Leita í fréttum mbl.is

Hangandinn yfir landinu verði næst skotinn niður

 

Evrópumálin hefðu hangið svo lengi yfir stjórnmálunum - Morgunblaðið 6 nóvember 2013

Morgunblaðið 6. nóvember 2013: 

Orðrétt segir Steingrímur um þá ákvörðun að setja ESB-aðild á verkefnalista ríkisstjórnarinnar: "Mín hugsun var sú að loks væri þá hægt að fá einhvern botn í þetta mál sem hafði hangið svo lengi yfir okkur. Við skyldum bara láta á þetta reyna." 

 

Ofreynsla Íslendinga

Íslendingar hafa lengi mátt þola margt slæmt hangandi yfir landinu. Eftir 800 ára kúgun hékk til dæmis svartur kommúnisminn sem martröð yfir landinu frá því að morðótt slátrunarfélag kommúnista rændi völdum í Rússlandi og hóf þar slátrun, þjóðarmorð, úthreinsanir, þrælkun og kúgun á tugum milljóna manna í byrjun síðustu aldar. Hélt sú glæpastarfsemi velli í rúm sjötíu ár

Pylsugerðarmenn kommúnismans hér á landi létu sér frá byrjun ekki bara nægja að "hanga yfir landinu", með það lokatakmark sitt að flá land og þjóðríki okkar Íslendinga út úr heiminum og yfir til Sovétsins

Nei. Þeir bókstaflega lentu hér í löngum röðum fallhífaðir af eitri eftir heimkomuna úr hryðjuverka- og byltingarskólunum í Moskvu. Réðust þeir svo strax frá lendingu af —og með því sem næst geðbiluðu ofbeldi og öskurfrekju— á handhafa laga og réttar, sem gæta átti barnsins Íslands. Sem þá var örþreytt og aðframkomið eftir 800 ára köfnunarkúgun og rétt í þann mund að ná því afreki að taka fyrstu hreinu frjálsu andartökin sem fullvalda ríki í þinglýstu og langþráðu húsi þjóðarinnar: Íslandi, sem nú er fullvalda og sjálfstætt þjóðríki okkar Íslendinga allra

Þessi plága hékk síðan sem sovéskt færiband yfir landinu áratugum saman og dældi niður skítnum yfir hús þjóðarinnar. En eftir hrun kommúnismans í aðalstöðvum morðingjanna í Sovét, breyttust svo þessi mestu umhverfissvín veraldarsögunnar yfir í grænt kommaglingur erlendis og sem nú —enn og aftur— hótar því að flá húsið ofan af íslensku þjóðinni, með því að brenna það af yfir til Evrópusovétsambandsins

Þetta, já þetta!, þarf miklu frekar og helst í eitt skiptið fyrir öll, að skjóta niður og jarða. Því óþolandi er að hafa þetta galna gen kommúnismans hangandi yfir þjóðríki Íslendinga, sem er heilög stofnun þjóðarinnar

Ystu áhangendur á fæðingargölluðum vinstri væng stjórnmála á Íslandi, eins og hér að ofan, verða að finna sér ný viðmið sem gerir þeim sjálfskipað skylt og jafnframt kleift, að starfa og vinna landinu gagn og gott innan þolmarka hins heilaga þjóðríkis okkar Íslendinga. Og Evrópusambandið er frá upphafi stofnað þjóðríkinu til höfuðs. Það er einungis enn eitt banvæna genið að austan og rúmast alls ekki innan þolmarka íslenska Lýðveldisins

Við verðum einnig ávallt að muna það, að undir endalausum skipulagsbreytingum (e. structural reforms) Sovét-kommúnismans, varð morðræðið undir kúguðum leyndarhjúp og massífu ógagnsæi lygavéla kommúnismans, gagnvart alþjóðlegum almenningi svo stál-forhertur, að það sló jafnvel um stundarsakir glýju á sjónhimnur fyrst Trumans, og áratug síðar, Macmillans í vestri

Opnaði sú glýja gagnvart blóðfljótandi alræði kommúnismans í Sovétríkjunum upp fyrir færibönd lyga þeirra niður í það, sem nú eru verkalýðsveldin erlendis. Hafa því að þrotum komin lönd Evrópusambandsins, undir endalausum skipulagsbreytingum og örbyrgðar verkalýðsvelda þeirra í ESB, fyrir gullpeninga hafið brunaútsölu á ríkisborgararéttindum til handa vaxandi kommúnistaveldi Kína í Evrópusambandinu

Samkvæmt rannsóknum Global Financial Integrity stofnunarinnar í Washington í Bandaríkjunum, hurfu ólöglega fjármunir sem svara til andvirðis 3,79 billjóna Bandaríkjadala ólöglega út úr hagkerfi Kína og út í hinn stóra heim, á árunum frá 2000 til 2011 (e. 3,79 trillion US-Dollars). Þessi upphæð einungis ólögmætra útsmyglaðra fjármuna frá Kína, nægja til að kaupa alla landsframleiðslu Íslendinga 315 sinnum. Í Kína situr enn við hrifsuð völd klíka einræðisherra kommúnismans í einu spilltasta stjórnarfari veraldar

Fyrri færsla

Sambýlið við verðlaunaða vetnissprengju Nóbels


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Stál-forhertur, já.  Lætur mann hugsa um Steingrím nokkurn.  Stál-forhertur vafalaust, eins og samveldisstýra hans, en ekki með neinn vilja til að skjóta niður það al-forhertasta.  Við getum ekki haft þetta hangandi yfir okkur lengur er eitt aumasta píp sem getur komið út úr nokkrum manni.

Elle_, 7.11.2013 kl. 00:26

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

:-( :-) hUh! Ég hélt að hann væri ekki svona vitlaus. Svo er hann að meta aðgerðir forseta,þegar forsetinn sér að þau Jóhanna voru umboðslaus.

Helga Kristjánsdóttir, 7.11.2013 kl. 06:25

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið

Ríki - og alveg sérstaklega smá ríki - þola ekki að igno•min•y (opinber skömm) brjótist til valda undir áföllum og taki sér stöðu við hásæti æðstu lýðræðisstofnunar landsins til þess eins að fremja þar þá igno•min•y sem umsókn Lýðveldisins inn í Evrópusambandið er. Hún er ekkert annað en igno•min•y. Þetta þolir Ísland ekki sem lýðræðisríki. Þetta verður að afmá. AF•MÁ!

Vegna þessara skammargjörða og svika stendur Lýðveldi Íslendinga nú fast með höfuð sitt inni í póstkassa Evrópusambandsins. Þessari stöðu bernsks lýðveldis okkar var komið á með því að misnota æðstu stofnun Íslendinga. Þetta er óþolandi 

Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt. Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin 

Umsóknina verður umsvifalaust að afturkalla og draga alveg til baka. Óhæfuna og svikin gagnvart þjóðinni verður algerlega að afmáð og þau verða að hætta. Umsóknina á því umsvifalaust að draga til baka, fella niður og afmá

Þeirri Íhlutunarstofu sendisveinaveldis Evrópusambandsins á Íslandi sem hér blandar sér í bæði stjórnmálaumræðu sem og líf íslensku þjóðarinnar og sem heldur uppi starfsemi hér á landi, verður að loka tafarlaust. Evrópusambandinu og skósveinum þess verði gert að loka áróðursskrifstofu sambandsins hér á Íslandi strax

Og önnur umsókn inn í Evrópusambandið má aldrei aftur — ég endurtek; má aldrei aftur — koma á dagskrá hins háa Alþingis Íslendinga fyrr en að einlægur 75 prósenta meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi í samfellt 10 ár sýnt að hún af fullri einlægni og heiðarleika vilji sækja um að Lýðveldið Ísland verði innlimað inn í Evrópusambandið og þar með lagt niður í skrefum. Þetta mál er þess eðlis

Sterk rök og hjartahreinar tilfinningar íslenskrar þjóðar ættu hins vegar að krefjast allt að 800 ára umhugsunartíma, eins og síðast. Í faðmi þeirra sterku raka og hreinu tilfinninga fæddist til dæmis stofnun Sjálfstæðisflokksins sem stjórnmálaafls. Hér mega engin þjóðsvik slá rótum og festa sig í sessi, svo lengi sem við drögum andann.

Afmá verður igno•min•y svikahrappa af Lýðveldinu

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2013 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband