Leita í fréttum mbl.is

Ónýtar stjórnarskrár: Annar hluti spænsku stjórnarskráarinnar

Sú stjórnarskrá er árgerð 1978: Þar segir:

****

Þýðing: "Stjórnarskráin er byggð á ósundrandi einingu spænsku þjóðarinnar, opinberu og ósundrandi landi allra Spánverja; hún viðurkennir og tryggir sjálfsstjórnarrétt þjóða/þjóðerna héraðanna sem hún samanstendur af og samstöðunni meðal þeirra allra"

Enska: Section 2. "The Constitution is based on the indissoluble unity of the Spanish Nation, the common and indivisible homeland of all Spaniards; it recognizes and guarantees the right to self-government of the nationalities and regions of which it is composed and the solidarity among them all."

Vandamálið hér að að þjóð samanstendur ekki af öðrum þjóðum. Sú þjóð sem samanstendur af öðrum þjóðum er ekki þjóð. Hún er ekki þjóð. En þjóð er hins vegar þjóð; punktur

Sem sagt: spænska stjórnarskráin segir fyrst að Spánn sé ein sameinuð þjóð. Í næstu línu segir hún að það sé þeirrar þjóðar að tryggja sjálfsákvörðunarrétt þeirra þjóða sem sem mynda þjóðina. Auðvitað hefur Spáni hér mistekist að taka margar þjóðir og reyna að búa til úr þeim eina þjóð. Það er ekki hægt, vegna þess að þjóð er þjóð og margar þjóðir eru margar þjóðir

Hefðu menn flett upp í Gamla testamenti Biblíunnar þá hefðu þeir svart á hvítu séð að þetta gengur ekki upp, því þar stendur:

"þitt fólk er mitt fólk og þinn Guð er minn Guð"

****

Hér er einn eitt dæmið um vonlitlar stjórnarskrár þeirra landa sem mynda Evrópusambandið, ásamt sjálfri yfirstjórnarskrá sambandsins sjálfs, sem er sovésk klessa

Franska stjórnarskráin hefst á enn verri mótsögn og sem kostað hefur fimmtán nýjar stjórnarskrár og fjögur ný lýðveldi ofaní það fyrsta. Um er að kenna því sem næst banvænu sósíalistísku líberalisma-sprautuverki John Locke og félaga

Þetta er sama liðið og sífellt ræðst á stjórnarskrá okkar Íslendinga; Kommar, kverúlantar; sossar og stjórnleysingjar

Nú bíður maður bara eftir því að Evrópusambandið í Brussel fagni þjóðaratkvæði Katalóníubúa. Það segi ég vegna þess að Evrópusambandið fagnaði ákaft þegar aðeins 29 prósent kjósenda ákváðu að Króatía skyldi afsala sér sjálfstæðinu og ganga í Evrópusambandið til að í bitum að afhenda því einnig fullveldið. Þetta gerðist svo seint sem 22. janúar 2012

Evrópusambandið varð sjálfstætt yfirríki yfir öllum löndum sambandsins með Maastricht-sáttmálanum árið 1992

Nú hlýtur einnig Gíbraltar að hafna því að deila fullveldi sínu með Spáni eftir sýninguna í gær. Svo líklegt er að Gíbraltar verið áfram hluti af Stóra Bretlandi, en ekki Spáni

Og svo eru það spænsku bankarnir. Já bankarnir og skjálfandi Royalbúðingurinn evran

Fyrri færsla

840 særðir í átökum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvern andskotanum ertu að blanda einhverju ímynduðu "spaghetti" skrýmsli í dæmið?

Af hverju vitnarðu ekki í aðra hluti gamla testamentisins, eins og "drepa skaltu menn, konur og börn og asna þeirra líka".  Eða komandi "messías" gyðinga og múslima, sem á að drepa 99% mankynsins ... eða rit um að allur heimurinn eigi eftir að verða í logum, nema Jerúsalem.

Ef maður virkilega telur, að þeir sem skrifaðu þennan óhugnað, séu eitthvað til að vitna í í nútímanum.  Er maður lítið skárri en aðdáendur Hitlers, Gunnar.

Barátta Katelóníu, átti aldrei rétt á sér ... þeir voru að öllu leiti, með sjálfstjórn. Tilvist þessara laga, á við sögulegt gildi þessa svæðis, sem eind Spánar.

Barátta Katelóníu, er lítið annað en barátta "hreinna" Nazista, sem vilja sundrungu þjóðarinnar undir yfirskini "sjálfstæðis".

Og slíkt fólk, kæri vinur er ekki með í huganum "Minn guð er þinn guð". Heldur ÞVER ÖFUGT.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 2.10.2017 kl. 17:24

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne

Þú verður að sleppa snuðinu og lesa forna texta með réttu augunum og virðingu.

Úr Gamla testamentinu kemur þjóðin sem gunnpólitísk eining heimsins og einnig þjóðríkið hennar. Þegar menn sem slefuðu ekki enn, komnir yfir tvítugt, gátu farið að lesa texta Ritninganna á sínu eigin tungumáli þá fyrir það fyrsta varð til sá skilningur sem lagði grunninn að þjóðríkjum Vesturlanda, þingræðislegri stjórn, aðskilnaði valds og flestum stjórnarskrám Vesturlanda. En svo kom líberalismi Locke (vinstrið) til sögunnar, þrjú þúsund árum síðar, og stútaði slefandi til dæmis stjórnarskrá Frakklands, sennilega að eilífu.

Strax og þú hættir að slefa þá muntu skilja að hin fornu lög Ísraelsríkis og Gyðinga lögðu grunninn að Vesturlöndum. Það var ekki Róm og það var ekki Aþena, heldur Ísraelsríki hið forna. Og þess vegna er Gamla testamentið svona ofboðslega mikilvægt. Engin leið var að pólitískt stjórna neinu í Evrópu nema með því að kunna það fyrr á öldum.

Tíu orða tilvitnun mín hér að ofan í til dæmis sannleika Rutarbókar er svo skerandi ískrandi sannleikur um alla tíma, að varla er hægt að segja hann flugbeittari. En ef menn slefa, þá sést eðlilega ekkert. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2017 kl. 18:04

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Og svo heldur Þorvaldur Gylfason og aðrir ámóta kónar að allt byggist á íslenska stjórnlagaþinginu og bullinu sem þar var samþykkt að skyldi verða srjórnarskrá Íslands.

Halldór Jónsson, 2.10.2017 kl. 22:42

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Halldór minn góði, þú hefur svo innilega hundrað prósent rétt fyrir þér um slefþingið það. Pollur af slefpollum það var; Kommar, kverúlantar; sossar og stjórnleysingjar slefuðu þar saman og slef Þorvaldar var rautt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2017 kl. 22:53

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Reyndar er Spánardæmið ágætis dæmi sem sannar að svo kallað "réttarríki" ættað úr Rómarveldi getur engan vegin búið til félag manna sem tollir saman undir heitinu samfélag og því enn og miklu síður undir heitinu þjóðríki þjóðar. Reglur og lög búa ekki til ríki og þau búa heldur ekki til þjóð, því þjóð er þjóð og hundrað sinnu meira og mikilvægara en allt annað sem myndað getur farsælt heimili manna í veraldarhafinu.

Og borgríki Aþenu gátu heldur ekki búið til þjóðarheimili sem varist gátum þeim sem stúta vildu þeim. Þau höfðu enga strategíska dýpt og gátu ekki mundað þjóðvarnir sér til lífs.

Það eina sem dugar er þjóðin og þjóðríkið hennar.

Amen og Ritningarnar

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2017 kl. 23:18

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Alltaf bestur Blái borðinn.

Helga Kristjánsdóttir, 3.10.2017 kl. 04:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband