Leita í fréttum mbl.is

Kýs ekki broskall Kannskis

Broskal 9. maí 2016

Broskall Guðna nema Kannskis

Hvort skyldi það vera?

Þessi maður virðist ekki geta komið fram af festu. Hvorki af formfestu né málefnalegri festu. Broskallavæðing forsetaembættisins væri beint framhald af gíslatöku Eignarhaldsfélags skríls yfir Austurvelli

Staða Forseta Íslands er ekki bókavarðarstaða. Það hefur hún aldrei verið nema á tímum sem ei giltu sem prófsteinn á þann slitflöt Lýðveldisins sem allir hugsandi menn vissu að mæta þyrfti vegakerfinu þegar það væri loksins byggt og slitflötur þess klár til ítarlegrar notkunar

Davíð hrekkur ekki af hjörum og dekkin detta ekki undan honum. Það var jú hann sem byggði einmitt að miklum hluta vegakerfið sem þjóðin elskar í dag. Hún elskar vegakerfið vegna þess að það liggur til allra átta og er ekki einstefnukerfi þar sem ekkert er lögmætt nema að stefnuljósið sé gefið austur til vinstri. Ekkert blæs Davíð af veginum. Ekkert! Hann er klettur. Trukkur

Ég fyrir mína parta ætla að kjósa þennan mann. Hann er einn mesti Íslendingur sem uppi hefur verið

Ég er því þakklátur fyrir að fá tækifæri til að kjósa manninn að minnsta kosti einu sinni á æfi minni. Ég var jú illu heilli fjarverandi í 25 ár. En ég horfði ávallt með öfundaraugum upp til fósturjarðarinnar á meðan Evrópa hélt áfram að hrynja allt í kringum mig öll árin eftir að Evrópusambandið tók völdin af þjóðríkjunum frá og með 1986, þegar minn þáverandi forsætisráðherra Danmerkur laug því að þjóð sinni að Evrópusambandið væri hvort sem er steindautt - blöffaði þá til að kjósa já, eins og hér gerðist er Vinstri grænir komust til valda

Sá maður Danmerkur var alls ekki klettur, enda er Íhaldsflokkur hans með 3,2 prósent fylgi meðal danskra kjósenda í dag. Hann rústaði Danmörku til langframa. En ég hafði ekki kosningarétt því þetta var ekki mitt land

En Ísland er mitt land og ég ætla sko ekki að kjósa broskall sem Forseta yfir mig. Ég ætla að kjósa Davíð. Takk fyrir tækifærið Davíð! Ég ætla að notfæra mér það út í ystu æsar! Komputímabil Bessastaða er liðið

Nú þarf hæstvirt Alþingi einnig að taka saman höndum og koma sér út úr kompustjórnmálum. Fyrsta skrefið í þá átt er að koma sér út úr því kompuhúsnæði sem það er í og sem að miklum hluta býr til kompustjórnmálin sem það kompast í

Mín tillaga er sú að nýtt sjúkrahús verði byggt sem einmitt nýtt sjúkrahús, en ekki framhaldskompa, á nýjum stað og að Alþingi okkar Íslendinga flytji inn í glæsilega gamla hvítbyggingu Landspítalans. Komputímabil Alþingis er einnig liðið

Ég þakka sitjandi Forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir að standa með þjóðinni eins og klettur. Hann var ekki kompuforseti og það tók langan tíma að búa hann til sem klettinn Ólaf, því klettagerð tekur tíma. Honum og konu hans óska ég velfarnaðar


mbl.is Ólafur Ragnar hættur við framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála. Guðni er best kominn í háskólanum. Rúv og 365 miðlar eru sífellt að láta hanna fyrir sig skoðanakannanir, þar sem Guðni er á toppnum. Hann er þeirra maður, sem þeir vilja endilega að komist að á Bessastöðum, hvað sem hver segir. Ég var nú að hugsa, hvort þeir myndu verða svo ákafir að standa fyrir utan kjörstaði og krefjast þess af kjósendum að kjósa Guðna, ella hafi þeir verra af, líkt og einræðisherrar. Slíkur er ákafinn og lætin í þessu. Mér finnst Guðni ekkert hafa í þetta embætti að gera, hvað sem hver segir, og ég treysti engum frambjóðanda stjórnarandstöðunnar, sem er nú í kjöri, og fjölmiðlarnir hampa sem mest. Ég vona, að Davíð komist inn á Bessastaði. Fyrir utan Ólaf sjálfan, þá er Davíð rétti maðurinn í embættið. Aldurinn skiptir ekki máli, finnst mér. Svo einfalt er það mál.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.5.2016 kl. 19:45

2 Smámynd: Már Elíson

Þessi pistill þinn, (virðist mér) er mjög naiv og fyrirsjáanlegur. - Heldurðu ekki líka með Manchester United ef forustuauður þinn í móanum mikla gerir það..? - Það sést langar leiðir hvað þú virðist heilaþveginn og sérð ekki að móri hefur þetta ekki vegna fyrri voðaverka. - Þetta er allt runnið undan rifjum mannsins með hefndarþorstann, en Ólafur var maður að meiri að fara ekki ofan í stíuna til hans, en það var það sem móri vildi. - verst fyrir sjálfan þig hversu svekktur þú verður þegar móri lýtur í gras, í síðasta útspili sínu til að ná í "ultima" embættið sitt 69 ára.

Már Elíson, 9.5.2016 kl. 21:52

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þakka þér kærlega fyrir þennan pistil Gunnar. Ég óska þér til hamingju með að fá, þó ekki sé nema einu sinni, að kjósa kónginn. Sjálf hef ég aldrei sett mig úr færi að veita honum brautargengi, þegar tækifærið hefur gefist, enda er hann stærsta persóna sem Ísland hefur alið.

Ragnhildur Kolka, 9.5.2016 kl. 22:13

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvað er þetta Manchester United sem maðurinn er að setja inn í þessa umræðu? Er Manchester United nýr forsetaframbjóðandi?

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 10.5.2016 kl. 01:31

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlit og skrif

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.5.2016 kl. 10:54

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með þér Már Elías.  þeir eru margir sakleysingjarnir eða kjánarnis í þessu landi, eða á maður ef til vill að segja trúarnöttaranir?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.5.2016 kl. 13:09

7 identicon

Það greinilega hjálpar ekki að vera í burtu í 25 ár, flestir menn og konur þróast, greinilega ekki margir hér. Gott ábyggilega að sitja í forinni.....nei fortíðinni.

Í dag tíðkast í samskiptum að sýna merkingu, tilfinngu. En nei, tilheyra þursunum. 

Svo setja menn og konur einn af nýju frambjóðendunum í hásæti en sá hinn sami barðst hatramlega fyrir því koma okkur í EES. Hvað var það ?

Líkleg það versta sem gat komið fyrir almennning, því nú má svína á neytendum og troða ofan í þá hverju sem er, líkt og alvöru Hansakaupmenn hér til forna.

Það vilja þeir sem ráða núna, ráða, stýra og svo líkt og háskólamenn, grilla á kvöldin..... Á meðan má ríkið ekki gera neitt til að koma á móts við fólki, fólkið sem höfundur kýs að kalla skríl.

Hvet hann til að mæta næst á Austuvöll og taka upp fjöldamóðganir, standa upp og kalla alla, menn, konur, jafnvel börn skríl. Er nokkuð viss um að höfundur hefur ekki efni i það.

Svo telja menn sig hér yfir aðra hafna af því að "hitt liðið" er svo ómálefnalegt. Skömm að því hvernig hér menn tjá sig. Skynjunin er engin hér. 

Það hefur Guðni fram yfir ykkyr öll.

Sigfús (IP-tala skráð) 10.5.2016 kl. 15:01

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Var það sakleysi þitt sem skyldi  sjónarmið okkar af Ásthildur til ESB.Þegar Vilmundur heimsótti Vestfirði til að sannfæra þá um nauðsyn Stjórnarskrárbreytinga,allt í þágu Evrópusambandsaðildar. Ég sakna þín.

Helga Kristjánsdóttir, 10.5.2016 kl. 15:02

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það sýnist vera nokkuð sama hvað af orðum og athöfnum þessa Guðna Th. Er rifjað upp, það hljómar og glitrar allt einsog engill hafi sagt og stráð því í eyru og huga  hamfaratrúaðra af hjörð Austurvallarþjóð RUV.

En Davíð sem engin lög braut og engan sveik hann var rekinn og rekstararstjórinn braut þar með stjórnarskránna því að hann setti  erlendan mann sem seðlabanka stjóra.   Áður hafði Davíð skapað okkur fjögra kjörtímabila góðæri, eftir langt ráðleysis vafstur manna sem ekki kunnu að stjórna nema með sértækum eftirá aðgerðum og því ævinlega með allt niður um sig.

Sá sem þar var helst í forustu fyrir ráðleysi á þeirri tíð er mærður enn í dag en Davíð rakkaður niður og  fyrir hvað?  Væri ekki nú ágæt að þvaðurmaskínur rökleysis færu að leita uppi rök fyrir ásökunum á hendur Davíð og fyndu samræmi í máli sinu um Davíð og svo hin ýmsu og skrautlegu átrúnaðargoð sín?    

Hrólfur Þ Hraundal, 10.5.2016 kl. 15:11

10 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Það greinilega hjálpar ekki að vera í burtu í 25 ár, flestir menn og konur þróast, greinilega ekki margir hér. Gott ábyggilega að sitja í forinni.....nei fortíðinni.

Í dag tíðkast í samskiptum að sýna merkingu, tilfinngu. En nei, tilheyra þursunum. 

Svo setja menn og konur einn af nýju frambjóðendunum í hásæti en sá hinn sami barðst hatramlega fyrir því koma okkur í EES. Hvað var það ?

Líkleg það versta sem gat komið fyrir almennning, því nú má svína á neytendum og troða ofan í þá hverju sem er, líkt og alvöru Hansakaupmenn hér til forna.

Það vilja þeir sem ráða núna, ráða, stýra og svo líkt og háskólamenn, grilla á kvöldin..... Á meðan má ríkið ekki gera neitt til að koma á móts við fólki, fólkið sem höfundur kýs að kalla skríl.

Hvet hann til að mæta næst á Austuvöll og taka upp fjöldamóðganir, standa upp og kalla alla, menn, konur, jafnvel börn skríl. Er nokkuð viss um að höfundur hefur ekki efni i það.

Svo telja menn sig hér yfir aðra hafna af því að "hitt liðið" er svo ómálefnalegt. Skömm að því hvernig hér menn tjá sig. Skynjunin er engin hér. 

Það hefur Guðni fram yfir ykkyr öll.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 10.5.2016 kl. 17:30

11 Smámynd: Elle_

Nei ekkert saklaus, Helga mín.  Maður getur verið ansi bláeygður og samt ekki saklaus.  Og kallað hina voða vonda fólkið, eins og fyrir að vilja ekki vera með í að mismuna flóttafólki.

Svo velti ég fyrir mér hverja Sigfús var að tala um þegar hann sagði menn hér telja sig yfir aðra hafna og Guðna hafa skynjun fram ykkur öll.

Elle_, 10.5.2016 kl. 20:11

12 Smámynd: Elle_

"En Davíð sem engin lög braut og engan sveik hann var rekinn og rekstararstjórinn braut þar með stjórnarskránna því að hann setti  erlendan mann sem seðlabanka stjóra - - en Davíð rakkaður niður og fyrir hvað?"

Keep talking Hrólfur.

Elle_, 10.5.2016 kl. 20:17

13 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Fyrirgefðu Gunnar Rögnvaldsson þetta daður.

Sæl Elle á skrýtnum skálmum, Ég er feimin og ekki klári strákurinn mín elskulega Elle, en mér finnst gaman að lesa þig og nú er ég orðin gamall og ný hættur að vinna, en er að mála þakið og það er leiðinlegt svo betri tími gefst vart til að hugsa.

Hrólfur Þ Hraundal, 10.5.2016 kl. 21:45

14 Smámynd: Elle_

En þú veist hvað skrýtnu skálmarnar tákna Hrólfur.  Ekkert glitur þar en æpandi yfirgangur yfir þeim minni.

Elle_, 10.5.2016 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband