Leita í fréttum mbl.is

Evrópusambandið krabbameinsvaldandi mein

Hlutfall atvinnuleysis í 28 löndum ESB október 2012

Mynd: Úr svartbókhaldseríu hagstofu ESB.
Nýjasta myndin í þessari fjöldaseríu Evrópusovétsambandsins er útkomin; out now! 
 
Fyrstu tíu árin efaðist maður. Á fimmtánda árinu varð efinn að vissu. Evrópa er virkilega með krabbamein og það heitir Evrópusambandið. Næstu tíu árin fóru í að loka niður, pakka saman og að læra að lifa með tuttugu og fimm ára tómið og koma sér burt. Já, ég eyddi tuttugu og fimm árum á meginlandi Evrópu. Þessi heimshluti varð að einu stóru æxli undir og fyrir tilstilli fótaburðar nómenklattúru Evrópusovétsambandsins. Og ekki mátti heimshlutinn við meiru af því sama sem þar hafði svo oft farið fram - og alltaf aftur - upp á bak hennar. Restin, fimm hundruð milljónir manna, komast þó ekki. Svo mikið er víst. 

Stofnfélagar í Vinstri grænum hvelli eru nú að komast á fjórtánda árið í sjúkrasamlagi sínu við formann þann. Þeir eru að nálgast fimmtán ára vonbragðið. Bráðum verður líkneskið byggt og leshringlaga bekkur stofnaður; bæði fyrir framan og aftan samfylkt kremlið. Umhverfis blámennin úr glæplygasagnfræðum Maxíms af Gortkví er byggt.

Írinn Kevin O’Rourke segir einmitt í bloggfærslu þriðjudagsins að Evrópusambandið sé krabbameinssjúklingur. Atvinnuvonleysið er þar svo algert, svo krónískt og svo ólæknandi. Sjúkrahús Evrópusambandsins var hins vegar opinberlega útskýrt fyrir almenningi sem meðferðarstofnun við hjartaáföllum. Þar liggur hún öll í meðferð við hjartadauða á meðan krabbameinið breiðir sig út um allan líkama hinna tuttugu og átta útlima sem verið er að skera af, því þeir standa á útendaborðhaldi ESB-ríkisstjórnar Össurar Jóhönnu Steingríms. Fyrirmyndin er Coma. Lygaþvættingur frá upphafi. Evrópusambandið er upphafið handfangið á endaloki Evrópu.

Á meðan skriftar einn og oft sami evrusjúklingurinn í skyggnilýsingum fyrir lesendum hins eina dagblaðs landsins, að allir þeir sem læsir eru, séu einmitt fábjánasöfnuðurinn sjálfur. Að það sé íslenska krónan sem sé satan (í oss). Ekki kom nú meira í ESB-bleyju þeirra í þetta skiptið. Þessa þrúgandi útskitnu. Í tveggja herbergja vosbúð sambandsins, með tuttugu og sex klósettum, lyktar illa

"I was interested to see a Bible by your bed. You actually find time to read it?"
 
"I sure do. Every goddamn day."
 
- George S. Patton 
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er málefnalegur og vel skrifuð grein, ég er ekki í neinum vafa um það á hvaða grundvelli pistlahöfundur byggir mál sitt. Sé einhver í vafa um það afhverju höfundi er illa við ESB þá er af nægu að taka þegar rýnt er í röksemdir hans fyrir skoðunum sínum.

Mér finnst ég vera klárari nú en ég var áður en ég las þessa innihaldslaus, rakalausu þvælu

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 12:01

2 identicon

ég er líka mjög góður íslensk...

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 12:01

3 identicon

Pistlahöfundur held ég að sé þess fullviss, og það með réttu... að samkeppnisstaða Evrópur myndi batna ef að við öll milliríkjaviðskipti væru rukkaðir tollar, vaskur og vörugjöld... Þá fyrst gæti Evrópa farið að keppa við ódýra markaði austur Asíu

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 12:03

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Bjarni 

Þetta þitt er eins og talað frá hjarta herra Arnaud Montebourg, sem er iðnaðarráðherra Frakklands. Hann segir að fjölríkja (multilatheral ESB) viðskiptasamningar séu gagnslaust þvaður og krefst því gagnkvæmra (bilatheral) viðskiptasamninga eins lands beint við annað land.

Svo segir hann enn fremur í þessi víðtali sínu við Reuters að Evrópusambandið þurfi á mynt að halda sem líkist Bandaríkjadali, en ekki því þýska marki sem evrusvæðið hefur núna til að rústa sér með. 

Og ég sem hélt að geðklofi væri búfjársjúkdómur. Á borð við gin og klaufaveiki. En þetta getur greinilega líka hlaupið í heilana á heilum herjum embættismanna- og nómenklattúru elítueinveldis Evrópusambandsins.

Ég held ekki að til sé nein lækning við þessum sjúkdómi. Sem betur fer. Látum þetta fólk vinna áfram við verkefni sín.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.1.2013 kl. 12:53

5 identicon

Ert þú þeirrar skoðunar Gunnar að samkeppnisstaða Evrópuríkja myndi batna ef ESB liðaðist í sundur?

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 16:35

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Jón Bjanri

Annaðhvort liðast ríkin í sundur eða ESB liðast í sundur. Innbyrðis samkeppnisaðstaða landanna við Miðjarðarhafið og Frakklands var afar slæm utan sem innan meginlandsins áður en þau tóku upp evru. En við evruupptökuna fóru þau úr öskunni í eldinn.

Samkeppnisaðstaða Þýskalands var líka hörmuleg innan Evrópu og sem utan hennar áður en þeir fengu ECB sem einkasogrörsseðlabanka Þýskalands ofan í hin 14 ríki evrunnar.

Sjúklingurinn veldur áfram vonbrigðum eftir að ESB stækkaði og evrulyfið kom í heiminn. Hann passar ekki við lyfið. Þó hafa engar stökkbreytingar átt sér stað á Evrópu, a.m.k ekki hin síðustu nokkur hundruð ár. Svo mun heldur ekki verða í framtíðinni. En evrópska apótekið er ekki orðið neitt smá batterí nú, ekki frekar en fyrri daginn. Eitt tröllvaxið Evrópusovétsamband. Stækkar og stækkar.

Og nú segir og ítrekar Brussel-belgurinn að það sé einmitt mismunurinn á samkeppnisaðstöðu og samkeppnishæfni á milli hagkerfanna í myntbandalaginu sem sé að eyðileggja myntina. Hafið þið heyrt það betra?

Það sem myntin átti að lækna er nú að eyðileggja sjálfa myntina. Þetta svarar til þess að læknir skammar sjúkling sinn fyrir að vera veikur, því veiki hans eyðileggi virkni lyfsins sem hann gaf sjúklingunum við sjúkdómnum. Læknirinn segir því nú að sjúklingurinn verði fyrst að verða heilbrigður til að geta þolað lyfin sem áttu að lækna sjúkdóminn sem lyfin voru framleidd til að lækna. Halló !!!! 

Samkeppnisaðstaða Þýskalands myndi þó hætta að verða þannig að landið geti mergsogið þau lönd sem læstu eru í handjárnum við það í gegnum hið læsta gengisfyrirkomulag myntbandalagsins (ERM I+I+I)

Í það heila og stóra væri kannski hægt að bjarga því sem eftir er af Evrópu ef ESB gerði það sama og Mikhail Gorbachev gerði svo stórmannlega á sínum tíma: hann fórnaði völdum nómenklattlúru Sovétsins fyrir landið sitt. Hann leysti upp hin glórulausu Sovétríki gangster_elementa stjórnmála. 

En embættismannaveldi ESB mun ekki fórna neinu. Það mun ríða 28 ríkjum Evrópusambandsins til heljar.

Svo; já. Það myndi bjarga Evrópu ef þetta Evrópusovétsamband sem það er orðið, myndi liðast í sundur og hverfa. Þá gæti orðið smá von fyrir lýðræðið í sumum löndum heimsálfunnar. 

Gunnar Rögnvaldsson, 10.1.2013 kl. 21:41

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

min saga er að ég efastis meir og meir og varð hrædd 1995 ...þanngað til ég flutti í 6 ar til DK (evrópusambandið) og svo 2 ár í NL (evropusambandið) og komst að þvi að ég var full og fyllt af áróðri, sem byggist á hræðslu, ekki SAMNINGUM

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.1.2013 kl. 23:42

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið Anna

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2013 kl. 00:23

9 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.1.2013 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband