Leita í fréttum mbl.is

Danmörk: "forðum okkur út úr Evrópusambandinu"

Lad os komme ud af EU

***

Danir naga sig þessa dagana, sem alla aðra daga, að innan í til dæmis blaðagreinum yfir því að hafa gengið í Evrópusambandið. Þannig er mál með vexti, segja þeir, að 8,5 milljón manna Sviss er hvorki í ESB né EES og útflutningur þess er 4930 milljarðar króna á ári. Á meðan verða 5,7 milljón Danir í ESB að láta sér nægja 1600 milljarða króna útflutning á ári. Danir geta því flutt helmingi minna út en hver Svisslendingur, segir í blaðagrein hins víðlesna Extrablaðs

Þetta er svona vegna þess að fullvalda Sviss getur sjálft gert sína viðskiptasamninga við önnur lönd. Það getur Danmörk ekki gert, því það er ekki lengur fullvalda ríki. Fullveldi þess var varpað fyrir róða niður í Evrópusambandið í Brussel, sem þar að auki, er orðið versta efnahagssvæði veraldar undir ofstjórn ókjörinna embættismanna. Komum okkur út úr Evrópusambandinu, segir því í fyrirsögn greinarinnar

Sé lesið lengra niður síðuna, þá birtast athugasemdir lesanda, þar á meðal þessar:

Michael: "Stjórnmálamenn hafa afskræmt það já sem við sögðum 1972. ESB er orðið að ófreskju"

Carlo: "Hve heimsk við erum að hafa leyft Evrópusambandinu að ákveða hvað það er sem við sjálf höfum leyfi til að ákveða fyrir okkur"

Kim: "Já við borgum 238 milljarða króna á ári fyrir að fá að vera í klúbbi sem notar þá í 850 milljarða króna spillingu á ári"

John: "Já við kusum á sínum tíma um að okkur líkaði kirsuberið á toppi dulbúinnar tertu sem undir kreminu reyndist vera alsgnægðarhorn fullt af skít (lort)"

Kurt: "Sjáið bara hvernig Íslandi, Noregi og Sviss vegnar. Auðvitað getum við klárað okkur sjálf án ESB, því þá gætum við gert okkar eingin viðskiptasamninga við önnur lönd, losnað við atvinnuleysið og fengið sjálfsákvörðunarrétt okkar til baka. Komum okkur út úr þessu heimsveldi spillingar"

Rune svarar Kurt: "Þú ert að líkja Danmörku við Noreg og Sviss. Sá samanburður er ástæðan fyrir því að hlegið er að Danmörku um allan heim. Danmörk er getulaust og við Danir erum og kunnum ekkert!"

Grein Hjörleifs Guttormssonar í Morgunblaðinu í dag ættu allir Íslendingar að lesa. Hann skóflar ESB-Vinstri grænum í ruslatunnuna sem flokkurinn hefur gert að lögheimili sínu og pólitíska skúffufélagi. Heimilisfang flokksins á kjördag er því það sama og síðast: Svik og Prettir ehf. Þar í skúffu flokksins borar geislavirk ESB-stefnan flokkinn út að innan. Helmingunartími flokksins er því max 4 ár

Hattur ofan, staðfastur Hjörleifur Guttormsson

Fyrri færsla

Nakin staðreynd um "ónýta Ísland" - "landsflóttinn" (lágkúra ESB-feluflokksins)

Tengt

FT: Erlendir vogunarsjóðir búast við betri tíð með nýrri (vinstri) ríkisstjórn (hrægammasjóðir)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Á næst síðasta ári mínu í Danmörku, því tuttugasta og fjórða af tuttugu og sex, var íslenska bankakerfið rétt í þessu hrunið, kosningasvikarar VG nýkomnir í ESB-stólana og hin vararauða skipamálning Samfylkingarofríkisins byrjuð að herja á Íslendinga í djúpum sárum. Kosningasvikin ESB-umsókn komin í vasa smámennis mosaskeggs, og send út með yfirdrætti á kostnað þjóðarinnar. Við hjónin sátum í kvöldverðaboði dansks vinapars, ektamanns húsfrúar sem áratugum saman starfað hafði sem virtur fræðingur á sínu sviði, og sem við höfðum það ávallt gott saman með. En þá barst talið að Íslandi, bankahruninu og umsókninni inn í ESB. "Fyrst þið ætlið að vera með", sagði hann, "þá verðið þið að kyngja öllum pakkanum". En við fórum ekki svona að þessu eins og þið, við spurðum þjóðina fyrst, gamla umboðið var útrunnið.

Ég sagði honum að við ætluðum ekki að kyngja neinum pakka og myndum aldrei ganga í ESB. Við værum sjálfstæð fullvalda þjóð og þyrftum ekki hækjur og handjárn eins og þið. Þjóðin vildi það ekki og myndi aldrei samþykkja það. Þá færðist dökkur djúpur roði yfir andlit fræðings og mér var tilkynnt að við gætum ekki staðið á eigin fótum. Þó svo hann sjálfur hataði Evrópusambandið heitt og innilega þá sveið afstaða mín svo djúpt, að við hittumst aldrei aftur. Það var lokað á okkur. "Ég er fyllibytta og drekk af því að mamma mín er vond", það var það sem hann sagði. "Af hverju getur þú ekki verið eins. Drukkið, hnignað og limlest þig eins og ég. Fórnað landi þínu eins og ég. Þykist þú og land þitt vera hafin yfir þessi slæmu örlög? Þykist þú vera betri en við".

Þetta var leiðinlegt en því miður endalok vináttu, ekki af minni hálfu, en þarna var mér svo að segja hent út. Þetta var eins og næturfundur í Brussel. Þeir eru ekki vinarfundir, heldur hrein og skær kúgun.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2016 kl. 09:29

2 identicon

Er það ekki makalaust og grátbroslegt, að á sama tíma og Bretar eru að fara út og fleiri þjóðir hugsa sér til hreyfings í þeim efnum og flýja brennandi kofaskrifli ESB, þá sé til fjöldi fólks hér á landi, sem heimta nánast að fá að aka með okkur beint inn í eldhafið? Þessi ESB-þráhyggja hér á landi er alveg með ólíkindum, finnst mér. Ég held ég segi eins og Jón Bjarnason, formaður Heimssýnar, sagði við mig einu sinni, að þessi ESB-þvæla fari að minna á Fróðárundrin. Hún sprettur upp á ólíklegustu stöðum. Við skulum nú vona, að ríkisstjórnarflokkarnir beri gæfu til að fá það mikið út úr kosningunum sjálfum, þrátt fyrir slakt gengi í skoðanakönnunum, að þeir geti haldið áfram að stjórna landinu, og drífi þá í því að slíta öllum tengslum við ESB og segja sig frá öllum "viðræðum" við þá um aðild. Svo þyrfti að endurskoða EES-samninginn eitthvað líka í kjölfarið á því. Þetta er ekki hægt lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 25.10.2016 kl. 13:11

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Guðbjörg

Já þetta með ESB-vinstrið á Íslandi er dálítið eins og lesandinn John í Danmörku sagði um ESB í sínu landi og sem gerðist einnig hér í kosningunum 2009: "við kusum á sínum tíma um að okkur líkaði kirsuberið (Vinstri grænir og Samfylking 2009) á toppi dulbúinnar tertu sem undir kreminu reyndist vera alsgnægðarhorn fullt af skít (lort)"

En sem betur fer erum við ekki eins og Danmörk. Við erum sjálfstætt og fullvalda ríki og það var kosið aftur og er svo gert á fjögurra ára fresti. Það nefnist lýðræði og fer þannig fram að þeir sem bjóða sig fram sem þingmenn verða að sækja sér nýtt umboð kjósenda á fjögurra ára fresti. Þeir meiga ekki svíkja það umboð eins og Vinstri grænir gerðu með skelfilegum afleiðingum. Trixið hjá ESB-vinstrinu núna er að gefa ekkert upp um hvað þeir ætla að gera og ekki gera EFTIR kosningar. Það eru þó líka umboðssvik við kjósendur og lýðræðið. Það er bannað. 

Klikkflokki pírata hefur síðan þetta var, verið dælt upp á þetta horn, dulbúnir sem enn eitt kirsuberið. Og ég sem hélt að síðasta misfóstur ESB-vinstrisins á Íslandi hefði kennt kjósendum lexíu um dulbúnar skítatertur. Vona ég að sú lexía hafi físað inn.

Já. Jón Bjarnason hrökk ekki í brauðið og það gerir Hjörleifur ekki heldur. Síðast kaus ég því Regnboga Jóns Bjarnasonar og Bjarna harðari, en núna kýs ég Sjálfstæðisflokkinn eins og ég gerði 2009. Ég hvet fólk til að gera slíkt hið sama vilji það ekki láta tertuna fæða yfir sig.

Kveðjur og xD

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2016 kl. 14:15

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Lesið:

Hér hefur verið vakið máls á þeirri staðreynd að þrátt fyrir yfirlýsingar um virðingu fyrir lýðræðislegum leikreglum ræður lítil klíka flokki Pírata. Saga þess valdabrölts alls er greinilega of flókin fyrir fjölmiðla. Þá kunna fjölmiðlamenn að láta glepjast af málsvörn forystuliðs Pírata sé leitað upplýsinga hjá því..

hér

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2016 kl. 14:26

5 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Það segir ýmislegt um þig að þú þarft að vitna í grein sem er skrifuð af nýjasta hægri-öfga-flokknum hérna í Danmörku. Enda er stjórnmálaflokkurinn (Nye Borgerline), sem þessi kona er formaður fyrir ekkert annað en hægri-öfgaflokkur sem hugsar afturábak en ekki fram í tímann.

Það sem þú talar ekki um hérna er hvernig efnahagur Bretlands er að fara í súginn þessa dagana, pundið hrunið, fyrirtækin að fara, bankanir sem eru í City of London að pakka saman og segja bless.

Það er alveg ljóst að svo lengi sem enginn af þessum öfgaflokkum kemst til valda þá er Danmörk ekki á leiðinni úr Evrópusambandinu. Ef þessir öfgaflokkar komast til valda og Danmörk fer úr Evrópusambandinu, þá er alveg ljóst að þá skellur á efnahagskreppa í Danmörku sem danir hafa ekki séð síðan eftir seinni heimsstyrjöldina.

Jón Frímann Jónsson, 25.10.2016 kl. 16:57

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Frímann

Já þetta sama og þú segir hér um mig og þá Dani sem ég vitna í  var einnig sagt um þá sem kusu nei við Maastricht-sáttmálanum og síðast evrunni í Danmörku árið 2000. Þá var Dönum í báðum tilfellum sagt að landið þeirra, sem er ekki þitt, færi þína leið til fjandans, en það gerðist hins vegar ekki þegar kjósendur tóku völdin í tvígang af ESB-elítum Danmerkur og kusu vitlaust, þ.e. sögðu nei. 

Einnig sagði danski forsætisráðherrann árið 1986 að Danir hefðu ekkert að óttast þegar þeir voru píndir með lygum til að kjósa já um EF-pakkann, og óttuðust að verið væri að stofna eitthvað sem gæti orðið að "Union" eða "European Union", það er Evrópusambandið. Forsætisráðherrann sagði Dönum þá að ekkert væri að óttast því að Evrópusambandið er steindautt sem hugmynd, sem aldrei yrði að veruleika.

Danski íhaldsflokkur þessa manns er nú með 3 prósent fylgi. Hann varð að líki í pólitískum kirkjugarði ESB-flokka. Sá kirkjugarður að verða ansi stór í flestum löndum Evrópusambandsins.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2016 kl. 17:21

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það má nefna að hótanir banka á englandi um að fara er nákvæmlega sú taktík sem beitt var hér af stórum fyrirtækjum. Allir ætluðu að pakka saman og fara ef við færum ekki í ESB. Enn er enginn farinn.

Þessar hótanir ættu að segja fólki eitt með vissu. ESB er hannað fyrir stórkapítalið en ekki litla manninn. Hann má eta það sem úti frýs í þrælakistum Þjoðverja í gömlu austantjaldslöndunum og eystrasaltslöndunum, þar sem sóknarkonulaunin duga ekki til framfærslu og þriðjungur þjoðarinnar á faraldsfæti um alla evropu til að geta sent mömmu pening heim fyrir brauði.

Jón er týpiskur Sosíaldemókrati og úlfur i sauðagæru, sem mærir alþjóðavæðinguna í takt við Soros og er svo múltíkúltí að hann vill fletja alla menningu út í eina. Múltíkúltúrisminn sem á ser það markmið eitt að koma á mónókúltúr. Það er þægilegra fyrir stórkapítalið, fjórfrelsið, sem flandrar með ódýrt vinnuafl á milli landa til að gíra niður laun og kjör þeirra sem fyrir eru.

Er það að furða þótt hann, Ómar Bjarki og viðlíka vitfirringar eru aðhlátursefni allra og flokkurinn þeirra fylgi við frostmark. :D

Jón Steinar Ragnarsson, 25.10.2016 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband