Leita í fréttum mbl.is

Evran og norska krónan að hverfa

USD og ISK-SEK-NOK-EUR frá 7 júlí 2008

Vísitölumyndin sýnir gengisþróun evru og hinna íslensku-, norsku- og sænsku króna gagnvart Bandaríkjadal. Tímabilið er frá 7. júlí 2008 = 100, er vatnaskil urðu á gjaldeyrismarkaði, og fram til dagsins í dag

Norska krónan er nú fallin meira en sú íslenska. Fall evru og sænsku krónunnar nálgast bankarot. Norska krónan hefur orðið fyrir miklu áfalli vegna heilbrigðra framfara í verðmyndun á olíumörkuðum. Evran er hins vegar að leggjast í rústir skipulagðs pólitísks áhlaups stjórnmála- og embættismannamannastétta sovétríkja ESB, þ.e.a.s í NSU og EMMA (European Monetary Madness Area in New Soviet Union | © Bernard Connolly)

Evran mun halda áfram að falla næstu 3 árin og fara niður í 0,65 Bandaríkjadali. Borgarastyrjöldin sem hafin er í Evrópusambandslöndum vegna innrásar í kjölfar gjöreyðingar evrunnar, munu svo gera útaf við myntina evru. Við það verður hún aftur mynt þess eina lands sem stjórnar og hefur haft hag af henni; Þýskalandi. Og við það hækkar hún um 160 prósent aftur og Þýskaland verður gjaldþrota hennar vegna og framskriðinnar elli. Ritvélaiðnaður hinna þýsku kínverja Evrópu þolir ekki slíka frjálsa verðmyndun á gjaldmiðli landsins

Íslenska krónan mun halda áfram að hrista ferðamenn af íslenska hagkerfinu eins og lús. Og er það ákaflega gott og þarft verk. Við tekur arðbærari notkun á menntuðu vinnuafli og auðæfum þjóðarinnar. Takk mín kæra V8 íslenska króna

Næstu tveggja kjörtímabila ábyrg og sannfærandi hægri ríkisstjórn á Íslandi, hefur alla burði til að gera þig að alþjóðlegri mynt, vilji menn það. Allt sem til þarf, er viljinn, ábyrgð og Sjálfstæðisflokkurinn

Fyrri færsla

Aðeins ein ástæða fyrir ríkidæmi Íslands


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef stundum velt því fyrir mér, hvort þú skiljir sjálfur það sem gusat úr penna þínum.

Eru þetta draumar eða hugljómanir eða bara einföld óshyggja? Eða á þetta að vera í stíl við Notradamus?

Sigurður Oddgeirsson (IP-tala skráð) 29.7.2016 kl. 13:15

2 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þetta hefur eiginlaga verið fáránlega alveg eftir bókinni (gjaldmiðlar og hagstjórn 101)  frá 2008 Svo margt bendir til næstu þrjú verði á þessu róli. Eina sem ég efast um er að krónan nái að hafa mikil áhrif offramboð af túristum. þessi 1% sem eiga 50% peningum heimsins telja 60 milljón manns. Gengi krónunnar skiptir það fólk litu máli.

Guðmundur Jónsson, 29.7.2016 kl. 13:51

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigurður

Væri Þýskaland með sína eigin mynt í dag, þá væri gengi hennar um það bil 70 prósent hærra en það er á myntinni þeirra í dag. Sú mynt, evran, getur hvorki endurspeglað bágborið né gott ástand þeirra hagkerfa sem nota hana. Hún er eingöngu pólitískur peningalegur Frankenstein sem gengur frá löndum að fullu. Það var vitað frá upphafi.

Þýskaland notfærir sér veikburða hagkerfi annarra evrulanda til að ríða um heiminn á brotnum bökum þeirra. Vanti Þýskaland enn frekari gengisfellingu til að styðja við útflutning sinn og falsa raungengi sitt, þá kveikir það elda í enn einu hagkerfi annarra evrulanda til að halda genginu þannig falskt niðri svo að einn extra gámur af ritvélum skipist út frá höfninni í Hamborg, eða Ost Luga. Ofan í þetta hefur Þýskaland stundað innvortis gengisfellingu í samfleytt síðustu 15 ár, þannig að þar hafa launþegar ekki fengið neina raunlaunahækkun í samfellt 15 ár. Þýskaland er einkaþrælabúðir þýskra elíta og mun farast.

Þú getur verið alveg rólegur þarna í dönsku krónunni. Danmörk hefur aldrei haft sjálfstæða peningapólitík og er fastgróin bóla á rassinum á Þýskalandi. Fari evran til fjandans á þann hátt sem ég lýsi hér að ofan, hún getur bara farið til fjandans, en samt á marga vegu, já þá mun Danmörk fylgja Þýskalandi þó svo að það þýði sjálfsmorð fyrir dansk efnahagslíf.

Allt sem Danir hafa bundið krónuna sína við hefur hrunið:

    • Silfurmyntfóturinn frá 1838 hundi

    • Gullmyntfóturinn frá 1873 hrundi

    • Alþjóðlegi gullfóturinn hrundi í kreppunni 1930

    • Fastgengi DKK við Pundið hrundi

    • Bretton Woods hrundi í byrjun 1970

    • ERM/EMS hrundi 1992

    • Myntbandalag ESB og ERM er að hrynja núna (ERM-II gagnkvæm binding DKK við evru).

    Danmörk hrapar og hrapar á skalanum yfir ríkustu þjóðir OECD landa. Það kostar að vera bara bóla á rassi Þýskalands.

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 29.7.2016 kl. 15:07

    4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Þakka þér Guðmundur

    Ísland er fyrir lögnu búið með rjómann af þeim erlendu ferðamönnum sem hingað koma og hafa áhuga á að koma.

    Núna eru við í undanrennunni og innan skammt er bara vatnið eftir. Og þeir efnameiri hafa ekki áhuga á vatnsferðalögum sem þá er staðallinn.

    Það er sorglegt að svona stór hluti af menntuðum Íslendingum skuli hafa svona mikinn áhuga á að starfa sem ókeypis salernisþjónar og hamborgarasteikjarar fyrir þá fátæklinga sem hent er niður til löndunar í löndunarbiðina úr flugvélum sem hingað fljúga. Þrærnar hafa ekki við að gera þetta sull klárt til ferðamannabræðslu.

    Krónan mun tæta þessa lús af landinu. Það mun hún gera.

    Ferðamannabransinn er sennilega lægst launaði bransi veraldar. Sést það vel á Suður-Evrópu, sem er að drukkna úr ferðamönnum og fátækt, enda er héraðið Kanaríeyjar gjaldþrota og komið í vörslu Madridar.

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 29.7.2016 kl. 15:20

    5 identicon

    Ja hjerna! Það er bara svona! Sennilega eini gjaldmiðillinn, sem lifir þetta peningalega Harmageddon af, sem þú sérð fyrir þér, er íslenzka krónan. Svo SDG hefur haft rétt fyrir sér!

    Sigurður Oddgeirsson (IP-tala skráð) 29.7.2016 kl. 18:12

    6 Smámynd: Ómar Gíslason

    Hagvöxtur á Evrusvæðinu var 0,6% á fyrsta ársfjórðungi 2016 á öðrum ársfjórðungi 2016 varð hann 0,3%. Hagvöxtur á Íslandi árið 2015 varð 3,95%.

    Ómar Gíslason, 29.7.2016 kl. 21:48

    7 Smámynd: Ómar Gíslason

    Takk fyrir að hafa ekki evruna

    Ómar Gíslason, 29.7.2016 kl. 21:49

    8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Þakka þér Ómar

    Já, hagvöxtur á evrusvæðinu er eins að leita að fornminjum. Það "svæði" er nú orðið versta efnahagssvæði veraldar. Hvorki meira né minna. Maður bíður bara eftir byltingunni.

    Að þessu leyti virkar evran, - þ.e. eins og rottueitur á sköpun velmegunar, sem er undirstaða velferðar.

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 29.7.2016 kl. 23:13

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Gunnar Rögnvaldsson
    Gunnar Rögnvaldsson

    Búseta: Ísland.
    Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
    tilveraniesb hjá mac.com

    Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

    Bloggvinir

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband