Leita í fréttum mbl.is

Hissa á skuggamynd aðalhagfræðings Seðlabanans

Nú hef ég horft á vefútsenda stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem í sjálfri sér er ekki verðbólguvaldandi, vegna þess að hún, útsendingin sjálf, fer fram í gegnum framleiðsluapparat annarra hagkerfa. Sko til

Ákvörðun Seðlabankans byggir að sjálfsögu á því sem búið er að gerast. En ekki á því sem er að gerast, eins og Már hefur sjálfur greint frá, með því að segja að ákvarðanir Seðlabankans séu gagna-knúnar. Öll gögn hans eru auðvitað úr fortíðinni. Öðruvísi geta þau ekki verið

En stund sannleikans rennur þó aldrei upp fyrir þá sem vinna í Seðlabankanum (banki) og á Hagstofunni (stofa), því þar er og verður aldrei hægt að fá þá stund til að renna upp og enginn veit því hve villumörk hans og stofunnar góðu eru stór

Það geta hins vegar þeir gert sem um stjórnmálin spá, því þar er talið upp úr kjörkössunum á fjögurra ára festi og stund sannleikans rennur upp. Þar með staðfestast rangar/réttar spár spámanna á þeim markaði, og villumörk staðfestast líka. En það er hins vegar aldrei talið upp úr gagnasöfnum Seðlabankans og þess vegna geta menn þar haldið vinnunni sinn fram í rauðan dauðann. Þetta er alls ekki gagnrýni, heldur aðeins staðreynd. Og þetta er kallað sérfræði. Já já

Mér finnst furðulegt að í skuggamyndasafn Seðlabankans er nú komin sú árstíðaskapaða hagsveifla sem er í gangi í ESB, því hún er eingöngu knúin af þremur þáttum:

1. Árstíðasveiflu (e. cyclical)

2. Kjöri Emmanuel Macrons upp til himins; En hann er hins vegar fallin til jarðar á ný sem bara bankamaðurinn sem hann ávallt var. Og sem strax orðinn er því sem næst þorskur á þurru landi. Fall hans er auðvitað ekki enn komið inn í tölur Seðlabankans, vegna þess að hann er jú gagna-knúinn. Af hverju þá að taka hann inn?

3. Hatri Evrópusambandsmanna á Donald Trump; Þeir halda að að þrotum komin Evrópa sambandsins geti allt í einu farið að stjórna sér sjálft á ný. Allir vita þó innst inni að slíkt getur aldrei gerst. Það er örstutt síðan að seðlabanki og ríkisstjórn Bandaríkjanna björguðu hagkerfum evrusvæðis með síendurteknum gjaldmiðlaskiptagáttum og með björgun AIG, sem tryggt hafði allt fjármálakerfi landa evrusvæðis. Annars hefði AIG verið látið rúlla í þrot

Þetta er og verður aldrei annað en það sem það er. Og þetta er, eins og oft áður, varla birtingarhæft. En samt er þetta birt. Hvers vegna? Jú vegna þess að bankinn er gagna-knúinn, eða er það ekki?

Fyrri færsla

Umfjöllun um "þjóðernis-hyggju" á hvolfi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Til að fyrirbyggja misskilning:

1. Ég er ekki óánægður með raunstýrivexti Seðlabankans.

2. Og ég er ekki óánægður með gengið.

3. Mér þykir ákaflega vænt um Seðlabankann okkar, því íslenska krónan er framkvæmdaarmur fullveldis Íslands gagnvart umheiminum - og því einn af fáum björgunarbátum lýðveldis okkar.

En eins og Donald Trump, þá er ég hund-óánægður með sérfræðingastóð veraldar og allt allt of mikil ókjörin völd þess. Það er ekki frá þeim eða því sem hagvöxturinn kemur. Hann kemur nefnilega úr framtíðinni með áhættutöku einkageirans.

Segi þetta bara svona til öryggis.

Gunnar Rögnvaldsson, 24.8.2017 kl. 16:58

2 identicon

Ég heir það hjá þér, að þú ert aðdáandi Nigel Farage ... það er alveg frábært að heira manninn tala. Ég er ekki alltaf sammála manninum, en hann færir góð rök ... því miður eigum við engan slíkan.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 24.8.2017 kl. 18:28

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það þarf að byrja á því að segja upp einum manni þarna. Sá heitir MÁR GUÐMUNDSSON og heldur uppi okur-stýrivöxtum í landinu, tugþúsundum íbúðaeigenda til stórtjóns. Hann hefur aldrei sætt ábyrgð fyrir það!!!!!!!

En þetta þykir víst góð og lúmsk aðferð til að gylla síðan evruna í augum þeirra mörgu kjána sem fengið hafa vantrú á krónuna sem stafar þó af því einu saman að þessi gamli, ruglaði Marxisti neyðir okurvöxtum upp á landsmenn alla!

Jón Valur Jensson, 25.8.2017 kl. 03:13

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.8.2017 kl. 03:59

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þú veist nú betur en þetta minn kæri Jón Valur.

- Allt hagkerfið okkar keyrir alla strokka sína á fullum afköstum, það er framleiðsluspenna.

- Húsnæðisverð er í hæstu hæðum og myndi þjóta enn hærra við lægri vexti.

- Atvinnuleysi er því sem næst núll og skortur er á vinnuafli.

- Og verðbólgan er samt innan settra markmiða.

- En samt viltu henda efnahagslegum kjarnorkuvopnum inn í hagerfið okkar með bara-af-því lægri vöxtum, einungis vegna þess að löndin í kringum okkur ná sér varla upp úr sundursprengdum evrugígunum sem mynduðust 2008, og sem þau virðast permafryst föst ofan í og sem neyðast til að lifa á lánuðum hagvexti frá Bandaríkjunum og fleiri ríkjum, en sem öll eru langt utan evrusvæðis ESB - þ.e. þau ESB-ríki sem eru hve útflutningsháðust, eins og til dæmis Þýskaland. Þau hafa lifað á lánuðum hagvexti.

- Þar, í Evrópu, eru vextir þeir lægstu í 200 ár vegna einnar verstu stöðnunar og "shrink-flation" síðan frá því um 1930. Takist ekki að hækka þá jafngildir það að  hagkerfin þar eru að verða að ísaldar-jökli.

Þú verður að gera betur en þetta Jón minn. Við tökum ekki upp hækjur bara vegna þess að aðrir eru með þær vegna þess að þeir eru fatlaðir, en við heilbrigð. Þannig "hjálp í viðlögum" er ekki góð latína.

Góðar kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 25.8.2017 kl. 04:03

6 identicon

Sæll Gunnar

"En eins og Donald Trump, þá er ég hund-óánægður með sérfræðingastóð veraldar og allt allt of mikil ókjörin völd þess. Það er ekki frá þeim eða því sem hagvöxturinn kemur. Hann kemur nefnilega úr framtíðinni með áhættutöku einkageirans."

Það er ljóst að "hagvöxtur" (hræðilegt orð) kemur ekki frá baunateljurum og excel köfurum eins þú segir. Fullyrðingin sem ég undirstrika velti ég þó fyrir mér. Í dag er það sjaldnast peningamenn sem eru með bestu hugmyndirnar, sennilega vegna þess að þeir sjá ekkert annað en peninga, Hollywood er besta dæmið þar um. Til að geta virkjað "lata" peninga svo að hægt sé að skapa "hagvöxt," fyrir líklega þröngan hóp manna, þá þarf hugmynd sem hefur verið útfærð að einhverju leiti svo að hægt sé að vinna hana frekar. Afi minn sagði "Þeir njóta sjaldnast eldanna sem kveikja þá." Það finnst mér hafa verið  að færast í vöxt.

Eftir þessa yfirferð þá er hægt að setja fram aðra fullyrðingu; Peningar og fjárfestar skapa sjaldnast framtíðina, hugmyndirnar sem þeir kaupa af hugmyndasmiðunum er grunnurinn að sköpun nýrrar stefnu, þróunar eða bla. Hugmyndir finna sér alltaf leið, eins og vatnið, sama hvað verður um peninga og það rugl allt saman. Hugmyndir eru og verða hættulegasta vopn sem mannskeppnan hefur yfir að ráða, þær eru líka lífsbjörg margra. Við mundum "græða" mun meiri hagsæld ef að virðing fyrir hugmyndum væri meiri og almennari. En eins og þú veist Gunnar þá er arðrán leikur dagsins í dag.

Sigþór hrafnsson (IP-tala skráð) 25.8.2017 kl. 18:52

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigþór.

Þegar talað er um einkageirann þá er átt við fyrirtæki og heimili - eða svo vona ég að minnsta kosti enn, nema að hin Marxíska menningarbylting dagsins í dag hafi náð að þurrka einkageirann út. 

En hvað um það, og sama hvað, þá það þarf að fjármagna hugmyndir sama hvaðan þær koma og sama hvernig þær verða til. Og samkvæmt eðli málsins þá fjárfesta heimili ekki heldur neyta þau eða spara. Öll peninganotkun heimila er annað hvort eyðsla eða sparnaður. Það eru sem sagt fyrirtækin sem fjárfesta, svo vitnað sé í þjóðhagsreikningana.

En það er mikið rétt hjá þér að það er hinn almenni borgari sem allt veltur á, því fyrirtækin samanstanda þrátt fyrir allt af einstaklingum. Já hugmyndirnar finna leiðir, eins og vatnið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.8.2017 kl. 20:44

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Við erum ósammála um stýrivaxtastefnu Más, Gunnar!

Það er fínn pistill um krónuna og gjaldmiðlamál í Mogganum þennan föstudag, eftir Hjört J. Guðmundsson, blaðamann og ESB-fræðing:

Ónýtir gjaldmiðlar

Miklar sveiflur hafa orðið í gengi brezka pundsins gagnvart öðrum gjaldmiðlum á þessu ári og þurfti á tímabili ekki mikið annað en skoðanakannanir til þess að gengið sveiflaðist duglega á milli daga. Sama er að segja um aðra gjaldmiðla. Meira

Jón Valur Jensson, 26.8.2017 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband