Leita í fréttum mbl.is

Honecker-hagdeild DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkur

 

ERICH HONECKER

DDR var Marxískt–Lenínískt ríki sósíalista í Austur-Þýskalandi og samfélag svikara. Systurríkisútvarp hins íslenska DDRÚV í Austur-Þýskalandi hét "Rundfunk der DDR". RDDR sendi út lygar, hálflygar og hálfsannleika vafinn inn í orðagjálfur alvörunnar áratugum saman. Fés alvörumenna við undirleik þokulúðrasveita vinstrimanna, sem fóðraðar voru með fé, svita og lífum almennings, var eitt helsta valdaverkfæri hinnar sitjandi nómenklattúru einræðisins ofan á borgurum þessa ríkis sem annarra austar í Austeritíu.

Skransala sannleikans í Austur-Þýskalandi er dauð, en DDRÚV lifir enn og sendir út áróður, hálflygar og hálfsannleika í þágu sósíalista á Íslandi, undir sturtubaði peninga sem fossað er úr vösum almennings með ríkisvaldi.

"Fréttatími" gærkvöldsins í DDRÚV sjónvarpaði því að "verðlag" á Íslandi hefði hækkað miklu meira en á hinum Norðurlöndunum. Þessu til vitnis var dregin fram Hagtöluárbók Norðurlanda 2012. Í næstkomandi júnímánuði mun DDRÚV þar af leiðandi segja þjóð sinni frá því að dagurinn hafi lengst, en sólin því miður hækkað mest hér á landi. Þetta er jú DDRÚV allra landsmanna. Mið stöð séðs & heyrðs í öllum málum íslenska Lýðveldisins og á fullum launum hjá skattgreiðendum þess; Rundfunk der DDRÚV.

Konsumentprisindex- Livsmedel och alkoholfria drycker 

Á blaðsíðu 122 í þessari Árbók hagtalna Norðurlanda 2012, sem út kom í nóvember mánuði þessa árs, fann DDRÚV mynd sem þjónar málstað sósíalista og Marx–Lenínista í NiðurÍslands leshring þeirra umhverfis ítroðsluumsókn sömu sósíalista og kommúnista inn í sovétríki Evrópusambandsins. Þessi mynd sýndi veðlagsvísitölu. Og bara verðlagsvísitölu. Ekkert annað. Hún sýndi og sýnir enn ekki neina launavísitölu.

Því hef ég útbúið eftirfarandi yfirskilvitslegu mynd sem sýnir BÆÐI verðlagsvísitölu OG launavísitölu í einu —og sama— vetfanginu. Myndin segir okkur að laun hafa hækkað mikið umfram verðlagið sem DDRÚV spilaði svo svart á skjánum fyrir peninga þína;

Launa og verðlagsþróun á Íslandi frá 1995 til og með 2011 

En þetta er ekki nóg. Því að á þar næstu blaðsíðu í Árbók hagtalna Norðurlanda 2012, er önnur mynd. Sú mynd sem sýnir okkur hvar aðvífandi og utanaðkomandi geimvera myndi fá mest fyrir fjármuni sína ef hún skyldi ákveða að lenda til að kaupa sér mat eða hins vegar alla framleiðslu, vörur og/eða þjónustu hagkerfisins - á einhverju af öllum hinum fimm Norðurlöndum Norðurlanda. Þarna á myndinni eru tvær súlur (ein súla plús önnur súla eru tvær súlur). Þetta er kallað verðlags- og/eða jafnvirðisgengi, og/eða kaupmáttarjöfnuður og/eða á ensku; Price levels

Price levels. 2011 

Þarna eru kaupmáttur utanaðkomandi á milli hagkerfa gerður samanburðarhæfður og verðbólga og gengismismunur þurrkuð út úr myndinni. Verðlag fyrir utanaðkomandi verður þar með samanburðarhæft. Þetta er nytsamt fyrir þá sem vilja vita hvert ódýrast sé að ferðast, eða staðsetja og framkvæma fjárfestingar. Því þessar tölur segja einnig í einu og sama vetfanginu hvar samkeppnishæfasta hagkerfið er að finna. Fjárfestar vilja helst festa fé sínu í samkeppnishæfu umhverfi. Þeir festa helst ekki fé sínu til að tapa því á gólfið eða ofan í ríkissjóð sem er að verða gjaldþrota sökum þess að allar skattatekjur hans fara í það að greiða öllum atvinnuleysisbætur, eða sökum þess að öll þjóðin vinni við DDRÚV'leg skemmdarverk á öllum grunnstoðum Lýðveldisins.

Það sem er merkilegt við þessa mynd er sú staðreynd að sjálfstæðri krónu Lýðveldis Íslendinga hefur tekist halda samkeppnisstöðu íslenska hagkerfisins betri þegar á þarf að halda, en tekist hefur á öllum hinum Norðurlöndunum. Þrátt fyrir mikla uppgangstíma, ríkidæmisverðbólgu, bankahrun og verðbólguskot í kjölfar þess.

Íslenska krónan er gírkassi hagkerfisins. Hann virkar svona; Þegar hagkerfið stendur frammi fyrir brattri brekku þá skiptir gírkassinn um gír til að landið okkar komist upp brekkuna. Til að geta skipt um gír þá verður maður að hafa sinn eigin gírkassa. Það er ekki hægt að notast við gírkassa í annarra þjóða bíl sem læstur er inni í bílskúrsbygginu í öðrum löndum, eins og fleiri en fjórtán á sig skitin hagkerfi evrusvæðis þurfa að gera; í kjölfar þess er allt springur í loft upp á meðan brekkan er fjarlægð með handafli launþega sem handjárnaðir eru við ECB-sogrör aukaseðlabanka Þýskalands í mittelpúnkteraðri Evrópu.

Og að lokum; hér er svo það sem DDRÚV gat viljandi ei lesið; 

  • 1) Livsmedel är särskilt dyrt i Norge och Danmark. I de två länderna låg prisnivån på livsmedel år 2011 52 procent (Norge) och 23 procent (Danmark) över EU-15-genomsnittet. Finland och Island var Nordens billigaste länder när det gäller livsmedel.
  • 2) Prisskillnaderna mellan de nordiska länderna är mindre när det gäller den samlade prisnivån, d.v.s. priserna på samtliga varor och tjänster som ingår i BNP. Här är Island det billigaste landet med en prisnivå år 2011 som ligger 8 procent över EU-15-genomsnittet, medan Norge är dyrast med en prisnivå 41 procent över EU-15-genomsnittet.  

Þetta er á sömu blaðsíðu og ein súla plús önnur súla eru tvær súlur; númer 124.

Svo er bara að hækka skattana sem kyndir hitaveitu helvítis og kála Lýðveldinu með því að ljúga því inn í Evrópusambandið í þágu félaganna í Samfyklingarsamsteypunni og Vinstri grænum. Þá er þetta komið hjá DDRÚV;

  • UMSÁTUR DDRÚV UM SEÐLABANKANN
  • (búsáhalda?) BYLTINGARÁRÓÐUR DDRÚV
  • KOSNINGAVAKA DDRÚV GEGN LÝÐRÆÐINU
  • ICESAVE DDRÚV I + II + III GEGN ÞJÓÐINNI
  • SAMHERJUN DDRÚV á SJÁVARÚTVEG
  • PLATESTÍNA DDRÚV
  • HATUR DDRÚV Á BANDARÍKJUNUM OG REPÚBLIKÖNUM
  • EVRÓPUSAMBANDSÁRÓÐUR DDRÚV
  • FINNSKA LEIÐ DDRÚV OG JÓHÖNNU
  • ESB-STYRKJASUKKSÁRÓÐUR DDRÚV
  • DDRÚV MÁLPÍPA VINSTRISTJÓRNAR
  • FÍASKÓ-GREINING DDRÚV Á FJÁRMÁLABÓLUNNI
  • FÍASKÓ-GREINING DDRÚV Á MYNTBANDALAGINU (EMU)
  • FÍASKÓ-GREINING DDRÚV Á EVRÓPUSAMBANDINU
  • KOSNINGAANDVAKA DDRÚV GEGN FORSETA
  • STJÓRNARSKRÁRMÁL DDRÚV GEGN ÞJÓÐINNI

Listinn er endalaus og allur í eina átt

DDRÚV ER MÁLPÍPA OG KRÓNÍSKT KOMMA- OG SÓSÍALKRATABÆLI sem enginn Íslendingur ætti að þurfa að borga eina krónu fyrir

Af hverju fær þetta fólk að halda þessum einka-DDRÚV-leshring vinstrisins yfir þjóðinni áfram?? Þetta er skandall

SIGUR RUV.002

 

Fyrri færsla

Ég dreg ég hér með ummæli mín til baka


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bragi

Já, mér blöskraði mikið þegar ég sá þessa frétt fyrr í kvöld. Þetta er ólíðandi ástand og hefur verið ansi lengi, maður á hreinlega ekki til orð lengur. Galinn fréttaflutningur. Það er vonandi að sem flestir sjái í gegnum svona áróður. Styttist í þingkosningar, vonandi losnum við við þetta helsjúka stjórnarfar sem hér ríkir.

Gott hjá þér að vekja athygli á þessu, það eru ekki margir sem myndu nenna að standa í því.

Bragi, 11.12.2012 kl. 02:01

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Gunnar.

Það er þannig með blessaða áróðurinn, að fólk trúir því sem það vill trúa.

En fáheyrt er að erlent vald skuli stýra ríkisfjölmiðli sjálfstæðs lands.  

Svona er máttur gullsins.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.12.2012 kl. 09:52

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ma-ma-maður er bara orðlaus. Engum heilvita manni gæti dottið i hug að hægt væri að komast upp með þessar lygar, en a nauðungarstöðinni þykir sjálfsagt að bera þetta a borð. Þar er skákað i þvi skjóli að enginn lesi frumtextann. Allt er þetta gert til að auka a óánægju fólks með matarkörfuna svo tæla megi það til fylgis við ESB aðild. Ódýru kjúklingabringurnar ætla að duga þeim drjúga.

Kærar þakkir fyrir að koma þessu a framfæri, Gunnar, þvi þetta er nefnilega ekki beinlínis nattborðslesning als þorra landsmanna.

Ragnhildur Kolka, 11.12.2012 kl. 10:15

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar,

Þú ert sannkallaður Ármaður Íslands !

Það eru fáir nú orðiuð sem tala kjark og þor í þessa þjóð. Á henni bylja opinberar úrtölur og heimsendaspár heldur en að nokkur ráðamaður reyni að tala fyrir málstað hennar og möguleikum. Kúba norðursins og hvaða skattyrði þeir völdu öll til að keyra okkur ofan í svaðið og inn í ESB. Hvað hét flokkurinn hans Vidkuns sáluga?

Ég er að verða uppgefinn að verja þessa stofnun RUV, sem ég taldi nauðsynlega sem mótvægi við Baugsveldið í fjölmiðluninni. Rauðgrauturinn þykkist alltaf og útákastið verður æ minna og rjóminn aldrei neinn nema svona svartagall eins og þú lýsir.

Ég tek undir með Kolka.

Halldór Jónsson, 11.12.2012 kl. 11:45

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Bravó Gunnar!

Það er greinilega endalaust hægt að ljúga að fólki um hvað mikil paradís sé hér i ESB.

Þessi áróðursmaskína í Efstaleitinu er stórhættuleg lýðræði og frjálsri hugsun. Fólk sem vinnur þarna er amlóðar og margt af því greinilega ekki læst eða þjálfað í heimildarýni. Sumt af þessu liði er jafnvel ráðið þarna upp skyldleika, eins og t.d. stjúpsonur Jóhönnu, aðal Hamasfréttasnápurinn. Verra getur þetta ekki orðið

Vonandi sjá sem flestir athugasemd þína. Ég fékk kaffið "i den gale hals" þegar ég var að hlusta á þessar fréttir á RÚV við morgunverðarborðið í morgun.

ÞAÐ ER DÝRARA AÐ LIFA í DANMÖRKU - Á ÖLLUM NORÐURLÖNDUNUM - EN Á ÍSLANDI!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.12.2012 kl. 13:31

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir
 
“Hið sanna markmið áróðurs eins og hjá DDRÚV er ekki að sannfæra né hvað þá að telja fólki trú um eitthvað, nei, hið sanna hlutverk áróðurs er að búa til heilsteyptan jafnsléttan opinberan jarðveg þar sem fyrstu sprotar hugsana trúvillinga munu birtast sem brak og brestir mishljómsins | Óði hattarinn hefði verið eins og heima hjá sér með DDRÚV í Evrópusambandinu

Landflótta íslensku tyrkirnir sem reyna fyrir sér sem t.d. undirverkatakar og slíkir í Noregi koma ekki beinlínis hoppandi af gleði í heimsókn yfir Atlantsála til safna að sér íslenskum og jafnvel útlenskum mat á viðráðanlegu verði ofan í ferðatöskur og kassa sem síðan er lagt úr vör með frá KEF til Noregs.

Hátekjudanskt vinafólk mitt segist ekki lengur hafa efni á því að versla í neinu nema grafhvelfingum lágvörudraslsverslana, sem þau áður versluðu aldrei í.
 
Kveðjur til ykkar
 

Gunnar Rögnvaldsson, 11.12.2012 kl. 19:37

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hjartans þakkir Gunnar! Stoppum þetta áróðurslið,sagan gæti endurtekið sig,magnast í gamla brjálæðið. Ekki er svo langt síðan að unnið var markvisst að því að eyða -sérstæði-þeirra sem kúga skyldi,með þeirri aðgerð er framtakssemin einnig drepin niður.

Helga Kristjánsdóttir, 11.12.2012 kl. 22:12

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Aftur þakkir Gunnar ármaður. Er ekki hægt að fá sannar fregnir með dæmum úr Danmörku frá því fólki sem upplifir ranveruleikann þar og lífskjörin.Hvad koster en öl,pölse og bröd? Hvad er skatten?

Halldór Jónsson, 12.12.2012 kl. 21:45

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Svar mitt til þín Halldór er hér:

Spurt er: Er ekki hægt að fá sannar fregnir úr Danmörku? 

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 13.12.2012 kl. 04:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband