Leita í fréttum mbl.is

Kína mun varla leysa niður um sig, er það?

Donald J Trump

Það er kraftaverki næst að utanríkisráðherra okkar skuli hafa svo mikla trú á kommúnistaríkinu Kína að hún fái hann til að segja að "millistéttin þar sé jafn fjölmenn" og í Bandaríkjunum. Þetta hlusta einnig margir aðrir á í veröldinni og fara að trúa ýmsu um hitt og þetta kínverskt. Þeir fara því að búast við að Kína geti gert hitt og þetta. Jafnvel stútað veldi Norður-Kóreu og þar með einnig lagt Kóreuskagann undir sig. Eða, að það á einhvern dularfullan hátt geti togað í snúru sem sturtar Norðrinu niður

Mér finnst afar merkilegt að utanríkisráðherra okkar skuli ekki fyrst og fremst standa með helsta og besta bandamanni okkar, þegar að málefnum eins og þessum kemur: varnarmálunum. En nei. Ráðherrann er hugarfarslega kominn á kaf í OBOR og AIIB, sem er pólitískt útþenslu málgagn kínverska kommúnistaflokksins og í algerri óþökk fremsta bandamanns okkar og verndara; Bandaríkja Norður-Ameríku

Það er svo sem hægt að fyrirgefa honum að hafa þetta svipaða hugarfar og plagað hefur viðskipti fyrirtækja í heiminum öllum, frá því að Kalda stríðinu lauk. En þá kom fram á völlinn kynslóð sem lítinn eða engan skilning hafði á veröldinni og sem kyrfilega horfði fram hjá því, að allt í þessum heimi lýtur geo-pólitískum lögmálum, fyrst og fremst

Fyrirtæki veraldar ráku þá alla þá sem vit og þekkingu höfðu á geo-pólitík og sem hétu landa-stjórar (e. country managers) og þar með umboðsmenn sína (e. agents). Þeir menn þekktu lönd og markaði þeirra betur en allt sendiherraveldið samanlagt, og sem að mestu eru eins og þorskar á þurru og afar erlendu landi. Og á þessa umboðsmenn sína og landastjóra stóluðu fyrirtækin, því þeir skrifuðu og hringdu heim og létu vita hvað var að gerast, vegna þess að þeir vissu hvað var að gerast áður en það gerðist og þeir gátu jafnvel togað í ýmsa spotta erlendis. En það nýja og fyrirfram glataða viðskiptalíkan veraldar sem komst á koppinn í stað hins gamla, já það byggði hins vegar á þeirri sýn að hægt væri að skipta heiminum upp í "svæði" þar sem enginn vissi neitt um þau lönd sem mynduðu þessi svæði. Fyrirtækin réðu því til starfa "svæðis-stjóra", sem til dæmis sáu um markað sem kallaður er "Evrópa og Mið-Austurlönd", "Asía", eða "Afríka sunnan Sahara"

En nú eru dagar svæðisstjóranna taldir, því þeir vissu ekkert og gátu ekkert í geo-pólitík. Hoppa mun því Wall Street um kúrfu-toppa sína af bræði vegna eigin heimsku, en seint skilja að þetta er því stræti samt, og þrátt fyrir allt, fyrir bestu. Markaðsopnunin á morgun, eftir Labor frídag verkalýðs Bandaríkjanna í dag, gæti því orðið afar áhugaverð í ljósi ummæla viðskiptaráðherra Bandaríkjanna í gær, um viðskiptabann á þá sem eru í viðskiptum við þrælaríki. Kína er nefnilega þrælaríki í viðskiptum við annað þrælaríki, þó svo að það sé að vísu aðeins mýkra. Þjóðir og þjóðríki, en ekki svæði, eru og verða sú grunnpólitíska eining (e. unit) í veröldinni sem Gamla testament Biblíunnar, svo sannarlega ég segi þér, vísaði okkur á sem einu færu leiðina í veröld manna. Þess vegna höfum við jú til dæmis Þjóðkirkju vora. Hún hafnar úniversal heimsglundroða heimsvelda úr austri á borð við þann sem klessukeyrði veröldinni 2008

Til dæmis hafa menn og fyrirtæki þeirra gleymt þeim gamla sannleika að í ríkjum með einræðislegt stjórnarfar, eins og til dæmis í Kína, þar veltur allt á því að hið stjórnarfarslega batterí er myndar "kerfið", og sem stjórnar landinu, með oft svo harðri hendi, já það "kerfi" þolir ekki að mistök séu gerð. Geri það "kerfi" mistök þá hrynur það og "kerfið" sjálft missir völdin og hrynur til grunna. Dæmi; Bandaríkin geta tapað styrjöld, til dæmis í Víetnam, án þess að Bandaríkin og lýðræðislegt stjórnskipulag og stjórnarfar þeirra hrynji til grunna. Í versta falli er kosið um nýjan forseta. Ef Kína, hins vegar, tapar þannig stríði þá hrynur stjórnskipulag þeirra til grunna; því verður einfaldlega bylt og kollvarpað, vegna þess að lögmæti þess er ekkert (Evrópusambandið er einnig á sömu leið, því lögmæti þess er svo ákaflega takmarkað). Það er því engan veginn hægt að spyrða Kína, Stór-Kína og Asíu eða Bandaríkin og Ameríkur (suður plús mið- og norður) saman undir einu viðskiptasvæði og einum svæðisstjóra, því að Kína er í sama flokki og Norður-Kórea. Þau ríki er hægt að flokka saman því þau eiga heima í einum og sama flokkinum sem heitir; einræðisríki. Og sú flokkun krefst þess að litið sé á þann flokk eins og hann er; hann er flokkur einræðisríkja

Og einræðisríki hafa ekki millistétt, þau hafa einungis valdastétt og ekkert annað. Allt uppgjör landsframleiðslu þannig ríkja er hið versta smínk og talnaþvæla með Marx Factor. Þar eru til dæmis mistök valdastéttarinnar ekki afskrifuð út úr tölum landsframleiðslunnar, því bæði fjármála- og bankakerfið og fjárfestingar eru allar ríkisreknar eða í höndum hins opinbera. Ákveði einræðisstjórnin í svona löndum að byggja til dæmis hundrað flugvelli, þá er það ekki gert nema í einum tilgangi; þ.e. pólitískum tilgangi. Þessi "fjárfesting" lyftir að sjálfsögðu tölunum yfir landsframleiðsluna og auð þjóðarinnar. En þegar það svo sýnir sig að engar flugvélar lenda nokkru sinni á þessum flugvöllum, og munu aldrei gera, hvað gera Kínverjar þá? Á Vesturlöndum gildir sú regla í þannig tilfellum, að þá verða þeir sem bæði fjármagna og eiga þannig fjárfestingar, að afskrifa þær sem glataða eign/auð, þ.e. sem glataðar og tapaðar fjárfestingar. Þannig að á Vesturlöndum er þessi hluti landsframleiðsinnar og þjóðarauðsins réttilega skrifaður niður og honum eytt út úr tölunum yfir landsframleiðsluna og auð þjóðar. Þannig er þeim tölum haldið sannleikanum samkvæmast. En þannig spilar dósin bara ekki í Kína. Þar er ekkert afskrifað. Í fyrsta lagi myndi það kála fjármálakerfi landsins og það myndi einnig kála því litla áliti sem þjóðin hefur á sjálfri sér og landinu, og þar með þeirri "millistétt" sem utanríkisráðherra okkar heldur að þar sé til. Og í meira en 30 ár hefur kínverski kommúnistaflokkurinn, samkvæmt fimm-ára áætlunum, tekið helming landsframleiðslunnar og fjárfest henni í því sem honum, og bara honum, finnst að hún eigi að fara í; til dæmis hundrað flugvelli, sem eins konar atvinnubótavinnu. Þetta gefur fólki örlitla innsýn í þann svo kallaða auð sem utanríkisráðherra okkar heldur að sé í Kína. Kína er bláfátækt ríki og verður það alltaf, eða svo lengi sem það er kommúnistaríki. Þetta er staðreynd

En ekki nóg með það; þegar að því kemur að eitthvað þarf að gera í sambandi við allar þessar rangstæðu og þar með glötuðu fjárfestingar kommúnistaflokksins, þá er það litla sem þjóðin á tekið af henni, og afhent þessum "fyrirtækjarekstri" kínverska kommúnistaflokksins, til að koma í veg fyrir algert hrun. Og vert er að geta þess, að til að hægt var að byggja allar þessar rangstæðu fjárfestingar flokksins, þá var fólkinu bara hent af því landi sem fór undir þær, vegna þess að ríkið á það. Á Vesturlöndum er svona land keypt af borgunum eða þeim er bættur skaðinn. Svo segjast menn ætla að láta kínverska kommúnistaflokkinn "njóta vafans" þegar íslenskir sakleysingjar með kínverska "millistétt" í heilastað, halda að hægt og réttlætanlegt sé að selja fólki kommúnistaflokksins bara svo mikið sem enn hektara af Íslandi. Er þetta fólk með hálm í heilastað eða hvað. Kann það ekki að hugsa?

Kína getur því ekki bjargað neinu því það er bara eitt; einræðisríki. Ef það skyldi þó ákveða gangast í málefni Norður-Kóreu, þá mun slíkt aðeins verða gert í þeim eina tilgangi að leggja allan Kóreuskaga undir sig. Flokkurinn þolir ekki að tapa í þeirri ferð, því þá hrynur allt kerfið í Kína. Svona ríki eru hroðalegt mein fyrir alla veröldina. Þau eru ekki nein millistétt frekar en sovétríki voru það. Þau eru einfaldlega einræðisríki. Slíkum ríkjum ætti alls ekki að hleypa inn í viðskiptakerfi hins frjálsa heims. Bara alls ekki

Þetta er sem sagt hin stóra millistétt utanríkisráðherrans. Á henni mun hann auðvitað brjóta báðar fætur og enda á gangstétt. Heimurinn hefur tilvistarlega og í eðli sínu ekkert breyst, og Ísland stefnir ekkert. Það verður hér, þar sem það er. Hins vegar geri ég fastlega ráð fyrir því að þeir fjármunir sem utanríkisþjónustan ætlar að spara með því að leggja niður sendiráð, verði beint til styrktar íslenskum landbúnaði á Íslandi. Að fjármunum ráðuneytisins og Íslands sé ekki ráðstafað til styrktar kínverska kommúnistaflokknum. Gerið þið það ekki, þá er mér að mæta. Ég er minnsti minnihluti Lýðveldisins; eitt atkvæði. Varið ykkur! Og ég mun alltaf styðja bandamann okkar í vestri, geti ég yfirhöfuð það gert

Samfelldri 13 ára friðþægingarstefnu Sjálfstæðisflokksins verður nú að linna. Helst áður en sú appeasement-stefna flokksins kálar honum fyrir fullt og allt. Annars er það gangstéttin sem bíður flokksins. Engin millistétt er á milli farsældar flokksins og hennar. Takið ykkur vinsamlegast á!

Fyrri færsla

Hvað vill Norður-Kórea?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Mér er mikið í mun að kljúfa þennan minnsta kjarna þinn í smá agnir og dreifa til sterkra áhrifa um allt land.

Helga Kristjánsdóttir, 5.9.2017 kl. 05:30

2 identicon

Það er rétt hjá þér, að það er engin "millistétt" í Kína .. heldur ekki í Saudi Arabíu.  Við hér á vesturlöndum höfum haft afskipti af slíkum löndum, og viðskipti með miklum góðum áhrifum ... því að í þessum löndum, Gunnar, eru gífurleg glæpasamtök ... ríkið elur uppi glæpasamtök, sem gott er að hafa viðskipti við.

En ég er algerlega ósammála því, að "refsingar" borgi sig ... þessi "refsi" þáttur bandaríkjanna er verulega slæmur.  Því bandaríkin munu halda áfram viðskiptum við þessi lönd, bak við tjöldin.  Þessi "bann" æxli þeirra, eru gerð til að bola oðrum frá kökunni ... þetta er dæmi, þar sem bandaríkin eru að notfæra sér "geopólitískt" vald sitt ... til að ná forgangsröð.

Þjóðverjar hafa rétt í því, þegar þeir segja að bandaríkin séu að bola öðrum.

Þannig að aðfarir viðskiptaráðherra í þessu sambandi, eru alls ekkert vitlaus ... þ.e.a.s. ekki nauðsynlega.

Evrópu, öll ... á að koma sér undan bandaríkjunum.  Ísland með.  Bandaríkin eru ekki sömu Bandaríki og áður ... verða líklega aldrei.  Daður þeirra við ISIS, Al Qaida og önnur slík glæpasamtök bendir á að þeir hafa gersamlega sporað úr ... sem "heimsveldi".

Við stöndum í dag, almennt ... í ljótum málum.  Kína, sem "leiðandi" ríki eru slík afglöp að það finnast engin takmörk.  Bandaríkin, því miður ... hafa tekið upp sama óvirðugleika og Rómarríki ... við þurfum nauðsynlega að ýta undir eitthvað Evrópskt ... Bretland? vafasamt. Þýskaland? verður að fara fram breiting.  Frakkland? pussies. Rússar? þeir eru á leið, en hvað gerist eftir Pútin ... spurning. En skömminni skárri en Kínverjar.  Þó ekki framtíð, nema þeir breitist.

Við stöndum núna, í Geópólitískri súpu ... sem Bandaríkin og Bretar skópu, sjálfum sér til bölvunar.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 5.9.2017 kl. 05:37

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Kínverjar eru fjórum sinnum fjölmennari en Bandaríkjamenn þannig að þó að millistéttin í Kína sé hlutfallslega fjórum sinnum minni en í Bandaríkjunum, er fjöldi þessa millistéttarfólks sá sami. 

Enda framleiða Kínverjar mun fleiri bíla en Bandaríkjamenn og mest af þeim til brúks innnanlands.

Ómar Ragnarsson, 5.9.2017 kl. 16:47

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Helga og Bjarne, fyrir innlit og skrif.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.9.2017 kl. 19:15

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar fyrir innlit og skrif.

Málflutningur utanríkisráðherrans er svona: við höfum talið allar þúfur í Kína og í ljós kom að Vatnsdalshólar þess eru hæstu þúfur landsins. Fjöllin, sem við töldum líka en sem eru engin í þessu landi, já þau eru hins vegar millistéttin í Bandaríkjunum. En, við ætlum samt að einbeita okkur að þúfunum í Kína. Kostnaðurinn við að ná til hverrar þúfu sem gefur okkur því sem næst ekkert, er það sem fær heilabú okkar til að þorna upp úr ákafa.

Meðal-ráðstöfunartekjur kínverskra heimila árið 2014 voru 20.071 yuan, sem svara til 8,22 Bandaríkjadala á dag. Þetta nær ekki einu sinni ráðstöfunartekjum þeirra allra fátækustu í Bandaríkjunum.

En tölurnar frá Kína blekkja samt, og eru enn verri en þetta. Heimilistekjur þeirra sem búa ekki við sjávarsíðuna, eða 80 prósent landsmanna, eru fjórir dalir á dag.

Kína er stærsta musteri fátæktar í heiminum í dag. Ferðalag þeirra er vonlaust því landið lagði af stað í ferð sína með engan einkageira, sem jafnvel steinaldarhagkerfi höfðu. Það lagði af stað með einn kommúnistaflokk sem átti og á ennþá allar þúfur í landinu. Og þúfur mun hann erfa.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.9.2017 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband