Leita í fréttum mbl.is

ESB-framfarir: fjöldamorðingjar starfa í París en búa í Brussel

Er "betur borgið" í Brussel en í París

Þetta hugtak "betur borgið" er eitt mesta aumingjahugtak sem ég hef kynnst á ævi minni. Þegar um einstakling er að ræða er ef til vill hægt að skilja þetta vesæla hugtak. En þegar um sjálfstætt ríki er að ræða þá lýsir hugtakið:

  • tilvistarlegu tómarúmi plebba
  • stefnuleysi plebba
  • tilgangsleysi plebba
  • aumingjaskap plebba

Frönsk yfirvöld segja að um algert skipbrot í öryggismálum frönsku þjóðarinnar sé að ræða. Forsetinn byrjaði því á að leysa niður um Schengen, henda því í ruslið og taka öryggismál landsins í réttkjörnar hendur þjóðarinnar

DDR-vitfirringarsafngripir Samfylkingarinnar og VG skríða því nú heimilislausir um vígvöllinn í leit að "betur borgandi" skattgreiðendum til að halda sér lifandi á - svo að þeim sjálfum sé "betur borgið"

Evrópusambandið er dautt. ESB-Schengen sem tryggir atvinnuöryggi fjöldamorðingja og herveldis glæpamanna, er annað hvort þegar dautt eða deyjandi

Evran er dauð. Hún hefur eins og fyrirsjáanlegt var, drepið ekki bara efnahag svo margra landa, heldur einnig eyðilagt framtíðina fyrir þremur kynslóðum ungs fólks. Hörmungartímabil evru hófst ekki 2001, heldur þegar árið 1993

Sjö evrulík fljóta nú um í grunni grafreitar evrunnar: Grikkland, Portúgal, Finnland, Ítalía, Írland, Kýpur, Frakkland. Eigur þessara látnu landa eru nú á kistubotninum heima í Þýskalandi

Þar á undan, eða frá 1977, hafði ERM-misfóstur sambandsins gert útaf við líf hins efnahagslega veruleika í sambandinu. Það tól þrívíddarlegs sýndarveruleika var notað við skurðaðgerðir á fórnarlömbum evrunnar er brottnám heilabús þeirra fór fram í aðdraganda hennar

Fyrri færsla

Ungar menntaðar sænskar konur yfirgefa Svíþjóð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kjarnyrtur að vanda, Gunnar.

Ragnhildur Kolka, 24.11.2015 kl. 00:29

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur

Á ESB-andláts-listann má svo bæta við hinum svo kallaða "innra markaði". Hann er dauður. Engin jákvæð efnahagsleg áhrif eru af honum. Engin. Bara neikvæð elítuklúbbs áhrif. Á kostnað almennings.

    • Evran er dauð

    • Schengen er dautt

    • Útópían hinn "innri markaður" er dauður

    • Evrópusambandið er dautt

    Þetta er að sumu leyti eins og Reagan sagði um sovétið. Hart að utan en ónýtt að innan. Nema það að Evrópusambandið er bæði ónýtt að utan sem innan. Og verður aldrei hart að utan eins og sést á innflæði sprengiefna inn í það. 

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 24.11.2015 kl. 12:43

    3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

    Var Schengen fyrirbærið etv aðeins blekking?  Hvaða máli skipta landamæri þegar flugskeytin byrja að fljúga?

    Kolbrún Hilmars, 24.11.2015 kl. 16:22

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Gunnar Rögnvaldsson
    Gunnar Rögnvaldsson

    Búseta: Ísland.
    Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
    tilveraniesb hjá mac.com

    Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

    Bloggvinir

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband