Leita í fréttum mbl.is

The second Great Depression að hefjast í Evrópusambandinu

Hin Seinni Stóra Heimskreppa að hefjast í Evrópusambandinu?

Greining Glitnis greinir frá því í dag að Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn (AGS) vanti fjármuni í áframhaldandi aðstoð við ríki Jarðar og þá einkum til aðstoðar við hin svokölluðu nýmarkaðslönd.

En það sem er umhugsunarvert í góðum pósti Glitnis í dag er að miklir fjármunir sjóðsins hafa farið í að hjálpa löndum í Evrópusambandinu og nágranna þess Úkraínu.

Hjálp  

Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir því hvaða erfiðu ástæður liggja á bakvið þessar lánveitingar. En í sundurliðun Glitnis segir að stærsta fjárveitingin hafi farið til Úkraínu. Sundurliðun:

  • Úkraína fékk 16,4 miljarða dala frá AGS
  • Evrópusambandsríkið Ungverjaland fékk 15,,7 miljarða dala frá AGS
  • Evrópusambandsríkið Lettland fékk 1,7 miljarða dala frá AGS
  • Serbía fékk 518 miljónir dala frá AGS

En hvað er það sem meðal annars er svona erfitt í Úkraínu? Jú ein af ástæðunum fyrir stórkostlegum vandamálum Úkraínu - og allra landa Austur Evrópu, sem flest eru nú komin inn í Evrópusambandið - er sú að fólkinu fækkar og þá sérstaklega ungu fólki. Þetta er einnig sú þróun sem er vel á veg komin í eldri og stærri löndum Evrópusambandsins. Þar er þróunin bara ekki komin á sama stig og í Austur Evrópu, ekki ennþá.

Fæðingar og dauðsföll í Úkraínu 

Mynd: fæðingar og dauðsföll í Úkraínu 

Árið 1989 fæddust 700.000 börn í Úkraínu en tíu árum seinna eða árið 1998 fæddust einungis 400.000 börn í Úkraínu. Þetta er 40% fækkun fæðinga á aðeins 10 árum! Þetta þýðir að á næsta ári munu um 650.000 18 ára ungmenni hugsanlega geta bæst við við vinnuafl Úkraínu. Menn geta svo ímyndað sér hvaða áhrif þessi fækkun barnseigna hefur á samfélag Úkraínu og á alla eftirspurn eftir vörum, þjónustu og fjárfestingum sem alltaf fylgja nýju ungu fólki sem er að stofna heimili, börn og buru.

Fólksfjöldi í Úkraínu 

Mynd: fólksfjöldi í Úkraínu  

En það sem er öllu og miklu verra er það að árið 2016 mun Úkraína aðeins fá um 400.000 nýja einstaklinga til starfa á vinnumarkaði sínum. Þá mun atvinnuleysi að sjálfsögðu minnka á pappírnum en samfélagsvélin mun samt verða orðin svo aflvana að hún mun ekki geta dregið hlassið með öllum þeim sem sitja í lestinni fyrir aftan eimreiðina og bíða eftir því að greiðslur berist fyrir farmiðanum frá hinu opinbera. Skattatekjur munu verða af svo skornum skammti, því hver á að vinna þá vinnu sem á að skila skattatekjunum og hver vill fjárfesta í nýjum atvinnurekstri í landi sem er á leiðinni til að útrýma sjálfu sér. Einnig vilja erlendir aðflytjendur síður flytja og búsetja sig í löndum sem eru að staðna eða útrýma velmegun á þennan hátt. Þetta er einnig sú þróun sem við erum byrjuð að sjá hinum gamla - og að því er virðist - lífsþreytta kjarna hinna eldri landa Evrópusambandsins.

Fæðingartíðni í Úkraínu

Mynd: fæðingartíðni í Úkraínu - til að samfélag geti viðhaldið sér sjálft þá þarf hver kona að meðaltali að eingast a.m.k. tvö börn á æfi sinni.

 

Það er meðal annars vegna þessa sem ég álít að Evrópusambandið sé að fara á hausinn því aðeins fáir munu vilja fjárfesta þar í framtíðinni, því hvar á að sækja vinnuafl sem vill láta féfletta sig í skattpíningar-paradís sem þar verður að vera því það þarf jú að fjármagna rekstur hinnar ofurstóru og peningaþyrstu opinberu eimreiðar samfélagsins. Atvinnuþátttaka er hneyksli í flestum löndum Evrópusambandsins einmitt nú þegar. En þetta á aðeins eftir að versna. 

En hverjir eiga peninga í klemmu í Austur Evrópu? Jú að sjálfsögðu bankakerfi Evrópusambandsins! Þessir peningar munu brenna stór göt í vasa hluthafa í stærstu bökum Evrópusambandslanda. Ríkið hvar ertu? 

Líkur lífslengdar í Úkraínu - aldur

Mynd: Líkur æfilengdar í Úkraínu, ár 

Íslenska V8 aflvélin 

Það er því ekki undarlegt að sendinefnd AGS til Íslands segi að Ísland muni ná sér hratt aftur því hin öfluga V8 strokka aflvél íslenska samfélagsins, sem er algerlega einstök, mun geta þénað hratt inn það sem tapast hefur því þegar 83 af hverjum 100 þéna peninga og leggja inn í bú þjóðarframleiðslunnar, þá munu þeir miklu hraðar geta náð tökum á erfiðri aðstöðu heldur en í samfélögum þar sem aðeins 56 af hverjum 100 vinna og þéna peninga. Svo einfalt er þetta.

Eurosclerosis 

Ef þegnar Evrópusambandsins eru svona ákafir í að útrýma sér sjálfir þá meiga þeir það mín vegna. Allt í lagi. En það er alveg ástæðulaust að Ísland smitist af þessum samfélagssjúkdómi sem ber nafnið Eurosclerosis. Hvorki Ísland né Bandaríkin eiga við þennan sjúkdóm útrýmingarþráhyggju að stríða. Þess vegna munu bæði þessi lönd halda áfram að spretta hröðu spori fram úr efnahag Evrópusambandsins, eins og þau eru einmitt alltaf að gera, ár fyrir ár. Þess vegna er einnig hægt að halda gulrótinni ferskari á Íslandi og í Bandaríkjunum því skattar þegnana þurfa ekki að nálgast 60.000 feta lofthæðir til að standa undir fitusprengdum rekstri eimreiðar hins opinbera og sjúka áætlunarbúskapar í ESB.

Allir góðir bændur vita að hugsi þeir ekki fyrir framtíðinni með því að sá það miklu að þeir eigi útsæði afgangs til að getað sáð vel fyrir næstu uppskeru á næsta ári, að þá verður einmitt lítil sem engin næsta uppskera og hungrið mun sverfa að.

Brussel 

Það er því ekki að ástæðulausu að hagvöxtur Evrópusambandsmanna er alltaf að verða lélegri og lélegri í takt við að áhrif eyðingarafla Evrópu aukast. En eyðingaröflin, Eurosclerosis, eru með aðalstöðvar sínar í borginni Brussel sem er bær í Belgíu og staðsett á meginlandi Evrópu. Það er þar sem tilraunastofan með öllum sýklunum er staðsett. 

Uppfært (13. janúar 2009)

Kæru lesendur. Einn lesenda þessa bloggs skrifaði athugasemd við þennan pistil. Hana má lesa í athugasemdum sem fylgja pistlinum hér að neðan. Lesandinn setti útá að ég tengdi málefni Úkraínu við málefni Evrópusambandsins. En eins og ég skrifaði í fyrstu línum þessa pistils þá hafa fjármunir AGS farið í að hjálpa löndum í Evrópusambandinu og nágranna þess Úkraínu. En ég birti ekki sambærilegar myndir/tölur/upplýsingar um öll lönd Evrópusambandsins. Hér með bæti ég úr þessu með því að bæta inn eftirfarandi fjórum næstu myndum sem sýna vandamálið í hnotskurn. Seinna mun ég koma með sundurliðað og nákvæmt yfirlit yfir öll lönd Evrópusambandsins. Þetta er alvarlegt mál fyrir framtíð Evrópusambandsins og er kanski best lýst með eftirfarandi tveim myndum:

folksfjoldaspaEU_001 

 Mynd: Spá um þróun fólksfjölda í Evrópusambandinu fram til ársins 2060 

 

folksfjoldaspaEUx002 

Mynd: Atvinnuþáttaka kvenna og fæðingartíðni í löndum Evrópusambandsins og hinsvegar á Íslandi. Ísland sker sig alveg gersamlega út úr myndinni

 

germany_feritily

Mynd: fæðingartíðni í Þýskalandi, stærsta landi evrusvæðis, frá 1970

 

einkaneysla_thyskaland

Mynd: þróun einkaneyslu í Þýskalandi frá 1971 

 

Mikilvægasta náttúruauðlind Evrópusambandsins í útrýmingarhættu. Fólkið sjálft. 

Cesifo hugveitan hélt ráðstefnu um fólksfækkunarvandamál Evrópusambandsins í München í Þýskalandi árið 2007. Samkæmt fyrirlestri prófessor Hans Werner Sinn þá vantar hin 15 gömlu lönd Evrópusambandsins 194 milljón innflytjendur fram til ársins 2035, til þess eins að viðhalda núverandi vinnuafli, sem þó er orðið frekar lítilfjörlegt og vesælt fyrir.Samkvæmt útreikningum Sameinuðu Þjóðanna þá er þessi tala miklu miklu hærri. Hún er svo há að ég þori ekki að nefna hana hér. Hvernig halda menn að hagvöxtur verði í svona Evrópusambandi? Hangvöxtur á evrusvæðinu hin síðastliðin 14 ár er næstum sá allra lélegasti í OECD - og ekki verður hann betri í framtíðinni.  

Mynd til umhugsunar

Óendurnýjanleg auðæfi 

Hin mikilvægasta og að því er virðist hin óendurnýjanlegasta auðlind Evrópu - fólkð sjálft. Náttúruauðlind í útrýmingarhættu

Þetta vandamál er óþekkt á Íslandi og verður svo á meðan Ísland heldur sér sem sjálfstæðu og fullvalda ríki á eigin íslensku forsendum. Frelsið og sjálfstæðið er okkar dýrmætasta auðlind. Það virkar afskaplega vel, en það þarf að iðka það að staðaldri. Það þrífst ekki í spennitreyju Evrópusambandsins. Frelsið er eldsneyti hugans. 

Tengt efni:

Gleðifréttir úr gamla heiminum í ESB

Breytt mynd af ESB - höfuðstefna  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Sæll Gunnar.
Mér finnst þú leggja ansi góð rök fyrir framtíðarsýninni byggt á barnsfæðingum.  Samfélag okkar er þrátt fyrir erfiða tíma alltaf meira markað af því sem við getum, frekar en því sem við getum ekki.

Ætli það megi ekki rekja stóran hluta auðs okkar til þess að við erum svo sannfærð í frelsi okkar að hlutirnir bjargist alltaf. Við eignumst börn án þess að vera búin að fjármagna fermingu og skólagöngu fyrirfram. Bjartsýni og börn eru okkar auður.

Haraldur Baldursson, 12.1.2009 kl. 16:15

2 Smámynd: Anna Grétarsdóttir

"Any society that would give up a little liberty to gain a little security...will deserve neither and lose both"

-Benjamin Franklin-

Anna Grétarsdóttir, 12.1.2009 kl. 20:04

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér kæra Anna æskuvinkona mín, fyrir að minna okkur á sannindi Benjamin Franklin og Haraldi fyrir að koma með góða og gilda íslenska áminningu. Þetta er einfaldlega hárrétt og gott.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.1.2009 kl. 20:41

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Alveg hárrétt Jón að þetta er vel þekkt og því undarlegt að það skuli ekkert gerast í þessu máli á meðan Evrópusambandið er að fara á hausinn vegna þessa.

Einnig er hárrétt hjá þér, auðvitað, að þetta hafi ekkert með ESB að gera frekar en að fækkun Sovétíta hafði með Jósef Stalín og eftirfylgendur hans í Kreml & Co að gera á sínum tíma. Þeir hættu einfaldlega að birta mannfjöldatölurnar á meðan sovésku þegnarnir fylltust ofurtrú á glaða framtíðina og drituðu niður börnunum sem þó eru hvergi sjáanleg í dag. Undarlegt í hæsta máta verð ég að segja.

En þá skiptir þetta víst engu máli Jón, þar sem þú í ca. 10.000.000 bloggsvörum ert búinn að hvítþvo Evrópusambandið af því að geta yfirhöfuð haft áhrif á nokkurn skapaðan hlut í þessum heimi. Það er því alger tímasóun að ganga í þetta samband vanmáttarins, því það getur einungis orðið til þess að íslendingar verði eins getulausir og þetta samband þitt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.1.2009 kl. 21:20

5 identicon

Vel sett fram og byggt á rökum en ekki sleggjudómi. Þetta er einmitt ein aðalástæðan fyrir því að mér finnst ESB aðild ekki ákjósanleg. Við endum á að borga miklu meira til þeirra en við fáum til baka, einfaldlega vegna aldurssamsetningarinnar.

Meira af svona bloggi takk

Rúnar Már Bragason (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 21:55

6 Smámynd: Ár & síð

Mér þykir þú bjartsýnn að þýða "second" sem síðari!
Matthías

Ár & síð, 12.1.2009 kl. 22:19

7 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Gunnar:

Þú ert hreint út sagt ótrúlegur!

Hvernig getur þú tengt efnahagsörðuleika nokkurra gamalla kommúnistaríkja, sem gengu í sambandið fyrir nokkrum árum, en voru hins vegar með uppsafnaðan vanda 45 ára kommúnisma, við ESB? Ertu ekki með öllum mjalla? Ég spyr hvar væru þessi lönd stödd án ESB? Svarið er einfalt: í sporum Úkraínu!

Síðan þetta Úkraínu dæmi! Ég hef komið til Úkraínu og fólksfækkunin þar hefur ekkert með ESB að gera, bara alls ekkert enda landið ekki í ESB! Nei, hún hefur með að gera með gífurlegt atvinnuleysi þar í landi vegna hruns atvinnuveganna í kjölfar hruns kommúnismans, mánaðarlaun upp á 20-30.000 krónur (virkilega þessi laun) og hrun félagslega kerfisins í landinu eftir hrun kommúnismans! Þessi sama þróun á sér stað allsstaðar í þeim löndum Austur-Evrópu, sem ekki eru í ESB.

Sama vandamál - fólksfækkun og fækkun fæðinga - er víðast hvar að finna í hinum vestræna heimi, t.d. í löndum Evrópu og í Japan, Suður-Kóreu og í Bandaríkjunum svo nokkur lönd séu nefnd.

Fæðingar í Þýskalandi jukust aðeins árið 2007 og höfðu þá ekki verið jafn margar 8 ár þar á undan . Nú hefur fæðingum því miður aftur fækkað. Árið 2007 voru barnabætur hækkaðar og gripið var til sértækra aðgerða í Þýskalandi og það kann að hafa hjálpað tímabundið. Þær aðgerðir ganga þó ekki hálft eins langt og sértækar aðgerðir hér á landi (barnabætur, fæðingarorlof, ódýrt pláss á barnaheimili, heilsdagsskóli). Nei, Þýskaland er ekki barnvinsamlegt þjóðfélag en það er Danmörk hins vegar og bæði löndin eru í ESB. ESB leggur ekki línurnar í þessum málum og því hefur fæðingartíðni ekkert með sambandið að gera.

Gunnar, þú verður að halda við staðreyndir málsins en ekki ljúga og hagræða staðreyndum á þann hátt, sem þú gerir hér og víða annarsstaðar. Þetta er bara ekki boðlegt í umræðum um hugsanlega ESB aðild Íslendinga, heldur er hér um hreint og klárt lýðskrum að ræða, sem margir ESB sinnar eru einnig sekir um. ESB aðild er engin allsherjarlausn á öllum okkar málum. Það fæðast hvorki fleiri eða færri börn á Íslandi eftir aðild!

Hvernig á hins vegar að leysa þetta vandamál fólksfækkunar á Vesturlöndum, sem er vandamál, sem allur hinn vestræni heimur stendur frammi fyrir og verður að leysa! Þetta horfir við mér - sem á þrjár dætur - sem einhverskonar hnignun Vesturlanda og er grafalvarlegur hlutur!

Þeir, sem hugsa einungis um fjármagna næsta sumarfrí eða að kaupa sér nýjan bíl og "tíma" þess vegna ekki að eiga börn og eftirláta öðrum kynþáttum eftir að fjölga sér, deyja að lokum út og hafa engan til að hugsa um sig í ellinni! 

Das geschieht ihnen auch recht so!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 12.1.2009 kl. 23:25

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það stendur því miður alveg hroðalega til með þessi mál í Evrópusambandinu.

Cesifo hugveitan hélt ráðstefnu í München á síðasta ári. Samkæmt fyrirlestri prófessor Hans Werner Sinn þá vantar hin 15 gömlu lönd Evrópusambandsins 194 milljón innflytjendur fram til ársins 2035, til þess eins að viðhalda núverandi vinnuafli, sem þó er all lítilfjörlegt og vesælt fyrir.

Samkvæmt útreikningum Sameinuðu Þjóðanna þá er þessi tala miklu miklu hærri. Hún er svo há að ég þori ekki að nefna hana hér.

Svona fer þegar maður hættir að rækta garðinn sinn vegna þess að maður heldur að það komin einhver annar til að rækta hann fyrir mann, til dæimis maður frá Brussel. Þá deyr garðurinn og allir verða fátækir.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.1.2009 kl. 02:55

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og Guðbjörn, á seinni myndini getur þú séð vandamál Úkraínu í samhengi við önnur lönd Austur Evrópu. Það er einungis stigsmunur.

.

ESB er á leiðinni að verða ríki fátæktarinnar, því miður.

.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.1.2009 kl. 03:07

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og því er hægt að bæta við að þetta eru vandamál sem hvorki Ísland né Bandaríkin þekkja til, sem betur fer.

Gunnar Rögnvaldsson, 13.1.2009 kl. 03:12

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Endurbirt vegna stafsetningarvillu á mynd

Til Guðbjörns Guðbjörnssonar

Þú veist því miður ekki hvað þú ert að tala um kæri Guðbjörn. Úkraína er alls ekki einsdæmi. Öll Austur Evrópa er svona, meira eða minna og Þýskaland er einnig á leiðinni og Ítala þar á eftir. Evrópusambandið er deyjandi samfélag, því miður. Yfir 30 ára stanslaust massift 8-15% atvinnuleysi og ömurlegur hagvöxtur leysir úr læðingi margar og miklar brostnar vonir. ESB er eitt stórt massíft atvinnuleysissvæði, með einungis fáum undantekningum. 

Öll lönd sem ganga í Evrópusambandið staðna

Þetta er kallað fyrir stöðugleika af sumum. En eins og þið sjáið er Evrópusambandið neðanjaðrar hagkerfi miðað við Ísland.

Mynd 1

folksfjoldaspaEU_001

Mynd 2  

folksfjoldaspaEUx002

Gunnar Rögnvaldsson, 13.1.2009 kl. 03:36

12 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ef viðurkennt er að mannauður...sé einmitt það mannAUÐUR, þá má ljóst vera að í samfélagi þar sem fólksfjöldi lækkar vegna minnkandi barnseigna, er "eignarýrnun". Mikið flóknara er þetta ekki.
Nái land eins og Ísland að búa svo um hnúta að halda barnseignartíðninni hárri og að mennta sitt fólk...er þá ekki það haldreipi okkar til lengri tíma litið sem tryggir velsæld ? Fleiri börn, færri frí !

Haraldur Baldursson, 13.1.2009 kl. 08:49

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Athyglisverð grein. Keep up the good work. Það veitir ekki af að opna augu fólks aður en okkur verður skautað inn í þennan glóbalisma.

Ég er með heimildamynd á blogginu mínu, sem heitir the Money Masters.  Hún er einir 3 tímar en þar eru athglisverðar hugmyndir um breytingar á peningakerfinu og söguleg gögn um önur og heilbrigðari kerfi. Þætti gaman ef þú skoðaðir hana ef þú nennir og leggðir út af því.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.1.2009 kl. 10:24

14 Smámynd: Júlíus Björnsson

Gunnar það er mjög gott að fá að sjá þetta svart og hvítu hvernig þessu háttar í A-ESB. Rómverska efnahagsveldið lifði í 1000 ár. Ég túlka Trójuhestinn alltaf sem þau sem bera þungan og erfiðið það er lálaunastéttirnar. Innflytjendur ESB munu vinna með einföldum meiri hluta í kosningum eftir skamman tíma og sennilega áður en ég eignast barnabörn Í upphafi skyldi endinn skoða. Svo er annar hlutur t.d. í Þýskaland fyrir mörgum þegar þeim byrjaði að fækka þá var það algegnt að ungt par ætti 3 hús [íbúðir] til að leigja og selja þetta er náttúrulega blekkjandi aukatekjur fyrir velmegun til lengdar í ESB því smátt og smátt fækkar þeim sem eiga meira en ein íbúð.

Ég tel líka að fólk sem hefur meiri menntun geri meiri kröfur um tækifæri í framtíðinni og barneignir þeirra sé besti mælikvarðinn á hvert stefnir.  Áhersla á grósku mikið einstaklings frelsi, fjöldi smá fyrirtækja og margra smákónga það er lífvænasta og skemmtilegasta þjóðfélagsgerðin af mínu mati.  

Júlíus Björnsson, 13.1.2009 kl. 13:12

15 Smámynd: Anna Grétarsdóttir

-sumir sjá líka aðeins það sem þeir vilja sjá.......en það getur náttúrlega átt við á báða bóga. "Áfram Gunnar, þú ert bara helv... góður !!!

Anna Grétarsdóttir, 13.1.2009 kl. 19:44

16 identicon

Ekki hefur maður lesið annað undanfarinn 20 ár í það minnsta að helsta áhyggjuefni Evrópubúa sé fækkun fæðinga meðal íbúa Evrópu.  Og er það á margan hátt vandmál þeirra í hnotskurn.  Eru ekki allir að reyna á ná niður meðalaldri þjóðfélaga sinna eftir því sem velmegun verður meiri. Meira að segja Japanir eru farnir að huga að innflutningi fólks í þessum tilgangi.  Sem þótt hefði saga til næsta bæjar einhvern tíman.

itg (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband