Leita í fréttum mbl.is

Ný fangelsisbygging Evrópusambandsins vígð?

Ólíkt hafast menn að.

Nýjar aðalstöðvar ECB-seðlabanka Evrópusambandsins fyrir 1400 miljónir evra

Mittelpunkt Europas - nýjar aðalstöðvar ECB

"We Have Created a Monster"
- Thomas Piketty um evruna
10. mars 2015

"prisonniers de l’Euro"
(prisoners of the Euro)
- Jacques Sapir um evruna
12. mars 2015

Á meðan musterisriddarar ESB-umboðsleysisins hér heima leita eftir vernd í aðalstöðvum umboðsleysisins í Brussel —sem er verndari stjórnmálamanna gegn kjósendum í löndum Evrópusambandsins— þá hefur seðlabanki þeirrar ófreskju (e. monster) sem nú er að brenna Evrópu af í fullveldis kjarnakljúf evrunnar, laumulega flutt inn í nýjar aðalstöðvar bankans í Frankfurt, fyrir smá 200 miljarða, sem umboðslaust svarar til byggingu rúmlega tveggja Kárahnjúkavirkjana. Þessar nýju aðalsstöðvar voru vígðar í dag (væntanlega með evruskvettum). Þar inni íklæðast menn snjóþrúgum til að geta lætt sér út á peningagólf evrunnar sem hangir yfir kjallarakvikindum ESB-landa, er kjósendur nefnast

Og á meðan fer hæsta Jeroen Dijsselbloem fjall Hollands fram á að fjármagnshöftum verið skellt á Grikkland svo að björgunareyðilegging ríkis grísku borgaranna sletti ekki blóði á hið nýbyggða altari evrunnar í Mittelpunkt Europas í Frankfurt. Já, eftir 32 ára ESB-aðildarbjörgun hefur Grikkland náð þetta langt

Fari svo að Grikkland muni hrökklast úr evru, þá mun TARGET2 súgþurrkast það mikið, að ECB verður þá eiginfjárhagslega gjaldþrota og nýtt eiginfé þarf að sækja til handa bankanum í gegnum þjóðþing allra eftirlifandi 27 ríkja Evrópusambandsins. Hætt er við að margir núlifandi stjórnmálamenn hinna eftirlifandi ESB-landa kjósi frekar fjallgönguna upp í arnarborg Berchtesgaden, því að í dag er ekki 1999. Mikil reynsla er nú komin á evruna og er hún er vægt sagt hörmung á stóriðnaðarskala.

Þetta komandi þjóðargjaldþrot Grikklands, sem verður það stærsta í mannkynsögunni, mun því kalla á stórherta og stóraukna Brusselvernd til handa stjórnmálamönnum gegn kjósendum landanna. Því annars mun fjallið bíða þeirra. En þar er útsýnið fyrir Evrópu þó óneitanlega og freistandi gott, samkvæmt þekktri hefð. Í hverju skyldi þessi aukna og herta komandi vernd gegn kjósendum í þetta skiptið felast?

Og á meðan eru Frakkar farnir að íhuga Frexit, sem er nýyrði yfir þau grísku örlög sem menn eru farnir að gera sér grein fyrir að bíði Frakklands í evrufangelsinu, sem Jacques Sapir lýsir hér að ofan

Opnunarræðan var að venju stórkostleg:

"The new ECB headquarters are a symbol of the best of what Europe can achieve.."

Og hér eru myndir frá þessari opnun hinna nýju aðalstöðva ECB-seðlabanka Evrópusambandsins í dag. Í gær var hins vegar þýski bankinn Dusseldorfer Hypothekenbank þjóðnýttur af tillitssemi við húsnæðislánapappíra bankans sem liggja sem veð-tryggingar í hirslum þess seðlabanka sem vígði sínar nýju aðalstöðvar í dag. Ekki beint fordæmislega góð frétt til alþjóðlegrar aðspurnar eftirspurnar. Þið vitið; "covered bonds" Hvað næst?

Austurvellingar! - af hverju eruð þið ekki þarna? - að henda matvælum í þennan umboðslausa seðlabanka, ég spyr. Kunnið þið ekki þýsku? Mikið hlýtur þetta að enda rosalega vel

Mótmæli við ECB-seðlabanka Evrópusambandsins 18 mars 2015

Evran er Skjaldborg gegn kreppunni, Barroso í ræðu febrúar 2009

 

Fyrri færsla

Dear Edgars, Dear Commissioner Hahn,


mbl.is Óeirðir í Frankfurt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Það væri nú ekki amalegt að geyma alla framsjalla krimmana þarna, eða hvað finnst þér??? Allir á sama stað, þannig að við vissum fyrir víst hvar þeir væru, allir sem einn!!!

Jónas Ómar Snorrason, 18.3.2015 kl. 20:25

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Grikkirnir fengu björgunarvesti úr gulli.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.3.2015 kl. 22:20

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Er það gull ekki glatað Jón Steinar?

Jónas Ómar Snorrason, 19.3.2015 kl. 01:06

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jú það sökk í evrufenið með Grikkjum. 

Jón Steinar Ragnarsson, 19.3.2015 kl. 04:26

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

http://youtu.be/C8xAXJx9WJ8

Her er þetta skýr með teskeið af Bloomberg, fyrir ykkur Já-ísland sveinana.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.3.2015 kl. 04:56

6 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Frekar hallast ég að því Jón, að einhverjir framsjalla grikkir hafi tekið það með sér t.d. til London, nú eða Tortola. Það er ekki hægt að kenna endalaust Evruni um, sérstaklega varðandi Grikkland, sem skuldar vissulega mikið, en þú veist alveg um vaxtamuninn á erlendu lánum Grikklands, borið saman við Ísland. Hefðum við sömu vaxtakjör og þeir, þá væru vaxtargreiðslur íslendinga uþb 40 miljörðum minni á ári. Annars á fólk ekkert að vera að velta sér upp úr slíkum smámunum

Jónas Ómar Snorrason, 19.3.2015 kl. 09:36

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú vilt kannski helst að við búum við verðhjöðnun eins og liggur fyrir hjá átta bandalagsþjóðum nú? Þá þarftu borga fyrir að eiga pening í banka og bankar að borga með lánunum sinum.

Vextir eru stjórntæki til varnar þenslu. Þú vilt kannski hleypa þessu í full blown fyllerí hér a la 2007?

Hér er allt á uppleið á meðan allt er á fótskriðu fjandans til í evrópusambandinu.

Horfðu á myndbandið frá Bloomberg hér að ofan og reymdu að skilja hvernig þessi hagfræði virkar.

Það er ekki síst sök þeirra sem toku lán langt umfram efni hér og trúðu því að andvirði þess sem þeir fengu lán fyrir myndi bara hækka. Það folk situr í súpunni, en huggun er þó að megnið af þeim glopum voru beilaðir út í stað þess að beila bankana út.

Værum við með Evru værum við á svipuðum stað og Grikkir, hafðu það hugfast. Krónan var lífgjafi okkar.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.3.2015 kl. 10:34

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Spurðu svo sjálfan þig að því hverjir það voru sem seldu kröfur á hrakvirði til hrægammasjóðanna og gáfu þeim svo skotleyfi á almenning í innheimtu krafnanna. 

Þakkaðu fyrir að það eru kenn við völd sem eru að vefja ofan af kluðri skjaldborgarinnar.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.3.2015 kl. 10:40

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur

Það hlýtur að teljast einstætt í sögunni að þyrlur verði í framtíðinni eina inngönguleiðin inn í þetta musteri umboðsleysisins yfir Evrópu. Speer hannaði einnig svona handa herr Hitler á sínum tíma og átti það eins og venjulega að heita "Mittelpunkt Europas" - en hins vegar byggt í Berlín. Herför nasista gegn Evrópu gekk einnig út á að tortíma þjóðríkjunum sem stofnun (the Nation-States) eins og einnig er tilgangurinn með stofnun Evrópusambandsins.

Þýskir fjölmiðlar segja réttilega að ástandið fyrir utan hinar nýju aðalstöðvar ECB endurspegli þá staðreynd að lýðræðisstjórnun (democratic governance & democratic control) sé horfin úr höndum fólksins sem byggir lönd Evrópu. Lýðræðislegir stjórnarhættir eru því að hverfa og það hefur í för með sér missir lýðræðislegrar stjórnunar. Hvert mannsbarn hefði átt að vita að verkefni eins og ESB myndi enda þannig. Evrópusambandið er fyrst og fremst elítu-verkefni.

Þessi stjórnunar-missir undir lýðræði sem er hverfandi, mun enda sem borgarastyrjöld. Þá mun hinu pólitíska litrófi verða stillt upp við vegg þar sem bent verður með höndum og spurt verður með nafnakalli; "varst þú með í þessu?". Þeir sem þá svara "já", þeir munu verða....., já, þið vitið hvað. Sagan kennir okkur það.

Þetta getur bara endað á einn veg.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.3.2015 kl. 10:41

10 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Ekki trúi ég því Jón, að þú viljir algerlega horfa fram hjá ástandinu, sem var á þessum tíma. Gefur okkur lítið, að vera vitrir eftirá, en jafnvel svo, og hversu vitrir sem við viljum vera, þá er staðreyndin sú, Ísland átti ekki evru með gati(ætlaði að segja krónu, en það vill hana engin). Ég er á því að margt hefði getað betur farið, stjórnin stóð í allt of mörgum verkefnum til viðbótar við þann rosalega vanda sem hún var að glíma við eftir hrun. + að hafa yfir höfuð sér einhverja ógeðslegusu og óbilgjörnustu stjórnarandstöðu lýðveldistímans. Allt gott í dag segjir þú, en hver lagði grunnin að því? Því skaltu spyrja þig vandlega að. Eins skaltu spyrja þig, hvort ástandið sé eins gott og þú ýmindar þér.

Jónas Ómar Snorrason, 19.3.2015 kl. 13:40

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er raunsær fyrilestur evrókratans og federalistans Francois Heisbourg. Hollt fyrir Evrópusinna að horfa á jafnt sem okkur andstæðingana. Kannski við ættum að fá hann hingað til að tala yfir hausamótunum á fólki og draga þurrka trúarvímuna af mönnum.

http://youtu.be/RV_r7qVcIVA

Jón Steinar Ragnarsson, 21.3.2015 kl. 00:17

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er enginn vöxtur í Evrópusambandinu og hefur ekki verið í 15 ár fyrir utan Þýskaland.

þessi fyrirlestur sem ég vísa á er frá 8. Jan. S.l. Hér er sagan rifjuð upp, núverandi staða greind og framtíðinni velt upp.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.3.2015 kl. 00:21

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er smá viðtal við hann frá 2013 sem súmmerar þetta upp og í raun engin breyting til batnaðar síðan þá, þvert á móti. 

Kannski Egill Helga ætti að heyra í honum.

http://youtu.be/0sql33zi-qE

Jón Steinar Ragnarsson, 21.3.2015 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband