Leita í fréttum mbl.is

Segir Danmörku gjaldþrota

steen_bryde

Hinn þekkti danski fjárfestir, löggilti endurskoðandi og stór-fasteignaeigandi Steen Bryde segir að Danmörk sé gjaldþrota. Hann er æfur út í danska ríkið.

Danmörk er í raun gjaldþrota því ríkið er búið að skuldbinda okkur skattgreiðendur fyrir 4.000 miljörðum danska króna. Ríkið getur ekki einusinni gefið út ríkisskuldabréf því enginn vill kaupa þau, svo aumt er danska ríkið. Þið getið bara horft upp til norðurs á Ísland, við erum í sömu stöðu!

- segir reiður Steen Bryde. En hann er reiður yfir því að Roskilde Bank (núna í eigu ríkisins) hafi sagt upp lánum hans. Þetta eru lán í fasteignum sem eru allar í fullri útleigu og þar sem leigutekjur duga vel fyrir vöxtum og afborgunum til Roskilde Bank.

Roskilde Bank sendir mig út í vandræði, og hann sendir þá 26.000 viðskiptavini sem eru eftir í þessu þrotabúi í eigu ríkisins út í gjaldþrot. Þetta mun breiða sig út eins og hringar í vatni. Lögfræðingarnir sem eiga að annast þetta þrotabú hafa engann áhuga á innheimta peninga því þeir hafa 100 sinnum meiri áhuga á að skora þær þóknanir sem þeir fá því þær verða 100 sinnum hærri en þeir peningar sem þeir innheimta. Þetta er þóknunarráðgjöf. Steen hefur enga trú á danska ríkinu og Steen er reiður 

En kæru Íslendingar

Það sem okkar ágæti Steen Bryde veit ekki er sú staðreynd að íslenska ríkið ætlar einmitt ekki að gangast í ábyrgð fyrir þrjá íslenska stórbanka sem fóru á hausinn eins og beljur á svelli innan í ESB. Við ætlum ekki að borga skuldir bankanna! Þess vegna get ég einungis tekið heilshugar undir það sem Robert Z. Aliber segir í Morgunblaðinu í dag og á morgun, þ.e. ef þetta er mögulega fært (Gætum hæglega sleppt IMF-láni).

Látum ekki kúga okkur 

Við afþökkum blóðpeningana frá IMF, en tökum í staðinn við sumu af því sem þeir geta ráðið okkur í sambandi við efnahagsmál næstu ára. Það verður hvort sem er ekkert nema gjaldþrot ofaná gjaldþrot að hafa  úti í hinum stóra heimi á næstunni. Ekkert nema sviðin jörð allstaðar. Við sleikjum sárin saman heima hjá okkur og komum svo fílhraust út aftur, en þá skuldlaus, og með góðann grunn. Ég er asni hræddur um að Aliber hafi rétt fyrir sér þegar hann segir: "Áhættan er mikil að IMF peningunum verði sóað". Að peningunum verði sóað og skuldirnar einar sitji eftir hjá okkur. Getum við ekki bitið á jaxlinn saman í eitt til tvö ár, og sleikt sárin á meðan Róm brennur þarna úti hvort sem er ? Frelsið er til þess að nota það. Það virkar alltaf besta að iðka frelsið af fullum krafti og að vera sjálfstæð þjóð. Notum því frelsið til að segja nei

Heimild:

Steen Bryde: Danmark er som Island 

Forsíða þessa bloggs 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hræðslan á Íslandi er veruleg. ESB hefur skotist upp á himinhvolfið sem frelsarinn. Mikið er það skrítið hvað þessi vængjum prýddi engill hefur nú, loks, náð saman í fullkomnum einhug um eitt mál. Ísland skal kúgað til að greiða upp skuldir fyrir einkafyrirtækið Icesave.

Vonandi missa nú engir trú á þetta bræðralagi, bara vegna þess að þeir ákveði að standa saman gegn Íslandi. Er það ekki fórn sem vert er að færa fyrir Evruna ? Þetta eru ekki nema 900 milljarðar, ef dagblöðin eru marktæk. Er þetta ekki bara í góðu lagi, ef við komumst inn í ESB ? Hvað eru nokkrar kynslóðir á plóginum, ef við bara komumst í þetta bræðralag ?

Það er mikið fagnaðarefni að þessi lönd skuli ná að standa svona þétt saman og kannski vísbending um að nú muni þau efla hvort annað. Á erfiðum stundum. Falleg sýn, nema hversu fjarlæg hún er frá raunveruleikanum.

Væri ekki fróðlegt að vita hversu miklu t.d. Bretar töpuðu af fjárfestingum í Bandaríkjunum t.d. í falli Lehmanns Brothers, eða annarra fyrirtækja. Maður horfir með hryllingi til þeirrar framtíðar sem Bandarísku þjóðarinnar bíður. Það er hætt við að Bretar jafnvel nýlenduvæði þá að nýju. Mikið væri gott að vera aflögufær svo unnt verði að hjálpa þessari næstu nýlendu.

En varðandi hræðsluna. Hví ekki ávarpa han neðan frá; ef slæmt verður verra og að lokum verst. Trúir því nokkur maður að hér eigi eftir að skella á hungurssneyð ? Trúir því nokkur maður að skrúfað verði fyrir húshitun ? Trúir því nokkur maður að fólki verði vísað á dyr af heimilum sínum í þjóðflutningafölda ? Hversu slæmt verður verst ? Margir munu hins vegar líða skort. En hversu erfitt væri að mæta því versta í landi sem hefur næga fæðu, næga orku og nægt upphitað húsnæði ? Margs konar leiðir eru til að mæta því versta...við munum ekki þurfa að nota þær, en ef það hjálpar, þá kann að vera gott að vita að þær eru léttviðráðanlegt verkefni, mjög létt.

Haraldur Baldursson, Hæðarseli 2, 109 Reykjavík 

Haraldur Baldursson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Guðmundur Helgi Þorsteinsson

Ég held að einu stéttirnar sem að standi uppi sem sigurvegarar ef hægt er að segja svo séu lögfræðingar sem hafa nóg að gera við að greiða úr flækjunum og svo endursk. við að reikna allt niður. Það hefur verið merkilegt að fylgjast með þeirri umræðu að fólk muni flytja í stórum stíl til útlanda, skil ekki þá umræðu til hlítar þar sem að víða eru mikil vandamál í dag. Það eru vissulega rök í stöðunni að sjá hvernig við getum þreytt þorrann en vandamálið er að koma viðskiptunum í gang og fá trúverðugleika á kerfið til lengri tíma.

Guðmundur

Guðmundur Helgi Þorsteinsson, 13.11.2008 kl. 22:31

3 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þeir sem búa erlendis hafa líklega ekki veitt athygli hvernig fréttastofurnar hafa kerfisbundið reynt að skapa ótta í brjóstum fólks. Þetta á sérstaklega við um Stöð2, sem greinilega leggur metnað sinn í að hræða almenning. Hvort með þessu er verið að þjóna ákveðnum hagsmunum skal ósagt látið.

Það eru ekki góðar fréttir, ef Danmörk fylgir Íslandi fast eftir eins og Steen Bryde segir. Það eru því gildar ástæður þess, að Danmörk er treg til að hjálpa okkur um nokkrar Krónur.

Sama á raunar við um Svíþjóð, sem rambar á barmi hyldýpis. Ólafur Ragnar hefði ekki átt að nefna þessar þjóðir í sömu andrá og Breta, en Ólafi er fyrirgefið vegna vasklegrar framgöngu hans í þágu þjóðarinnar.

Því miður verð ég að hryggja þig Gunnar. Allar líkur benda til, að ekki verði farið að ráðum Robert Z. Aliber. Ingibjörg Allah Gísladóttir hefur ekki vitkast þótt eitthvað hafi verið fjarlægt úr heilabúi hennar. Hana dreymir um náðar-faðm ESB, þar sem hún ætlar að skála við Gordon Bulldog Brown. Ef hún bara vissi hvaða örlög eru búin bolabítnum !

Loftur Altice Þorsteinsson, 13.11.2008 kl. 22:58

4 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Ég var að lesa "um höfundinn" þar sagðist þú stefna að flutningi til Íslands næsta vor. Hefur það eitthvað breyst? Bara smá forvitni

Þóra Guðmundsdóttir, 13.11.2008 kl. 23:31

5 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Menn eru viti sínu fjær af hræðslu og þegar svo er komið fyrir mönnum taka þeir ákvarðanir byggðar á óraunverulegum aðstæðum.

Það er það eina sem ég get sagt um lydduskap og undirlægjuhátt okkar við Breta.

Hefði maður með balls ráðið hefðum við sagt okkur frá EES og slitið stjórnmálasambandi við Breta STRAX og þeir stálu bönkunum og settu okkur á bekk með hryðjuverkamönnum.

Sagt NATO liðum að hætta að hugsa norður til okkar, það væri ekki nokkur þörf á þeim hingað. 

Það er nefnilega svo í Mannheimum, líkt og á skólalóð, að ef einhver beygir sig í duftið fyrir bullu verður hann ætið þjónusta bullunnar, sama hve lengi skólagangan verður.

Eins er með okkar stöðu nú, að af því að við ekki spörkuðum strax í punginn á Bretum, verðum við undir í samskiptum við þá bæði nú og síðar SÉRSTAKLEGA EF VIÐ GÖNGUM ÞEIM Á HÖND Í GEGNUM ESB.

Það væri feigðarflan mikið.

Bjarni Kjartansson, 13.11.2008 kl. 23:47

6 identicon

Blessaður Gunnar.

Því miður er síðasta vígið fallið.  Sjálfstæðisflokkurinn, sem gleymdi uppruna sínum sem hefðbundinn kristilegur íhaldsflokkur og gerðist meðvirkur fíkill frjálshyggjunnar, er fallinn.  Honum þraut örendið í dag.  Plan B reyndist vera skilyrðislaus uppgjöf fyrir kúgun og ofríki ESB. 

Hvað er til ráða?  Það er eitthvað svo óíslenskt að að leita til fjalla og hefja vopnaða andspyrnu.  Svo vantar líka allan skóg á Íslandi.  Og einnig er ekki sjánleg nein nágrannaþjóð sem myndi senda okkur vopn og vistir flugleiðis.  Einhvern veginn held ég að öll ráð hafi verið einfaldari þegar síðasta tilraun Þjóðverja til sameinaðar Evrópu var brotin á bak aftur.

Ekki er það stórmannlegt að flýja land en er hægt að sætta sig við þessa landsölu?

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 23:51

7 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Bjarni, vilt þú ekki bara flytja til Norður Kóreu? þeir notuðu einmitt þá aðferð sem þú leggur til.

Þóra Guðmundsdóttir, 14.11.2008 kl. 00:20

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég treystti ekki núverandi stjórnvöldum fyrir fimm aura að höndla með peninga...svo algerlega vanhæfir og sofandi sem þeir eru. Guð forði okkur frá fleiri axarsöftum þessa fólks.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.11.2008 kl. 10:27

9 Smámynd: Þórhallur Kristjánsson

Er þessi tala rétt að danska ríkið skuldi 4000 milljarða dkr ?

Ef við gerum ráð fyrir að gengið á 1 dkr sé 15 íkr  og íbúarfjöldi í Danmörku sé  6 milljónir þá sýnist mér skuld á hvert mannsbarn í Danmörku vera 10 íslenskar milljónir.

Ef við gerum líka ráð fyrir því að íslenska ríkið skuldi 1000 milljarða íkr eftir bankahrunið þá er það skuld á hvert mannsbarn á íslandi uppá rúmlega 3 milljónir íkr.

Aðrar þjóðir ættu að spara gagnrýnina á íslendinga fyrir að lifa um efni fram ef þessar tölur eru réttar.

Þórhallur Kristjánsson, 14.11.2008 kl. 11:04

10 Smámynd: Katrín

Það er enfnilega málið:frelsið er til að nota það.

Eina leiðin sem fær er nú er að afþakka lánið og klára okkur sjálf eins og þú segir....er samt hrædd um að kjarkinn vanti og ESB sigling framundan. 

Katrín, 14.11.2008 kl. 11:51

11 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ef allar helstu þjóðir heims skulda svo mikið að það kosti hvert mannsbarn milljónir, hverjir eru skuldunautarnir? Hver er að græða? Er ekki spurning að skoða það og ákveða svo í sameiningu hvað gera skal?

Villi Asgeirsson, 14.11.2008 kl. 12:05

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ríki fara ekki á hausinn. Þau fella gengið í staðinn. Þannig verður auðveldara að greiða af ríkisskuldabréfum og ábyrgðum sem yfirvöld taka á sig. Nema náttúrlega að þú sért ríki í myntbandalagi. Ríki í myntbandalögum geta farið á hausinn því þau hafa ekkert gengi lengur. Þau geta því ekki fellt gengið. Þau hafa ekki lengur frelsið til að nota það því þau lifa og búa í spennitreyju-ESB þar sem ekki er hægt að iðka frelsið.

Þessvegna munu vöðvar frelsisins visna hjá ríkjum í svona spennitreyju og þau munu á endanum hætta að kunna að nota frelsið og verða fátæktinni og aumingjaskapnum að bráð eins og gerst hefur í öllum áætlunarbúskapskerfum embættismanna um alla tíð. Þau munu deyja úr fátækt.

Við hönnun evrusvæðis þá gleymdist að gera ráð fyrir að fjármálastofnanir gætu smyglað skuldabyrði sinni yfir á ríkissjóði (fá þá til að gangast í ábyrgð) og þar með umbreytt áhættutöku bankanna yfir í áhættu ríkissjóða. En nú er þetta orðið að raunveruleika hér í ESB og ESB ríkin munu aldrei, never never ever ever, geta staðið undir þessu ef á þarf að halda því þau skulda svo mikið fyrir að þetta gengur ekki upp. Einungis framtíðarskuldbindingar ríkissjóða í ESB fyrir lífeyriskröfum næstu áratuga eru svo geigvænlegar að þær munu gera þessi ríki de facto gjaldþrota á innan við næstu 30 árum.

Líkurnar á að mörg ESB ríki geti ekki staðið við lífeyrisskuldbindingar sínar til handa þegnunum eru komnar í 100% á innan við næstu 30 árum. Þau hafa nefnilega enga lífeyrissjóði eins og Ísland hefur. Mest allt er skattafjármagnað, og það verða sífellt færri og færri skattgreiðendur í ESB því nánast engin fæðast börnin í mörgum löndum elliheimilisins ESB. Og það er meðal annars vegna þessa að ESB þolir nánast enga verðbólgu án þess að allt fari til helvítis því þessi risaframfærslubyrði ríkissjóðanna er verðtryggð.

Kveðjur

PS: Þóra: nei engar breytingar og okkar áætlunum :)

Gunnar Rögnvaldsson, 14.11.2008 kl. 13:55

13 Smámynd: Þórhallur Kristjánsson

Það vantar í dæminu sem ég tek hér fyrir ofan að taka eignastöðu bankanna með. Samkvæmt þessari grein þá skulda dönsku bankarnir 60 þúsund milljarða ísk miðað við gengið 15.

Skuldir íslensku bankanna voru um 13 þús milljarðar.

Þannig að ef við gerum ráð fyrir því að eignir Dönsku bankanna dugi að mestu fyrir skuldum þá er ástandið kannski ekki svo slæmt. Það er samt alltaf spurning hvort eignastaðan sé rétt metin.



Þórhallur Kristjánsson, 14.11.2008 kl. 13:56

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég hef enga hugmynd um hvort tölur Steen Bryde eru réttar eða ekki. Ég myndi taka þeim með nokkrum kornum af salti og borða brauð með. En hann er mjög reiður.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.11.2008 kl. 14:16

15 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Gott að vita það ég á eina systur í Dk. sem er steinhætt við að flytja heim eftir að við brotlentum svona herfilega, ég hef samt ekki gefist upp á að reyna að fá hana heim.

Þóra Guðmundsdóttir, 14.11.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband