Leita í fréttum mbl.is

"Structural reforms": krafa ESB um að allir verði Þjóðverjar

Þjóð-skipulagsbreytingar = "structural reforms" = vertu eins og við

Líklega er þetta hugtak —"structureal reforms"— hið mest notaða fyrirbæri í orðaforða Brusselbáknsins. Í Sovétríkjunum voru skipulagsbreytingar yfirvalda krónískar. Þær tóku engan enda. Þær voru alltaf í gangi. En virkuðu samt aldrei neitt, nema til hins verra

Svona er staðan orðin í Evrópusambandinu. Endalausar skipulagsbreytingar að kröfu elíta Evrópusambands hin síðustu 35 ár áttu alltaf að binda enda á öll vandræði og þjáningar Evrópubúa. Svo var okkur sagt

Vandamálið með þessi "structural reforms" Evrópusambandsins, þ.e.a.s þjóð-skipulagsbreytingar sambandsins; er sjálfur aflvaki þeirra og tilgangur. Aflvakinn er ekki fólkið sjálft. Heldur er það þetta sem ESB-elítan þrífst á. Hún þrífst á því að krefjast sífelldra þjóð-skipulagsbreytinga

Heill vellaunaður bransi hefur myndast í kringum þetta fyrirbæri í Evrópusambandinu. Þetta er ekki ólíkt atvinnubransanum sem á að finna atvinnu sem ekki er til, handa fólki sem enga vinnu hefur. Endalaus námskeið eru haldin á vegum atvinnubransans. Þau snúast um að finna það sem ekki er til og sem aldrei verður til í ESB. Og um að breyta fólki og framkomu þess.

Logið er endalaust til um árangur atvinnubransans. Og endalaust er skattpeningum borgarana hent á bál þessa fyrirbæris sem ekkert leggur til landsframleiðslunnar annað en froðugas. Áratug eftir áratug er atvinnuleysi í Evrópusambandinu eftir sem áður svo hátt, að það jafnast á við 35 ára langt bankahrun. Á meðan þénar atvinnubransinn vel á þessum óförum almennings

Þetta er sjálfur tilgangur Evrópusambandsins í hnotskurn. Að rústa þjóðríkjunum með þjóð-skipulagsbreytingum. Best er að rústa þjóðríkjum með því að murka smá saman lífið úr "þjóðbernsku burðarafli" þess; natal-energy. Koma á krónískum skipulagsbreytingum sem alltaf eru endalaust alveg við það að lækna þetta allt. Þetta var svona í Sovét og þetta er svona í Evrópusambandinu; rétt handan við hornið, alveg að koma. Það þarf bara rétt að breyta þessu og hinu, leggja niður þetta eða hitt og færa það yfir til Brussel; upp á EU-level

Þegar búið er að veikja grunnstólpa þjóðríkjanna það mikið að þau geta ekki lengur stutt við sjálfa frumþróun sína, þá er takmarkinu náð. Númer eitt er því að rústa orkuforða þjóða; rústa hinu meðfædda natal-energy

Here we come. It will never! recover. Mun aldrei ná sér!

Evrópa er ávallt ónýt, því hún hefur einfaldlega aldrei verið til. Það eru aðeins löndin og þjóðirnar í Evrópu sem hafa verið til. En nú eru þær orðnar til einskis, eins og sést

Þessi deila vinstrimanna innan Evrópusambandsins er eins og þegar sum Sovétríki reyndu að losna undan oki Kremlargengisins sem höfðu herinn í vasanum. Í dag hefur ESB bara myntina og seðlabanka landanna í vasanum. Og svo hinn standandi herafla skriffinna ávallt í viðbragðsstöðu, sem ansi oft eru áhrifaríkari en skriðdrekar

Sovét-andófsmenn voru aldrei vel liðnir af Sovét-rétttrúnaðarmönnum. Þeir voru reyndar hataðir af þeim. Þetta er sama ferlið. Nú er Tsipras í Grikklandi svikarinn í augum rétttrúnaðarmanna hins nýja ESB-Evrópusovéts elítanna

Merkilegt hve langt á að ganga í því að "bjarga Evrópu" sem Evrópusambandið segir sjálft að sé ónýt og á hinn meinti "ónýtleiki" álfunnar einmitt að réttlæta sjálfa tilvist Evrópusambandsins í og yfir álfunni

Af hverju segja þeir þá ekki bara að allir ættu að sameinast um þessa ónýtu Evrópu í stað þess að segja að þessi nú þegar ónýta Evrópa falli um koll, detti evran í sundur

Allt sem Evrópa stóð fyrir, hata elítur Evrópusambandsins; kristnina sem byggði álfuna, fjölbreytileika þjóðanna og frelsi manna. Hvaða Evrópu er sambandið að tala um? Um SovétEvrópu þeirra? Hverju á að bjarga?

Já þetta ESB minnir meira og meira á Sovétríkin. Og að sjálfsögðu halda vinstrimenn áfram að deila og berjast innbyrðis eins og alltaf

Fyrri færsla

Innrásin okkar inn í Grikkóslóvakíu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

ESb elítan hefur jú markað stefnuna eftir sínum hugmyndum. Það er ills viti að "aflvakinn er ekki fólkið sjálft" Þ.e. hinn óbreytti þegn. Meðan Esb ræðst af öllu afli gegn kristni,telja áhangendur þeirra að þeir séu trúlausir.Það er örugglega rangt,þeirra guð er Esb og verður máttvana um leið og þeir missa seðlabankann og myntina,gerða af mannahöndum. Okkar guði er treystandi.

Helga Kristjánsdóttir, 5.7.2015 kl. 06:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband