Leita í fréttum mbl.is

"Gutsy" - já svo mikið er víst [u]

 
 
Hugrekki Ísraelsmanna stendur enn óhaggað. En þetta hér að ofan var aldeilis ótrúlegt hugrekki, dirfska og snilld. Já, tær snilld
 
Sagan um skipin í Cherburg er óviðjafnanleg. Hattur ofan - og - ha ha ha ha ha og fliss. Á myndbandinu sjást skipin sigla heim. Hefði de Gaulle enn verið á lífi* þarna um jólin 1969, þá hefði ostaveldi hans sést standandi fastfrosið í andlitslausu höfðinu undir afar litlum potti á hvolfi
 
* Uppfært: Charles de Gaulle var enn á lífi er skip Ísraelsmanna brutust út frá höfninni í Cherburg og út úr lögsögu Frakklands. Hann hafði einungis látið af embætti og þess vegna mátt þola alla þessa harðræðis niðurlægingu í sínu lifanda lífi
 
"Gutsy is not a word one would use to describe Europe’s political class"
 
Styrmir skrifaði um bréf Robert D. Kaplan. En í því bréfi kemur hugtakið "gutsy" fyrir að minnsta kosti tvisvar sinnum. Og Kaplan er meira að segja afar örlátur í garð Evrópusamsærisins gegn frelsinu, því að Kyrrahafsfloti Bandaríkjanna —ofan í að Bandaríkin borga 70 prósent af NATO— hefur einn í 70 ár staðið vörð um frjálsar og öruggar siglingarleiðir fyrir útflutning ESB-landa um heimshöfin
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kæmi mér ekki á óvart að einmitt áræði Ísraelsmanna og vitund þeirra um lísfháskann sem að þeim steðjar, sé grunnurinn að hatri vinstrimanna í þeirra garð. Makráð hugmyndafræði þolir illa að ljósinu sé beint að hugleysi hennar.

Á meðan gyðingar voru fórnarlömb þá var í lagi að aumka sig yfir þá, en fyrir hugleysingjann er óþolandi að þeir skuli nú vera fremri í flestum málum og þora að standa upp fyrir sjálfa sig. 

Ragnhildur Kolka, 10.4.2015 kl. 16:27

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur

Já einmitt. Þú kemst mikið rétt að orði.

Og ofan í þetta sem þú kemur svo vel orðum að, bætist við öll sú hrikalega reiði frá ESB-löndum í garð Ísraelsmanna sem á rætur sínar að rekja til þess að ESB-borgurunum er nú gert og fyrirskipað að leysa upp þjóðríki sín, gefa þau upp á bátinn og deila þeim með óviðkomandi á meðan þjóðríkið Ísrael gerir akkúrat hið öndverða og það sem Hitler þoldi bara alls ekki; þ.e. sjálfstæð fullvalda þjóðríki sem vernda borgara sína gegn villimönnum á borð við hann sjálfan, elítum heimsvelda á borð við ESB og öllu því skítapakki sem vinnur að því að taka þann sjálfsákvörðunarrétt frá þjóðum sem John Stuart Mill benti á að gerði fólk og þjóðir þess frjálsar. Það eina sem dugað hefur í þessum heimi; Fullveldi og sjálfstæði þjóða.

Í ESB er þess vegna hugsað: "hvernig dirfist Ísrael að hugsa sjálfstætt og neita dagskipan og þvaðurdagskrá elíta Evrópusambandsins. Þeir af öllum þjóðum!! Hvernig dirfast þeir!"

Hitler þoldi ekki frjálsar þjóðir og þoldi ekki frjáls lönd. Hans herferð var að útrýma þjóðríkjunum og koma á Imperial State Order. Sama gilti um Sovétríkin. Þetta er dagskrá Evrópusambandsins í dag; að útrýma þjóðríkjunum og þurrka Engilsaxneska sprota frelsisins burt af meginlandi Evrópu. Þurrka fingrafar anglosphere burt af meginlandinu; út með frelsið og sjálfsákvörðunarréttinn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2015 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband