Leita í fréttum mbl.is

Mjög slæmur dagur fyrir Rússland í Sýrlandi

Loftárás bandaríska sjóhersins á herstöð sýrlenska flughersins var óvænt. Hún var gerð á þá herstöð sem sendi efnavopn á almenna borgara. Gera má ráð fyrir að herstöðin sé nú ónýt

Bashar al-Assad forseti Sýrlands er viðskiptavinur Rússlands. Árás hans með efnavopnum á almenna borgara er gagnslaus, frá hernaðarlegu sjónarmiði séð. Efnavopn eru lélegustu vopn sem til eru og geta snúist eins og hendi sé veifað í hönum þeirra sem nota þau

Bashar al-Assad var farinn að reikna með því sem Barack Obama sýndi af sér. Að engar rauðar línur dregnar í sand yrði staðið við. Sýrlandsforsetinn var því hér að færa sig upp á skafið. Hann setti með þessu Rússland í afar slæma klemmu. Hann sýndi heiminum að Rússland hefur ekki lengur stjórn á kúnna sínum. Honum sjálfum

Þessi forseti Sýrlands var í mörg ár viðskiptavinur Norður-Kóreu og hafði með þeim í fimm ár byggt upp kjarnorkuvopnastöð í austanverðu Sýrlandi sem flugher Ísraels lagði skilvirkt í rúst með Orchard-aðgerðinni í september 2007

Tilgangur Assads núna var að reyna að hræða þá íbúa landsins sem setja sig þvers á móti honum með því að kasta á nokkra þeirra efnavopnum. Þessi efnavopnaárás var því fyrst og fremst hugsuð sem hryðjuverk til að valda ótta og skelfingu meðal borgara landsins. Hún á að skelfa og hræða þá íbúa sem Assad veit að hvort sem er aldrei munu dá hann né hylla, hvernig sem allt fer

Flestir bjuggust við að Donald J. Trump myndi ekki bregðast við, þar sem hann hafði í kosningabaráttu sinni sett hagsmuni Bandaríkjanna sjálfra efst á sinn lista, ásamt uppbyggingar- og hvíldarinnlögn fyrir bandaríska herinn, sem háð hefur lengstu baráttu sína undanfarin 15 ár. Og engar línur hafði hann sjálfur dregið í þennan sand

Þarna var þó ekki um neitt annað að velja fyrir Donald J. Trump. Hann varð að gera það sem hann á staðnum gat gert: slá til strax með því sem hendi var næst án þess að um neinar skuldbindingar inn í framtíðina væri að ræða. Gerðu þetta ekki aftur, eru skilaboðin. En því sem hendi lá næst hafði Barack Obama að mestu komið fyrir kattarnef og því, í þessu tilfelli, fækkað möguleikum hins nýja forseta niður í aðeins einn, því aðeins þúsund bandarískir hermen eru á jörðu niðri í Sýrlandi

Þegar litið er upp að verki loknu, má segja að tilviljun hafi þarna gert bandaríska forsetanum vissan greiða. Á öxlum hans hvílir frest á frest uppsöfnuð Norður-Kórea þyngra en á nokkrum öðrum forseta Bandaríkjanna. Það skilgetna skrímsli kommúnista Sovétríkjanna er nú óðum að nálgast tvennt: að geta hæft stórborgir á vesturströnd Bandaríkjanna með kjarnorkuvopnum og að sanna sig sem verandi þeir brjálæðingar sem gera myndu slíkt sér til skemmtunar. Efinn um að staðan í Norður-Kóreu hafi náð einmitt þessu stigi, nagar nú forseta Bandaríkjanna að innan. Hvað á hann að gera?

Donald J. Trump sýndi hér að hann er fær um að taka ákvarðanir. Þungi ákvörðunarinnar féll beint á samningaborð hans og forseta Kína, sem svitnaði þegar borðið fyrir framan hann svignaði undan þunga ofureflis Bandaríkjanna. Sameinuð Kórea undir vernd Bandaríkjanna á tröppum kínverska forsetans myndi flá af honum bæði andlit og orður

Eftir situr Rússland og nagar sig í handarbök vegna viðskiptavinar sem fór illilega yfir á reikningi þess. Sá yfirdráttur mun ekki hjálpa Vladimír Pútín á versnandi heimavelli

Á meðan þetta er að gerast í túnfæti Evrópu, býr Evrópusambandið um sig í líkkistunni í gorkúlus píramída sambandsins í Brussel. En borgarastyrjöldin í Sýrlandi mun þó eftir sem áður halda áfram og ef til vill breiða á næstu árum úr sér til hins borgaralega eldfima ástands sem tilvist Evrópusambandsins hefur svo víða skapað

Fyrri færsla

100 ár síðan Bandaríkin lýstu stríði á hendur Þýska heimsveldinu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

1. Efnavopn = "red herring"

Minnir þetta ekkert á "Colin Powell" og WMD í Írak?

Til hvers, á Assad að skjóta sjálfan sig í fótinn þegar hann er að sigra stríðið?

Ef þú hefur "eitthvert" vit í hausnum, ættir þú að sjá þetta strax.

2. Slæmur dagur fyrir Rússa.

Nú ertu alveg úti að aka ... og sérð ekki skóginn fyrir trjánum.

Eina leiðin fyrir Ísrael að geta verið til í framtíðinni, er að "leggja mið austurlönd í rúst".  Eina leiðin til að leggja þau í rúst, er með hjálp ISIS, Al Qaida og slíkum aðilum. Og eini maðurinn sem "stóð" í vegi fyrir því, var Osama bin Ladin ... trúarleiðtoginn. Sem bandaríkjamenn myrtu, og fleigðu líkinu í sjóinn ... svo að hann gæti aldrei komið fram og sagt "ég er saklaus".

Hvað eru Rússar að gera í mið austurlöndum? Setja sig á kannt við Bandaríkjamenn?

Nei ... Pútin sagði skírt og skorinort, hann er ekki þarna til að hjálpa heiminum, eða mannkyninu.

Hvað sögðu ráðamenn í Bandaríkjunum ... að hryðjuverkum myndi auka og "rússar" myndu verða skotmark. Voru þeir að "spá", eða voru þeir að hóta?

Ætli "hóta", sé ekki réttara orðið hér.

Rússar eru þarna, EINUNGIS til að þjálfa her sin, fullkomna vopnin sín, athuga stöðu, getu og kunnáttu.  Þeirra staða er, ef þeir "geta" hjálpað mið-austurlöndum, þá er það bara plús.  Ef ekki ... þá fara þeir.

Þetta veit kaninn ... Rússinn er að undirbúa sig undir innrás bandaríkjanna .... ekki að bjarga heiminum.

Ef það fer að hitna í kolunum, munu Rússar "hverfa" ... þeir hafa engan ásettning í að vera í stríði þarna. Sem hver og einn, sem ekki er "rússa hatari" og bara illa gefinn, ætti að geta séð.  Því Rússar beita ekki vopnum sínum ... heldur nota þeir "electronic surveillance".  Þeir reyna, eftir bestu getu ... að sýna "hvað raunverulega" gerðist ... en tala fyrir "daufum eyrum".

Vandamálið með Rússa er, að þeir eru ekki tilbúnir í stríð ... þeir beita sér ekki.  Þessi "eiginleiki" þeirra, er bæði "jákvæður" og "neikvæður".

Hann er líka "neikvæður" fyrir okkur, því Bandaríki Norður-Ameríku, eru SÖKUDÓLGARNIR, þegar kemur að hryðjuverkum sem Evrópa hefur orðið fyrir.

Það eru Bandaríkin, sem standa að baki þeirra ... sem standa að baki þeirra, sem standa að hryðjuverkunum hér.

Og Trump, er bara "refur í gæruskynni".  Af gerðum þeirra, skalltu þekkja þá ... ekki orðum þeirra, eða annarra.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 8.4.2017 kl. 07:15

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne

Assad-stýrið er enn við viss völd í Sýrlandi í dag vegna aðkomu Rússa að átökunum. Eina ástæða Rússa fyrir þátttöku í uppihaldi Assads var sýndarmennska, sem sýna átti heiminum og sérstaklega fólkinu heima fyrir í Rússlandi hvernig standa ætti að málum, miðað við þá mynd af óreiðu sem framreidd hafði verið af aðkomu Bandaríkjanna. Þetta átti að sýna Rússland sem þá sem kunna að taka á svona málum af festu og ábyrgð.

En þetta snérist í höndunum á Rússum. Þeir standa nú uppi með þunga hlutdeildar-ábyrgð á efnavopnaárás Assads. Og það sem enn verra er fyrir Rússa, er að stjórn- og getuleysi þeirra í málinu opinberaðist með þessum hætti vanvita kúnnans.

Þetta var séns sem Rússland tók vegna veikrar stöðu heimafyrir. Hann er greinilega ekki að skila þeim árangri.

Rússneskir hermenn í umræddri herstöð fengu aðvörun frá Bandaríkjamönnum svo þeir gætu forðað sér áður en þetta efnavopna-flugbretti Assads var lagt í rúst. Engan Rússa sakaði.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 8.4.2017 kl. 15:46

3 identicon

Ef þu heldur að Assad hafi staðið að árásinni, ertu ekki sérstaklega gáfaður ... eða kanski bara "glópur".  Þetta er sama spil og kaninn spilaði í Írak "red herring".  Til hvers ætti Asssad að nota "shells" núna, en "heimatilbúna canisters" áður.  Segir sig sjálft, að þessar "mortar shells" er eitthvað sem kemur frá Tyrklandi.

Hvað varðar Rússa, er ég sammála ... Þetta er, og hefur alltaf verið vandamál við Rússa. Ef ég væri Putin, væri ég kominn í stríð ... ég myndi nota kjarnorkusprenjgurnar mínar óspart. Ég get ekki tapað ... en Bandaríkjamenn hafa reiknað Putin út alveg hárrétt ... Putin er of varkár.  Annaðhvort fer maður í stríð ... eða ekki.

Á meðan "putin" er við völd ... munu málin ekki verða alvarlegri en "blaðamennska" (sem betur fer).  En hvað með Sergei Pavlov ... og aðra? Sama á við Kínverja ... bæði Kína og Rússland eru svolítið "heimskir".  Ég segi heimskir, en þessi heimska er okkur hér í Evrópu til "hagnaðar".  En, þegar bandaríkin eru búnir að ganga frá Rússlandi ... sem mun leiða til miljóna manna dauða í Evrópu ... munu þeir ganga frá Kína.

Ef "pútin" hefði vit fyrir landi sínu ... færi hann í stríð. Sama á við Kína.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 8.4.2017 kl. 19:25

4 identicon

Síðan vil ég leggja til, að við hér í Evrópu erum svolítið illa gefinn að halda að kaninn sé vinur okkar. Það sem þú segir um ESB er alveg rétt.  Ekki vegna þess að ESB sé slæmt, heldur vegna þess að það tekur allt rangt upp.  Hugsaðu þér Merkel ... hún kemur fram í sjónvarpi og segir "allir velkomnir" ... en á bak við tjöldin borgar hún miljarða evra til Tyrklands, til að þeir "sópi vandamálinu undir mottuna". Skiljanlegt að Erdogan kalli Evrópu fyrir nasista ... þessi tvískinnungsháttur er alveg fyrir neðan allar hellur.  Eða Svíðar, sem ganga um og segjast "aldrei munu ganga að skilmálum hryðjuverkamanna" ... á sama tíma og þeir kenn rússum um allt, og þar með hafa gengið að ÖLLUM SKILMÁLUM HRYÐJUVERKAMANNA.

Þessi "tvískinnungsháttur" er fyrir neðan allar hellur ... og þessar þjóðir, sem einu sinni voru leiðtogar hins siðmentaða heims ... eru lítið annað en mafíu sóðar í dag.

Því miður.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 8.4.2017 kl. 19:33

5 identicon

Síðan, punktinn yfir i-ið.  Þetta gefur Rússum gullið tækifæri til að "koma sér út úr stríðinu".  Bandaríkjamenn gefa þeim tillástæðu "Assad notaði eiturvopn" ... sem er lygi, en samt "tillástæða".  Gefur Rússum "tækifæri" til að komast út ... og skella öllu á Assad.  Ganga í lið með Bandaríkjunum.

Hljómar vel ... við "krossfestum Jesús" ... "myrðum Assad, Saddam og alla fjölskyldu þeirra".  Græðum á tá og fingri ... og "live happily ever after".

"kanski" Pútin bíti á agnið ... allar Evrópu þjóðir hafa gert það, þrátt fyrir fleiri þúsund ára "viðvörun við að krossfesta fólk".

Síðan sitjum við hér, og sjáum hvað gerist ... og ég segi "may you live in interresting times".  Þetta er kínverkst máltæki, sem þýðir að við lifum í tímum "helvítis á jörðu".  Og þetta "helvíti" er Bandaríkin.  En bæði Rússar og Kínverjar vilja "harmony" ...

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 8.4.2017 kl. 19:46

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Wow, þvílíkt hatur hef ég ekki lesið lengi. Það hlýtur að vera erfit að eyða svona miklum tima og kröftum í svonalagað.

Vonandi kemur þú til með að vaxa upp úr þessu herra Hansen og vonandi verð þú tíma þínum í eitthvað betra og þarfara þegar þú verður stór.

kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 9.4.2017 kl. 00:13

7 identicon

Wow video firir hann Johann made in America

https://www.youtube.com/watch?v=Cr7ePrCAqzo

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 9.4.2017 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband