Leita í fréttum mbl.is

Gjaldeyrishöft á evrusvæðinu - og þau eru lögleg

Þá vitum við það. Gjaldeyris-höft, fjármagns-höft, reiðufjár-höft og greiðslu- og millifærslu-höft á evrusvæðinu eru lögleg. Og þau ná ekki bara yfir peningafærslur gagnvart umheiminum, heldur einnig yfir peningafærslur innanlands. Og þau urðu allt í einu eitthvað svo "óhjákvæmileg" þar sem bankar evrusvæðisins eru eins og þeir eru; fjármálastofnanir í kálgarði ríkis án myntar. Það er að segja; eins og sparigrís í kyrkislöngufaðmi uppþornaðs ríkissjóðs án myntar. Því urðu þau lögleg, eins og hjá óðum-hattara. Hefðu menn lesið letrið á 500 þúsund blaðsíðna reglugerðum og lögum Evrópusambandsins, þá kæmi þetta mönnum ekki svona á óvart. En þetta er einungis byrjunin

Mr. Dijsselbloem also said the European Commission legal services had told him that capital controls imposed--though increasingly relaxed--in Cyprus to stem massive capital flight were WITHIN EUROPEAN UNION LAW (WSJ)

 

Í 500 þúsund blaðsíðna laga- og reglugerðum Evrópusambandsins og sáttmálum, er einnig gert ráð fyrir aðkomuplássi fyrir nýja og stórvirka einræðisherra. Þeir verða að vera stórir því verkið er orðið svo stórt og um sig gripið hjá umboðs- og ábyrgðarlausri stóðelítu sambandsins

Margar blaðursíður eru þar einnig fyrir nýjan ófrið og nýjar stórfenglegar rústir hins nýja kommissaraveldis Evrópusambandsins. Og sem þá á ný verður hinn frjósami heiti jarðvegur rotnunar í hjarta meginlandsins. Jarðvegur fyrir nýmóðins stjórnmálahreyfingar á borð þær gömlu; nasisma, fasisma og sovétkommúnisma. Þetta stendur allt í sáttmálum Evrópusambandsins. Lesi maður sáttmálið rétt. Þegar þangað er komið verða þeir sem voru ekki með í þessu, látnir gefa sig fram og rétta upp vinstri eða hægri arm, og helst um leið að rétta þá fram. Restin verður síðan; þið vitið hvað

Lawson awesome 

Ég sé sem betur fer að Nigel Lawson hefur heldur betur tekið við sér. Hann misskildi ERM á örlagaríkri stund. Hann misskildi það sem lá á bak við ERM-forstofuna. Enda var þá ekki búið að teikna draumahúsið frá 1978 fast á þá stofu, Evrópustofuna. Ekki opinberlega. Og þau mistök áttu eftir að verða Bretlandi dýr. En frú Margaret Thatcher hafði hinn djúpa skilning á þessu öllu. Hún stóð vaktina og hafði séð teikningarnar. Hún skildi bæði blindskrift, dulmál og sáttmál

Það er awesome að Lawson skuli vera kominn aftur. Því fagna ég. Hann var og er ávallt hennar brilliant Lawson. Hann vill að Bretland segi sig úr Evrópusambandinu; og því fyrr, því betra

Fyrri færsla

Bandaríska sendiráðið við Laufásveg taki við sér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kosturinn við að kæfa allt i skrifræði er að enginn hefur úthald til að lesa öll þessi ósköp sem auðveldar svo aftur bjurokrötunum að koma markmiðinu i gegn. Voila, hlekkir og fótajárn og allt löglegt.

Ragnhildur Kolka, 12.5.2013 kl. 08:16

2 identicon

The Nine Phases of the Euro Project

1. Uncontrollable euphoria
2. Unbound expectations
3. Calm optimism
4. Cool objectivity
5. Discreet distancing
6. Grave disappointment
7. Total confusion
8. Search for scapegoats
9. Awards to non-participants

Pétur D. (IP-tala skráð) 13.5.2013 kl. 00:47

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir

Einmitt Ragnhildur 

Evrulottótöluna Númer-9 sem Davíð nefnir; "þeir sem voru ekki með í þessu" - fer að koma upp, hvað úr hverju. Kannski aðeins nokkur ár í hana. Þá munu þeir sem ekki voru með í þessu fá eignarréttinn. Og nota hann. 

Evrulottótöluna Númer-10, þorir maður því varla að hugsa út í. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2013 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband