Leita í fréttum mbl.is

Norður-Kórea er kærkomin hvatning

Tianasquare

Frá Torgi hins himneska (ó)friðar 1989

Leiðtogi Norður-Kóreu er bein og öflug hvatning fyrir kommúnistaflokk Kína. Hann sýnir flokksbræðrum sínum í Kína hvernig fara á að því að halda völdum yfir fólkinu. Taki kínverski kommúnistaflokkurinn ekki fegins hendi við þessari hvatningu frá leiðtoga Norðursins, þá er umfangsmikið starf Xi Jinping forseta Kína síðustu árin til lítils, eða jafnvel einskis. Undanfarin ár hefur Xi forseti verið að hreinsa út öll þau áhrif, öfl og völd sem til urðu við sjávarsíðuna í krafti fjármagns og framgangs með uppruna og fæðingarstað í útlöndum. Sérstaklega í Bandaríkjunum og Evrópu. Framfarir ógna ávallt tilvist kommúnistaflokksins, því auður skapar völd. Allt slíkt hefur nú verið gert upptækt og handhafar ógnarinnar við völd flokksins settir í gúlag. Eða svo vonar að minnsta kosti einræðisherrann Xi

Kínverski leiðtoginn veit vel hvað gerðist með Líbýu og annars staðar þar sem einræðisherrar misstu völd við það eitt að láta af hendi strategískar eignir eins og til dæmis kjarnorkuvopnaáætlanir og slík virk prógrömm, eða þá möguleika sem skaffað geta þannig einræðisöflum gereyðingarvopn. Hann vill alls ekki að slíkt geti gerst í Norður-Kóreu, sem hann því verndar

Kínverski einræðisherrann mátti því nauðugur sætta sig við að bláfátækir þegnar hans hristust og hírðust skjálfandi og varnarlausir undir kínverskt framleiddum millistéttar-borðplötum úr melamín í Norður-Kóreönskum sex komma þriggja stiga allsherjar-jarðskjálfta, með upphaf aðeins 75 kílómetrum frá norðaustur landamærum Kína. Þetta gerðist er leiðtoginn í Norðrinu fúttaði vetnissprengju af inni í fjalli. Og það sem verra var, þetta gerðist á meðan kínverski forsetinn sullaðist hristandi í hundrað prósent vanmætti í gegnum glærur sínar, á fundarstað hans í Xiamen í Kína með erlendum stórhöfðingjum á borð við Vladimír Pútín. En sá staður snýr að Taívan, þar sem síðasta lýðræðislega og réttkjörna ríkisstjórn Kína situr enn, en sem forseti kínverska meginlandsins enga getu hefur til að höndla, vegna þess hve kínverski herinn er innvortis upptekinn sem lífvörður kommúnistaflokksins gegn fólkinu í landinu

Xi er því líka að hreinsa út í hernum fyrir allsherjarráðstefnu kommúnistaflokksins sem hefst í næsta mánuði, sem að sjálfsögðu heitir október. Hann tók því Fang Fenghui hershöfðingja höndum og varpaði honum í gúlag fyrir hvað annað en "spillingu". Fang sá um gagnkvæm samskipti við bandaríska herinn. Forsetinn mun því ekki handtaka leiðtoga Norðursins né þróunarverkefni hans fyrir neina spillingu. Því sá maður er algerlega óspilltur kommúnisti úr stórri millistétt þess lands, en sem auðvitað heitir bara valdastétt. Og hvers massífur útflutningur af klæðnaði til Kína sem áfram selur hann til Vesturlanda, gengur svona vel. Hvers vegna í ósköpunum er ekki hægt að halda þeim viðskiptum aðskildum frá stjórnmálum, eins og "samtök evrópskra fyrirtækja" hafa þeim megin einnig beðið um, en hins vegar vegna herra Pútíns og fröken Þýskalands

Flokkbróðurleiðtoginn í Norðrinu hefur nú sprengt sex kjarnorkusprengjur flokksins í sama fjallinu, vegna skorts á landrými. Ef þetta fjall hans fellur saman og eys úr sér geislavirku skýi af ryki sem rignir niður í kínverskan almenning, og víðar, þá er hætt við að dagar kínverska kommúnistaflokksins séu snögglega taldir. Tveir leiðtogar sama flokks, og úr sömu millistétt, biðja því saman, en hvor í sínu ríki, til karlsins Marx. Þeir biðja um að fjallið það og steintöflur þess, komi ekki og kasti sér örsmáar ofan í þá. Enginn lifandi maður veit hvort að fjallið heldur eða ekki. Kannski þolir það fleiri bombur, kannski ekki. Það veit enginn

Torg hins himneska friðar (e. Tiananmen Square) skilgreindi árið 1989 þá framtíð sem einræðisherrar Kína völdu til handa sínu landi og lýð; þeir völdu að stjórna áfram í krafti ógnar og terror og þeir hafa styrkt sig og þá stöðu sína hroðalega í sessi. Þessu Kína þeirra verður ekki bjargað. Og ekkert ríki jarðar hefur umboð til að bjarga því landi frá sjálfu sér. Sú tilraunaaðgerð hefur hingað til kostað millistéttir Vesturlanda ómælt magn af pólitísku kapítali og ofboðslegt magn auðs, sem einmitt og með réttu er þeirrar stéttar

En að tortíma því Kína sem kommúnistaflokkurinn stendur fyrir, er hins vegar annað mál. Til þess þarf ekkert umboð, því slíkt hefur ávallt verið fyrir hendi. Það sýndi Ronald Reagan veröld allri og umboð það gildir líklega enn. Eða er það ekki?

Fyrri færsla

Kína mun varla leysa niður um sig, er það?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Maður sér þetta fyrir sér:

Kæru vinir. Hér með er nítjánda 100 þúsund manna allsherjar einkaráðstefnuþing kommúnistaflokksins sett. Eins og við munum öll, var flokkur okkar stofnaður árið 1921 í Shanghai og við komumst til valda vegna vangetu þáverandi valda til að halda völdum. Þess vegna, mínir kæru vinir, sem þjóðin ykkur hatar öll, ætlum við að kippa teppinu undan flokksbróðir okkar í Norður-Kóreu til þess að þjóð þess lands geti rifið valdastétt eins og ykkur þar á hol og tætt úr henni, öllum hennar börnum og ættingjum bæði augu, lifur og líkamashluta. Hljómar þetta ekki stjórnviturlega í ykkar augum? 

Þögn

Ekki það nei

Þá byrjum við aftur: 

Kæru vinir. Hér með er nítjánda 100 þúsund manna allsherjar einkaráðstefnuþing kommúnistaflokksins sett. Eins og við munum öll, var flokkur okkar stofnaður árið 1921 í Shanghai og við komumst til valda vegna vangetu þáverandi valda til að halda völdum. Þess vegna, mínir kæru vinir, sem þjóðin ykkur hatar öll, ætlum við ekki að kippa teppinu undan flokksbróðir okkar í Norður-Kóreu til að þjóð þess lands geti rifið valdastétt eins og ykkur þar á hol og tætt úr henni, öllum börnum og ættingjum hennar bæði augu, lifur og líkamashluta. Nei, kæru vinir, við munum styðja við bakið á okkar bræðrum og systrum í Norður-Kóreu og veita þeim nauðsynlegan stuðning gegn stjórnleysi og upplausn og SPILLINGU! Ykkur verður því einnig áfram óhætt hér á götum okkar lands, því við höfum hér með sýnt öllum almenningi þá virðinu að láta hann ekki halda að við séum að gufa upp og guggna á kommúnismanum, sem veitir okkur öllum þessi forréttindi sem enginn fær nema með því að vera óspilltur kommúnisti út í gegn. Við ætlum ekki að sýna neinum neina vangetu okkar til að halda völdum. Við vitum öll best hvað slíkt getur haft í för með sér. 

Lýsi ég nú þingið sett og syngjum saman kommúnismann:

tra la la la la. Húrra formaður tra la la já Marx og amen Karl. Trall la la la, la la. Komm, únn, isminn tra la la. Gong donk.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.9.2017 kl. 10:51

2 identicon

Þetta finnst mér vera svolítið barnalegt hjá þér Gunnar, en er sammála þér í að Xi Jinping hefur verið að reyna að koma á gömlu Mao kommúnista þvaðri í Kína. En það á líklega eftir að koma honum í koll.

Hitt verðurðu að vera svolítið raunsær í, og það er N.Kórea ... þetta fólk á harma að hefna, Gunnar. Bandaríkin eru glæpamenn í þessu sambandi. Þeir eru ekkert betri en Nasistar þýskalands, og fólk á almennt að hætta þessu hjákátlega nasista ást.  Annarsvegar að tala um "gyðinga" sem ættbálk, þegar maður á að vita árið 2017 að svo sé ekki, jafnvel þó maður fari ekki í sálmana á málinu.  Þeir eru "trúsöfnuður", alveg eins og kristnir og múslimar.

En N.Kórea gæti orðið fall Kína ... Kim Jing Pong Tong, eða hvað fjandan kauðinn heitir ... fer ekkert með rangt mál að fá sér kjarnavopn til að koma í veg fyrir að þeir fái sömu meðferð og Lýbía og Ìrak ... fólk á Íslandi, eru lítið annað en nasista elskendur, sem gera ekkert annað en að klappa fyrir morðum á miljónum manna í mið-austurlöndum af óskýranlegum ástæðum.  Mér er ekkert vel við Islam, en hjartað í mér svíður við að vita af þeim ósköpum sem þetta fólk hefur þurft að líða.  Nú eru Rússar að verða búnir að ljúka Sýrlands vandamálinu, og nú skulum við leggja að þeim að sjá til að byggja upp hvern einasta stein í Sýrlandi.  Það er á þeirra ábyrgð að byggja upp landið ... og í stað þess að skíta þá út, fyrir allt mögulegt ... þá eigum við heldur að beita okkur fyrir því að reina að fá þá til að byggja upp landið, eftir hörmungarnar og gefa fólki heimili til að hverfa aftur til.

Sama á við N.Kóreu ... hvern djöfulinn kemur þér það við, hvort þarna sé einhver diktator? Af hverju ferðu ekki út og kastar steinum í sendiráð Saudi Arabíu, sem heggur haus af pétri og páli, fyri ekkert eða lítið ... misþyrmir konum, og fremur glæpi sem enginn annar.

Svona háttalag, Gunnar ... þegar maður horfir í barm sér, við annan eins óhugnað og Saudi Arabía stendur fyrir ... ekki bara það, heldur styður þetta óhuggulega ríki í að vera forgangsmenn mannréttinda!!!! Í fullri alvöru ... og svo ertu að eyða tíma þínum, í N.Kóreu.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 6.9.2017 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband