Leita í fréttum mbl.is

Frakkland að falla?

Það er átakanlegt að verða vitni að því að fyrsta verk nýkjörins forseta Frakklands skuli þurfa að vera það hlýðnast niðurskurðarstefnu Þýskalands. Og enn meira niðurlægjandi er það fyrir Frakka, að þurfa að skera niður það sem vernda á frönsku þjóðina gegn einmitt þeim sem fyrirskipar niðurskurðinn - og sem kom honum til leiðar með því að grafa undan efnahag Frakklands

Þýskaland hristir jólatré sitt Frakkland, og af því fellur strax yfirmaður franska hersins. Þetta er hreint með eindæmum. Hvenær skyldi hristingnum ljúka og ljósin slokkna á evruseríunni. Það verður fróðlegt að fylgjast með sólarlagsmálum Evrópu á næstu árum. Þegar myrkraverkin koma og tala

Svona er að vera nágranni svarthols. Þá þarf maður eitthvað til að halda sér í. En hvað?

Hinn nýkjörni franski forseti hefur hér með tryggt sér franska herinn á móti sér næstu 5 árin. Hver skyldi nú hlaupa til og gerast bandamaður forsetans gegn hernum. Franska þjóðin? Varla

Fyrri færsla

Visegrad-löndin í ESB kvarta yfir lélegum ESB-matvælum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar - sem jafnan, sem og aðrir gestir, þínir !

Þörf: beinskeytt sem og alvarlega ígrundunarverð ábending, af þinni hálfu Gunnar, sem vænta mátti.

Visegrad löndin - verða meðal helztu varnarvirkja Vestrænnar siðmenningar, þegar fram á öldina líður.

Með: beztu kveðjum af Suðurlandi - sem oftar /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.7.2017 kl. 22:42

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér að venju hressilegt innlit og skrif Óskar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.7.2017 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband