Leita í fréttum mbl.is
Embla

Jólagjöfin: Ný Andspyrnuhreyfing í fæðingu á Ítalíu?

Mynd; Þessi hér íslensku villtu bláber og þessi hér íslensku villtu jarðaber, verða á jólaborðinu á eftir lambahryggnum sem hékk í fimm daga. Jólin koma. Ég óska ykkur hér með gleðilegrar jólahátíðar.
 
Er míster Silvio Berlusconi að mynda þá nýju andspyrnuhreyfingu sem taka mun mölbrotna Ítalíu út úr evrunni?; eftir 10 ára dvöl ítalska lýðveldisins í kvalarakvörn myntbandalags Evrópusambandsins. Út úr dómsdagsvél hinna nýju sovétríkja Evrópu þýskarafrakka? Taka Ítalíu úr evru-handjárnunum?
 
Samsteypa "hinna viljugu" í "húsi frelsisins" (Casa delle Libertà) og "aðskilnaðarsinnanna" í (Lega del Norte) ásamt "fimm stjörnu hreyfingu" (Movimento 5 Stelle) Beppe Grillo er að myndast í korridor sérstaks stjórnmálavængs, sem sameinast mun undir einu og aðeins einu stefnumáli; að koma Ítalíu út úr helvítis evrunni hvað sem það kostar. Framhaldslíf fyrir land Ítala er undir þessu eina stefnumáli komið.
 
Enginn hagvöxtur hefur verið á Ítalíu í meira en 10 ár og hefur evran og tilvistarkreppa hennar nú teppabombað eldsneytissölu sem knýr vélknúin ökutæki ítalska hagkerfisins aftur á bak til ársins 1960, að magni til. En samt eru úr þessu litla magni innkreistir skattar sem aldrei að magni og verðmætum til hafa verið hærri í sögu landsins.
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þakka þér fyrir alla þína góðu pistla a árinu, Gunnar.

Gleðileg jól.

Ragnhildur Kolka, 24.12.2012 kl. 10:49

2 Smámynd: Jón Baldur L'Orange

Gleðileg jól bloggvinur og kærar þakkir fyrir fróðlega pistla á árinu sem er að líða.

Jón Baldur L'Orange, 24.12.2012 kl. 14:46

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gleðileg jól

Ég þakka ykkur fyrir

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.12.2012 kl. 17:30

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Gleðileg jól kæri Gunnar. Hvernig geymirðu bláberin þín svo þau líti svona út í desember?

Halldór Jónsson, 26.12.2012 kl. 23:10

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já og Bravó fyrir Berlusconi!

Halldór Jónsson, 26.12.2012 kl. 23:10

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gleðileg jól kæri Halldór minn og okkar

Frostið tók þau. Líta kannski ekki alveg svona út núna. En ansi nálægt því. Jarðaberin át ég strax. Verð að viðurkenna það. En þau voru villt. Ekki áttavillt, heldur villt!

Þakka þér og ykkur innlitið

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.12.2012 kl. 01:14

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gleðileg Jól! Mr.Gunnar og allir hér. Hjartans þakkir fyrir skrifin þín. Gott að þurfa ekki að skammast sin,þótt banki upp á um miðja nótt. Allar gáttir opnar í boði tækninnar, svo tilbúin að borga fyrir það.

Helga Kristjánsdóttir, 27.12.2012 kl. 05:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson
Búseta: Ísland.

Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækjarekstur í DK/ESB frá 1989 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com
Er hvorki á Facebook né Twitter

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.