbandalags ESB hönnuðu meistaraverkið. Þetta meistaraverk sem er búið að kosta Evrópusambandið getuna til hagvaxtar.“

Þú ert svo öfgafullur og ýktur Gunnar að það tekur því ekki að byrja svara þér - þú veist vel að aukning hagvaxtar Evrusvæðisins árin 2006 og 2007 var vaxandi og meiri en OECD meðaltal.

Hvernig fer USA að því að haf hagvöxt? ekki getur Texas skráð gengi sérsstaklega - eða Kalifornía í sínum erfiðleikum?

- Og með fullri virðingu þó ESB og evra sé máttug þá trúi ég ekki að þú eða neinn annar í þessum öfgasöfnuði ykkar trúi því í alvöru að það gæti „svipt Evrópusambandið getuna til hagvaxtar“ þó það hefði ekkert annað markmið en að reyna það af öllum sínum mætti.

ESB er stórkallalega ofmetið af andstæðingum þess á Íslandi  - reyndar minnir mig að þeir segi það sama um stuðningsmennina þegar það hentar þeim. -

Gunnar (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 21:14

8 Smámynd: Jón Arnar

Sæll hef nú líka heyrt haft eftir  fleiri írskum hagfræðingum að landið væri fyrir löngu komið í kaf ef ekki hefði verið skipt um gjaldmiðil

- en eflaust eiga þeir erfitt eins og ÖLL lönd í dag sem hafa verið siglandi í þessari geðveiku fjármálaveröld og ekki séð neitt annað sér til lífsviðurværis en að selja peninga sér til og frá !

Jón Arnar, 16.1.2009 kl. 21:29

9 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Takk fyrir góða færslu.

Tel einnig að Marinó eigi eftir að verða nokkuð sannspár.

Dómínókubbarnir eru vissulega farnir af stað og verða ekki stöðvaðir úr þessu, (reset hugmyndin hjá Haraldi er þó skemmtileg...og kannski ein sú skynsamlegsta fyrir sauðsvartan almenning!),  enda er það ekki hluti af planinu, allt er þetta á áætlun. Þetta verður viðburðaríkt ár stefnir allt í. Stríðsbumburnar utan úr heimi gerast síðan æ háværari í þokkabót hvað sem Obama lofar upp í ermina á sér.

Mín tilfinning er sú að betra og raunsærra sé að hlusta á fólk sem hefur haft rétt fyrir um þróun mála, séð hlutina fyrir og ansi nákvæmlega sumir en þá sem urðu hissa þegar hrunið byrjaði að láta verulega á sér kræla, jafnvel í afneitun þangað til það blasti við öllum með meðvitund. Trufluðu jafnvel þá framsýnu hvenær sem þeir máttu og sífellt reynt að gera lítið úr þeim með ýmsum aðferðum. Má ég þá frekar biðja um álit þeirra sem helst hafa reynst vakandi og reynt að benda á það sem koma skyldi en hinna. Lái mér hver sem vill.

Georg P Sveinbjörnsson, 17.1.2009 kl. 02:25

10 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Georg.

Þetta er nákvælega það sem hann Gunnar hefur gert.  Ekki vegna þess að hann er spámiðill, heldur kann hann að lesa í upplýsingar og sjá ferlið.  Vegna þess að hann er erkiíhald, þá á að þjóðnýta hann strax, áður en einhverjir stórkapítalistar fá hann á ofurlaunum til að spá um þróun hlutabréfa eða eitthvað annað sem þeir braska með.  Þjóðnýttur Gunnar á heima á þjóðhagsstofnun og mikið hefði flóra Íslenskra stjórnmálaESBapa gott á að hlusta á hann,svona einu sinni á dag þar til þeir sjá ljósið.  

Við Íslendingar þurfum að rífa okkur sjálf uppúr skítnum, það er forsenda okkar sjálfstæðis að við föttum ekki hið ómögulega og það fór ekki að halla undan fæti fyrr en við héldum að við ættum að taka upp siði siðaðra manna þjóða.  EES samningurinn er upphaf og endir þess óskapnaðar sem við erum í og við kveðum þann skratta ekki í kútinn með því að ganga í ESB.  Þá fyrst hittir andskotinn ömmu sína.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 17.1.2009 kl. 20:59

11 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Sæll og blesaður Ómar.

Er sammála hverju orð hjá þér og nú eru tímar til að tala tæpitungulaust ef einhvertímann.

Georg P Sveinbjörnsson, 17.1.2009 kl. 21:53

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka ykkur öllum kærlega fyrir innlitið.

En andlitið á efnahagsmálaráðherra Þýskalands er ekki eins skemmtilegt eins og innlitið á ykkur í dag og síðustu daga. Það hrundi því miður í gær og hagvaxtarspá hans einnig. Núna er hann - og með góðri aðstoð Herra fjármálaráðherra og klodsmajor Peer Steinbrück - komin niður í MÍNUS 2.5% fyrir 2009. Þetta endar náttúrlega á MÍNUS 4% eins og Deutshe Bank segir og kanski jafnvel á mínus 5-6% eins og ég óttast.

Angela Merkel má því miður ekki vera að þessu því hún er núna á dráttarvélanámskeiði - að læra hvernig maður plægir eina trilljón evrur af skuldum niður í jörðina - jörðina sem hún hélt að hún ætti - og helst án þess að nokkur taki eftir því. Þýskir bankar munu nefnilega bráðum koma með 100.000 trukka og sturta þessu hlassi niður á blettinn hennar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 18.1.2009 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband