Leita í fréttum mbl.is

Sérfræðingarnir reiðir vegna Brexit

Það hefur verið sorglegt að fylgjast með mörgum fjölmiðlum og sérfræðingum í bæði aðdraganda og kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu

Al- og þjóðlegir blaða- og fréttamenn og svo kallaðir sérfræðingar, stunduðu massífan hræðsluáróður í aðdraganda kosninganna. Svo grímulaus var áróðurinn að ég átti erfitt með að trúa mínum eigin augum. Miðlar og sérfræðingar sem maður hélt að væru alvöru miðlar og gáfumenn, reyndust bara vera venjulegar fyllibyttur úr Norður-Kór EU. Hjá mér var þetta dálítið eins og þegar krakkar sjá foreldra sína fulla í fyrsta skiptið. Þeir fara hjá sér - já, ég fór hjá mér

En öllu verra er þó að fylgjast með þessum fréttamiðlum og sérfræðingum í kjölfar kosninganna. Þá voru sérfróðar fyllibytturnar orðnar svo reiðar að froðan sem haldið hafði verið í skefjum og bar bara rétt við tungur og penna þeirra fram að kosningum, jáhm; hún frussaðist þá bara út um allt eins og að stífa hefði brostið. Ég þurrkaði hvað eftir annað af tölvuskjánum hjá mér, en þetta hélt bara áfram. Þá hætti ég að láta græjur mínar undir þetta og sparaði við mig sérfræðina

Þessi reiði sérfræðinga, blaða- og fréttamanna á sér bara eina skýringu; breska þjóðin hafði loksins talað, og þar kom í ljós að hún var fyrir löngu hætt að hlusta á þessa aðila. Þess vegna er öll þessi reiði núna. Og hún er ekki úr fólkinu sjálfu, heldur úr sérfræðingunum. Við sjáum þetta einnig hér heima. Sérfræðingarnir eru einfaldlega orðnir gjaldþrota, og það vita þeir. Þess vegna eru þeir svona reiðir. Varla neinn hlustar á þá lengur

Styttist nú í stórtæka þjóðnýtingu bankakerfa meginlands Evrópu

Fyrri færsla

Þegar Danmörk sagði nei við ESB-martröðinni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Meiriháttar flottur pistill og nokkuð nákvæm greining á ástandinu.  Mér blöskraði gjörsamlega umfjöllun RÚV í fréttum í gærkvöldi, þeir á Stöð 2 höfðu þó fyrir því að segja frá því að "bæði hefði verið púað og klappað fyrir Nigell Farrel" undir ræðu hans á Evrópuþinginu en RÚV sagði EINGÖNGU frá því að púað hefði verið á hann.

Jóhann Elíasson, 29.6.2016 kl. 07:07

2 identicon

Halló! Brexit = gott starf. Frú Merkel = illt. The European Union = staerri illt. It's easy! PS: Vinir, fylgja sannleikann: albafos.wbs.cz/international.html

janwe (IP-tala skráð) 29.6.2016 kl. 08:30

3 identicon

Verður að hrósa ríkisstjórn Englands að virða ráðgefandi þjóðaratkvæðisgreiðslu þjóðar sinnar. Það gerði ekki sú sem nú situr hér á landi eftir afgerandi niðurstöður úr þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20 okt 2012.

Skömm að lýðræðinu hér á landi. 

Hér á að kjósa um að halda áfram viðræðum við ESB. 

Sigfús (IP-tala skráð) 29.6.2016 kl. 16:41

4 identicon

Janwe eða hvað þú heitir, hættu að spamma bloggið með þessum ruslsíðum þínum. Ég skora á Gunnar Rögnvaldsson og aðra síðuhafa að banna IP-tölu spammarans. 

Pétur D. (IP-tala skráð) 29.6.2016 kl. 18:14

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Grundvallaratriði vilji menn sigra í kosningum er að taka þátt. Varðandi umræðuna að gamla fólkið hafi verið að taka ákvarðanir fyrir unga fólkið, þa er það afar athyglisvert í þessum kosningum að 65% fólks á aldrinum 18-24 ara hafði ekki fyrir því að mæta á kjörstað. Nú vill það breyta niðurstöðunni með óhljóðum og látum.

Ragnhildur Kolka, 29.6.2016 kl. 23:04

6 identicon

Hérna er virkilega skorinort video um þetta unga fólk sem hugsar ekki lengra en facebook, veit nákvæmlega ekkert um ESB, nennir ekki að kjósa og vælir svo yfir því að gamla fólkið vildi út. Gamla fólkið, sem það á það að þakka að unga fólkið hefur kosningarétt og neyðist ekki til að tala þýzku daglega.

https://www.facebook.com/UKIPTyldesley/videos/1802994003253870/

Pétur D. (IP-tala skráð) 1.7.2016 kl. 20:28

7 identicon

Slóðin var ekki öll sýnileg, hér kemur hún aftur:

facebook.com/UKIPTyldesley/videos/1802994003253870/

Pétur D. (IP-tala skráð) 1.7.2016 kl. 20:49

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur öllum fyrir innlit og skrif. 

Vel að orði komist Pétur. Stutt er síðan að Bretar björguðu Evrópu síðast.

Og afar athyglisverðar eru upplýsingar þínar Ragnhildur.

Þakka þér Jóhann fyrir góðar kveðjur. Tek undir.

Mikið rétt hjá þér Sigfús.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.7.2016 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband