Leita í fréttum mbl.is

Neytendur hafna fjármálaeftirlitinu

Þetta getur alveg staðið þarna sem fyrirsögn, fyrst höfuð Fjármálaeftirlitsins segir standandi í ræðu að neytendur hafi "hafnað" verðtryggingu. Á þetta að vera fyndið? Og svo þetta þvaður um svo kallaðan "stöðugleika" og "örmynt". Á þetta virkilega að vera svona á fullum launum hjá íslenskum skattgreiðendum og viðskiptavinum bankanna? Eða spila ESB-styrkirnir þarna inn í málflutninginn?

Síðan hvenær á Fjármálaeftirlitið að fást við stjórnmál eða jafnvel pólitíska stefnu? Hvað kemur mynt Lýðveldis Íslendinga Fjármálaeftirlitinu við? Endurskoðendur fást við virki sitt á bak við luktar dyr, stunda þar endurskoðun sína og telja þar þau verðmæti eða töp sem aðrir búa til. Það sama gildir um eftirlit með fjármálastofnunum. Fjármálaeftirlitið er ríkisstofnun sem lýtur "sérstakri stjórn". Stofnunin heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunar(fliss)ráðherra. Er þetta á hreinu?
 
Íslenska krónan er ekki "örmynt". Hún er mynt fullvalda ríkis á átjándu stærstu eyju veraldar. Hún er nákvæmlega af þeirri stærð sem hún á að vera. Hvorki of lítil né of stór. Og hún er myntin okkar

Fyrst höfuð Fjármálaeftirlitsins segir að neytendur hafi "hafnað" verðtryggðum lánum, þá hlýtur almenningur í Evrópusambandinu að getað "hafnað" þeirri "stórmynt" sem er að murka lífið úr löndum þeirra. Þetta hlýtur að vera svona einfalt mál, fyrst höfuð Fjármálaeftirlitsins segir það

Það heimskulegasta sem menn geta gert í lágri verðbólgu er að hafna verðtryggðum lánum, því þau tryggja lántakendum alltaf lægstu mögulega vexti. Þá þurfa lánveitendur ekki að sullast niður við þá hálf vonlausu iðju að giska á hvað framtíðin muni bera af áföllum ofan í lánveitingar þeirra; inn í einmitt óráðna framtíðina. Nema að Fjármálaeftirlitið ætli að bjóða landsmönnum upp á lán inn í fortíðina

Fyrir mér mætti leggja Fjármálaeftirlitið alveg niður, því það er og verður alltaf 100 árum á eftir þeim höfðum sem ráðast til starfa í bönkum sem eru ekki reknir af stjórnmálamönnum, eins og til dæmis þeim í Evrópusambandinu þar sem Landesbankakerfi stjórnmálamanna Þýskalands liggur sem brunarúst eftir þá. Hægt er að nefna mýmörg dæmi um brunarústir stjórnmála- og embættismanna í bankarekstri

Bankarnir verða alltaf höfðinu á undan Fjármálaeftirlitinu því þeir eru einfaldlega betur gefnir, betur borgaðir og snúa andlitlum sínum fram, en ekki aftur eins og höfuðstöðvar Fjármálaeftirlitsins verða og eiga sannarlega að gera, lögum samkvæmt. Þetta er tvennt ólíkt að fást við. Nema að menn vilji gera sjálfa framtíðina ó-mögulega
 
Fyrri færsla
 
 

mbl.is Erfitt að viðhalda stöðuleika með krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Supervision er næsti bær við administration in financial terms.

Denmark retained limted control over Icelandic supervision because of the distance and farmers stubornness to pay for their protection.  

Íslenska er ekki góð til skilja erlenda efnhagsmála umræðu.  Eftirlit er ófullnægjandi á öllum fjármála mörkuðu sem eiga að vera Prime, þar er þetta spuring um Supervision.  Sub marked eða secondary market sé ekki stærri en í UK og USA  sem hlutfall af heildar ríkis fjármála veltu.

Júlíus Björnsson, 1.6.2013 kl. 04:27

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hvað fékkast fyrir allar krónur á síðast ári? kallast "value" krónu Á íSLANDSMARKAÐI ÁRI EFTIR.  það er hægt að verðtyggja skiptingu á framtíðar "value"  með lögum.  Value er metið af frjálsum ráðandi markaði : 80% neytenda í meðaltekjum.  reasonable price is the average mean.  Svona hefur aldrei haft merkingu á Íslandi í framkvæmd. Hér er skammtað í askanna, og verðtrygging er byggð á forsjárskyldu lögum húsbænda yfir hjúum.  þetta hentar ekki þegar 80%  íbúa hefur ekki aðgang að sjálfþurtarbúskap. Hús kostar raunvirði húss í viðhald á 50 árum. Þetta viðhald kostar peninga í dag. Kannski ekki í Austur Húnaþingi 1918 þar var byggt úr torfi og grjóti og farið illa með ómaga.  Unga fólkið í dag kann ekki að vaska upp. Uppþvottavél kostar gjaldeyri.  

Júlíus Björnsson, 1.6.2013 kl. 04:49

3 identicon

Þetta blaður í forstjóranum er sennilega til þess að hún komist hjá því að ræða verkefni eftirlitsins og getuleysi þess, bæði fyrr og nú. Svo hefur hún kannski ekki tekið eftir því að Samfylkingin er horfin af valdastólunum. Þar á bæ flokkast allir sem gáfumenn ef þeir tala niður gjaldmiðilinn og upp ESB. Ef maður kann 2-3 setningar sem einhver sagði fyrir 20 árum getur maður haldið uppi samræðum.

Elvar Eyvindsson (IP-tala skráð) 1.6.2013 kl. 07:10

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

"Lífeyrissjóðakerfið er gífurlega stórt

og fer ört stækkandi. Það nemur nú um2.500
milljörðum króna eða 148% af landsframleiðslu."
 
 
 
Arðkröfur Lífeyrisjóðanna 148% af landframleiðslu: 4,9% á hverju ári miða við  söfnun í 30 ár. Hvaðan komu þessar eignir?  Með hvaða eignunum er  þeim viðhaldið? PPP [eignmyndun]  hér á íbúa á hverju ári síðust 30 ár hefur minnkað í samanburði við ODED ríki um 30 %.    Hlutur einstaklinga fjármálgeirans í þjóðarlandsframleiðu heldur áfram að vaxa það er kallað fjöregg þjóðarinnar; hinsvegar eru skuldir heimila áhyggju efni.  Heimilin er fjöregg þjóða og Kauphöll er gullkálfurinn sem asnarnir dansa um. Kauphöll endurspeglar ekki almennt raunvirði að mati Worldbank,mælkvarðinn er það sem selst almennt með söluskatti sem leggst á nýjar "value" eignir  á hverju ári.  Fjöreggið hér hefur minnkað í samanburði.  Ríkið leyfir fjármála aðilum að mergsjúga vsk. aðila og heimilin í landinu.

Júlíus Björnsson, 1.6.2013 kl. 15:36

5 identicon

Maður getur eiginlega ekki beðið eftir að ný kynslóð taki völdin innan opinbera kerfisins, kynslóð sem hefur menntað sig almennilega, hefur brennt sig á Hruninu og er tilbúið til að spila eftir sanngjörnum leikreglum. Allt kerfið okkar í dag er ekki eins og kerfi hjá þróuðu ríki, því miður. Gæði stjórnsýslunnar okkar er eins og hjá nýmarkaðsríki.

Flowell (IP-tala skráð) 1.6.2013 kl. 17:21

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir

Hvað varðar Fjármálaeftirlitið þá er það eftirlitsstofnunum sem stjórnar engu, nema því eftirliti sem það á að inna af hendi. Mikið af því eftirliti mætti flytja inn í sjálfar banka- og fjármálastofnanir landsins, þar sem þær myndu sjálfar annast þetta eftirlit innan síns reksturs og innan sinna vébanda. Það er hægt að byggja eftirlitið inn í rekstur þeirra. Annað er í raun tilgangslaust. Síðan á að leggja niður Fjármálaeftirlitið og flytja brota brot þess yfir til Seðlabankans. 

Hvað varðar hið svo kallaða stjórnsýsl hins opinbera á kostnað skattgreiðenda, þá er það að mörgu leyti mun skilvirkara hér á Íslandi en samskonar stjórn-sýsl er hjá hinu opinbera erlendis.
 
Þegar þú kynnist sannri sveitamennsku erlendis þá mun renna upp fyrir þér hvers vegna stór hluti Evrópu er að fara í hundana. Enginn hefur séð sanna afdalamennsku í verki fyrr en hann hefur séð stjórnsýslu að í verki í kjarnalöndum Evrópusovétsambandsins. 

Norðmenn eru síðna sér á parti því þar er allt bara gert eins dýrt og flókið og hægt er. Þeir hafa misst jarðsambandið fyrir fullt og allt.

Hvernig halda menn að stjórnsýsla Sovétríkjanna hafi verið? Svar; alveg eins og í Evrópusambandinu. Hreinn hengingarsteypuklossi um háls borgarana. Bastarður!
 
Ég kvíði þeim tíma stórlega er nýmenntaðir stjórnsýslufræðingar fara að kaffæra rekstur hins opinbera á Íslandi með sýsli sínu. Það verður ekki gaman. 
 
Kveðjur 
 

Gunnar Rögnvaldsson, 1.6.2013 kl. 17:51

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Rétt er að nefna það her í leiðinni að síðasta ríkisstjórn komma og kommakrata reyndi að gera allt sem í hennar valdi stóð til að flækja, torvelda og láta allt kosta meira er varðar starfsemi hins opinbera.

Þetta tísku-orð "stjórnsýsla" er þegar orðið mörgum sinnum of-selt. Þetta heitir "rekstur hins opinbera". Hann stjórnar þó oftast engu, þ.e.a.s ef hann gengur vel og er hófsamur. Nema að menn vilji kalla það sem stjórnvöld gera fyrir sýsl. Dund & Sýsl á kostnað skattgreiðenda

Gunnar Rögnvaldsson, 1.6.2013 kl. 18:06

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ísland í dag er byggt á heimfærslu regluverks og lagbreytinga , frá öðrum ríkjum síðan um 1918. Bera þýðendum og uppruna ríkjum vitni.

Í nýrri risa heims  sovét blokkarmyndum sem byggir á jöfnun manneldiskostnaðar yfir alla jörðina er Ísland vegna staðsetingar með góða sölumögleika inn á hávriðsauka markaði jarðarninnar.  Lýsa yfir hlutleysi og selja öllum elítum heims án mismunar.  

Taka upp hliðstætt skatt kerfi of USA en það er mjög einfalt fyrir alla einstkaklinga undir 1.000.000 kr. reiðufjár innkomu á mánuði.

Brjóta hér upp eignhaldar og keðjur. Sameina risa í fákeppni sem ekki greiða söluskatt og setja þeim lámörk og hámörk: á loka verð þeirra þjónustu sölu.   Hér fullt af hæfum einstklingum sem réttri menntun og meira reiðfé höndum [núna allt í hingmillfærslu Ríkis, lífeysisjóða og banka  og tryggingafélaga og grunn eigmhaldfélga] geta aukið sértækar sölutekjur [PPP]á hávirðisauka mörkum heimsins. Fleiri stöndugir smásalar [á heimsvísu] skila minni áhættu.   Hér er enginn ástæða til vera með persónuafslátt af velferða sköttum og leggja 14% lífeysriskatta á einstaklinga fyrir vinnutekjur og flytja inn lávirði til manneldis. Fyrirtæki sem gera kröfur um meiri greind, halda frá þeim sem hafa ekki kaupmátt til ílengjast hér.  10 % ríkustu í heimum er markaður 700 milljóna einstaklinga.  Sérstakra einstaklinga sem sækjast ekki í almenna vöru og þjónustu hér.  Líkur sækir líkan heim. Heimskar élitur þær heimsku.   Íslendingar voru ekki lengi að læra að fara í bað fyrir 100 árum almennt.  Þegar seinasti torbærinn lagðist af hér til almennar búsetu. Hófst kofa niðurrifið í S-EU sem Stöndugu ríkin fjármögnðu. Þegar Moll féllu í verði á Vesturlöndum var byggð Kringla í Reykjavík, þegar bréf í almennum lávirðskeðjum féllu erlendis þá kom Bónus fram á Íslandi.

Fyrstir koma fyrstir fá. Hika er sama og tapa, Rök reynslunar eyða áhættu og almennum skoðum.  Áfram haldandi stjórnsýslu forsendu grunnur hér tryggir áframhaldandi tap gagnvart öðrum ríkjum heimsins. Þetta vita núverandi erlendir eignarhalds og líka körfuhafar þrotabúa rekstrar sem er erlendis non Profitt á öllum 30 árum til tryggja greiðslu geti almennings: Þar sem fæði, lyf og orka er ekki almennt skort vandmál.  Auka raunvirði almennings => skilar hlutfallslegga fámennum hópi hæfari stjórnenda  í framhaldi lýðræðis í einföldum grunni samfélaga.
Keðjur

Júlíus Björnsson, 1.6.2013 kl. 18:44

9 identicon

Gunnar, rafræn stjórnsýsla hér jafnast á við það sem gerist í Afríku. Þannig er haldið aftur af upplýsingaflæði svo ekki sjáist hversu vanhæft kerfið er, þó það sé ansi augljóst ef maður fylgist daglega með fréttum. Hér er góð grein um (ó)stjórnsýsluna okkar, http://www.visir.is/endurnyja-tharf-stjornsysluna/article/2013701109995

Hvað varðar að bankar eigi að sjá um eftirlitið sjálfir sé ég ekki hvernig það gengur upp þegar fjármálastofnanir eru 'too big to fail' og/eða alltof tengdar öðrum fjármálastofnunum í hagkerfinu. Freistnivandinn verður of mikill.

Flowell (IP-tala skráð) 4.6.2013 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband