Leita í fréttum mbl.is

Af hverju tekur DDRÚV ekki fyrir verðlækkun á sjálfu sér?

Fyrst að þetta ríkisrekna fjölmiðilsþusl í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar ætlast ár eftir ár og áratug eftir áratug til þess að matvælaverð lækki og að matur eigi helst ekki að kosta neitt og að bændur geti étið það sem úti frýs, hvar sem er í hinum siðmenntaða heimi, hvernig væri þá að þetta kommasetur nútímans taki fyrir verðið á sjálfu sér og kynni fyrir landsmönnum hvað þeir gætu í staðinn keypt af innfluttu fölsuðu og sminkuðu matvælarusli frá ESB sem selt er hér sem eins konar matur og hagnaðurinn fluttur úr landi. Hvernig væri það, kæra DDRÚV, hið yfirverndaða kommavarp Íslands?

Þið gætuð þá sagt hverju heimili "neytenda" og öllum fyrirtækjum landsins hve mikið þau geti sparað á ári með því að þið væruð öll rekin, eins og menn hyggjast nú reka bændur í boði Viðreisnar frá búskap sínum. Hvað finnst ykkur um það DDRÚV?

Af hverju takið þið ekki fyrir verðið á ykkur sjálfum? Hvað er að?

Það er líka stórkostlegt að Sigurður Ingi Framsóknarmaður skuli láta leiða sig svona lamaðan til slátrunar eins og fatlað lamb. Hver einasta þjóð með virðingu fyrir sjálfri sér myndi aldrei aldrei taka í mál að flytja inn eins stóran hluta af matvælum og við Íslendingar gerum. Í Frakklandi yrði einfaldlega bylting!

Og það mega allir vita að ekkert líf getur þrifist neins staðar á plánetunni okkar sé það látið í hendurnar á þeim sem reka verslun með matvæli í dag. Þvílík samsteypa af samstappandi hringamyndunum sem hún orðin er!

Hmpf!

Vegur 1945-heimsskipan endar hér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það kom fram í Kastljósi í kvöld að flest heimili eru að eyða um 13% af ráðstöfunartekjum sínum í matvæli, löngu kunn staðreynd. Svo hamra ESB sinnarnir stöðugt á því að meðalheimilið muni spara milljónir á ári ef við fengjum lækkun á innfluttum kjúklingum. Skyldi meðalfjölskyldan þá borða kjúklinga í morgunmat, hádegismat og kvöldmat, ekkert annað??

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 21.8.2017 kl. 23:24

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Örn.

Já skarplega athugað hjá þér. 

Nú nú, þegar ESB-sinnar geta ekki komist neðar í málefnakrukkuna sína, þá verða þeir væntanlega komnir með kjúklingaleggi og farir að gogga í hvorn annan. Burtflogin málefnin horfin og ekkert eftir nema síðasti goggurinn í svitabol. Uppstoppast hann þá? Það er spurningin.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.8.2017 kl. 00:10

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þetta svo nefnda RUV, er ekki þjóðarútvarp og þó það sé kalla ríkisútvarp, þá er það fyrst og fremst málgagn þeirra sem starfa þar og úr okkar vösum ausa ráðherrar allra ríkisstjórna fé til að sannfæra það fólkið sem þar starfar um að í raun þá eigi það þessa stofnun.

 

 Í þessu efni hefði fullur Yeltsin ekki gert betur og  jafnvel ekki heldur Hugo Chavez.

 

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 22.8.2017 kl. 07:55

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég held að flestir séu hættir að horfa á RÚV nema kannski fréttir sem í raun eru ekki marktækar og ef mjög hlutdrægar.

Valdimar Samúelsson, 22.8.2017 kl. 10:09

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Á Íslandi þarf að kunna að lesa í fréttir.  Því miður þá eru engin námskeið í þeirri í þrótt hér uppi, en mögulegt væri að finna fróða menn í þessum fræðum í Rússlandi.

Hrólfur Þ Hraundal, 22.8.2017 kl. 11:53

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Rétt Hrólfur.

Valdimar Samúelsson, 22.8.2017 kl. 13:16

7 identicon

Sæll Gunnar.  Þetta eru sterk orð sem þú notar  " kommasetur nútímans", " ríkisrekna fjölmiðilsþusl í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar",  " DDRUV ", " hið yfirverndaða kommavarp Íslands? ".

Maður veit varla hvað maður á að segja við þessum setningum en verð að efast sterklega um þinn eigin skiklning á þeim orðum sem þú notar. Þú virðist t.d. varla skilja orðið " kommúnisti " enda ekki margir á Íslandi í dag sem aðhillast þeirri stefnu.  Að RUV sé kommasetur er náttúrulega bara þvæla.

Fáir virðast horfa oftar á fréttir RUV en sá hópur sem skrifar hér á blogginu og finnur þessari stofnun allt til foráttu.  Er það ekki sorglegt að hanga yfir sjónvarpinu og bíða eftir að þar komi frétt sem ekki hentar ykkar réttrúnað

Er matvæklaframleiðsla í ESB rusl Gunnar eða ert þú að heimsækja einhverja aðra Evrópu en ég.  Hvar í heiminum er betri matvælaframleiðsla ?

Hjá mér færð þú fall einkunn fyrir þessa færslu sem er óttrlegt bull.  Það er samt gott að búa í landi þar sem við meigum vera svona ósammála.

Ég vona að þér gangi betur næst.

Brynjar (IP-tala skráð) 22.8.2017 kl. 13:40

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Hrólfur. Já mikið rétt. 

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 22.8.2017 kl. 14:35

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og þakka þér Valdimar. Rétt hjá þér. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.8.2017 kl. 14:36

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bryjnar.

Þar sem ég hef tæplega 30 ára reynslu af matvælaframleiðslu og matvælamarkaði Evrópusambandsins, þá get ég fullvissað þig um að sem ferðamaður í heimsókn muntu ekki kynnast neinu nema því sem þú vilt sjá sbr. því að enginn erlendur ferðamaður sem kom til Íslands sá að neitt væri að í landinu okkar er þjóðin átti ákaflega um sárt að binda í kjölfar bankahrunsins með Samfylkingar og VG vinstri-ríkisstjórn Helvítis yfir sér með aðstoð Komma-Ríkisútvarpsins, sem næstum alfarið er mannað nýjum og gömlum kommúnistum sem kalla sig sósíalista í dag. Þetta skítapakk lét svo vaða sem sá ESB-skítadreifari sem hann er. En ferðamenn sáu hins vegar ekki að neitt væri að. Fólk lá ekki dautt á götum og strætum, strætisvagnar gegnu og það var ljós í gluggum sjúkrahúsanna. En samt var þjóðin í áfalli og sem ein íslensk þjóð einmitt undir stöðugum árásum frá þessu ömurlega liði.

Fyir mér hljómar þú eins og ESB-aflapi syndandi í sulli á hótelherbergi í miðju ESB-ríki þar sem 50 prósent atvinnuleysi ríkir fyrir utan húsgafla hótelsins og þú tekur ekki eftir neinu.

Það er fyrir löngu búið að eyðileggja landbúnað í Evrópusambandinu og alla matvælaframleiðsluna þar. Bústofnar þess þola ekki að nein lifandi vera komist í snertingu við hann, svo úrkynjaður er hann og svo svæsin er staðan orðin að hann er að mestu á fullu fæði lyfja.

Og sjálfur jarðvegurinn er eftir því. Í Evrópusambandinu er þessum geira mest stjórnað af hálf- og heilsteyptum glæpagengjum og lifir Mafían hátt í reglugerðar- og spillingarveldi embættismannanna sambandsins sem orðið er umboðslaust skrímsli sem bæði Adolf Hitler og Jósef Stalín (tveir sósíalistar) hefðu orðið ákaflega stoltir af.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.8.2017 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband