Leita í fréttum mbl.is

Pumpað upp fyrir lögin? [u]

Franskir sósíalistar ætla að efna til “samstöðu” í Frakklandi. Það hyggjast þeir gera með því að útiloka stjórnmálaflokk er nefnist Front-national frá því að vera með í samstöðu þeirra um Frakkland. Þessi stjórnmálaflokkur, Front-national, mælist á tíðum sem stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Þetta er hreint frábært, ekki satt? Samstaða sósíalista um sundrað sósíalistískt samfélag þeirra. Þetta getur varla endað nema á einn veg. Er það?

L'Union sacrée fait pschhhht

"It is inconsistent, to put it mildly, to confront the FN at the ballot box as a legitimate political party while at the same time declaring it outside the national community for the purpose of national mourning. And especially when that mourning is ostensibly in the name of freedom of speech."

Uppfært: heimildir í París segja að sósíalistar og Front-national hafi nú talað saman og að F-n sé heimil þátttaka í "samstöðunni" um landið sitt Frakkland, sunnudaginn 11. janúar 2015

Athyglisvert er að forseti hins fimmta Franska samstöðulýðveldis sósíalista, François Gérard Georges Nicolas Hollande, þorir ekki að nefna morðingja óbreyttra borgara landsins sínum réttum nöfnum. Hann kallar þá einungis “andstæðinga frelsisins” og “huldumenn” eða “afbökunarista” (e. obscurantism). Hvernig skyldu þá róttækir hryðjuverkandi harðlínu Múhameðstrúarmenn í Frakklandi líta út? Varla eins og róttækir ritöfundar á skoðunarferð um sviðsett sovéskt samyrkjubú? Ekki voru þeir beint fögur sjón

The Unspeakable Enemy Attacking France

So when Mr. Hollande addressed the nation Wednesday night after an Islamist fundamentalist attack on Charlie Hebdo, a newspaper that often satirized Islam, leaving 12 dead and shaking the country, the president steered clear of confronting basic reality. Instead, he described the newspaper as having been for years in the sights of “obscurantism.” | WSJ

En hann kallar þó morðin á Gyðingum sínum réttu nöfnum, því hann veit að Gyðingar eru aðeins 0,2 prósent af mannkyninu á meðan Múslímar eru 23 prósent af af því; þ.e. samtals 1750 milljón manns

Ekki yrði ég hissa á því ef sérsveitir frá þjóðríki Gyðinga, Ísrael, myndu lífsnauðsynlega þurfa að koma Gyðingum í Frakklandi til bjargar, áður en um langt líður, eða áður en það verður of algengt að Gyðingar séu myrtir í matvörubúðum í landinu. Sumir búa við það að þurfa að kaupa í matinn. Eiga þeir að þurfa að dulbúast - og þá sem hver?

En þetta myndi örugglega lagast ef Frakkland gengi í Evrópusambandið og tæki sér til varnar upp evru. Hún dugar á móti þessu, er það ekki? Hún sem á að svæla Putín burt frá ríkjum við Eystrasalt og sekkur kafbátum í sænska skerjagarðinum, hindrar kosningar í mörgum ríkjum og sem fær herra lygara Juncker forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til að þykjast ætla að lána þær út til Úkraínu

En þetta er kannski allt saman ofur eðlilegt, því þegar franska lögreglan, með aðstoð sjálfs herafla landsins, hefur ekki burði til að gæta helsta yfirlýsta skotmarks innan landamæra Frakklands! sökum álags og vanefna, þá er kannski ekki nema von að forsetinn vilji ekki stinga nefi sínu inn í hinn lokaða heim 5-7 milljón Múslima í landinu. Sú nefstunga ein og sér gæti átt á hættu að yfirbuga lögreglulið landsins á innan við sekúndu. Þau eru svona svakalega skemmtileg þessi svo kölluðu fjölþjóðasamfélög. Þau eru í reynd fjölþjóða-púðurtunnufélög. Svo spennandi, svo spennandi þessi “fjölmenningarsamfélög” sem eru meðal annars grundvallarkenningin úr þrotabúi Kants um Evrópusambandið og hinn meinta tilvistargrundvöll þess, sem einnig er gjald- og ráðþrota

Hugsa ég að frá og með nú munu skopmyndir af vissum spámanni er Múhameð nefnist, birtast æ sjaldnar í hinum vestræna heimi, sem sumir segja að búi við það sem kallast tjáningar- og málfrelsi, en sem samt í Evrópu er fryst fast undir þagnarbindindi ESB-fundamentalisma, sem elíta Evrópusambandsins stendur Stalínistískt fyrir. Og sem á fimmta áratug hangir sem ógnvekjandi en ósnertanleg ókjörin abstraktion yfir hausamótum borgaranna. Það er sennilega þannig sem hryðjuverk af því tagi sem fundu sér stað í Parísarborg, virka smám saman með honum tímanum blessuðum, sem heima á í tíma-rúmi sínu hjá þögguninni. Þar eru þau vinir og sofa saman

Hverjir halda menn svo að verði viðsemjendur sósíalista í bæjarstjórnar- og landspólitík í Frakklandi í framtíðinni? Front-national? eða Voldemort hans Hollande?

Þökk sé hryðjuverkum —smám saman, skref fyrir skref— mun spámaðurinn sem forsetinn þorir ekki að nefna á nafn, verða tjakkaður upp og yfir Lögin, ekki bara í fimmta umbylta Franska lýðveldinu, heldur einnig annarsstaðar. Ekki tjakk-pumpaður upp og yfir sjálf markmið og anda lagatexta löggjafarvaldsins. Nei, heldur í praxís tjakk-pumpaður upp yfir Lögin með hinum óskrifuðu þegi-þú-af-okkur-geltur-kjósandi lögunum. Til þessa nota menn pumpur. Þöggunin mun ráða ríkjum. Hún ræður í ESB-ríkjum. Það gerir hún. Kjósir þú ekki rétt væni minn, þá hegg ég til dæmis myntina og lýðræði af þér, eða neita þér um það sem þú svo einfeldningslega trúðir okkur fyrir. Við munum ekki spyrja þig að neinu sem máli skiptir, nema að þú segir já. Þá og aðeins þá, spyrjum við þig. Og vertu ekki að bögga okkur kjósandi, því við erum önnum kafin við að reisa sjáfum okkur pólitíska minnisvarða á þinn kostnað. Við erum elítan!

Krækja

Overburdened French Dropped Surveillance of Brothers (WSJ)

Fyrri færsla

France will leave in 2017 if . . 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband