Leita í fréttum mbl.is

Ísland fékk að vera nasisti í einn dag og störu-keppnin á Kóreuskaga

Öruggasta og verndaðasta kynslóð allra tíma mannkynssögunnar er nú daglega á barmi taugaáfalls. Hvers vegna? Jú vegna þess að hún er komin með síma. Frá og með nú bíð ég eftir bókabrennum hennar

****

Og sei sei, við fegnum loksins að vera nasistaríki í einn dag, þ.e. í símasamfélaginu sem ritstýrir stórum hluta fjölmiðla í dag. Það er eins gott að þessi kyn-slóð náði ekki að upplifa árið 1983, því þá væri hún öll á Kleppi, með eða án síma

****

Störu-keppnin á Kóreuskaga heldur áfram. Fimm aðilar standa og stara. Enginn þeirra vill vera sá sem blikkar fyrst

1) Norður-Kórea ætlar sér að verða kjarnorkuvopnaveldi. Takist það getur alblóðug terror-stjórn þess ríkis haldið áfram að lifa lífinu á meðan þjóðin deyr ef til vill hraðar en hún nær að geta af sér ný afkvæmi inn í þrælabúðir ríkisins. Takist Norðrinu þetta getur terror-stjórn landsins lifað lífinu hátt og flutt út og selt kjarnorkuvopn til viðskiptavina sinna, sem eru allar verstu einingar jarðarinnar til samans

2) Suður-Kórea vill ekki stríð því þá þarf hún að færa fórnir, segja stjórnvöld. Ég myndi íhuga að flytja íbúa landsins úr skotmáli hefðbundinna vopna. Suðrið hefur sent "alþjóðasamfélaginu" (ekki til) óskalistann sinn: að gera helst ekkert nema stinga höfðinu í sandinn

3) Kína vill ekkert nema óbreytt ástand og sundraða Kóreu áfram. Sundrung í túnfæti þess er hið besta hey Kína í harðindum. Enginn veit í raun hvort að Kína stjórnar Norður-Kóreu eða ekki. Það er ekki vitað og verður varla hægt að vita á næstunni, nema..

4) Japan starir inn í ógnina sem því nú þegar stafar af Norðrinu. Verði Norðrið kjarnorkuvopnaveldi mun Japan svo sannarlega koma sér upp sínu eigin kjarnorkuvopnaveldi. Og það verður engin smásmíði, því það þarf að geta þurrkað út bæði Norðrið og einnig Kína, að minnsta kosti valdamiðju þess

5) Bandaríkin geta ekki þolað að villimannaríkið Norður-Kórea ógni þéttbýlisstöðum í meginlandi Bandaríkjanna, Guam og Hawaii með kjarnorkuvopnum. Bandaríkin hafa einnig gengist í ábyrgð fyrir þjóðaröryggi Suður-Kóreu og Japans og staðsett þar mikinn fjölda hermanna og vopna. Þau vilja lausn sem dugar. Og þeim dugar ekkert annað en fall alls þess sem Norður-Kórea stendur fyrir. Að bakka með staðbundnar hótanir á til dæmis Guam, dugar Bandaríkjunum ekki. Þeir þurfa framtíðarlausn

Það fer ekki hátt í fréttum frá Rússlandi að eldflaugar Norður-Kóreu ná líka til Moskvu. Hvernig má það vera

Auðvitað kemur þriðja heimsstyrjöldin. Auðvitað kemur hún eins og árið 2008 kom. Þá spurði Elísabet Englandsdrottning sérfræðingaveldi Bretlands að því af hverju það sá árið 2008 ekki koma. Það tók sérfræðingaveldið með alla símana sex mánuði að svara henni. Svarið var stutt og það var þetta: Vegna skorts á ímyndunarafli

Engin öld í sögu mannkyns hefur liðið á kerfislægrar stórstyrjaldar, sem nýlega hefur verið gefið heitið "heimsstyrjöld". Og er þá átt við fjögur horn veraldar, sem er breytileg stærð í sögunni. Þessi styrjöld kemur, það er óumdeilanlegt. Munurinn á kerfislægri stórstyrjöld og venjulegri styrjöld er sá að þeim hafa mörg ríki jarðar alls ekki efni á að tapa. Þær eru háðar til sigurs á meðan hinar eru þess eðlis að lítið gerist ef maður tapar þeim, eins og til dæmis í Víetnam

Það sem gildir er því þetta; að geta háð kerfislæga stórstyrjöld lengur en allir aðrir, til dæmis í 50 ár, og að sigra. Besta vörnin í svona stórstyrjöldum eru vopn til að verjast með

Fyrri færsla

Guam-hótun Norður-Kóreu stendur óhögguð enn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Nokkuð gott og mörg mál tekin fyrir. Versti óvinur okkar eru Anarkistarnir og glópalistar en þeir eru hugmyndafræðilega óvinir alls mannkynsins. Pútinn veit þetta og Trump og May eru að losa sig undan ofuröflunum.

Við sjáum bara hve hægt er að ná til fólks með glóbal warmig sem er 100% huglægt og hvergi hægt að koma auga á meitt nýtt í þeim efnum þ.e. það sem er ekki í bæði skráðri sögu síðustu 1000 ár og jökul-borkjarna fræði sem sínir að ekkert óvenjulegt er að ske.

Heimurinn er óttaslegin yfir þessu og á meðan munu glóbal sinnarnir koma á heimstyrjöld.  

Valdimar Samúelsson, 17.8.2017 kl. 10:39

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ljósið í myrkrinu er að verulegur uppgangur er hjá sálfræðingum í BNA eftir kjör Trump. Jafnvel svo að þeir vinna nú yfirvinnu til að Anna fólki með President Trump Derangement Syndrome.

Ragnhildur Kolka, 17.8.2017 kl. 10:47

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ragnhildur Góður þessi. Munurin þarna er að bandaríkin hafa efni á að tala við sálfræðing en það er ekki svo á Íslandi. Hvaða syndrum skildu Íslendingar gangameð það skildi þó ekki vera Trump syndrum.

Valdimar Samúelsson, 17.8.2017 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband