Leita í fréttum mbl.is

Stuttar ESB: enn hrynur evran - ESB getulaust og karlmenn í konufötum standa á gati

Enn hrynur evran

Enn hrynur mynt Evrópusambandsins. Núna er evran hrunin um 21% gagnvart dollar síðan í júlí. Ef mig minnir rétt var íslenska krónan fallin um 45% gagnvart evru áður en íslenskir bankar fóru á hausinn eins og beljur á svelli innan í Evrópusam-bandinu. Kanski nær evran íslensku krónunni bráðlega. En ef 80% af bönkum evru-lands lægu á hausnum þá er ég hræddur um að eva . . . afsakið . . . að evran lægi á hliðinni í rúminu hjá honum Berrasso . . . afsakið . . . hjá honum Barroso, heitir hann víst. Sumir stjórnmálamenn hér í Danmörku krefja efnahagsmálaráðherra Danmerkur svara við því hvað menn ætli að láta dönsku krónuna fara langt niður með henni evru í þetta skiptið. Þeir benda á að bæði Noregur og Svíþjóð njóti þess að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil sem þarf ekki að hanga aftaní fyrrverandi eitthvað-mönnum í ESB, og standi því mun betur í stakk til þess að kljást við þá langvarandi kreppu sem óhjákvæmilega mun verða í Evrópu. Að Svíar og Norðmenn þurfi ekki að ganga í þýsk-frönskum skóstærðum í heimahögum sínum.

Barroso óhæfur?

Joschka Fischer fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands (já, það eru margir fyrrverandi menn í ESB) segir í Le Figaro að José Manuel Barroso sé óhæfur í starfi og að allt ESB sé til athlægis í fjármálakreppunni.

Spánn á bjargbrún? 

El Pais segir að það séu 650.000 óseldar fasteignir til sölu á Spáni. Sumir sérfræðingar segja þessa tölu vera að nálgast 900.000. Á Írlandi er talað um að það standi um 300.000 fastiegnir og bíði eftir kaupendum sem koma aldrei. Í Danmörku stóðu um 40-50.000 einbýlis og raðhús til sölu í gær. Menn nenna ekki lengur að telja óseldar íbúðir með því þær falla bara og falla í verði. Menn telja að um 25-35% Dana séu núna orðnir eignalausir (insolvent) þ.e. að þeir skuldi meira en þeir eiga.

Tímasprengja í gangi í ESB? 

Það hefur komið í ljós í pappírum hjá matsfyrirtækinu Standard & Poor's (ís. staðall fyrir fátæka) að það virðist vera einhver tímasprengja í gangi í ESB núna. Hún tifar og tifar víst undir fyrirtækjum í ESB sem virðast svo skuldsett að þau þurfi endurfjármögnun uppá hvorki meira né minna en 2.1 trilljón dollara fram til ársins 2011, og ekki nóg með það en strax á næsta ári þurfi að endurfjármagna 800 milljarða dollara skuldir þessara fyrirtækja. Aldrei fyrr í sögunni hefur þurft að endurfjármagna svona stórar skuldir í svo erfiðum aðstæðum. En væntanlega mun þá vera búið að þjóðnýta alla banka í ESB og því hægt að þjóðnýta öll fyrirtæki líka og aka á milli þeirra i ríkisreknum Mrecedes Benzum framleiddum af ríkisreknum bílaverksmiðjum. Hverjir voru það sem stóðu fyrir þessu öllu? Bankar? Fjármálastofnanir? Eða ultu bara peningarnir inn í þessi fyrirtæki af sjálfu sér?

Karlmenn í konufötum 

Danski stjórnmálaflokkurinn Vinstri (sem er hægri) segist ekki tilbúinn til að standa fyrir upplýsingaherferð fyrir karlmenn í konufötum í Danmörku (what?). Þeir verði sjálfir að sækja um atvinnu . . í . . í karlmannalegum fötum eða ekki. Ææi. En geta þeir ekki bara sagst heita Barosso og að þeir séu fyrrverandi?

Jafnrétti meira á Íslandi en í Danmörku og El Salvador 

Viðskiptablaðið segir að jafnrétti sé betra á Íslandi en í El Salvador. Af 130 lausum sætum í alþjóðasamfélaginu þá sitji jafnrétti kynja á Íslandi í fjórða sæti alþjóðasamfélagsins á meðan konur (já hvað annað) í El Salavdor sitji á bekk númer 58 en þó með gott gengi. Nema að þetta séu El Salvadorískir karlmenn í konufötum sem sitji þarna saman á bekk númer 58 í salnum ?

Venstre siger nej til oplysningskampagne for mænd i dametøj 

Tengt efni: Það þarf að bjarga evrusvæðinu fyrst

Forsíða þessa bloggs


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei Kristinn. Íslenska lýðveldið getur ekki tekið í notkun nýjan gjaldmiðil á einni viku, sama hvaða nafni hann nefnist. Ekki einu sinni á einu ári. Gjaldmiðillin varðar sjálfstæði lýðveldisins ásamt flestum öðrum grundvallaratriðum samfélagsins. Ísland er ekki bananalýðveldi. Að skipta út mynt í umferð er minnsta málið, en þó aðeins toppurinn á borgarísjakanum.

Síðast þegar ég sá borgarísjaka var veturinn 1965 eða 1966 heima á gamla Siglufirði. Hann var ennþá á firðinum þegar ég fór í sveitina í torfbæinn vestur í Miðfjörð um vorið. Það var úlpuveður allt sumarið og jörðin var brunnin og sviðin af kali. En borgarísjakinn var samt ekki bráðnaður alveg heima á Siglufirði þegar ég kom heim úr sveitinni þarna um haustið. Ekki alveg.

Látið renna af ykkur kæru Íslendingar. Það er ekkert að óttast. Ísland mun komast í gegnum þetta þó svo að IMF fari til fjandans ásamt öllu hinu hyskinu. Ísland er ríkt land og ennþá með ennþá stærri gjaldeyrisforða en t.d. Danmörk, miðað við hagstæð. Menn munu flytja þann gjaldeyri sem þeir þurfa til landsins. Þeir munu allavega ekki fara á hausinn með fullar bankabækur í útlöndum, svo mikið er víst. Það þarf að láta verstu þrotabúsmál bankana líða hjá og svo mun allt falla í góðan farveg og verða nokkuð eðlilegt aftur.

Bíta á jaxlinn, ekki fara á taugum og segja þeim að fara til fjandans sem eiga það skilið. Humpf! Og svo þarf að senda bankaliðið í meðferð því taugar þess eru ofþandar af sreitu og við vitum öll hversu gáfulegt babblið er út úr manni þegar streitan og panik nær yfirhöndinni.

Örvænting er ekki stefna! Panic is not a strategy.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 19:20

2 Smámynd: Sigurður Oddgeirsson

Hvað hafa vextir hækkað mikið í EU eftir þetta hrorðlega hrun evrunnar? Má ekki búast við, að stýrivextir heimalands þíns fari upp í 18 - 20 %?

Sigurður Oddgeirsson, 12.11.2008 kl. 20:05

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Sigðurður.

Vextir eru mjög breytilegir í ESB. Í venjulegu árferði þá fara þeir að mestu leyti eftir verðbólgustigi og eftir stöðu bankakerfa í viðkomandi löndum og svo eftir þinni stöðu sem viðskiptavinur. Eins og er þá eru stýrivextir um 4% í Danmörku og 12 mánaða verðbólga um 4,5%.

Vextir á húsnæðislánum eru um 7% (ef þú velur fasta vexti) plús afföll sem bætast við höfuðstól. Að meðaltali þá skuldbreyta Danir húsnæðislánum sínum þriðja hvert ár og í hvert skipti kemur nýr höfuðstóll með nýjum afföllum og kostnaði. Það er því lítið að marka þessa föstu vexti nema þú skuldbreytir aldrei. En margir taka lán með breytilegum vöxtum þar sem hægt er að læsa vöxtum í eitt til þrjú ár í senn. Vextir á svona lánum eru ögn lægri (6,3% en þá með hærri afföllum), Eftir eitt til þrjú ár þarf að semja aftur.

Vextir á bílalánum eru um 12% með veði í bílnum. Vextir á rekstrarlánum smærri fyrirtækja eru á bilinu 10-16% eftir því hversu góður pappír þú ert. Ársvextir á lánum fyrir þá sem eru illa staddir og fá ekki venjuleg lán eru um 20-24%.

Núna eru bankar að herða útlánareglur og vextir munu fara hækkandi í takt með að taprekstur bankanna eykst og fleiri fyrirtæki og einstaklingar fara á hausinn með fyrirtæki og fasteignir sínar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 20:23

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Má ekki búast við, að stýrivextir heimalands þíns fari upp í 18 - 20 %?


Ef verðbólga í kjarnalöndum evrusvæðis fer uppí 12-14%, já þá munu stýrivextir í mínu landi fara uppí þessa tölur sem þú nefnir.

Þetta gerðist hjá mér árið 1992 en þá var verðbólga 1,3% í Danmörku en stýrivextir voru 12% vegna þess að það var mikill verðbólguþrýstingur í Þýskalandi og bankastjórar þess seðlabanka voru hræddir.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 20:37

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Getur þú Gunnar bent okkur á lönd utan ESB þar sem gengur betur? Fyrir utan Kína og Japan?

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2008 kl. 20:42

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

p.s ég kom til að skuldbreyta því úr Fex1 til Flex5 fyrir tveim árum og sit nú með 1.148.000 kr lán í dag og greiði 4.449,76 á mánuði í vexti og l kostnað, til Realkredit Danmark af því.

Já að sjálfsögðu gilda þeir vextir í 5 ár sem þú setur fasta í fimm ár. En svo þarf að endurnýja og eins, og ég sagði þá skuldbreyta menn að meðaltali á 3 ára fresti. Flex3 er vinsælast því afföllin eru minnst þar. Gengi á Flex5 er núna 97,102% á móti Flex3 sem er 98,740%.. Það munar því um það.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 21:04

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Getur þú Gunnar bent okkur á lönd utan ESB þar sem gengur betur? Fyrir utan Kína og Japan?

Gengur vel í Japan Magnús? Hvað gengur vel í Japan núna?

Gengur vel í Kína? Hvað gengur vel í Kína Magnús? Kína og Norður Kórea eru þau lönd í heiminum þar sem misrétti, misskipting, óréttlæti og misþyrming á almenningi eru algerlega verst. Þetta eru kommúnistaríki sem falsa allar sínar hagtölur, enda eru opinberar hagtölur þeirra brandari, og kúga þegna sína. Auðvitað vona ég að Kína komist á legg, en það verður ekki á meðan þegnarnir búa með byssuhlaup stjórnvalda við gagnaugað.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 21:12

8 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Sérlega gaman að lesa pistlana þína Gunnar

Þetta verður erfiður vetur og mörg gjaldþrot en við lifum það af

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 12.11.2008 kl. 21:13

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

aukasvar á komment hjá mér: það er greinilega verðmunur á bensíni á milli eyjanna og fastlandsins svona ca 17% ódýrara hér austurfrá í dag d.s


Já Jón, en hvar var bensínið svona mikið ódýrara ? Hjá hverjum?

En það breytir samt ekki því að bensínið væri mun ódýrara ef evru ræfillinn væri ekki búinn að hrynja um 21% á nokkrum vikum, og það algerlega að ástæðulaus, - nema vegna vantraustsins vitanlega.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 21:21

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér góð orð nafni minn Ásgeir.


Já kanski, en þið verðið ekki einir, svo mikið er víst. Gjaldþrotin hérna eru einnig hafin. Til dæmis fóru þrír íslenskir bankar á hausinn hérna í ESB í október og eitt flugfélag.

Eitt stærsta fasteignafélag Danmerkur er núna gjaldþrota. Þetta er félagið Centerplan A/S sem á fasteignir fyrir 12 milljarða danskar krónur í Danmörku og Svíþjóð og þar sem stærsti hluthafi er fjármálamaðurinn Carsten Leveau sem m.a. á Scala fasteignina í Kaupmannahöfn. Það er Roskilde Bank sem fer fram á gjaldþrotið. Svo fóru einnig fjárfestinga og fasteignafélögin Griffin Holding, Griffin Ejendomme og Griffin Finans á hausinn í síðustu viku. Bankar, fjármálastofnanir og fjárfestar munu þurfa að bera þungrar byrðar vegna þessa. Þar á meðal eru bæði Kaupþing og Glitnir sem eru á lista lánadrottna. Einnig hefur þýski hjólhýsaframleiðandinn Knaus-Tabbert Group AG beðið um gjaldþrotameðferð með endurreisn í huga. Knaus-Tabbert var stofnað 1934 og hefur framleitt hjólhýsi frá árinu 1937. Félagið leitar núna að hugsanlegum fjárfestum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) óttast einnig að margir bankar (muahaha) í Evrópusambandinu verði gjaldþrota á næstunni. Fliss.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 21:27

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gjaldþrot hlutafélaga í Danmörku - október 2008

 Gjadthrot hlutafélaga okt2008

Það fóru um 430 hlutfélög  á hliðina í október hérna í Danmörku. Þetta er mesta hækkun á milli mánaða síðan mælingar hófust. En þetta er einungis byrjunin. 

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2008 kl. 21:38

12 Smámynd: Katrín

Sæll, hef verið lesandi síðunnar þinnar um nokkurt skeið og líkar vel.  Þegar ruglið í fjölmiðlum hefur algerlega sett mig út af laginu er gott að kíkja inn til þín.

EIn spurning:  Til hverra landa gæti Ísland leitað til eftir láni  og er nokkuð annað en að gefa Bretum og Hollendingum sem og alþjóða gjaldeyrissj.  hið alþjóðlega f... merki?

Og þá er ég ekki að tala um að leita til þeirra esb landa sem hafa sett á okkur þumalskrúfuna til að m.a. komast yfir auðlindir okkar, fisk, jarðvarma, vatnsafl og kannski olíu:) 

Katrín, 12.11.2008 kl. 23:08

13 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Þetta er nú meira ástandið hjá þér! 4% vextir og 4,5% verðbólga. Ég dauðvorkenni þér.

Svo er evran enn eina ferðina farin fjandans til, a.m.k. á þessari síðu þinni. Hvernig stendur hún gagnvart krónunni, sem þú ert svo hrifinn af?

Heimir Eyvindarson, 12.11.2008 kl. 23:51

14 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sæll Gunnar og þakka þér fyrir pistilinn.

Ég tek undir með Katrínu, hér að ofan. Þegar maður hlustar á alla þessa ábyrðarlausu sérfæðinga lofa okkur gulli og grænum skógum bara ef við göngum í ESB, þá er gott að stilla augnablik inn á þig.

Fréttaflutningur hérna gefur okkur ekki minnsta tilefni til annars en að halda að allt sé í himnasælu í ESB. Reyndar var getið um fall Roskilde bankans í fréttum, en það var meira til að glotta yfir óförum banka í Danmörku sem höfðu sett ofan í við okkur. Annar stærsti banki Litháen rúllaði um helgina og komst reyndar í hliðarfrétt hér, en ekkert var gert úr ástandinu sem mun á endanum segja til sín í Svíþjóð í kjölfarið.

Það segir sitt um þá glerkúlu sem ESB-sinnar vilja halda okkur í að þessi 430 gjaldþrot hlutafélagi á einum mánuði skuli hvergi vera nefnd á nafn. Nei, við eigum bara að ganga inn í himnarík með bundið fyrir augun.   

Ragnhildur Kolka, 12.11.2008 kl. 23:55

15 identicon

Ef einhver réttmæt gagnrýni á EU kemur fram í blogginu hér, þá drukknar hún í vitleysu, lygum, hálf-sannleikum, misskilningi og fáfræði. Því er ver.

http://www.forbes.com/reuters/feeds/reuters/2008/10/23/2008-10-23T201419Z_01_N23472962_RTRIDST_0_MARKETS-FOREX-DOLLAR-ANALYSIS.html

Ég ætla það að þú sért læs á ensku, Rögnvaldur:

"Global deleveraging has been the culprit. Investors had used borrowed funds to increase their portfolio bets in recent years. These borrowings are now being called in by lenders and if the debt was priced in the U.S. currency -- and most of them were -- the result is a short squeeze, a scramble to find dollars to repay those loans."

Með öðrum orðum, þá er megin ástæða þess að USD hækkar gagnvar Evru og öðrum myntum er að fjárfestar hafa tekið lán í USD sem nú er verið að kalla inn í einum grænum. Gríðarlegt fjármagn þarf að breytast í USD til að borga lánadrottnum.

""The dollar could become significantly overvalued during this turmoil and there is nothing that could prevent the U.S. dollar from getting to $1.20 against the euro," he added."

Einfeldningar eru auðvitað sárir þegar myntin þeirra er veik og að sama skapi glaðir þegar hún er sterk, því þeir halda að það sé endilega samhengi á milli hagsældar og hver eigi sterkustu myntina. Því fer fjarri.

USD er að verða að enn einni bólunni og það verður lítið fjör þar á bæ þegar hún springur. Evran er hvorki í hraðri rénun né gríðarlegri þenslu. Rénun gagnvart dollar er irrelevant í þessari umræðu og endurspeglar hvorki ástandið í EU eða USA.

"Even though we expect the dollar to climb plenty higher, we're at a point where a corrective move may be long overdue,"

Bandaríkin eru að fara inn í þessa kreppu ásamt EU og restinni af hinum vestræna heimi. En það er ekkert miðað við þann harmleik sem á sér stað á Íslandi þessa dagana. Þar eru menn aumir - aumari en öll önnur nágrannalönd vegna þess að Ísland er ekki í EU.

með kveðju frá EU

Uni Gislason (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 01:08

16 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Vandi Bandaríkjanna er ekki minni en ESB, og vandi Bretlands er meiri en annarra ESB ríkja, ekki síst vegna pundsins.  (Hefurðu skoðað gengi pundsins nýlega?)

Evran er rökrétt fyrir Ísland vegna þess að meira en 2/3 utanríkisviðskipta okkar eru í evru, og ennþá meira ef bætt er við evrutengdum gjaldmiðlum (DKK, SEK, CHF).

Vilhjálmur Þorsteinsson, 13.11.2008 kl. 10:51

17 identicon

Vandi BNA er mun meiri, því þar stefnir í þjóðargjaldþrot, líkt á hér á Íslandi. Bílarisinn GM er að falla og almenningur hrekst út á götuna í hundruða þúsundatali, nýleg frétt frá Kaliforníu sagði frá því að allt að 90% húsa á sumum svæðum væri til sölu, yfirgefin af fólk sem hafði hrakist á götuna eftir innheimtuaðgerðir bankanna.

Á meðan BNA er að breytast í risastóran "trailerpark" stendur Evrópa traust eins og klettur. Vissulega verður fólk í Evrópu vart við smá "butterfly effect" frá hruni Bandaríkjanna en öflugt félagslegt net evrópulanda mun hjálpa því fólki á meðan almenningur sveltur í Bandaríkjunum.

Þessi frétt um hrikalega framtíð BNA er lýsandi um ástandið eins og það er í raun. Takið líka eftir gömlu bílunum fyrir framan þinghúsið á myndinni með fréttinni. Þetta er dæmigert fyrir það sem Bandaríkin standa frammi fyrir eftir að GM er hruninn og kaumáttur amlmennings hverfur, ástand eins og hefur verið á Kúbu undanfarinn tugi ára...

Þetta innlegg í umræðuna var skrifað á sama hátt og síðuhöfundur gerir, bara með öfugum formerkjum

BigBrother (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 11:14

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka Katrínu og Ragnhildi kærlega fyrir góð orð til mín.

Hvað sem öllu líður þá er það samt svo að:

  • Enn hrynur evran
  • Joschka Fischer segir að Barroso sé óhæfur
  • Spánn er á bjargbrún
  • Tímasprengja undir fjármögnun fyrirtækja í gangi í ESB
  • Karlmenn í konufötum fá ekki hjálp frá Venstre
  • Jafnrétti er meira á Íslandi en í Danmörku og El Salvador
  • Nýr gjaldmiðill tekur meira en viku og meira en ár
  • Húsnæðisskuldir BNA heimila eru 50% minni en ESB heimila miðað við ráðstöfunartekjur
  • 35% BNA heimila skulda ekkert í húsnæði sínu
  • ESB þolir enga verðbólgu vegna þess að ofurþung framfærslubyrði margra ESB ríkja er verðtryggð
  • Eina leiðin til að hafa stöðugt gengi er að vera einn í heiminum með eina mynt
  • Myndin af bílum í Mogganum er frá 1975
  • Það fyrsta sem BNA gerði í fjármálakreppunni var að tryggja þá sem hafa fjárfest í BNA pappírum (Fannie May Freddie Mac) og að bjarga fjármálastofnunum (AIG) sem tryggðu skuldabyrði evrópskra banka sem eru mun skuldsettari en bankar í BNA. Ykkur er því óhætt að fjárfesta í fixed income BNA pappírum áfram.
  • Bráðum fer Sub-prime krísa Evrópu í gang fyrir alvöru
  • Bráðum fer skeið númer 2 í bankakreppu Evrópu í gang. Það eru skuldir nýmarkaðslanda sem munu springa undir fótum evrópskra banka. 

Svo þakka ég ykkur öllum fyrir góða umræðu.

Kærar þakkir öll

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 13.11.2008 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband