Leita í fréttum mbl.is

Algert vænghrun vinstrisins - og forsetakosningar í Frakklandi

Frakkinn Maurice Thorez á sovésku frímerki

Mynd: Franski Stalínistinn Maurice Thorez, skólaforfaðir Emmanuel Macrons, var heiðraður sem andlit á sovésku frímerki. Hann kom sovéska Ecole Nationale d’Administration skólanum á laggirnar í Frakklandi eftir að hafða dvalið í Moskvu Sovétríkjanna árin sem fósturjörð hans Frakkland var hernumin, eyðilögð og plundruð af nasistum í of ákafri samvinnu við suma í París

****

Teknókratinn Emmanuel Macron gat ekki boðið sig fram til forseta Frakklands nema með því að dulbúa sig sem verandi "miðjumann" andspænis kjósendum. Staðan á vinstri væng stjórnmála Vesturlanda er orðin sú að sá vængur hangir ekki lengur uppi, heldur er hann dottinn af flugvélinni, sem er þjóðin

Það kom nefnilega í ljós þegar á þann væng reyndi, á flóknu og erfiðu flugi, að hann gat ekki gert upp við sig hvort að hann væri fastur við þjóðina sem pólitíska grunneiningu veraldar, eða hins vegar hvort að hann væri enn áfastur altarisstyttunni af Karli Marx, sem er guðfaðir alþjóðaisma vinstri vængsins. Vinstrið er því hrunið. Algerlega. Það er dottið af þjóðinni og þjóðarlíkamanum vegna þess að á altari vinstrimanna stendur ennþá styttan af Karl Marx - böðuð í reykelsi Kants

Á altari hægri vængsins stendur hins vegar þjóðin. Það gerir hún vegna þess að þjóðin er grunnpólitísk eining í veraldarhafinu. Og í þjóðinni eru einstaklingar. Hægri menn vita að þeir sem einstaklingar geta einungis verið frjálsir svo lengi sem þjóðin heldur áfram að vera þjóð. Einstaklingar eru og verða aldrei grunnpólitísk eining í veraldarhafinu. Aðeins þjóðin getur verið grunnpólitísk eining í því ógnar hafi. Þetta stendur í Gamla testamentinu. Og á því eru Vesturlönd byggð. Þess vegna kemur það fyrst tveggja í hinum Heilögu ritningum Vesturlanda. Á undan hinu Nýja

Í Bretlandi rís nú loksins hið langþráða "Nýja Ísrael" þjóðarinnar, sem John Lyly benti henni á er Biblían komst á tungumál fólksins *

Þegar vinstri vængurinn dettur af þjóðinni, þá verður hann að imperíalisma í formi Sovétríkis, Evrópusambands, Rómarríkis og Babýloníuveldis. Imperíalisminn og sú afbökun á frelsi einstaklingsins, festir sig síðan á heimsveldið, sem sá ismi sjálfkrafa smíðar til að líkja eftir þjóðinni. Og hann heldur að hann geti flogið. Það getur hann ekki, nema með því að drepa fæðingarfrjálsa einstaklingana um borð með ófrelsi og kúgun. Með því að gera þá að tölfræði. Svo hrapar allt draslið eins og það hefur árþúsundum saman ávallt gert. En fyrst kálar það milljónum manna. Milljónum og aftur milljónum manna

Þannig er nú það. Og þess vegna sagði Emmanuel Marcon í gærkveldi að Marine Le Pen boðaði í reynd borgarastyrjöld, kæmist þjóðin hennar loksins aftur til raunverulegra útslitavalda í Frakklandi. Hann sagði þetta, svo sérfróð vinstri jakkaföt sem hann er, án þess að gera sér grein fyrir því að einmitt hann, já hann, er hinn nýi aðall sem hangir orðið hæst við hún forsetahallar Élysée. Hann heimtar vernd fyrir sig og sinn nýja aðal. En fær hann vernd?

Marine Le Pen sagði þetta við kjósendur í gærkvöldi: "alveg sama hvernig kosningarnar fara, Frakklandi verður stjórnað af konu; annað hvort af mér, eða frú Merkel kanslara Þýskalands"

Franska byltignin hófst á því að skilgreina frönsku þjóðina. Skilgreina hverjir áttu að fá að vera í henni og hverjir ekki. Aðallinn átti ekki að vera með í henni, það var alveg klárt. Hann varð því ekki hluti af frönsku þjóðinni. Tikk takk, tikk takk. Nema hvað. Aðall er samt orðinn hluti af þjóðinni á ný. Hann heitir ESB og sjálfur ESB-Marx stendur nú á hæst á tilbeiðslualtari Macrons. Og enn er þessi Karl baðaður í reykelsi Kants. Þegar þjóðin loks fattar kjarna málsins, og ef engar horfur eru á að réttur búnaður sé á altarinu, þá verður ekki bara algert vinstra vængfall, því það er þegar orðið, heldur einmitt annað hvort borgarastyrjöld eða ný bylting

Þannig er nú það. Einu sinni klæddust vinstrimenn lopapeysum til að dulbúast í þjóðinni, samkvæmt tilsendri forskrift frá miðstjórn Sovétríkjanna. Í dag hanga þeir á þjóð okkar sem háskólamenntaður lúsafaraldur sérfræðinga og embættismanna. Þjóðin er að sligast undan þeim og þeir vita það vel. Enda er tilgangur þeirra sá hinn sami og síðast: að stúta þjóðinni. Meðvitað sem ómeðvitað

Geng ég hins vegar enn í ekta heimaprjónaðri lopapeysu og ullarsokkum til öryggis. Ullina fæ ég hjá Bjarti í Sumarhúsum, því með ískrandi íhaldssemi Ritninganna er hann kominn með 200 sjómílur, hitaveitur og stórar bræðslur málma. Hann er salt þjóðarinnar og fjárhirðir. Hann er fjárhirðarnir Abraham, Jakob, Móses og Davíð. Maður sem heldur hjörð sinni saman, en sundrar henni ekki

Í gærkveldi, fyrir franskar kappræður, suðum við því kjötbollur úr sauðahakki sveitar, með hvítkáli frá austan fjalls, kartöflum úr eigin garði, lauk í þjóðarsmjöri og rabarbarasultu úr sama garði. Ef á þarf að halda, verður þetta ískrandi étið til enda tímans, því hjörðinni er haldið saman

Stjórnmálamenn geta einungis verið stjórnmálamenn ef þeir vita hverjum þeir eru ábyrgir gagnvart. Forsætisráðherra Íslands og ríkisstjórn hans er ábyrg gagnvart íslensku þjóðinni, en ekki Þjóðverjum né neinum öðrum. Bara hann og stjórn hans er ábyrg gagnvart hinni íslensku þjóð og enginn annar . . meira hér: Staða mála í Evrópu og víðar: núna og næstu áratugi

****

* Sjá Yoram Hazony “On the National State Part 1: Empire and Anarchy". Lesið einnig Jerúsalembréfin hans

Fyrri færsla

Staða mála í Evrópu og víðar: núna og næstu áratugi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Sem Hriflungur að ætt Bjarts frænda míns frá Sumarhúsum, þá get ég ekki annað en peistað þessi orð þín til að ítreka hvað mér þykir þau flott, svo mælskur óður til okkar hinna sjálfstæðu manna.

"Geng ég því enn í heimaprjónaðri lopapeysu og ullarsokkum til öryggis. Ullina fæ ég hjá Bjarti í Sumarhúsum, því með ískrandi íhaldssemi Ritninganna er hann er kominn með 200 sjómílur, hitaveitur og stórar bræðslur málma. Hann er salt þjóðarinnar og fjárhirðir. Hann er Abraham, Jakob, Móses og Davíð. Maður sem heldur hjörð sinni saman, en sundrar henni ekki".

Ég veit reyndar ekki hvort Bjartur frændi hefði kallað Rauðsmýrarmaddömuna vinstrisinna, en á meðan þessar blóðsugur auðsins eru skammaðar, þá skiptir ekki máli hvaða orð menn nota.  Fer sjálfsagt eftir tíðarandanum og hver heldur á penna.

Það er mikil mælska í þessari grein þinni Gunnar, og mikil róttækni.  Með þessu áframhaldi styttist í að þú horfist í augun á sannleikanum öllum, við erum í ESB, við erum ekki sjálfstæði þjóð.  Við eigum bara eftir að taka upp evruna.

Svisslendingar eru hins vegar sjálfstæðir, og þeim gengur vel.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.5.2017 kl. 09:04

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Ómar fyrir góðar kveðjur og innlit.

Ég veit að þetta er dálítið erfitt fyrir þig. Þú sérð skímu, en samt ekki ljósið, eins og svo margir aðrir vænglausir menn vinstrisins.

Taktu Karlinn hann Marx og hentu honum út, alveg. Losaðu þig alveg við hann. Hann drap 200 milljón manns. Og hættu þessu voli á þessum arfabekk Sigmundar Freud, því sá maður drap 100 milljón klukkustundir.

Draga gluggatjöldin frá, fara í ullarsokkana og kjósa rétt næst. Þú kannt ennþá að kjósa, er það ekki Ómar? Svo hendum við EES út saman.

Góðar og bestar kveðjur til þín fyrir austan

Gunnar Rögnvaldsson, 4.5.2017 kl. 10:12

3 Smámynd: Ómar Geirsson

He, he, margt má nú um ættföður okkar Hriflunga segja, en ekki að hann hafi verið kommúnisti, en hann las Marx og Lenín, því hann taldi það sögulega skyldu sína að sjá til þess að verklýðurinn fengi sinn sósíaldemókrataflokk.  Hann fattaði nefnilega að ekki gátu allir öreigar orðið sjálfstæðir menn í sveitum landsins.

Hvað mig varðar Gunnar, að þá náði ég vissulega í afturendann á því tímabili að ungt fólk gekk í lopapeysum, og var í leshringjum.  En það var eldra en ég og róttækni var á fallandi fæti þegar ég kem til vits, hélst líklega í hendur á diskóinu.

Í mínum heimabæ var uppreisnin ekki fólgin í að vera sósíalisti, því kommarnir stjórnuðu bænum, og annað hvort varst þú til hægri, eða vinstri, og þá maóisti, trotskíisti, eða Fylkingarmaður eins og Már og Ari jarðfræðingur, þeir voru svona Albaníu aðdáendur, til að sýna hvað þeir sjálfstæðir og smart.

En ég greyið fékk eitt sinn í bakið, 15 ára gamall og var frá vinnu í viku það sumarið.  Og þar sem ég hafði lesið allt, líka sögur herlæknisins, sumarið áður, þegar ég glímdi við sama mein, þá datt ég óvart niður á bók sem heitir; Ég kaus frelsið eftir hann Viktor nokkurn. Og þar með gat ég ekki orðið kommi, sem var vel, því ættarfylgja okkar í frændgarði Bjarts er að eiga erfitt með að vera sammála síðasta ræðumanni.

En eins og þú ert búinn að sýna framá í mjög mörgum góðum pistlum undanfarið Gunnar, að þá er hægt að vera á móti hinu sálarlausu auðvaldi, án þess að vera kommi. 

Enda má lesa um slíka andstöðu í mun eldri ritum en skráð voru af þýsku heimspekingum 19. aldar, til dæmis voru nokkur skráð í Babýlon forðum daga, og við getum lesið í dag í safnritinu sem kennt er við hið  Gamla testament.

Marx fann ekki upp hjólið, en hann fann uppá öngstræti sem taldi sig svo gáfað að það hefði rétt til að drepa annað fólk, í þágu velferðar þess.

En það er önnur saga, Bjartur frændi var ekki mikið fyrir hugmyndafræði, hann vildi bara fá að vera í friði.

Til að vera hann sjálfur, og hafa í sig og á. 

Þess vegna þótti mér svo vænt um að lesa þennan óð þinn til frænda.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.5.2017 kl. 12:39

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þessi pistill er snilld. Takk fyrir mig.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 5.5.2017 kl. 03:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband