Leita í fréttum mbl.is

Staða mála í wonder wunder undra-hagkerfi Kína

Staðan í Kína er að verða sú að þeir geta valið á milli þess að rjúfa gengisbindinguna við Bandaríkjadal og sprengja sig þannig í tætlur, eða hins vegar, að nota sín eigin kjarnorkuvopn á sínar eigin glötuðu "fjárfestingar" í mestmegnis steinsteyptum en mannlausum loftvarnarbyrgjum sem með ánegldum skiltum kallaðar hafa verið "fjár-festingar", svo að hægt sé að geyma þar stærstu rangstæðu skuldasöfnun veraldar. Útkoman yrði sú sama: hvellur og bíen púff - hola niður í jörðina

Gerist þetta ekki, þá mun spennan og styrkleikur komandi hvells aukast, því lengur sem beðið er. En hvað sem því líður, þá er gjaldeyrisforðinn að verða búinn. Fjármagnsflóttinn er geggjaður. Svo geggjaður að þriðjungur seldra fasteigna í vesturhluta Kanada í fyrra voru keyptar upp af Kínverjum á meðan strámannaherdeildir kínverska Kommúnistaflokksins vinna undir felulitum í öðrum löndum. Erfitt er fyrir kanadískt launafólk að keppa við kommúnistagengi alþýðunnar á fasteignamarkaði

Vantrúin á eigin kraftaverk er slík að nota verður restina af þeim hluta forðans sem enn er ekki frosinn í hel og pantsettur sem trygging fyrir vanskilum skuldakerfisins, til að koma sér á laun úr landi með peninga flokksins .. afsakið .. með peninga alþýðunnar. Flokkurinn á nú þegar stærsta hlutann af brunarústum kínverska hlutabréfamarkaðarins og - seðlabanka

Bara frá árinu 2008 til í dagsins dag hefur gervi-bankakerfi Kína gefið út skuldir er nema meiru en samanlagðar eignir alls bankakerfis Bandaríkja Norður-Ameríku. Helmingur þeirrar tölu, eða 7 billjónir dala (e. trillions USD), er talinn vera algerlega rangstæðar og þar með gagnslaus fjáraustur út um gluggana í samfelldri teiknimyndaseríu kommúnistaflokksins af veruleikanum

Allt er gert til að halda elítu landsins á floti örlítið lengur og fólkinu áfram í öskubakka helvítis, þar sem yfirvöld njósna hart um hvern andardrátt þess

Fyrri færsla

Þátttaka í fjárfestingarbanka Asíu var og er vitleysa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þegar ég var síðast í Kína eða Tianjin kannski 4 ár þá voru þeir að byggja stærðarins íbúðar blokkir og svæði eins og allt suðurlands undirlendið var eitt byggingasvæði. Þetta var bara í Tianjin og fólk fékk allt lánað. Ég held að þetta hafi sett strik í reikninginn hjá þeim 

Valdimar Samúelsson, 30.4.2016 kl. 20:16

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar

Nú hefur almenningur ekkert að segja um hvað gert er í þessu landi svo ég geri ráð fyrir að þeir sem þú kallar "þeir" séu 5-ára áætlunargerðarmenn kommúnistaflokksins. 

Allsherjar klikkun flokksins sem hefur ekki hundsvit á neinu nema rassinum á sjálfum sér hefur frá 2011 tekist að hella niður meiri steinsteypu í Kína en Bandaríki Norður-Ameríku notuðu alla 20. öldina. 

Það er ekki hægt að ráðstafa svona miklum fjármunum á svo skömmum tíma af neinu viti og hyggindum. Enginn hagvöxtur er því í landinu þrátt fyrir að helmingur landsframleiðslunnar fari í 5-ára "fjárfestingar-áætlanir" kommúnistaflokksins.

Þegar kommar Íslands fóru í kommaferðir sínar til Sovétríkjanna til að skoða féflettingar kommúnistanna á þerri þjóð, þá voru þeim oftast sýndar sömu glötuðu verksmiðjunar og sömu glötuðu mannvirkin. Þó fengu þeir ekki að skoða steinsteypuna sem fór í skipaskurðinn frá Eystrasalti til Hvítahafs því þar var 300 þúsund líkum af þrælum blandað út í steypuna jafnóðum og þeir drápust við kommúnistaflokksvinnuna. Þetta mannvikri hefur síðan næstum eingöngu verið notað til punts. Í Kína má margfalda svona klikkun á landsvísu með hundrað.

Í Kína þarf ekki að viðhafa slík strangindi því allt landið er eitt allsherjar fjármálagubb, sama hvar stigið er niður fæti. Eitt allsherjar vanvit af stjarnfræðilegri stærðargráðu þar sem fram hefur farið stærsta misnotkun og misheppnun fjármagns í sögu mannkyns. Skuldirnar eru svo geggjaðar að komandi ríkisgjaldþrot þessa lands öreiganna með fækkandi vinnandi höndum undir eilífri örbyrgð íbúanna, mun sjást allsstaðar að sem helvíti á Jörð.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.4.2016 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband