Leita í fréttum mbl.is

Evrópusambandið verður að tryggja að Bretland skaddist

Evrópusambandið verður að tryggja að Bretland sé verr sett þegar það yfirgefur sambandið, allt annað er uppgjafaryfirlýsing að hálfu Evrópusambandsins

"EU må sikre, at Storbritannien er i en dårligere situation, når landet forlader unionen, ellers ville det være en falliterklæring, siger Østrigs kansler"

Þetta sagði kanslari Austurríkis, Christian Kern, við blaðamenn í Brussel í gær. Meðlimir í klúbb eiga að hafa það betra en þeir sem eru ekki meðlimir í honum. Bretland verður að gera sér grein fyrir því að ekkert annað en þetta getur komið út úr brottför landsins úr Evrópusambandinu, sagði kanslarinn

Þá vitum við það. Þá vitum við hver hinn sameiginlegi nefnari er sem skilgreinir Evrópusambandið. Sá lægsti. Þeir sem yfirgefa fangabúðirnar lifandi, þá verður að limlesta. ESB er sem sagt gúlag

Krækjur: Berlingske - Independent - Bloomberg, þar má einnig horfa á Dombrovskis trúð ESB-gúlagsins blaðra á gúlögsku. Að þetta ESB stóð skuli líðast enn, er til marks um það sem í vændum er fyrir Evrópu. Óveðursskýin hrannast upp yfir meginlandi álfunnar

- Berlingske 14. febrúar 2017 -

Østrigs kansler: EU må sikre, at Storbritannien bliver dårligere stillet af Brexit:
EU må sikre, at Storbritannien er i en dårligere situation, når landet forlader unionen, ellers ville det være en "falliterklæring", siger Østrigs kansler. Medlemmer af en klub skal have bedre vilkår end dem, der ikke er medlem af klubben - vores britiske venner skal være opmærksomme på, at der ikke kan komme andet udfald af disse forhandlinger, sagde Christian Kern til reportere i Bruxelles mandag. "Alt andet ville være en falliterklæring af Europa."

Fyrri færsla

Eitt-Kína - eða hvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er ekki merkilegur málstaðurinn sem kallar á slíkar yfirlýsingar. 

Ragnhildur Kolka, 14.2.2017 kl. 13:23

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

ESB var góð hugmynd sem verzlaunarbandalag, en valdagræðgi Þjóðverja fór að heimta að Þjóðverjar (nota ESB til þess) fengju að ráða innanlandsmálum aðildarþjóðana.

Svo einfallt er það að Þjóðverjar eru að horfa fram á að þeir eru að tapa völdunum sem þeir eru komnir með.

Auf Wiedershen, Auf Wiedershen mein liebling ESB, Auf Wiedershen syngja Þjóðverjar og gráta krókódílstárum

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 14.2.2017 kl. 15:23

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur.

Jáh, þarna rataðist þér rétt orð á munn eins og svo oft áður. Svo mikið er víst.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2017 kl. 15:33

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jóhann.

Mitt álit er að Evrópusambandið sé jafn slæm hugmynd og Þýskaland. Leysa þar bæði upp. Það er ótækt að stofnun Þýskalands krefjist þess að stærstur hluti álfunnar sé stuðari Þýskalands (eins konar pútneskur buffer-zone). Betur hefði heima verið setið. 

Það þarf sennilega að senda Kúrekana (the Cowboys) þarna inn aftur.

Kveðjur Vestur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2017 kl. 15:39

5 identicon

Það eru engin samtök, félög eða klúbbar sem ekki bjóða meðlimum betra en þeim sem utan standa. Þannig að það er sjálfgefið að Bretum og öðrum sem ekki vilja vera meðlimir munu ýmis forréttindi meðlima ekki standa til boða. Samningurinn við Breta verður ekki hvatning til annarra að yfirgefa sambandið. Að einhverjir skuli vera undrandi og hneykslaðir á því er það skrítna í málinu. Að furða sig á því að sambandið skuli gæta hagsmuna sinna félagsmanna umfram aðra er barnalega órökrétt.

Evrópusambandið mun tryggja að Bretland njóti ekki neinna þeirra forréttinda sem þeir njóta nú og verði því verr sett þegar það yfirgefur sambandið, allt annað stríðir gegn hagsmunum meðlima. Við vitum hver hinn sameiginlegi nefnari er sem skilgreinir Evrópusambandið, það starfar fyrir meeðlimi og meðlimir njóta forréttinda. Súrt fyrir hina, en þeirra er valið.

Ufsi (IP-tala skráð) 14.2.2017 kl. 15:59

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ufsi

Ég verð að viðurkenna að röksemdafærsla þín hér að ofan er ný fyrir mér. En eftir á að hyggja þá á hún sennilega vel við þennan svo kallaða félagsskap eða klúbb sem er með þjóðsöng úr rúgbrauði, fána úr súrkáli, forseta úr plasti, þing sem er gúmmístimpill, lög og reglur sem eru sovésk, mynt sem er hryðjuverk, seðlabanka sem er í vasa nurlara og hefur aðdáendur eins og þig.

Og fyrir aðild að þessum félagsskap borgaði Bretland nettógreiðslu upp á 15 miljarða punda á síðasta ári.

Hér verð ég að minna lesendur á að flestir stofnfélagar í Ku Klux Klan klúbbnum voru demókratar. Og að Popúlistaflokkurinn rann saman við hinn sama demókrataflokk árið 1896. Þetta kanna að hljóma ekki svo vel í dag. 

En ég verð þó samtímis að minna lesendur á að aðild að ítölsku mafíunni sem blómstrar sem aldrei fyrr í Evrópu, kostar ekkert. En að úrsögn úr henni ku kosta ögninni meira.

Merkilegir tímar sem við lifum á.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2017 kl. 16:21

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Alveg rétt hjá þér Gunnar að benda á að KKK er angi af flokki demókrata. En ég á erfit með að skilja hvað það er betra sem að KKK klúbbur demókrataflokksins er að bjóða upp á.

ESB eða KKK hver er munurinn?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 14.2.2017 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband