Leita í fréttum mbl.is

Dell Computer yfirgefur evrulandið Írland. Bretar farnir að óttast um orkuauðlindir sínar

Dell Computer yfirgefur evrulandið Írland

Einn stærsti tölvuframleiðandi í heiminum, hið bandaríska fyrirtæki Dell Computer frá Texas - og sem einnig er næst stærsti atvinnurekandi á Írlandi ef starfsmannafjöldi er notaður sem mælikvarði - hefur ákveðið að hætta framleiðslu á Írlandi. Um 2000 manns munu missa vinnuna hjá Dell á Írlandi. Framleiðslan verður flutt út fyrir evruland og til Lodz í Póllandi. Dell Computer hefur staðið fyrir um 5% af innanlandsframleiðslu Írlands og einnig fyrir um 4% af öllum peningaútlátum í Írska hagkerfinu. Eina huggunin fyrir Íra er sú að Dell mun um sinn halda áfram með 2000 manna starfsemi á Írlandi, utan framleiðslugeirans, aðallega í bæjarfélögunum Limerick og Dublin.

Michael Dell stofnandi Dell Computer

Dell Computer var stofnað árið 1984 af Michael Dell sem þá var nemandi við háskólann í Austin í Texas. Michael Dell er einn mesti brautryðjandi heimsins í framleiðslu, sölu og dreifingu tölva á góðu og samkeppnishæfu verði beint til fyrirtækja og neytenda um allan heim. Núna starfa um 88.000 manns hjá Dell á heimsvísu og velta fyrirtækisins er um 61 miljarðar Bandaríkjadalir. 

Þetta hefði væntanlega ekki gerst ef Írska pundið hefði ennþá verið gjaldmiðill Írlands því þá hefði gjaldmiðill Íra getað aðlagað sig að efnahagsaðstæðum á Írlandi í stað þess að þjóna Írum sem pólitískur gjaldmiðill Evrópusambandsins, sem er sérhannaður fyrir Þýskaland og Frakkland. Þessi nýi gjaldmiðill Írlands hefur nú hækkað um 100% miðað við gengi stærsta gjaldmiðils heimsins, Bandaríkjadals, frá því árið 2001.

Dell hóf starfsemi sína á Írlandi árið 1987 eða um 11 árum áður en evra varð mynt Íra. Mikill framgangur Írska hagkerfisins hófst um svipað leyti er Írar hófu lækkun skatta í landi sínu og minnkun ofurstærð hins opinbera geira úr 53% af þjóðarframleiðslu Írlands og niður í 34%. Þessi lækkun skatta á Írlandi hefur alltaf mælst illa fyrir hjá stjórnendum Evrópusambandsins sem hafa aðsetur sitt í borginni Brussel í Belgíu á meginlandi Evrópu. Líklegt er að Írland hafi nú fest sig í vef hagvaxtargildru Evrópusambandsins, eins og öll önnur ríki hafa einnig gert eftir að hafa verið nokkuð lengi í Evrópusambandinu.

Arið 1973 var árið sem Írland gékk í Efnahagsbandalag Evrópu og sem - þrátt fyrir loforð margra forsætisráðherra EB landa - breyttist svo seinna meira í Evrópusambandið og það eftir einungis 20 ára sameiningarferli, árið 1993. Núna er þetta Evrópusamband að fá sína eigin stjórnarskrá, að kröfu embættis- og stjórnmálamanna sambandsins, en þó í andstöðu við marga þegna sambandsins, en þeim verður ekki gefinn kostur á að láta í ljós álit sitt á þessu máli.

Atvinnuleysi á Írlandi er núna 8,7% og hefur aukist um 70% á síðustu 12 mánuðum. Atvinnuleysi ungmenna undir 25 ára aldri á Írlandi er um 18%.

Á síðasta ári fluttu bæði Yahoo og Google Evrópuaðalstöðvar sínar frá ESB og til Sviss. Einnig hafa Aribus flugvélaverksmiðjurnar flutt hluta af starfsemi sinni frá löndum Evrópusambandsins og til Bandaríkjanna vegna hins háa og ósamkeppnishæfa gengi evru 

Hér er hægt að lesa meira um þann efnahagsframgang sem aldrei fylgdi í kjölfarið á mynt evrópusambandsins eins og lofað var [Lestu mig]

Núna segja margir hagfræðingar að næstum allt Evrópusambandið sé einnig að biðla til Bandaríkjamanna - með því að bíða með nauðsynlegar efnahagsaðgerðir sér til eigin framdráttar - með því að aðhafast lítið sem ekki neitt í eigin húsi og í staðinn bíða eftir að geta selt Bandaríkjamönnum áhöld, vélar og verkfæri til þess að byggja það sem nú á að byggja og bæta innan landamæra Bandaríkjanna á næstunni. Fyrir Evrópusambandið mun því mikið ráðast af því hvernig Bandaríkjamönnum tekst til í sínu heimalandi á næstu árum.

Margir á Íslandi hafa undanfarið eflaust heyrt marga hagfróða menn tala um að seðlabankar séu lánveitendur til "þrautvarna" fyrir banka og fjármálastofnanir í flestum löndum nema á evrusvæðinu. En núna segja margir þekktir hagfræðingar að það sé hagkerfi Bandaríkjanna sem virki sem neytandi heimsins til þrautvarna (e. worlds consumer of last resort). En sjálfur efast ég þó nokkuð um að þetta verði raunin í þetta skiptið því Bandaríkjamenn eru sjálfir staðráðnir í því að stórauka áherslu á sinn eigin útflutning á næstu árum. 

[slóð til heimilda & tengt efni: Dell Computer yfirgefur evrulandið Írland]

 

Bretar farnir að óttast um orkuauðlindir sínar

José Manuel Barroso

Í gær birtu nokkur bresk dagblöð þá frétt að formaður Evrópusambandsins, Portúgalinn José Manuel Durão Barroso, hefði sagt að eignarhald orkuauðlinda landa Evrópusambandsins þyrfti að færa yfir á hendur Evrópusambandsins og þannig verða einskonar "sameign" alls Evrópusambandsins. Það þyrfti að sameina nýtingu orkuauðlinda innan sambandsins á svipaðan hátt og gert hefur veirið á auðlindum sjávar innan lögsögu allra landa í Evrópusambandinu.

José Manuel Barroso á að hafa sagt að það verði settar heimildir fyrir þessu í nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins og gat þess í leiðinni að þessar heimildir væru nú þegar inni í nýju stjórnarskránni sem flest ríki sambandsins hafa eða eru að viðtaka einmitt núna.

Tilefni þessara ummæla eiga að vera krísan sem nú ríkir í orkubúskap landa Evrópusambandsins og sem virðist vera töluvert háður því hvernig tekst til í samskiptum við stjórnmálamenn í Kreml í Rússlandi. 

[slóð til heimilda & tengt efni: Bretar óttast um orkuauðlindir sínar]

Tengt efni

Auður er ekki sjálfgefinn þó myntin stækki

Forsíða þessa bloggs

Forsíða


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Fyrst fiskurinn, síðan orkann og hvað verður næst á þessari öld? Nú það er nú auðsvarað. Sú auðlind sem við eigum hvað mest af og mun aukast að verðmæti út alla þessa öld. Vatnið.

Þannig að áður en langt um líður verður fiskurinn, orkann og vatnið orðið að sameign skriffinna í Brussel. 

að mati ESB sinna er einmitt hagsæld og hagur Íslands best borgið með því að gefa sem mest frá sér. við getum kannski farið að vinna að uppbyggingu á alþjóðlegri banka og fjármálamiðstöð hér á landi að þeirra mati? 

Fannar frá Rifi, 10.1.2009 kl. 03:56

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Fannar þetta er geðveikt? ESB sinnar hafa þeir migið í saltan sjó eða mjólkað belju? Það er "ljóst" og leynt verið búið að tefja heimskreppuna síðan 1998 að mínu mati. Kreppur í Evrópu hafa átt sér stað svona  að meðaltali á 30-40 ára fresti oftast hafa þær leyst með stríði [meira til skiptanna fyrir þá sem eftir lifa] ný nýlendur hjálpuðu líka til. Það er ekkert nýtt undir sólunni. Burt með Reglu verkið og vegabréfsskyldu við landamærin.

Júlíus Björnsson, 10.1.2009 kl. 07:15

3 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Sæll Gunnar og takk fyrri þessa grein

Mig langar að spyrja þig hvort þú teljir að vegi þyngra í ákvörðun Dell. Regluverk EU eða styrking evrunar undanfarin ár. Þá er ég að spá hvort EU án evru og gjaldmiðið á floti eins og í Svíðjóð hefði  verið það sem Írar hefðu átt að vera með og þá gæti það jafnvel verið kostur hér líka. Svíarnir virðast standa eina best þessara EU þjóða eins og staðan er í dag.

Guðmundur Jónsson, 10.1.2009 kl. 13:57

4 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Það er stöðugt að verða deginum augljósara, að hinn slímugi Miðgarðsormur sem áður hélt til í Ráðstjórnarríkjum Austur-Evrópu er núna að stinga upp kollinum í Vestur-Evrópu. Þetta sáu kratarnir í Alþýðuflokknum fyrir löngu og þetta sjá kratarnir í Samfylkingunni einnig. Þess vegna hamast þeir sem brjálæðingar fyrir aðild að ESB og eru tilbúnir að fórna frelsi þjóðarinnar og auðlindum til að hneppa okkur í fjötra alræðisins.

Þau Ráðstjórnarríki sem verið er að koma á fót í Vestur-Evrópu, verða frelsi og lýðræði í heiminum erfiður andstæðingur. Það sem veldur mér þó mestum kvíða er nálægð Íslands við ógnvættinn. Eins og áður munu Bandaríkin standa gegn hinum nýju Ráðstjórnarríkjum og ef að líkum lætur mun þurfa heimsstyrjöld til að kveða niður Orminn. Ísland verður í miðjum þeim hildarleik, vegna legu landsins.

Loftur Altice Þorsteinsson, 10.1.2009 kl. 15:01

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

ESB! Hverskonar ótta bera svona margir til frelsisins?

Þeir sem óttast frelsið eiga einfaldlega að biðja einhvern góðan mann eða konu að halda í höndina á sér.

Hversu margir hafa gegn um alla sögu þráð og ákallað frelsið?

Ég er á móti því að setjast hjá einhverjum og semja við hann um hversu mikið frelsi hann vilji fallast á að gefa mér ef ég fell fram og ákalla hann.

Ég krefst algerrar þagnar um þetta andskotans apparat frá og með næstu mánaðamótum.

Árni Gunnarsson, 10.1.2009 kl. 17:07

6 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ég held að Dell hafi ekkert með evruna að gera. Þeir eru að hugsa um sinn hag og þeim eins og svo mörgum öðrum er betur borgið þar sem launin eru lægri. 

Laun í Póllandi er varla nema um 1/5 af íslenskum atvinnuleysisbótum.

Pæling Evrópu með Evrópusambandinu var að reyna að gera efnahag sinn stöðugri og öflugri. Hvort þau markmið náðust er önnur saga. Mannskepnan er allsstaðar eins. Hver hugsar um sig.

Við Íslendingar þurfum að taka okkur tak og setja járnaga á allt eftirlit og reka okkar efnahag með þekkingu og ráðum bestu efnahagssérfræðinga. Aannars náum við aldrei neinum árangri og glutrum niður öllum ávinningi jafn óðum. 

þetta er engin speki og ekkert leyndarmál en þar sem fámennar  klíkur í okkar landi fá að ráða ferðinni og skáka hlutunum sér í hag þá er málið í pattstöðu.

Sigurður Sigurðsson, 10.1.2009 kl. 17:28

7 Smámynd: Fannar frá Rifi

Það er mjög undarlegt að heyra í sama fólkinu og tala fyrir frelsi og sjálfstæði landa og þjóða eins og t.d. Palestínu, skuli vinna sjálft gegn frelsi og sjálfstæði landa og þjóða heima fyrir. er það ekki frekar mikil hræsni?

Fannar frá Rifi, 10.1.2009 kl. 17:29

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Laun í Póllandi er varla nema um 1/5 af íslenskum atvinnuleysisbótum.

???

Júlíus Björnsson, 10.1.2009 kl. 19:50

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka ykkur fyrir innleggin kæra fólk

Engin fyrirtæki sem hafa innanborðs stjórnendur og starfsmenn með vel virkar heilafrumur - og sem eru ekki spákaupmannastofur - nenna að spá mikið í gengismál ef markaðurinn sem þau færa vörur til markaðar á er aðlaðandi, vaxandi og arðsamur. Þau kaupa sér gengistryggingu enda eru allir bankar í heiminum fullir af græjum sem hann Michael Dell er búinn að selja þeim í áratugi til þess að framkvæma allar þeir fjármálafærslur sem til þarf á sekúndubroti, sama hvað myntin heitir.

Þetta er gott mál því þá geta fyrirtækin á meðan eytt tíma stjórnenda og starfsmanna sinna í að auka við markaðshlutdeild sína og við að stækka síkið í kringum kastalann sinn sem er sjálf viðskiptauppskriftin - frekar en að horfa á gengisskráningu dagsin eins og hjartalínurit.

En lélegar viðskiptauppskriftir eru hinn stærsti veiki blettur á fyrirtækjarekstri mjög margra Íslendinga. Það var þess vegna sem mér datt aldrei í hug í svo mikið sem eina sekúndu að fjárfesta svo mikið sem einum túkalli í íslenskum fjármálastofnunum, því viðskiptahugmyndir þeirra voru og eru enn svo lélegar vegna þess að þær snéru röngunni útá við og réttunni inná við. Svo hljóp skotið af og þau drápu sig sjálf með eigin skotfærum innanfrá. Því eru þau dauð núna - alveg eins og vera ber-  og dauði þeirra ber vott um endalaus mistök stjórnenda og aðaleigenda þeirra. Dauði þeirra hefur ekkert með málefni gjaldmiðla að gera. 

Michael Dell á í dálitlum erfiðleikum með sitt góða Dell fyrirtæki núna því sjálf viðskiptauppskrift Dell þarfnast endurnýjunar. Þetta veit Michael Dell mjög vel og vinnur því hörðum höndum að því að snúa þróuninni við. Núna!

Að flytja úr úr evrusvæði er einn þáttur endurnýjunar viðskiptastefnu Dell. En Írar geta því miður ekki endurnýjað myntina sína og því sitja þeir fastir að eilífu í súpu Evrópusambandsmanna í Brussel.  

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 10.1.2009 kl. 20:20

10 Smámynd: Júlíus Björnsson

Pólskir verkamenn sem ég þekki kunna hugareikning deilingu og margföldum. En sömu sögu er ekki að segja af Íslenskum síðari tíma háskólamenntuðum mönnum, nema einum til tveimur úr hverju mennta skóla sem útskrifast sem verkfræðingar. Exel töflu reiknir er góður vísir á heimskuna. Hvað gerir undir meðvitundinn á þessu liði þegar slökkt er á tölvunni? 

Írar hafa líka orðið fyrir áfalli með svínakjötssölu.

Júlíus Björnsson, 10.1.2009 kl. 21:20

11 Smámynd: Dunni

Burt séð frá því hvert Dell flytur þá verð ég að segja að aldrei hef ég komist í tæri við annað eins drasl eins og Dell.  Við keyptum 4 Dell tölvur í desember 2007, fyrir okkar litla fyrirtæki og  þær hafa allar klikkað og tvær þeirra oftar en einu sinni. ´Búið að skipta um móðurborð í annari tölvunni tvisvar og hinni einu sinni auk fleir viðgerða.

Ég er mjög elskur að Írum og þykir vont að vita til þess að stór atvinnurekandi leggur á flótta frá þeim.  En það er engin missir af Dell draslinu.  Írar lokka eitthav annað og betra til sín.

Dunni, 10.1.2009 kl. 23:11

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég hugsa Dunni að Írum finnist frekar að það sé mynt þeirra sem sé draslið í þessu samhengi því Dell Computer selur jú fyrir meira en 61 milljarð dollara af vörum sínar út um allan heim. Svo það er víst ekki vandamál Íra núna.

Nei, Dell er ekki að flýja sjálfa vini okkar Íra heldur er Dell að flýja mynt þeirra. Þetta er mynt sem Dell hefur því miður ekki lengur efni á að nota því hún er ekki mynt Íra heldur mynt Þjóðverja og Frakka. Evran er nefnilega fyrst og fremst pólitísk mynt þessara tveggja þjóða.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2009 kl. 00:10

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Guðmundur Jónsson

- já ég tel að það sé Svíþjóð til happs núna að vera ekki með mynt annarra landa í notkun sem verðmiða á útflutningsvörum Svíþjóðar.

Sumir Danir hafa tekið eftir þessu og vilja leggja niður fastgengi dönsku krónunnar við evru. Þetta er m.a. ein af niðurstöðum þessarar skýrslu hér: Dönsk peningamálastefna hin síðustu 10 ár í ljósi efnahagsmála Evrópusambandsins og EMU

Hagfræðingur Danske Bank var einnig að mæla með að binding dönsku krónunnar við evru yrði endurskoðuð. En það var eins og að hann hefði talað Guðlast upphátt hér í Danmörku og gæti ég best trúað að hann hafi þarna unnið óbætanlegt trúarfarslegt tjón á sínum starfsframa og sé núna kominn með stimpilinn "ótrúverðugur". Þetta virðist nefnilega vera trúarlegt atriði því orðið "trúverðugur" er víst orð um trú.

Seðlabanki Danmerkur þyrfti þá að fara í vinnufötin aftur og hætta að virka sem símsvari fyrir seðlabanka evru. Þetta yrði örugglega bara vesen - að þurfa að fara að hugsa aftur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2009 kl. 00:28

14 Smámynd: Júlíus Björnsson

Evran er nefnilega fyrst og fremst pólitísk mynt þessara tveggja þjóða

Það er einmitt málið. 

Frakkar að tryggja sig frá frekari efnahags[auðlinda]stríðum við Þjóðverja.

Þjóð með hæstu vergar tekjur þjóðarframleiðslu á nýfæddan íbúa[þrátt fyrr efnahagsstefnu síðust áratuga]  geta leyft sér hvaða mynt sem er [Ef réttu heilarnir eru í brúnni] og tvöfaldað tekjurnar á íbúa. En arðbærasti gjaldmiðilinn til langframa er Dollar, sveiflur er jafnaðar með sjóðum markaðsgreinarinar sem um ræðir.  Þetta er allt spurning um réttu manngerðirnar í hverja stöðu.

Júlíus Björnsson, 11.1.2009 kl. 01:33

15 identicon

Ísland gangi aldrei í þetta ESB.

Það má ALDREI VERÐA, - samkvæmt mínu mati.

Íslenska krónan er jafngóður gjaldmiðill og hver annar gjaldmiðill, en það sem ræður gildi gjaldmiðils í hverju landi er fjármálastjórnin í því landi, -(líka samkvæmt mínu mati). Sé stjórnunin góð, þá er gjaldmiðillinn sterkur.

Festing krónunnar við dalinn, (100 kr. móti einum dal), yrði mikið gæfuspor. (Þá kemur þar næst vel til greina að taka upp nýja mynt "ÍSDALINN" - jafngildi bandaríska dalsins)

En eitt hið allra auðsynlegasta er þó það að auka framleiðslu, - og það án tafar, - og þar með gjaldeyristekjur. Gjaldeyristekjurnar þurfa ávalt að vera meiri en notkunin, ef vel á að vera, (að mínu mati).

Besta og skjótvirkasta leiðin, - (í stöðunni eins og hún er í dag), - er að gefa færa- og línuveiðar frjálsar. Það er að mínu mati, eitt hið allra stærsta og mesta gæfuspor sem þjóðin getur stígið.

Enda er það vafalaust flestum vel ljóst, að frelsi á öllum sviðum, - frelsi til þess að framleiða vöru, - er undirstaða allrar velmegunar.

Ísland verður að halda sjálfstæði sínu, og frelsi til þess að ráða yfir sínu landi og hafsvæðum, - og því eins kemur aldrei til greina að ganga í ESB.

Tryggvi Helgason (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 03:54

16 Smámynd: Júlíus Björnsson

Enda er það vafalaust flestum vel ljóst, að frelsi á öllum sviðum, - frelsi til þess að framleiða vöru, - er undirstaða allrar velmegunar

Örugglega ekki beauroK-rötunum sem hafa þing meirihluta.

Og eru búnir að reyna að innleiða hér ESB regluverkið næstum allt síðustu 20 ár skjön við vilja meirihluta kjósenda, segjast vera á móti innlimunin ÉSB  en framkvæma og  festa í reglur ný-frjálshyggju [samheiti tækisfærisinni: áróðursbragð þeirra sömu]   ESB ásamt skrifræði og forsjárhyggju hinna útvöldu yfir hinum sem er ekki treystandi til að hugsa sjálfstætt að útvaldra mati. Færa og línuveiðar gefa þær ekki besta fiskinn?

Júlíus Björnsson, 11.1.2009 kl. 04:34

17 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Andstaða við ESB er greinilega vaxandi innan Sambandsins. Þetta sýnir til dæmis skoðanakönnun sem YouGov gerði í Bretlandi fyrir nokkrum dögum. Um þetta er hægt að lesa hér: http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/01/11/bretar_vilja_snua_baki_vid_esb/

Í Bretlandi eru andstæðingar ESB með sérstakan flokk, eins og vænta má að verði stofnaður hérlendis, ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins losar sig ekki við kratana í forustu flokksins. Þessi Bretski flokkur nefnist UK Independence Party og þeir eru með heimasíðu hér: http://www.ukip.org/

Á síðu UKIP er líka fjallað um skoðanakönnunina.

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.1.2009 kl. 11:46

18 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kæri Gunnar, ég óska þér og þínum gleðilegs árs og friðar!

Alltaf ertu á vaktinni, blessaður, og hér sé ég efni svo gott, að ég bið þig að forláta mér og réttlæta með leyfi þínu eftir á þann verknað minn að taka (eins og ég nú geri) seinni greinarhlutann í þessu traustataki og endurbirta hann á Vísisbloggi mínu! (Yfirstjórn EB byrjuð að ásælast orkuauðlindir meðlimaþjóðanna = http://blogg.visir.is/jvj/2009/01/12/yfirstjorn-eb-byrju%c3%b0-a%c3%b0-as%c3%a6last-orkuau%c3%b0lindir-me%c3%b0limalandanna/ ).

Barroso er orðinn eins og hugur manns í verkunum, þ.e.a.s.: maður var löngu farinn að anticipera einmitt þetta hjá þeim Brysselpótintátum, að þeir færu út á þessa braut, enda með öll æðstu völd til að framkvæma þettra, ef voldugu þjóðirnar í EB og kerfisbatteríið stendur með þessu, þ.e. að "bandalagsnýta" orkuauðlindirnar rétt eins og fiskveiðilögsögu ríkjanna milli 12 og 200 mílna.

Kær kveðja með þakklæti fyrir allt gott frá þér á liðnu ári,

Jón Valur Jensson, 12.1.2009 kl. 00:40

19 Smámynd: Júlíus Björnsson

Flutningur Dell til Póllands hefur ekkert með ESB að gera, enda er Pólland einnig ESB land sem stefnir á upptöku evru með tímanum.

Alveg öruggleg séð frá Bruselles.

Séð frá Íslandi borgar sig ekki að gera út á sömu forsendur fyrir tilveru sinni eins og ESB. Það er að neyðast til að treysta einum um of á fórnfýsi auðhringa.

Treysta á okkar eigin auðlindir og okkar eigin fyrirtæki og framleiðslu þeirra með frelsi til viðskipta við hvern sem er, hvenær sem er. 

Júlíus Björnsson, 12.1.2009 kl. 15:19

20 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það var fullt af litlum iðnfyrirtækjum hér á Íslendi fyrir daga ESS og regluverksins þau hurfu flest alveg en sum fóru til ESB. Fólkið sem sem vann þar áður fóru í skóla og fékk vinnu viða að kenna og fara í millifærslur við nýju brask fyrir tækin sem komu í staðin. Ísland átti nefnilega að verða skattaparadís fyrir erlend fjárfesta eða glæpamenn: Leyndin. USA sagði nei takk og ESB líka svo brátt verða margir í sporum Íra aftur komnir í verksmiðjur ef þeir kosta minna en Pólverjar og þá talsvert til að vega upp fjarlægðina.  

Júlíus Björnsson, 13.1.2009 kl. 03:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband