Leita í fréttum mbl.is

Ignominy: Þá opinberu skömm verður að afmá af Lýðveldinu

Ríki - og alveg sérstaklega smá ríki - þola ekki að igno•min•y (opinber skömm) brjótist til valda undir áföllum og taki sér stöðu við hásæti æðstu lýðræðisstofnunar landsins til þess eins að fremja þar þá igno•min•y sem umsókn Lýðveldisins inn í Evrópusambandið er. Hún er ekkert annað en igno•min•y. Þetta þolir Ísland ekki sem lýðræðisríki. Þetta verður að afmá. AF•MÁ!

Vegna þessara skammargjörða og svika stendur Lýðveldi Íslendinga nú fast með höfuð sitt inni í póstkassa Evrópusambandsins. Þessari stöðu bernsks lýðveldis okkar var komið á með því að misnota æðstu stofnun Íslendinga. Þetta er óþolandi

Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt. Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin

Umsóknina verður umsvifalaust að afturkalla og draga alveg til baka. Óhæfuna og svikin gagnvart þjóðinni verður algerlega að afmáð og þau verða að hætta. Umsóknina á því umsvifalaust að draga til baka, fella niður og afmá

Þeirri Íhlutunarstofu sendisveinaveldis Evrópusambandsins á Íslandi sem hér blandar sér í bæði stjórnmálaumræðu sem og líf íslensku þjóðarinnar og sem heldur uppi starfsemi hér á landi, verður að loka tafarlaust. Evrópusambandinu og skósveinum þess verði gert að loka áróðursskrifstofu sambandsins hér á Íslandi strax
 
Og önnur umsókn inn í Evrópusambandið má aldrei aftur — ég endurtek; má aldrei aftur — koma á dagskrá hins háa Alþingis Íslendinga fyrr en að einlægur 75 prósenta meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi í samfellt 10 ár sýnt að hún af fullri einlægni og heiðarleika vilji sækja um að Lýðveldið Ísland verði innlimað inn í Evrópusambandið og þar með lagt niður. Þetta mál er þess eðlis
 
Sterk rök og hjartahreinar tilfinningar íslenskrar þjóðar ættu hins vegar að krefjast allt að 800 ára umhugsunartíma, eins og síðast. Í faðmi þeirra sterku raka og hreinu tilfinninga fæddist til dæmis stofnun Sjálfstæðisflokksins sem stjórnmálaafls. Hér mega engin þjóðsvik slá rótum og festa sig í sessi, svo lengi sem við drögum andann.

Afmá verður igno•min•y svikahrappa af Lýðveldinu
 
Fyrri færsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit ekki alveg í hvaða einu átt þú lítur, en þú ættir að snua þér við til að sjá hina alvöru skömm lýðveldisins.

Flowell (IP-tala skráð) 22.7.2013 kl. 21:54

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Flowell

Hér er litið til þeirrar skammar sem um er getið í bloggfærslunni;

"Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt. Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin"

Þessa skömm verður að afmá. Æðsta stofnun Íslendinga þolir ekki svona skammbyssuaðferðir á heilögustu málefnum Lýðveldisins

Flowell; Hér á bloggsíðu minni hef ég alltaf svarað þér málefnalega og ýtarlega. Og oft hef ég svarað þér. Hafir þú mál eða málefni að berjast fyrir Flowell, þá verður þú fyrst að taka hettuna af höfði þér og koma til dyranna sem sá sem þú ert og hætta rykmekkjaföndri og sandbryddingum um okkar hjartans mál

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.7.2013 kl. 22:22

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég held þú ættir, Gunnar, að hafa samband við hann Loft okkar, ekki seinna en í fyrramálið. Sá baráttubróðir okkar hefur sitthvað að segja þér.

-----> Loftur Altice Þorsteinsson

Jón Valur Jensson, 23.7.2013 kl. 02:24

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Netfangið átti að vera með, hér er það: hlutverk@simnet.is

Jón Valur Jensson, 23.7.2013 kl. 02:26

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Áfram drengir,ógrynni fólks býður eftir að frelsast frá óhæfuöflunum.

Helga Kristjánsdóttir, 24.7.2013 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband