Leita í fréttum mbl.is

Fingurfimi verður að afmá gjörðir fingralangra

Visst fum og nokkurt fát er komið á nýja ríkisstjórn, nú þegar umsókn Íslands niður í Evrópusambandið bíður þess að hönd þjóðarinnar nái út til fingurgóma ríkisstjórnarinnar til að slökkva á umsókninni um aldur og ævi og ráðast því næst í smíði á lagabandormi sem afmá mun ólöglega aðlögun á Lýðveldi Íslendinga niður til Evrópusambandsins

Nú er eins og að nokkurt hik sé komið á þá fingur sem í ríkisstjórn eru fyrir hönd þjóðarinnar. Viss skjálfti virðist kominn í fingurfimi þá sem afmá á gjörðir fingralangra. Hikað er við að slökkva, með þeim rökum að eitthvað og kannski meira hangi á umsókninni en smásjáin umtalaða til að kíkja niður á pakkið í Brussel, var sögð vera. Að það séu jafnvel einhverjir styrkir í gangi hér og þar og því sé illframkvæmanlegt að þrýsta immed á hnappinn

Sem sagt; ekki þarf annað en að þefa niður til Evrópusambandsins til að álíta þjóðina á einhvern hátt bundna af þefinu og að erfitt sé því að bakka út úr hinum svarta mekki þokulúðrasveitar Evrópusambandsins. Erfitt að bakka, eins og venjulega, því þá á alltaf eitthvað visst að hrynja

Hvernig halda menn þá að það yrði fyrir smáríki að segja sig úr Evrópusambandinu ef mönnum í ríkisstjórn lands sem ekki einu sinni er í Evrópusambandinu hristist höndin við það eitt að sturta niður heima hjá sjálfum sér, óskilorðsbundið

Halda jafnframt sumir menn hér og þar að Bretland, sem er eitt af stærstu ríkjum Evrópusambandsins, geti sagt sig úr Evrópusambandinu eins og að drekka vatn. Það er ekki hægt. Sú úrsögn yrði jafnvel enn erfiðari og torsóttari en að fá sáttmálum sambandsins breytt sökum skyndilegrar endurupprisu Adolfs Hitlers heima hjá sér, eða hvað þá þeirrar myntar sem nú er að kyrkja stóran hluta meginlands Evrópu. Og sem önnum kafin er við að skapa þær sömu aðstæður og ríktu á meginlandinu frá 1930, heima hjá herr Hitler og míster Mussolini, sem með tilskipunum reyndi að lækka laun á Ítalíu 1929 og 1934 

Bretland mun ekki geta sagt sig úr Evrópusambandinu, því sú úrsögn yrði langtum erfiðari en sáttmálabreytingar eru meðal 28 og þó-nokkuð áður-sammála ríkja. Þetta yrðu hreinar martraðir sem murka myndu lífið úr hvaða ríkisstjórn Stóra-Bretlands sem er - og var. Stutt er að minnast þess er fjármálaráðherra Bandaríkjanna var af ókjörnu þríeyki hinnar sitjandi nomenklattúru ESB, varpað á dyr í hallarsölum klessuverksins í Brussel
 
Takið ykkur nú vinsamlegast strax saman og látið ekki fráfarandi hamar og sigð ömurleikans reisa neina þá nagla sem þið sjálfkrafa haldið að þið þurfið að negla, einungis vegna þess að þeir séu naglar. Þið eruð engin sigð og því síður neinn hamar, sem heldur að hann í heiminn sé fæddur til að reka alla þá nagla sem reistir eru af hverjum sem er. Þið eigið að þrýsta á hnappinn fyrir þjóðina og losa okkur út úr þessum hörmulega leik. Hildarleik sem Evrópusambandið mun sjá til að fái hár manna að rísa upp af skelfingu á komandi árum varnalegrar örkumlunar meginlandsins á ný
 
Svo eigið þið að reisa stefnumarkandi fánann okkar upp til vesturs. Upp með fánann! Það er ekki eftir neinu að bíða
 
Óska ég hér með hinni nýju ríkisstjórn Lýðveldis Íslendinga velfarnaðar og farsældar fyrir okkur öll
 
Fyrri færsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þetta átti að vera hér, en ekki þar.  

Það er alltof mikið af fólki í stjórnsýslunni sem kann ekki á rofa.  Þeir eru oft merktir með on -- of. Sem þíðir á íslensku, á eða af. eða kveikt eða slökkt, eða drepasér eða kveikjasér svo notuð sé nútíma Íslenska.

Okkur íslendingum var aldrei boðið uppá að velja og þaðan af síður að hafna Evrópusambands um sókn.  Þannig að þau Jóhanna og Steingrímur hljóta að þurfa að borga íslenskri þjóð kostnaðinn við verkefni Össurar nú síðast liðin fjögur ár. 

  

Hrólfur Þ Hraundal, 26.5.2013 kl. 08:52

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er út af mútunum. Þeir fá ekki múturnar ef þeir hætta að "kikja í pakkann."

Ásgrímur Hartmannsson, 26.5.2013 kl. 14:18

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur kærlega fyrir innlitið og athugasemdir

Hræddur er ég um að mútur sé rétta orðið um innlimunarskildingana

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.5.2013 kl. 22:25

4 identicon

Þetta er skrýtin staða nafni minn. Hættulegur leikur og í raun umskipti í stefnu stjórnarinnar á einungis nokkrum klukkustundum. Ég er óhress með þetta.

Sandkassinn (IP-tala skráð) 27.5.2013 kl. 02:07

5 Smámynd: Júlíus Björnsson


coherent

■  adjective
    (of an argument or theory) logical and consistent. ▶able to speak clearly and logically.
    holding together to form a whole.
    Physics (of waves) having a constant phase relationship.
 
Þar af leiddar merkingar í ensku
coherence noun
coherency noun
coherently adverb


© Oxford University Press, 2004

Þjóðverjar skilja coherence :
n. Zusammenhang
n. sammenhæng; konsekvens

Íslendingar skila : samloðun [? eðlisfræðingar?
 

Aðildar samningar eins og EES er kallaði Þroska [sjálfbærni til framfærslu skyldu] ferlar á leið til að verða hæft Meðilima umsækjenda ríki.  Taka upp regluverk EU í grunni, ávinngur samtengingar [hengi] og lánafyrirgreiðslur.    Þessar samtengingar eru  á manna máli langtíma viðskipta samningar milli einka lykill fákeppnisaðila í núverandi grunni og framtíðar grunni EU.  "loðum" Við sjáum frekar viðjur milli lykil eignahaldsaðila: langtíma viðskipta sambönd [PPP tryggð].  þeir sem kunna ekki að lesa IQ ,  skilja ekki að myndmálið [bak við stafina] í efnislegum menntatextum  Frönsku og Þýsku og Ensku verður að vera skýrt í sínu samhengi.   Orð í sumum lögtækum skilgreiningar orðbókum Ensku, Frönsku og þýsku, eru flokkað er eftir skilgreinga notkun sú sem er almennust þurfa innfæddir í besta bekk ekki að læra, hana skilja allir: almennar skoðanir og tilfinningar falla undir meðalgreind svo lýðræði geti átt sér stað.  Síðan er flokkkað niður eftir notkun, heimspekilegum, eðlisfræðilegum og oftast endað á sjaldgjæfustu notkun[ þessa sem vantar yfirleitt í draslið hér] þetta er merkingingar notaðar í toppi Stjórnsýslna, sem byggja á strategy infrastructure og hefðum aftur til Rómverja og Faroa. [rökréttri setningafræði í hugsun]. Eignir geta ekki myndast nema tekjur umfram gjöld í söluskattskyldu rekstrarlegu samhengi erlendis.   PPP er mælkvarði á árs eignamyndun þar sem allt er metið veðhæft við selt framboð.   PPP eftir 1970 er vegið meðaltal af öllu almennu raunvirði að mati markaða heimsins.     Í byrjun 15 eða 16 öld var PPP vörulisti þar sem Nýlenduvelda markaðverð á gull var fóturinn. Ef vantað skipsfarm af baðmull  frá USA , þá var greitt í gulli.   Global fair traite á tölvu öld, misumar ekki með tilliti til bakveða og geta ekki  orði raunveruleg nema öll ríki heims skilja magntölum á öllu nýju seldu hráefni og orku og vinnafli á sínum mörkuðum. Til að reika PPP: vegið meðaltali.  Ísland tryggit ekki valda jafnvægi á Jörðinni. USA stendur sig best í því hingað til.

Í multicultural viðskiptaborgum Nýlenduveldanna áttu margir skattskyldir og því kosningabærir borgar ekki fasteign inn í borginni sjálfri [þar var nánast ekkert framboð er ekki en t.d. í USA ] en bjuggu í nálægð [sjálfþurftat óðöl] kostur á sumrin [skíta fýla] og í leiguhúsnæði innan borga. Faradagar vour vanalega um 1, april. En einmitt vegna stöðugra hækkanna í kauphöllum þá var líka verðbólga stöðug og þá þá þurfti að ráðgera leigu miðað við verðbólgu á leigu tíma. Þá þurfti líka að segja uppleigu samning til að geta hækkað leigu.    Sumir borgarar áttu engin óðil í nálægð borga og urðu að leigja alla ævi. Við erum ekki að tala um fátæklinga þeaa 80% fátætkustu á þessum tíma .  IRR Matrix security bond er einu viðkendu langtíma verðbólgu-trygginar sjóðir utan Íslands. Fylgja raunvirði eftir á , eftir sölu á mörkuðum. Íslendingar fundu upp að hægt væri að verðtryggja allar framtíðar uppskerur og settu þá almennu lög [til geta sagt að væru í samræmi við Danska stjórnskrá], hinsvegar er ekki hægt að setja slík almenn lög í Danmörku þar er verðtyggt í efnilegu raunveruleika, ekki græðgis væntingum einstaklinga með ættir aftur til andlegra fátæklinga.  Increase the Volume of fund [uppsöfnun] hefur enga merkingu ef sjóður er þá þegar IRR mature, við stofnum aðra öruggaÞ miðað við lámarks eiginfé og þroskum gerum auto streamline; eigum fyrir lífeyri í kreppum.  Millifæra milli verðtyggingarveðsafna  innan sama sjóðs er einkenni siðspiltra stjórnssýlu banka og er ekki það sem whole sale Private banking stendur fyrir. Fjarlægja stjórnsýslu fjárhirðanna frá daglegum afskiptum af öruggum rekstri í skjóli regluverks og lögboðins yfirlits [eftirlit utan lögsögu].  Ég tel fullvíst að Björgólfur hafi borgað fullt verð með leynlilegum viðskipta samböndum á sínum tíma.  Það fæst ekkert gefins í heimi Mammons.  EES er búið festa Ísland  inn á svæði EU II næstu öld.  Meðlima ríki EU er sett upp í Pluralisma sem staðfestir sjálfsframfærlsu þjóðanna innan flestra þjóðaríkja líka. Ísland er hefðbundið einnar þjóðar ríki öfugt við flest önnur í EU.    Íslendinga tala eins þeir skilji ekki að fjölmenning myndast alltaf í  margþjóða ríkjum eðlilega.  Mínir dönsku kaupmanna hafnar forfeður, komu frá Suður Noregi og Suður Svíaríki, í þjóðríkjum Þýsklands og Prússland , Belgju, Hollands og Frakklands, á17. og 18 öld. Svo á ég líka Dansk -Danska innbyrðis skylda öldum saman.  Borgarleg hollusta er standa með sinni lögsögu, þjóðar stollt er að skammast sín ekki fyrir sinn uppruna. Suður Ítalir verða móðgaðir ef þú segir þeim að  séu eins og þeir norður frá. þjóðarembingur inna þjóða ríkja er menningar arfleið í EU.    Borgarhollustan er grunvöllur EU hollustunnar.   Portúgalir eru eitt þjóðaríki í EU samhengi og mjög stolltir í því samhengi.  þetta er hliðstætt hreppa rembing á Íslandi. þetta gefur lifinu lit og er skemmtilegt í öllum sínum fjölbreytileika. þýsku þjóðirnar vinna vel saman, allar jafn drambsamar inn á við en sem ein þjóð út á við.
Það er búið að draga upp útlínur nýrra blokka heimsmyndar um 1970.  Ísland er staðsetti inn á EU grunn efnis lögsögu II. það draga  hinar blokkirnar ekki í efa.  Styrkleikur Ísland í EU samhengi er leggja áherslu á við erum fámenn ein þjóð en ekki þjóða ríki. Horfast í augum við núverandi PPP tekjur á íbúa, sem eru nánast það sem kallast eðlilegt í  í Risa þjóða ríkjum EU.  Falið eignarhald erlendra fjárfesta bak við kennitölur Íslenskra eignarhaldsleppaðila er Veldi sem ríkis mennta éliítan [þjóðinn = mannauðurinn] hér, á sínum ekki strategy  grunni getur  ekki unnið. Sviss á ekki bara örugg PPP veð í S-Afríku gull og demants námum og vinnslu. Svigrúm til að breyta ESS regluverki er lítið sem ekkert. Hækka PPP á íbúa er draumur allra núvernadi Plurisma  Meðlima Ríkja. það gerist ekki nema með dugnaði heima hollustu fjárfesta. Fjárfestir hirðir allan langtíma hagnað sinna fjárfestinga  og hefur tíma og þolinmæði til að endurheimta alla upphafs fórnunarkostnaði. Ríki fjárfesta í eigin þegnum hafi þau eigin mynt og varnir gegn óhagstæðri erlendri eftirpurn.  þetta kemur hagfræði ekkert við.  Meðallaun hafa lækkað um 30 % síðustu 30 ár miðað við Meðlima ríki EU að meðaltali.   Verðbætur framtíðar er viðhald eignarhluta  miðað við raunvirðið í framtíðinni og ekki hægt að eignfæra fyrirfram. Commercial banks er því alltaf með max 5 ára verðbætur og fulla aðra áhættu raunvexti.  þess vegna leita vsk. framreiðslu risar eftir ódýra fjámagni í skjóli almenns good will sem þeir hafa í sölusögu.  Ríkis élítan hér hefur ömurlega sölusögu enda byggir hún ekki á material strategy infrastucture frekar á sósial og heimspekilegum fræða grunni.  Kaffhúsa kjaftaði dekurbarnana , frændfólks og systkynna ríkisarfanna.  Litla Gulan hænan er ennþá í full gildi í toppi stöndugra ríkja með sinn eigin orðaforða. þjóðverjar í toppi er gáfaðir hinir eru duglegir eða vonlausir.  faul bezeichnet:
  • mangelnder Wille zu arbeiten, siehe Faulheit
  • Zersetzung organischer Substanz, siehe Fäulnis

    Í nemanda samanburði er einn sem fúl egg [fer ekki upp ] annar er kjötmikill það kemur kjúklingur úr egginu.  
    Þýska er dæmi um margræði sama orðs.  Almenna merking sú veika er Lazy.   Fleißig oder Fleischig hljóðfræðilga er lítil munur kjötmikil eða einbeittur.  

    þýskur húmor er ekki öllum skiljanlegur og því ílengjast þeir húmorslausu ekki í Þýskalandi : maður er manns gaman.

    UK fann upp á magn persónu aflætti af verlferðstekju stofni einstaklinga um 1970 þegar [átti að fækka andlegum  og líkamlegum erfiðstörfum í EU: tölvur og vélar, og flutingur til fyrrverandi nýlenda og mengun með] . Danir líka í vörnum tók þetta upp og Íslendingar [þá með engar skuldsettar fyrrverandi nýlendur] afleiðingar hér látekju keðjur og eignahaldfélög margra látekju keðja til fela einokunar fákeppni ennþá betur.   1970 voru því 80% fátækust hér  að skila hlutfalslega jafn miklu í Velferða skatta  og USA og Svíðþjóð t.d. en í dag minna en sama hlutfall í UK og Danmörku.  Þetta er allt vegna heimspekilegra og sósial mengingar hefða Íslendinga. Allar nýlendur falsa bókhald og réttlæta með að fjárhirðir sé útlendingur . Þess vegn leiðrétta háskólar í  alvöru skatta ríkjum fölsk framtöl sinna þjóða hér áður fyrr.   Miða frekar við veðurfræði og efnfræði rannsóknir á jarðvegssýnum.  Íslenskar bókhaldshefðir eru ergo fals. Grasið er græna hinu megin við lækinn.  Maður hirðir samt sína uppskeru úr eign garði.  Íslenskir fræðingar geta ekki keppt við fræðinga á stöndugum erlendum mörkuðum, þá skortir 1000 ára reynslu,  í hernaðarlegum viðskiptum og veljast ekki með tilliti til IQ. Rök þeirra innfæddu um yfirburða sína síðustu 30 ár ættu að sanna meðalgreinda um vanhæfið. þar er ekki hægt að græða á þælahaldi og orku og hráefnum í grunni í Alþjóðsamhengi, meðan lykil ríki koma í veg fyrir slíka bjartsýni. Upplýstir heilar 24 tíma á sólarhring þurfa enga bjartsýni þeir keyra áfram á stefnufestu eða einurð og einbeitingu. Ríki sem reyna græða á gengismun verða að hafa bolmagn til þess á 30 ára forsendu grunni minnst.   Global faire traite er ekki efnislegur monismi.  Jöfnun CPI neytendakörfu allra jarðarbúa  er frá upphafi 200 ára minnst langtíma markmið í USA og staðfest í Lissabon 2006.  Í öðru lagi eru CPI neytendur ekki 10% ríkustu ríkja elítur Sameimuðuþjóðanna eða úrkastið 10% fátækustu.  Skilja í samhengi grunnskilgreining lögtækra Alþjóða tungumála er ekki hægt fyrir þá sem þekkja ekkert nema Íslensku skilgreiningarnar frá blautu barnsbeini: skilja eins og almenningur heimsins 80% orðforðans.

    Gas er notað til breyta í raforku, USA til tyggja varnir á Atlandhafi og minnka völd Rússa er tilbúið að lækka gunnorku verð í EU, til að kauphallarverðbólga fari ekki úr stöðuleika böndum t.d. í Frakklandi.  Frakkar vegna S-EU eiga erfit með lækka raunvirði kaupmáttar sinna almennu neytenda , sýna meiri hagvöxt en þau sem hafa ekki efni á því. Segir Forseti Frakklands.  Indland, Afríka , Kína , Brasilia hafa engan áhuga að bíða 200 ár. þar er vaxandi eftirspurn eftir eigin hráefnum og Kína fer ekki leynt með að hún á ekki nóg.  Ísland getur ekki grætt á að flytja Íslensk látekju fólki til annarra ríkja, því það er nú þegar að mestu leyti erlent hér.  Lögaðilar borga skatta í gestgjafa landi og taka arð í samræmi við skattregluverk í hverju ríki. Íslendingar eiga að auka gjaldeyriris tekjur af hávirisauka framleiðu sem er ekki undir yfirliti AGS og Commission Brussel, inn á élítu markað allra ríkja í smá veltum sem mælst ekki í hagstærðum þess ríkja marktækt.  Setja varnir við óbeinu eignarhaldi hér  láta ekki selja hingað  inn aðföng langt yfir heimsmarkað verðum, þá miðað við gæði=raunvirði að mati 80 % íbúa jarðar. Free market er að raunvirði ráðist eftir greiðlur í reiðufé á almönnum mörkuðum. Raunvirði á elítu mörkuðum er absurt.   þar selst best það sem örugglega selst ekki almennt.

    Geirar söluskttsskildra lögaðil borga fyrir opinbera þjónus. þessi fákeppni í grunn max 2,0% . allir um 7,0% og svo mismunda eftir eðli.  Hótel og veitinga geirierldins borgar 7,0% ein og allir en 7,0% til að fjármagna þjónustu sem dregur að ferðmenn.  Stjórsýslan: einskalingarnir  fá sitt fasta reiðfé í samræmi við viðhld á gæði skilgreindrar þjónustu. Íslend er vitskert. 

Júlíus Björnsson, 27.5.2013 kl. 03:44

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Gunnar Waage

Við skulum vona að svo sé ekki um pott búið

Júlíus

Mér fannst nú athugasemdin um pönnukökurnar betri hjá þér

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 27.5.2013 kl. 04:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband