Leita í fréttum mbl.is

Íslenskri táningsstúlku nauðgað í Danmörku

Ég get ekki orða bundist vegna þessar fréttar í dag: Íslenskri stúlku nauðgað í Danmörku

Þessi furðulega frétt er í öllum fréttamiðlum í Danmörku í dag. Öllum. En það sem vekur undrun mína er hversu misheppnuð ritskoðun fjölmiðlanna er. Þeir ritskoða þjóðerni glæpamannanna burt, en "gleyma" svo viljandi að ritskoða þjóðerni fórnarlambsins burt

Nauðgararnir eru útlendingar, það kom fram í dönskum blöðum 18. september. En frá hvaða löndum þeir eru, er vísvitandi haldið leyndu fyrir lesendum í annarlegum pólitískum tilgangi. En þjóðerni fórnarlambsins, sem líka er útlendingur í Danmörku, er ekki þess hroðalega hættulega pólitíska eðlis, að rétttrúnaðarfólkið brenni fjölmiðla til ösku fyrir að segja að táningastúlkan sé Íslendingur. Fjölmiðlar þora því enn að nefna þjóðarheitið Íslendingur á nafn, vel vitandi það að við Íslendingar ætlum ekki að brenna þá niður né drepa neinn vegna eins né neins sem gerst hefur í 1200 ára sögu okkar

Af hverju eru menn svo að gagnrýna fjölmiðla Norður-Kóreu fyrir að endurhanna erlenda raunveruleikann fyrir 25 milljón íbúum þess lands? Það skil ég ekki, þegar fjölmiðlar Vesturlanda eru að endurhanna innanríkis veruleikann fyrir 500 milljón manns: Allra íbúa Evrópu!

Kanslara Þýskalands var hent í gólfið og breytt í þúsund stykki á síðustu vikum. Þýskaland er orðið óstöðugt! Þið megið gjarnan vekja mig ef sannast skyldi að svo mikið sem bara einn sentímetri af núverandi pólitískum innviðum Evrópu verði enn uppistandandi eftir 5 ár. Hvað tekur við í Evrópu næst, er spurning sem allir hér heima ættu að hugsa mjög ákaft um - og svitna!

Sem betur fer bý ég á Íslandi og get enn sem komið er sofið nokkuð tryggt. En er það virkilega þetta sem góða fólkið vill?

Já og svo var náttúrlega sá sem skaut dönsku lögregluþjónana í löglausa villimannahverfi Kaupmannahafnar um daginn, múslímskur hryðjuverkamaður. Það mátti heldur ekki birta neitt um

Hvað er að? Hverra erinda ganga þeir sem kalla sig "fjölmiðlar" ?? Er þetta miðilsfundur þeirra?

Fyrri færsla

Moodys sprengir Brexit bankablöðru ESB


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Stjórnendur Kaupmannahafnarháskóla gáfu í dag út viðvörun til kvenkyns námsmanna háskólans, um að vera ekki einar á ferð á háskólasvæðinu.

Hingað til lands streyma skandínavískir ferðamenn og finnst land okkar Íslendinga öruggt. En það er sorglegt hversu margir þeirra segja manni, óumbeðnir, að þjóðríki þeirra séu nú ónýt. Að búið sé að eyðileggja þjóðarheimili þeirra.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.9.2016 kl. 17:14

2 identicon

Íslenzku blöðin sögðu heldur ekki frá því (auðvitað viljandi) að þessi nauðgun hefði verið framin í Vollsmose, múslímaghettóinu illræmda í Odense.

Þegar fréttist af því fyrr á þessu ári að ungum stúlkum hefði verið nauðgað árum saman í tveimur enskum borgum, var steinþagað yfir því í íslenzkum fréttamiðlum, að þar voru Pakistanar að verki. Pólítíska rétthugsunin með tilheyrandi riðskoðun er að verða virkilegt vandamál hér á landi, eins og það er orðið í Svíþjóð, Bretlandi og Þýzkalandi.

Og síðan þetta með aðvaranirnar til innfæddra um að vera ekki að móðga eða tæla múslímana, eins og þú nefnir: Ekki sýna fánann, ef það er kross í honum. Ekki vera með hundana ykkar á almannafæri. Kaupið góða hlaupaskó svo að þið getið hlaupið frá nauðgurunum. Ekki klæðast minipilsum, því að þá eruð þið að tæla nauðgarana, o.s.frv. Í staðinn fyrir að koma í veg fyrir að nauðgaranir fái hæli.

Aumkvunarvert.

Pétur D. (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 20:55

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Pétur.

Já þetta er vægast sagt skuggaleg þróun.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.9.2016 kl. 22:14

4 identicon

Ég er nokkuð viss um að Birgittu Jónsdóttur myndi mislíka það mjög að þú bendir á staðreyndir. Henni er víst meinilla við þannig lagað.

laughing

Pétur D. (IP-tala skráð) 24.9.2016 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband