Leita í fréttum mbl.is

Þýska bankakerfið í miklum vandræðum

Margir hafa heyrt um alvarleg vandamál stærsta banka Þýskalands, Deutsche Bank. Lánasöfn bankans eru að falla saman og rekstur hans er í járnum. Næst stærsti banki landsins, Commerzbank, berst fyrir lífi sínu og hefur gripið til neyðarráðstafana. Reka á 10 þúsund starfsmenn og 40 prósent af virði hans er horfið úr vösum eigenda á aðeins 9 mánuðum. Vonast bankinn til að með þessum aðgerðum geti hann sýnt umheiminum einverja jákvæða afkomu

Deutsche Bank hefur nú fengið 14 milljarða dala sekt í Bandaríkjunum fyrir misnotkun á undirmálslánum á húsnæðismarkaði. Stærstu bankar Þýskalands og Landesbank NORD, sem stjórnmálamenn Þýskalands stýra, eiga í klemmu 100 milljarða dali sem þeir fjárfestu í skipaflota til sjóflutninga, sem meðal annars siglir þýskum útflutningi til áfangastaða, undir vernd bandaríska Kyrrahafsflotans, sem Þýskaland hefur fordæmt fyrir flest, og sem einn hefur staðið vörð um siglingarleiðir þýsks útflutnings í meira en 70 ár. Þetta er fjórðungur allra lánveitinga í veröldinni til þessa geira. Þau pólitískt bökuðu lánasöfn eru að rotna í bankabók Þýskalands í takt við tekjuhrun fragtskipaflota veraldar. Þar sem stór skip gátu á bóluskeiði þénað 200 þúsund dali á dag, en sem í dag mega þakka fyrir að geta skrapað inn 30 þúsund dölum á dag, fyrir sömu vinnu og sama tilkostnað. Í síðasta mánuði fór eitt stærsta skipafélag heimsins í gjaldþrot

Segja nú sumir að Angela Merkel geti ekki bjargað þýskum bankamálum af því að hún sé búin að fordæma Bandaríkin svo hart fyrir undirmálslánin sem hún keypti og sem banki hennar er nú að fá sekt fyrir þar vestra, en sem hann með góðu móti á ekki fyrir. Og menn segja enn fremur að mórölsk sprengjuvarpa þýska kanslarans hafi nú þegar skotið bankakerfi flestra ríkisstjórna Suður-Evrópu í kaf, fyrir að vera í svipaðri aðstöðu og sem hún og fyrirrennari hennar komu þeim sjálfum fyrir í, með því að endur-uppsetja þýska hagkerfið þannig að það er nú útflutningsháðasta hagkerfi veraldar, af þeim stærri. Þýskt hagkerfi þar sem helmingur landsframleiðslunnar er fluttur út til annarra landa. Helmingur hans fer til þeirra ESB og evrulanda sem hún og ECB-aukaseðlabanki hennar hafa tekið af lífi með fjármálabólu undir neikvæðum raunstýrivöxtum og þýskri banka-export-bólu

Bandaríkin sem eru nettó-innflytjandi flytja hins vegar aðeins 13 prósent landsframleiðslu sinnar út og helmingur hans fer til Kanada og Mexíkó. Ekkert fylki Bandaríkjanna er háð útflutningi og síst af öllu til Evrópu og Asíulanda. Falli útflutningur Þýskalans um helming, þá mun einn fjórði hluti hagkerfis þess þurrkast út, nema að nýir markaðir séu opnaðir með hvelli. Þeir einu sem eftir eru í hinu pólitíska skiptiborði landsins, eru fyrir austan Austur-Evrópu, sem þá verður að hindrun

Heimsviðskiptin eru á fallanda fæti og farin að dragast saman. Sú glóballar-þróun sem fór í gang 1991 er að snúast við. Það elítuveldi sem til varð undir þeim breytingum er komið í vandræði víða um heim. Meira en helmingur almennings á Vesturlöndum hagnaðist ekki á glóbelli þessara elíta. Og sennilega hefur sá hluti liðið tap. Þessi hluti þjóðanna hefur nú hoppað í gömlu björgunarbátana, þjóðríkið og landamæri þess, og ætlar sér ekki að láta þá af hendi til þeirra sem kveikt hafa í þjóðarheimilum hans

Þýskaland er að hitna. Það þokast í stjórnleysisátt og hin pólitískt ráðandi elítuöfl eru farin að þreytast og örmagnast. Við mun taka enn frekara stjórnleysi

Ekki er með öllu útilokað að spá Beatrix von Storch í AfD-flokknum í þýska ARD sjónvarpinu, um að Angela Merkel kanslari, öryggis síns vegna, neyðist til að flýja Þýskaland eftir gömlum flóttaleiðum til Suður-Ameríku, þegar hún fer frá völdum, muni rætast. Angela Merkel, sagði hún, hefur eyðilagt Þýskaland það mikið að leita þarf aftur til ársins 1945 til að finna álíka eyðileggingarafl í Þýskalandi og Evrópu. Þetta er sú flóttaleið sem Erich Honecker flokksfélagi Angelu Merkel úr DDR fór - og fleiri á undan honum

Öllu sem kanslarinn kemur nálægt klúðrar hún með ákvarðanatökufælni og pólitísku hug- og getuleysi. Mín skoðun er sú að útflutningsfíkn Þýskalands sé að éta fjármálakerfi landsins upp innanfrá. En því er hins vegar haldið vandlega leyndu fyrir almenningi. Export- og bankaelítan á lítið gott í vændum

Sú forna og heilaga móralska regla Þýskalands, að viðskiptajöfnuður (e. trade balance) sé jöfnuður sem byggist á að Þýskaland græði á meðan aðrir tapa -flytji út en aðrir neyti- getur ekki gengið upp. Ekki núna, frekar en nokkru sinni áður í langri sögu ófara landsins. Skoða ber stofnun Þýskalands 1871 með þeim augum. Sá fæðingargalli mun ávallt fylgja landinu. Pólitískar samkeppnisaðgerðir geta aldrei orðið að góðu ríki - þ.e.a.s fyrir hinn almenna borgara

Fyrri færsla

Kjörfylgi Deutsche Bank komið niður í einn tölustaf - og fundi frestað


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var í þýskalandi, hér fyrir nokkrum árum og sá mér til undrunar.  Að bandarískir hermenn, eru ennþá við vörð í landinu ... bara óeinkennisklæddir.  Síðan verður maður að fara varlega með að ásaka bankaelítuna í þýskalandi, því henni er alfarið stjórnað af ... maður má ekki segja Gyðingum, því það væri ekki rétt ... þó svo að það sé ýmislegt til í því, réttara er að segja "bandarískum" auðkýfis-stjórnendum og handbendum þeirra.  Árið 2008, fóru Bandaríkin á hausinn ... í orðsins fyllstu merkingu.  Þeir hafa, og gera ... notað sér Evrópu, sem botnfall fyrir sig.

Það eina sem Merkel, og aðrir þýskir stjórnmálamenn eru sekir um ... er hugleysi.  Þora ekki að standa á móti máttarvaldinu (Bandaríkin, Hitler).

En það má segja það sama um Ísland líka.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 2.10.2016 kl. 11:34

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Nú eru vandamál evrunnar tekin að hrína á Þýzkalandi.  Þýzka þjóðfélagið er reist á sparnaðarreikningum í bönkum og sparnaði í tryggingafélögum og lífeyrissjóðum.  Þessi kerfi þola ekki neikvæða vexti evru-bankans.  Skuldug Miðjarðarhafslöndin eiga hins vegar léttar um vik, og þess vegna er nú evrubankinn kallaður Miðjarðarhafsbankinn á meðal germanskra þjóða evru-samstarfsins.  Það hriktir svakalega í þessu myntsamstarfi núna, þegar bankakerfi Þýzkalands stendur á brauðfótum þess vegna.  Evran fær ekki staðizt.

Bjarni Jónsson, 2.10.2016 kl. 13:16

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne Örn

Ekki einu sinni Þjóðverjar sjálfir halda svona firringu fram. Þýska bankakerfið gerði eignir Gyðinga upptækar, lokaði fyrirtækjum í þeirra eigu og fjármagnaði til dæmis byggingu Auschwitz útrýmingarbúðanna og annarra þar sem Gyðingum var útrýmt.

Þýska bankakerfið þráaðist við þar til svo seint sem 1990 að borga Gyðingaþjóðinni skaðabætur fyrir tilraunir til útrýmingar hennar. Milljónum og aftur milljónum Gyðingar var hent eins og hræjum inn í gasklefaa þýska iðnaðarins.

Athugaðu að til dæmis Deutsche Bank sem er stærsta fjármálastofnun landsins, er einu ári eldri en sjálft Þýskaland. Sú staðreynd segir því miður margt um þær breytingar sem því miður hafa ekki átt sér stað á of mörgum innviðum þýska ríkisins. Evrópusambandið hefur aðeins styrkt þessa slæmu innviði sem nú ógna borgurum landsins, einu sinni enn.

Gyðingar eru ofsóttasta þjóð veraldar. Ef það væri ekki fyrir framlag og gjöf hennar til mannkynsins, þá ættir þú líklega ekkert þjóðarheimili neins staðar í veröldinni núna. Hornsteinar Vesturlanda eru Hinar heilögu ritningar og úr þeim kemur uppskriftin að þjóðríkinu og landamærum þeirra. Að það sé hollt ríkjum að halda sig innan landamæra sinna, en ekki að reyna að gleypa önnur ríki. Og vörn borgaranna gegn brjálæði eins og því sem gerðist frá 1900 til 1945 í rústum imperial heimsvelda sem átu þjóðríkin upp til agna.

Engir nema yfirvöld hins endurheimta þjóðríkis Gyðinga, Ísraels, munu sjá til þess að Gyðingum sé bjargað úr klóm gerræðisafla í heiminum. En það er frómasta hlutverk þjóðríkisins: að vernda þjóð sína. Gyðingar eru því ekki heimilislausir núna. Þó svo að mörg ríki hafi útrýmingu þess á pólitískri dagsrká og sem því miður flest eru gamlir bandamenn Þriðja ríkisins.

Því miður eru Bandaríkjamenn farnir heim. Enda sést það á Þýskalandi og Evrópu nú þegar. Allt er brátt við að verða við það sama. Það rýkur því úr þessum hluta veraldarinnar aftur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2016 kl. 14:53

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Bjarni Jónsson og þakka þér fyrir mörg góð skrif þin undanfarin mörg mörg ár. Duglegur ertu.

Já evran fær ekki staðist og hefur aldrei gert það nema í höfðum fáráðlinga. Hún var því af skynsömu fólki kölluð "hreint geggjunarverk" löngu áður en henni var sleppt lausri á Evrópu.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2016 kl. 14:57

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það bætist við ákærulistann á hendur Deutsche Bank. Í gær gaf rétturinn í Mílanó á Ítalíu út ákæru á hendur bankanum fyrir að hafa falsað viðskiptabókhald sitt við ítalska Banca Monte dei Paschi bankann árið 2008, sem er elsti banki heimsins, svo að undir samsæri væri hægt væri að fela taprekstur hans.

Hlutabréf Banca Monte dei Paschi hafa fallið um 84 prósent á þessu ári og þeir sem eiga hlut í Deutsche Bank halda nú a hlut sem fallið hefur um helming á þessu ári og 90 prósent frá 2007.

Deutsche Bank virðist standa með hendurnar fastar á kafi í hverri einustu fjármála-drullumallsdós veraldar. Sífellt bætist við ákærurnar á hendur honum.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2016 kl. 16:31

6 identicon

Firringin, Gunnar, felst í því að "bankaelítan" eða olígarki eða ..., eins og þú kallar hana á enga sök á pólitískum mistökum Bandaríkjanna í sinni "heimsvaldastefnu", eða misheppnaðri pólitík Merkel ... eða Evrópubandalagsins.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 2.10.2016 kl. 21:13

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ekki má gleyma útgöngu Breta úr ESB, ekki hjálpar það viðskiptalífi Þjóðverja, ef þeir ættla að halda til streitu yfirlýsingar Brussell veldisins, að það verða engir sér viðskiptasamningar gerðir við Breta. 

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 2.10.2016 kl. 22:31

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jóhann

Já, Bretland er tæplega 20 prósent af ESB. Evrópusambandið er að minnka um tæplega 20 prósent á einu bretti þegar Bretland fer.

Breska hagkerfið er stærra en það franska. Þarna fjölgar fátæklingum Evrópusambandsins hlutfallslega mikið þegar Bretland fer, og þeim ríku fækkar til muna. Þeir sósíalistar sem allt ESB snýst um frá og með 1991, ættu þar með að gleðjast mikið. Fátækum fjölgar og ríkum fækkar. Ný miðstýrð paradís er að verða til: Evrópuöreigasambandið!

Skríði Þýskaland ekki á fjórum fótum að Brexit-samningaborðinu, þá er úti um 7-10 prósent af heildarútflutningi Þýskalands, sem fer til Bretlands, þar á meðal milljón bílar, og landsframleiðsla Þýskalands getur dregist saman um helming þeirrar tölu ef illa fer.

Skríði allt ESB ekki einnig á öllum fjórum að samningaborði Bretlands, þá hringir Boris bara úr símanúmeri Bretlands í forseta Bandaríkjanna og er kominn með fríverslunarsamning við ekki bara öll Bandaríki Norður-Ameríku fjórum klukkustundum síðar, heldur og einnig við allt NAFTA í næstu viku (tímalengdin fyrir Ísland yrði þó sennilega tvöfalt lengri). Evrópa hefur hins vegar ekkert símanúmer til að hringja í neinn úr

Viðbrögð sumra landa í Mið-Evrópu minna mig á öfugt vor í Prag. En innrás Sovét átti að sýna öðrum ríkjum undir hæl Kremlarveldisins hvað gerist þegar lönd ætla að yfirgefa kommúnistaguðspjallið. Nú á að reyna að beita sömu aðferðum við Bretland - og það af fórnarlömbunum sjálfum! (Stokkhólmsheilkennið?). Hreint ótrúlegt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.10.2016 kl. 23:26

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Er ekki kominn tími til að einhver kæri ESB fyrir fjárkúgun? Fyrir að neita að gera viðskipti við aðrar þjóðir, nema að fá að stjórna öllu lífi þeirra, nánast?

Ímyndið ykkur ef Bæjarins bestu myndu neita að selja ykkur pylsu með öllu, nema pylsuvagninn myndi fá að ráða á hvaða tíma dags þið farið út að ganga með hundinn ykkar. Ég myndi fara að kaupa mínar pylsur annars staðar, þó ég eigi engan hund.

Theódór Norðkvist, 4.10.2016 kl. 12:16

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Heh. Þetta þyrfti að birta alls staðar Theódór! Tær snilld og þakkir fyrir

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2016 kl. 12:54

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Takk fyrir Gunnar og sömuleiðis, ég les oft þína pistla, sem eru beittir og skemmtilegir yfirlestrar - þó umfjöllunarefnið sé oft alvarlegt. cool

Theódór Norðkvist, 4.10.2016 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband